Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 59
HINN þekkti plötusnúður
Josh Wink hristi upp í hlut-
unum á dansgólfi Astró í
gærkvöldi þar sem hann spil-
aði ásamt Grétari og nokkr-
um félögum frá Breakbeat.is.
Wink er aðeins 32 ára
þrátt fyrir langan aldur í
bransanum. Hann er ung-
legur á að líta og geislar af
heilbrigði, nokkuð sem mað-
ur býst yfirleitt ekki við hjá
manni í hans starfi. Ástæðan
er væntanlega sú að Wink er
þekktur fyrir að lifa heilsu-
samlegu lífi; hann neytir
hvorki kjöts né mjólkurafurða
og er á móti eiturlyfjanotkun. Enda er hætt við
að maður sem lifði lífinu til hins ýtrasta entist
ekki lengi í búrinu.
Wink er sérlega viðkunnanlegur og svarar öll-
um spurningum af einlægni. Hann virðist hafa
raunsæjar hugmyndir um heiminn og vera
óspilltur af velgengni og enda-
lausum ferðalögum.
Vinnur með Gus Gus
Hann hefur áður komið til
Íslands og næst á dagskrá hjá
honum er að vinna með ís-
lenskri hljómsveit. „Ég var
rétt að byrja á endur-
hljóðblöndun fyrir Gus Gus.
Þau báðu mig að endur-
hljóðblanda „Desire“ en mig
langaði frekar að gera „Call of
the Wild“. Það er uppáhalds-
lagið mitt af plötunni,“ segir
Wink, sem er meðfram þessu
að vinna að nýrri plötu með
eigin tónlist.
„Ég ólst upp með iðnaðar-
tónlistinni og tónlist áttunda
áratugarins,“ segir Wink aðspurður hvort endur-
vakning tónlistar frá þessu tímabili hafi haft áhrif
á hann. „Mér er sama um þessa tísku núna,“ seg-
ir hann. Wink er þó ekki með öllu ósáttur við
þessa bylgju, sem kallast „electroclash“, en hann
endurhljóðblandaði nýlega lag fyrir Ladytron.
„Mér finnst þetta bara hafa gerst of hratt og vera
of tengt einhverri tískubylgju.“
Meiri dansmenning í Evrópu
Hann segir það ólíkt að spila fyrir Evrópubúa
og Bandaríkjamenn. „Það er meiri menning í
kringum þessa tónlist í Evrópu. Sem dæmi styð-
ur útvarp í Bandaríkjunum ekki við raftónlist.“
Wink kýs frekar að spila fyrir minni hópa en
stærri. Hann tekur sem dæmi staðinn Fluid í
heimaborginni Fíladelfíu, þar sem hann spilar
reglulega, en staðurinn tekur aðeins tæplega 200
manns. „Ég hef spilað þar lengi.“
Wink bendir á að England sé mjög
áhrifamikið land í danstónlist, bæði hvað
varðar útgáfu tímarita og tónlistar. Hon-
um finnst þó einum of langt gengið í sumum
tímaritunum. „Hverjum er ekki sama þótt Judge
Jules hafi keypt sér nýjan bol?“
segir hann og talið berst að svo-
kölluðum súperstjörnum í
plötusnúðaheiminum, sem líkj-
ast einna helst rokkstjörnum
og spila á súperklúbbum.
„Súperklúbbarnir hafa aldrei
verið stór hluti af mínu lífi og
ég hef aldrei litið á mig sem súperstjörnuplötu-
snúð. Ég kaus ekki þessa leið. Ég hefði getað lát-
ið öll lögin mín hljóma eins og stærstu smellina
og orðið stór stjarna. Ég vil gera það sem mig
langar til en ekki það sem fólkið vill að ég geri.
Reyndar fer ég milliveginn, því maður verður
víst að lifa af þessu.“ Hugsa sér ef hans þekktasta
lag, „Higher State of Consciousness“, hljómaði til
eilífðarnóns á öldum ljósvakans. Væri það himna-
ríki eða helvíti?
TÖKUM á myndbandi við Evró-
visjónlag Íslendinga er lokið og
verður það frumsýnt í þættinum
Laugardagskvöld með Gísla Mar-
teini eftir viku. Lagið verður flutt á
ensku í keppninni og er mynd-
bandið því sungið á ensku. Heitir
„Segðu mér allt“ nú „Open Your
Heart“. Höfundar enska textans
eru söngkonan Birgitta Haukdal og
Sveinbjörn I. Baldvinsson en hann
gerði einnig textann við „All out of
Luck“ sem Selma Björnsdóttir
gerði frægt í Evróvisjón um árið.
Ragnar Bragason leikstýrði
myndbandinu, sem var tekið upp
síðastliðinn fimmtudag. „Það er
enginn söguþráður í því sem slíkur
þar sem áherslan er lögð á að
kynna þessa söngkonu og sýna út-
lendingum hvað hún sé sæt og
klár,“ segir leikstjórinn en nú er
einungis eftirvinnslan á myndband-
inu eftir.
Myndbandið var tekið upp í
gamla Sjónvarpshúsinu við Lauga-
veg 176. „Við vorum að rifja upp
gömlu stemmninguna,“ segir Ragn-
ar.
„Þetta verður spilað í öllum þeim
löndum, sem taka þátt,“ segir hann
og ítrekar að það hafi verið gaman
að gera myndbandið. „Þetta var
mikið fjör. Maður fyllist gífurlegu
þjóðarstolti að fá að taka þátt í
Evróvisjón,“ segir Ragnar
og finnst þetta mikill
heiður.
„Fólk erlendis heyr-
ir lagið fyrst í þessu
myndbandi þannig
að það skiptir máli
að það virki,“ segir
Ragnar stoltur.
„Það verða allir að
fá að taka þátt í þessu einhvern tím-
ann.“
Hann segir að stemmningin í lag-
inu sé nánast óbreytt eftir að það
fæddist á ensku. „Það er róið á
sömu miðin þar.“
Jónatan Garðarsson, formaður
dómnefndar
Söngvakeppni Sjónvarpsins, for-
keppni Evróvisjón 2003, fer út með
myndbandið í næstu viku. „Fulltrú-
ar allra sjónvarpsstöðvanna koma
saman og afhenda sín gögn. Öll lög-
in eru síðan send í einni samsend-
ingu til allra sjónvarpsstöðvanna.
Eftir það er ákveðið hvernig staðið
verður að kynningu í hverju landi
fyrir sig,“ útskýrir hann.
Eins og flestir vita hefur kynn-
ingu hérlendis verið háttað þannig
að 3–4 lög hafi verið sýnd saman á
kvöldi vikuna fyrir lokakeppnina.
Jónatan segir að svo verði einnig
nú.
„Margir hafa sama háttinn á og
við en aðrir búa til heilu þættina um
Evróvisjón. Það er mismunandi
hvað menn ganga langt í þessu,“
segir Jónatan og bætir við að í
þættinum At verði sýnt frá
vinnslu myndbandsins „Open
Your Heart“ og skyggnst aðeins
á bak við tjöldin.
Búið að taka upp myndband við Evróvisjónlag Íslendinga
Segðu mér allt á ensku
Ragnar Bragason leikstýrir mynd-
bandinu við Evróvisjónlag Íslands í
ár, sem kallast ekki lengur „Segðu
mér allt“ heldur „Open Your Heart“.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 59
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk kvenna
Nicole Kidman9
Margverðlaunuð stórmynd frá leikstjóra
Billy Elliot. Missið ekki af þessu
einstæða meistaraverki.
Ein rómaðasta mynd seinni ára
„Ein besta mynd ársins“
Fréttablaðið
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i 12
HJ MBL HK DV
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.
kvikmyndir.com
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2 og 4 með ísl. tali. – Tilboð kr. 400
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10.10.
Skemmtilegasta rómantíska
gamanmyndin síðan
Pretty Woman!
Rómantík,
grín og góð
tónlist í
frábærri
mynd!
Tilnefningar til Óskarsverðlauna,
þ.á.m. besta mynd og besti leikstjóri10
Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese
HJ MBL
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 16 ára.
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Plötusnúðurinn Josh Wink heimsækir landið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Engin súperstjarna
ingarun@mbl.is
Josh Wink er unglegur á að líta og
geislar af heilbrigði, eitthvað sem
maður býst yfirleitt ekki við hjá
manni í hans starfi.
www.icelandair.is
Alltaf ódýrast á Netinu
Morgunblaðið/Kristinn