Morgunblaðið - 15.03.2003, Qupperneq 57
Frida
Á heildina litið kraftmikil og litrík kvikmynd
sem veitir ævintýrakennt yfirlit yfir ævi Fridu
Kahlo.(H.J.) Regnboginn.
Didda og dauði kötturinn
Didda er níu ára gömul Keflavíkurmær sem
gengur á milli bols og höfuðs á glæpalýð í
Bítlabænum. Góður leikur, hollt, gott og
gamaldags barnagaman. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
Ofurhugi (Daredevil)
Affleck er borginmannlegur í titilhlutverki
ófrumlegs ofurmennis en brellur og útlit
ur áfram í kvennaliði þegar hann er rekinn úr
NBA. Mun skárra en það hljómar. (S.V.) Sambíóin.
Kalli á þakinu
Ágætis smábarnamynd gerð eftir sögu Astrid
Lindgren, um skemmtilegan karl sem kann
að fljúga. Handbragðið er ágætt en myndin
er ekki jafngóð og bækurnar. (H.L.) Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó.
Öldugangur (Blue Crush)
Hér ríkir brimbrettarómantík með raunsæis-
legum undirtóni þó.(H.J.) Sambíóin.
vandað og skemmtanagildið vel yfir með-
almennskunni. (S.V.) Smárabíó, Regnboginn.
Á gægjum (I Spy)
Wilson og Murphy leika skemmtilegar and-
hetjur í þessari grín-njósnamynd. Myndin
sjálf hefði hins vegar mátt vera mun frumlegri
og fyndnari þótt hún læði fram á manni ein-
staka brosi. (H.L.) Smárabíó, Borgarbíó.
Ingiríður Eygló
(Juwanna Mann)
Körfuboltakappi klæðist kvenfötum og held-
Gullplánetan
(Treasure Island)
Skemmtilegar og frumlegar persónur í geggj-
uðu umhverfi þeysast um himingeiminn í
spennandi og dramtískri leit að gulli. Fyrir
alla fjölskylduna. (H.L.) Sambíóin, Reykjavík, Keflavík, Akureyri.
Njósnakrakkarnir 2
(Spy Kids 2)
Njósnakrakkarnir, foreldrar þeirra, afar og
ömmur í miklum Bond-hasar og laufléttri fjöl-
skylduskemmtun. (S.V.) ½
Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó.
Tveggja turna tal
(Lord of the Rings: The Twin
Towers)
Millikafli stórvirkis Tolkiens og Jacksons
gnæfir yfir aðrar myndir síðasta ár, mikilfeng-
leg sagnagáfa þeirra skapar eitt magnaðasta
ævintýri kvikmyndasögunnar. (S.V.)
Smárabíó.
Aðlögun (Adaptation)
Mjög óvenjuleg kvikmynd, fersk, frumleg og
áhugaverð. Sannarlegt gleðiefni.(H.L.)
Háskólabíó, Sambíóin.
Chicago
Kynngimögnuð og kynþokkafull söng- og
dansamynd þar sem Zellweger, Zeta-Jones
og síðast en ekki síst Richard Gere fara ham-
förum í svellandi kvikmyndagerð leikhúss-
verksins. (S.V.) ½
Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó
Lilja að eílífu (Lilja 4-ever)
Ein átakanlegasta og sorglegasta mynd sem
fram hefur komið lengi, hvergi sést í ljós-
glætu. Þart er hægt að hugsa til þess hversu
margar konur og mörg börn lifa svona von-
lausu, undankomulausu og frelsissviftu lífi.
En ætli það sé ekki einmitt það sé Moodys-
son vill að við gerum – hugsum smá?
½(H.L.)
Háskólabíó
Maður án fortíðar
(Mies vailla menneisyyttä)
Maður sem misst hefur minnið er kúnstug
andhetja í vankaðri jaðarveröld utangarðs-
manna og hjálpræðishersmanna. Sem er
blákaldur raunveruleikinn í spéspegli meist-
ara Akis. (S.V.) ½
Háskólabíó
Örvita af ást
(Punch Drunk Love)
Algjörlega ófyrirsjáanleg mynd en þó fyrst og
fremst virkilega falleg ástarsaga með sönn-
um gildum.½(H.L.)
Smárabíó.
Nói albínói
Frumleg og vel gerð mynd í alla staði sem
gerist í einangruðu sjávarþorpi þar sem
óvenjulegur uppreisnarmaður á í stríði við
menn og máttarvöld. Magnað byrjendaverk.
(S.V.) ½
Háskólabíó.
Gengi New York-borgar
(Gangs of New York)
Metnaðurinn og hæfileikarnir hefðu tvímæla-
laust notið sín betur hefði Scorsese farið
styrkari höndum um hina áhugaverðari þræði
sögunnar, en á heildina litið er þetta mögnuð
kvikmynd. (H.J.) Laugarásbíó, Smárabíó.
Varðandi Schmidt
(About Schmidt)
Harla óvenjuleg og athyglisverð umfjöllun um
lífsviðhorf manns sem er að hefja eftirlauna-
árin og verður að horfast í augu við erfið
vandamál tengd þeim aldri. Vitræn, drama-
tísk, kaldhæðin, vel skrifuð og leikin. (S.V.)
Laugarásbíó.
Sambíóin, Háskólabíó.
Tveggja vikna
uppsagnarfrestur
(Two Weeks Notice)
Samleikur þeirra Hugh Grants og Söndru
Bullock er frábær í þessu ferska innleggi í
annars þreytta kvikmyndagrein. (H.J.) Hringurinn (The Ring)
Þéttur, óvenjulegur hrollur, blessunarlega
laus við blóðslabb og ódýrar brellur en virkjar
ímyndunarafl áhorfenda. (S.V.) Gríptu mig ef þú getur
(Catch Me If You Can)
Þeir eru allir í toppformi; Di Caprio sem barn-
ungur svikahrappur; Hanks sem FBI-maður-
inn á hælum hans og Walken sem lánleys-
inginn faðir pilts. Frábær endursköpun
sjöunda áratugarins og myndin sú fyndnasta
frá Spielberg. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 57
Jarðarför stórlaxins
(Big Shot’s Funeral)
Gamanmynd
Kína/Hong Kong 2001. Skífan VHS. Öll-
um leyfð. (95 mín.) Leikstjórn og handrit
Xiaogang Feng. Aðalhlutverk Donald
Sutherland, You Gen, Rosamund Kwan.
HUGMYNDIN á bak við þessa
undarlegu mynd er alls ekkert galin;
að varpa ljósi á vesturvæðinguna í
Kína og bauna á hversu Kínverjar eru
ginnkeyptir fyrir öllu því sem vest-
rænt er, með tilheyrandi merkja-
snobbi og viðlíka prjálskotinni yfir-
borðsmennsku. Fínt satíruefni – og
það algjörlega óháð viðhorfi áhorf-
andans til þess hversu velkominn
kapítalisminn er í þessu lífseiga
kommúnistaríki. Verst hvað úrvinnsl-
an er lömuð og laus í reipunum.
Sutherland leikur vestrænan stór-
lax, sérvitran Hollywood leikstjóra
sem er að endurgera mynd Bertol-
uccis um Síðasta keisarann – vegna
þess að honum þykir
Bertolucci hafa reynt
of mikið að höfða til
vestrænna áhorf-
enda. Þegar leik-
stjórinn geispar
næstum golunni fær
hann innfæddan
tökumann sinn til að
græja fyrir sig jarð-
arförina. Hugmyndaríkur tökumað-
urinn breytir henni þá á svipstund í
æsilegri auglýsingavettvang en Sup-
er Bowl og NBA úrslitin samanlagt,
þar sem ráðgert er að hver flík á lík-
inu og allt þar í kring verði kirfilega
merkt hæstbjóðandi vörumerki –
enda á allt að vera í beinni.
Eins og fyrr segir skemmtilega
skringileg hugdetta en hreint merki-
lega ófyndin og langdregin. Myndbönd
Kína í klóm
kapítalismans
Skarphéðinn Guðmundsson
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is