Morgunblaðið - 15.03.2003, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÁ sem langar að sjá Adam Sandl-
er í góðri grínmynd ættu að bíða ró-
legir eftir næstu mynd hans. En þá
sem langar að sjá hann í góðu drama
ættu að sjá kvikmyndina Örvita af
ást. Sumir hlæja reyndar við það eitt
að berja manninn augum. Hvort sem
þeir tengja ósjálfrátt við hann hlátur,
eða langar bara svo mikið til að hlæja.
Mér finnst myndin hins vegar
mjög átakanleg og sorgleg innan um
vissulega fyndin atriði. Sandler sýnir
á sér nýja hlið. Þótt hann sé mjög lík-
ur sinni gömlu góðu persónu – sem
einnig er oftast örvita og ástarþurfi –
þá hefur hún öðlast dýpt í sögu And-
ersons, og Sandler á ekki í vandræð-
um með að túlka hana.
Aðalsöguhetjan heitir Barry Egan.
Hann rekur litla heildsölu, er sérvitr-
ingur og einfari, bróðir sjö systra
sem bera enga virðingu fyrir honum.
Sem gerir að hann hefur, án þess að
gera sér grein fyrir því, lokað á allar
tilfinningar, sem brjótast út í reiði-
og grátköstum. Það reynist því erfitt
að kljást við það þegar virkilega in-
dæl stúlka, Lena (Emily Watson)
sýnir honum bæði áhuga og virðingu.
Þótt Lena sé aðalviðfangsefni
Barrys er Emily Watson eiginlega í
litlu hlutverki, sem er synd þótt hún
standi auðvitað fyrir sínu. Örvita af
ást beinir nefnilega sjónum að innri
manni aðalsöguhetjunnar, er þroska-
saga Barrys og hvernig honum tekst
að losna úr eigin fangelsi. Þessi per-
sónulega saga er á allan hátt miklu
íburðarminni en fyrri myndir leik-
stjóra og látlausari kvikmyndagerð.
Myndrænt er hún hrárri og bein-
skeyttari, um leið og Andersen notar
kalt og gerilsneytt umhverfið og oft
handhelda myndavélina til að túlka
líðan Barrys. Sömuleiðis ráða litir og
fiðlur ríkjum í rómantískustu atrið-
unum! Tökur eru oft langar, tónlist
og hljóð af súrrealískara taginu og
stemningin yfir allt mjög sérstök.
Anderson er enn að reyna nýja hluti
og marga það ýkta að jaðrar við til-
gerð. Yfirleitt fer tilgerð í mínar fín-
ustu, en hér átti bara aðalkarakter-
inn í mér hvert bein og hjartað líka
þegar ég lifði mig inn í sögu hans og
líðan.
Myndin er líka algerlega ófyrirsjá-
anleg – sem er alltaf meiriháttar
kostur – með aðrar eins furðupersón-
ur við stýrið. Það er ekki laust við að
hún sé spennandi líka með undir-
fléttu fullri af undarlegum glæpa-
hópi, þar sem Philip Seymour Hoff-
man fer fremst í broddi fylkingar á
sinn einstaka hátt.
En fyrst og fremst er Örvita af ást
virkilega falleg ástarsaga með sönn-
um gildum, þar sem Lena tekur
Barry eins og hann er, á hans eigin
forsendum. Eftir á spyr ég mig hvað
hún sá við hann, en það skiptir eig-
inlega ekki máli. Hún er bara gam-
aldags góð og indæl stúlka, og það er
það sem hann þurfti. Alvöru ást.
Alvöru ást
KVIKMYNDIR
Smárabíó
ÖRVITA AF ÁST/PUNCH DRUNK LOVE
Leikstjórn og handrit: Paul Thomas And-
erson. Kvikmyndataka: Robert Elswit. Að-
alhlutverk: Adam Sandler, Emily Watson,
Philip Seymour Hoffman og Luis Guzmán.
95 mín. USA. Columbia Tristar 2002.
Ástfangin uppfyrir haus.
Hildur Loftsdóttir
lau 15/3 kl. 21, UPPSELT,
fim 20/3 kl. 21, AUKAS. Nokkur sæti
föst 21/3 kl. 21, UPPSELT,
lau 22/3 kl, 21, Örfá sæti
fim 27/3 kl. 21, AUKAS. Örfá sæti
föst 28/3 kl, 21, UPPSELT
lau 29/3 kl, 21,UPPSELT
föst 4/4 kl, 21, Nokkur sæti
lau 5/4 kl, 21, Laus sæti
fim 17/4, SJALLINN AKUREYRI
lau 19/4, SJALLINN AKUREYRI
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR
FJÓRUM DÖGUM FYRIR SYNINGU
Stóra svið
PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Frumsýning fi 20/3 kl 20 UPPSELT
2. sýn fi 27/3 kl 20 gul kort
3. sýn su 30/3 kl 20 rauð kort
4. sýn fi 3/4 kl 20 græn kort
5. sýn su 6/4 kl 20 blá kort
fi 10/4 kl 20
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed Wubbe
5. sýn sun 16/3 kl 20 blá kort
Su 23/3 kl 20,
Lau 29/3 kl 20
Fö 4/4 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Í kvöld kl 20,
Fö 21/3 kl 20,
Lau 22/3 kl 20,
Fö 28/3 kl 20,
Lau 5/4 kl 20
Lau 12/4 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 16/3 kl 14,
Su 23/3 kl 14
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20, Fö 21/3 kl 20, Mi 26/3 kl 20,
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Í kvöld kl 20,
Su 16/3 kl 20, Fö 21/3 kl 20, Fö 28/3 kl 20
RED RUM TÓNLEIKAR
Írsk-frönsk-kanadísk-finnsk danskvæði og söngvar
Matti Kallio o.fl.
Su 16/3 kl 16:00
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 22/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Í dag kl 14,
Lau 22/3 KL. 14, UPPSELT
Lau 29/3 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Su 23/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
15:15 TÓNLEIKAR CAPUT OG BENDA
Í dag kl 15.15
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýningardaga.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Sími 562 9700. beyglur@simnet.is
„Engum er hollt að hlæja
samfellt í lengri tíma“
S. H Mbl
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Fim 20/3 kl 21
Fös 21/3 kl 21
Fös 28/3 kl 21
Fim 3/4 kl 21Síðustu
sýningar
sýnir
Herra Maður
leikari: Gísli Örn Garðarsson
Leikstjóri: Egill H. A. Pálsson
næstu sýningar:
sun. 16. mars kl. 20
mán. 17. mars kl. 20
Ath. aðeins þessar einu sýningar.
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Lau. 15. mars kl. 20. örfá sæti
Sun. 16. mars. kl. 20. örfá sæti
Sun. 23. mars. kl. 20. örfá sæti
Sun. 30. mars. kl. 20.
TÓNLEIKUR
eftir Stefán Örn Arnarson
og Pétur Eggerz
2. sýn. sun. 16. mars kl. 16
3. sýn. sun. 23. mars kl. 16
4. sýn. sun. 30. mars kl. 16
SNUÐRA OG TUÐRA
eftir Iðunni Steinsdóttur
sun. 23. mars kl. 14 laus sæti
SKUGGALEIKUR
eftir Guðrúnu Helgadóttur
sun. 16. mars kl. 14 laus sæti
HEIÐARSNÆLDA
eftir leikhópinn
fös. 21. mars kl. 10 uppselt
sun. 30. mars kl. 14
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
Miðasala 5523000 - www.madeinusa.is
SÝNT Í LOFTKASTALNUM
Næstu sýningartímar
þri 18.3 kl. 20 Aukas. Nokkur sæti
fös 21.3 kl. 20 Lokas. Örfá sæti
Síðustu sýningar
SÖNGLE
IKUR
EFTIR
JÓN
GNARR
Alltaf á þriðjudögum