Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 52
ÍÞRÓTTIR
52 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANKEPPNI stang-
arstökks kvenna á heims-
meistaramótinu í frjáls-
íþróttum innanhúss fer
fram í Birmingham fyrir
hádegi í dag. Þórey Edda
Elísdóttir er meðal kepp-
enda og verður eflaust að
stökkva nærri 4,40 m til
þess að komast í úrslitin
sem háð verða um miðjan
dag á morgun, þar sem
bíður hörð keppni við
Stacy Dragila, Bandaríkj-
unum, Rússana þrjá, Svetlönu Feof-
anova, Tatyanu Polnova og Jelenu
Isinbaeva og Þjóðverjann Aniku
Becker. Allar hafa þær stökkið yfir
4,65 m innanhúss síðustu
viku.
Líklegt má telja að
keppnin um verðlaunin
standi á milli fyrrgreindra
fimm kvenna. Þórey á sjö-
unda besta árangurinn í
vetur af þeim sem spreyta
sig í stangarstökkskeppn-
inni, 4,50 m, en þeim ár-
angri náði hún á móti í
Grikklandi á dögunum.
Fróðlegt verður að fylgj-
ast með hvort Þóreyju
takist að bæta tveggja ára gamalt
Norðurlandamet sitt, 4,51, en það
hlýtur að vera stefna hennar í og
með á mótinu.
Saumar Þórey að
Norðurlandametinu?
FÓLK
LÁRUS Orri Sigurðsson gæti
fengið það hlutverk að hafa gætur á
Eiði Smára Guðjohnsen á morgun.
WBA tekur þá á móti Chelsea í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
og líklegt er að Lárus Orri haldi
stöðu sinni í byrjunarliði WBA.
Spurning er hinsvegar hvort Eiður
Smári kemur aftur inn í byrjunarlið
Chelsea en hann kom inn á sem
varamaður í síðasta leik, bikarslagn-
um gegn Arsenal.
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton,
leiðir lið sitt í sannkölluðum fallslag í
dag. Bolton sækir þá Sunderland,
botnlið deildarinnar, heim í dag en
segja má að leikurinn sé síðasta
hálmstrá Sunderland sem er sjö
stigum á eftir Bolton, fjórða neðsta
liði deildarinnar. Mick McCarthy,
sem tók við liði Sunderland í vik-
unni, stýrir því í fyrsta skipti.
STOKE City hefur krækt sér í enn
einn lánsmanninn fyrir lokaslaginn í
ensku 1. deildinni. Íslendingafélagið
fékk í gær miðjumanninn Mark Wil-
son, 24 ára, lánaðan frá Middles-
brough. Wilson kom til Middles-
brough frá Manchester United fyrir
tæpum tveimur árum en hefur að-
eins 12 sinnum verið í byrjunarliði
félagsins.
WILSON, sem lék þrjá deildaleiki
með Manchester United og spilaði
með enska 21-árs landsliðinu, fer
beint inn í leikmannahóp Stoke sem
mætir hinu öfluga liði Sheffield
United á heimavelli í dag. Stoke þarf
á stigum að halda í hinum harða
fallslag við Grimsby, Brighton og
Sheffield Wednesday, sem öll spila á
heimavelli í umferðinni í dag.
RAY Lewington, knattspyrnu-
stjóri Watford, hefur áhyggjur af því
að sínir menn hafi hugann of mikið
við bikarkeppnina en þar eru Heiðar
Helguson og félagar komnir í undan-
úrslit. Watford sækir Grimsby heim
í dag og Lewington segir að nú verði
leikmennirnir að gleyma bikarnum
um sinn því liðið geti enn blandað sér
í baráttuna um sæti í úrslitakeppni 1.
deildarinnar.
EL-HADJI Diouf, leikmaður Liv-
erpool, hefur beðist afsökunar á
framferði sínu í fyrrakvöld þegar
hann hrækti á áhorfanda á leik Liv-
erpool gegn Celtic í UEFA-bikarn-
um í Glasgow. Gerhard Houllier,
knattspyrnustjóri Liverpool, segir
framkomu leikmannsins óviðunandi
og að það sé synd að hún hafi skyggt
á frábæra frammistöðu liðsins í
leiknum.
DIOUF og Houllier hafa báðir gef-
ið lögregluyfirvöldum í Glasgow
skýrslu um atvikið. Diouf á yfir höfði
sér bann í Evrópukeppninni og má
búast við því að missa af síðari leikn-
um við Celtic, og leikjum Liverpool í
undanúrslitum keppninnar, komist
enska liðið þangað. Liverpool hefur
þegar sektað hann um sem nemur
tveggja vikna launum.
Fyrsti lands-
leikurinn
innanhúss
GRAHAM Taylor, knatt-
spyrnustjóri Aston Villa, hef-
ur gefið til kynna að „synda-
selirnir“ úr síðasta leik, Dion
Dublin og Jóhannes Karl
Guðjónsson, fái tækifæri til
að sýna sig og sanna þegar
lið hans tekur á móti Man-
chester United í úrvalsdeild-
inni í dag.
Dublin og Jóhannes voru
báðir reknir af velli í sögu-
legum nágrannaslag gegn
Birmingham í síðustu viku
og eiga báðir leikbann yfir
höfði sér, Dublin öllu lengra.
Taylor hefur rætt málin
rækilega við þá báða og gaf
Jóhannesi skýr skilaboð um
að hann vilji ekki sjá frekari
tæklingar á borð við þá sem
kostaði hann rauða spjaldið.
Óvíst er að Nicky Butt
verði með Manchester Unit-
ed í dag en hann meiddist í
leik liðsins við Basel í meist-
aradeildinni í vikunni. Tveir
aðrir miðjumenn, Roy Keane
og Juan Sebastian Veron,
eru þegar úr leik vegna
meiðsla. Manchester United
þarf nauðsynlega á sigri að
halda í slagnum við Arsenal
um enska meistaratitilinn.
Arsenal á reyndar einnig
fyrir höndum erfiðan útileik
í dag, gegn Blackburn, og
sama er að segja um New-
castle, sem sækir Charlton
heim.
Jóhannes
og Dublin
fá tæki-
færi
Góð vörn skilaði FH gríðarlegamikilvægum sigri á toppliði
Vals á Hlíðarenda í gærkvöldi, 23:26.
Hafnfirðingarnir
komust með sigrin-
um upp fyrir Gróttu/
KR í áttunda sætið
en hafa leikið einum
leik meira. Baráttan um deildar-
meistaratitilinn opnaðist hins vegar
upp á gátt því eftir sigur ÍR í Vest-
mannaeyjum eru þeir jafnir Val að
stigum, Haukar eru hins vegar
tveimur stigum þar á eftir en eiga
leik til góða.
Fyrri hálfleikur var allan tímann í
járnum, liðin skiptust á um að skora
og jafnt var á flestum tölum. Vals-
menn urðu þó ávallt fyrri til að skora
en gestirnir frá Hafnarfirði voru ekki
lengi að svara fyrir sig.
Markús Máni Mikaelsson lék fyrri
hálfleik af miklum krafti og skoraði 6
af 11 mörkum Vals í hálfleiknum og
Roland Eradze átti stórleik í mark-
inu, en hann varði 11 skot í hálfleikn-
um. Markaskorunin var jafnari hjá
FH, Arnar Pétursson skoraði nokk-
ur mikilvæg mörk í hálfleiknum.
Magnús Sigmundsson, markmaður
FH, byrjaði leikinn einnig vel. Hann
varð þó minna áberandi er líða tók á
hálfleikinn.
Meiri hraði var í leiknum í upphafi
seinni hálfleiks en hafði verið í þeim
fyrri. Valsmenn höfðu frumkvæðið,
en þegar þeir höfðu náð tveggja
marka forystu, 15:13, skelltu FH-
ingar vörn sinni í lás. Valur skoraði
aðeins eitt mark á 12 mínútna kafla á
meðan FH átti ekki í miklum vand-
ræðum í sókninni. Arnar Péturson
fór á kostum í hálfleiknum og skoraði
grimmt og Magnús í markinu varði
eins og berserkur. Þegar hálfleikur-
inn var hálfnaður voru gestirnir
komnir með þriggja marka forystu,
16:19, og ákváðu Valsmenn að taka
leikhlé. Það dugði skammt því þeir
réðu ekkert við varnarleik FH-inga,
sem juku forystuna jafnt og þétt.
Mest náðu gestirnir 5 marka forystu
þegar um 8 mínútur voru eftir af
leiknum og það bil var of stórt fyrir
Val að brúa. Niðurstaðan var því
óvæntur en sanngjarn sigur FH,
23:26.
Það var varnarleikurinn umfram
annað sem skilaði FH þessum góða
sigri. Arnar átti stórleik fyrir FH-
inga í gærkvöldi og skoraði 8 mörk
og Magnús átti góðan dag fyrir aftan
góða vörn og varði 15 skot. Roland
Eradze varði einnig 15 skot í leiknum
en af þeim voru aðeins 4 í seinni hálf-
leik. Markús Máni var atkvæðamest-
ur Valsmanna með 7 mörk, flest af
þeim í fyrri hálfleik, en aðrir fundu
sig ekki eins vel og oft áður í vetur.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
FH, var að vonum sáttur við frammi-
stöðu sinna manna í leiknum: „Vilji,
góður varnarleikur og góð mark-
varsla í kjölfar hans var lykillinn að
þessum sigri. Þó að Roland hafi varið
vel í fyrri hálfleik náðum við að hrista
það af okkur og bæta nýtingu okkar í
sókninni,“ sagði Þorbergur eftir leik-
inn.
Þrjú rauð í Víkinni
Í gær mættust í Víkinni Víkingur ogÞór Akureyri og höfðu gestirnir
betur, 39:36.
Víkingar byrjuðu
leikinn en Þórsarar
mættu miklu bar-
áttuglaðari og voru
fljótir að taka for-
skotið. Þeir héldu því svo út allan
leikinn. Munurinn hélst í 3–4 mörk-
um í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik
juku Þórsarar muninn í 6 mörk og
við það sat þar til á 15. mínútu síðari
hálfleiks, þá náðu Víkingar að klóra í
bakkann og komust í 28–30. Þórsarar
hertu þá á vörninni og juku forskotið
aftur upp í 6 mörk. Víkingarnir náðu
ekki að halda í baráttuglatt lið Þórs-
ara og svo fór að norðanmenn fóru
með sigur af hólmi, 36:39.
Þrír fengu að líta rauða spjaldið
hjá Hlyni Leifssyni dómara en ann-
ars var ekki mikið um brottrekstra.
Markahæsti maður leiksins var
Goran Gustic úr liði Þórs með 15
mörk og þar af þrjú víti. Markahæsti
leikmaður Víkinga var Davíð Guðna-
son með 10 mörk.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Magnús Sigurðsson skoraði fjögur mörk þegar FH lagði Val á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Frækinn sig-
ur FH-inga
FH lagði Val að velli, 26:23, á Hlíðarenda og eygja Hafnfirðingar enn
sæti í úrslitakeppninni. Valsmenn fengu hins vegar ÍR að hlið sér í
efsta sætið og þar gætu Haukar bæst í hópinn í dag leggi þeir Fram.
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar
Eva Ösp
Bergþórsdóttir
skrifar
FYRSTI knattspyrnulands-
leikurinn sem háður er innan-
húss hér á landi verður háður í
Egilshöll í dag kl. 13. Þá mæt-
ast landslið Íslands og Svíþjóð-
ar í kvennaflokki, skipuð leik-
mönnum 21 árs og yngri, og
hefst leikurinn klukkan 13.
Þetta er 11. viðureign þjóð-
anna í þessum aldursflokki og
hefur Ísland ekki mætt neinni
þjóð oftar, en aðeins tekist að
sigra einu sinni í 10 leikjum til
þessa. Það var á Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi árið 1995.
Ásgerður H. Ingibergsdóttir,
Hjördís Símonardóttir og Olga
Færseth tryggðu þá Íslandi
sigur, 3:2.
Þórey Edda