Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LISTAHÁTÍÐ ungs fólk verður
haldin í Höllinni í Vestmannaeyjum í
dag. Að sögn Selmu Ragnars-
dóttur, framkvæmdastjóra há-
tíðarinnar, er þetta í annað
sinn, sem hátíðin er haldin en
vel þótti takast til í fyrra.
Listahátíðin er hugs-
uð sem forvarnar-
verkefni og hvatn-
ing til þeirra
krakka, sem
hafa áhuga á
list og sköpun.
Þátttakendur
eru allir á aldr-
inum 12 til 16 ára
og eru uppákomurn-
ar margvíslegar.
Þema hátíðarinn-
ar er náttúran og
hefst gamanið kl.
14.15 og lýkur
fyrri hluta
skemmtunar-
innar kl. 17.
Boðið verður upp á nokkur dans- og
tónlistaratriði og enn fremur
verður fatahönnunarkeppni
8., 9. og 10. bekkjar. Hljóm-
sveitin Brutal kemur einn-
ig fram.
Um kvöldið er síðan
haldin skemmtun
fyrir 8.–10. bekk í
tengslum við
listahátíðina með
leik, söng og
dansi auk fatahönn-
unarsýningar. Verður
húsið opnað kl. 19.45.
Hin vinsæla hljóm-
sveit Írafár lýkur síðan
hátíðinni með balli, sem stend-
ur til miðnættis.
Listahátíð ungs fólks í Vestmannaeyjum
Ungt fólk hvatt
áfram í listinni
Hljómsveitin Írafár spilar
á balli fyrir 8.–10. bekk í
Vestmannaeyjum í kvöld
í tengslum við lista-
hátíðina.Morgunblaðið/Árni Torfason
Á NÝLIÐINNI Vetrarhátíð í
Reykjavík var í fyrsta sinn hægt að
hringja í styttur borgarinnar og
komast að því hvaða raddir bærast í
höfðum þeirra. Samtals voru 557
hringingar í stytturnar meðan á há-
tíðinni stóð og af þeim voru 154 í Jón
Sigurðsson sjálfan.
Fram kemur í tilkynningu frá
Höfuðborgarstofu að þessi „sómi Ís-
lands, sverð og skjöldur“ hafi verið
„langvinsælastur“. Næst á eftir hon-
um kom annar forystusauður, Ing-
ólfur Arnarson, með 95 hringingar.
Þeir sem notuðu tækifærið og
slógu á þráðinn til fyrirmennanna
Jóns og Ingólfs og félaga þeirra í
styttum bæjarins; Pilts og stúlku,
Skúla fógeta, Hannesar Hafsteins,
Bertels Thorvaldsen, Jónasar Hall-
grímssonar, Ólafs Thors, Kristjáns
níunda, Adonis, Pallas Aþenu eða
Friðriks Friðrikssonar komust til
dæmis að því að Piltur og stúlka eru
ennþá ástfangin, Ólaf Thors langaði
aldrei að verða ráðherra, Ingólf Arn-
arson dreymdi framtíðardrauma og
talaði upp úr svefni og Pallas Aþenu
leiðist hræðilega.
Höfundur styttuhugsananna er
Jón Hallur Stefánsson en leikarar
eru þau Björn Thors, Bryndís Ás-
mundsdóttir, Davíð Guðbrandsson,
Esther Talía Casey, Ilmur Krist-
jánsdóttir, María Heba Þorkelsdótt-
ir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og
Þorleifur Örn Arnarson úr útskrift-
arhópi leiklistardeildar Listaháskóla
Íslands.Verkefnið var styrkt af Ís-
landssíma, Ríkisútvarpinu og Lista-
safni Reykjavíkur.
Næst verður hægt að ná sambandi
við styttur bæjarins á Menningar-
nótt, sem haldin verður 16. ágúst.
Morgunblaðið/Kristinn
Hér vefja andstæðingar
Kárahnjúkavirkjunar styttuna
í álpappír.
Jón Sigurðsson vinsælastur
Stytturnar tala aftur á Menningarnótt
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bæta við
sýningum á sænsku kvikmyndinni
Lilja að eilífu eftir Lukas Moodys-
son. Myndin var sýnd á nokkrum
sýningum á Norrænum
bíódögum um síðustu
helgi, nær alltaf fyrir
fullu húsi, að sögn
Christofs Wehmeiers
hjá Sambíóun, eins að-
standenda Filmundar og
Norrænu bíódaganna.
Upphaflega stóð til að
myndin yrði einvörðungu sýnd á
Norrænu bíódögunum en vegna
fjölda áskorana hefur verið ákveðið
að bæta við sýningum á þessari um-
töluðu kvikmynd. Þó aðeins yfir
helgina.
„Norrænu Bíódagarnir gengu
mjög vel. Í raun hefðum við átt að
hafa þetta í viku en svona er þetta.
Hinsvegar höfum við ákveðið að
sýna Lilju að eilífu áfram fram yfir
helgi til að svara eftir-
spurninni. Síminn hefur
hreinlega ekki stoppað
hjá okkur,“ segir Christ-
of í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er ekki á hverj-
um degi sem kvikmynd
er tekin til umfjöllunar á
Alþingi, eins og gerðist í vikunni,
sem er náttúrlega til marks um þá
gríðarlegu athygli sem myndin hefur
vakið.“
Aukasýningar á Lilja að eilífu
verða í Háskólabíói í dag og á morg-
un. Myndin er með enskum texta.
Lilja sýnd lengur
Frá höfundum og leikstjóra
„Being John Malkovich“.
ÓHT Rás 2
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
RadíóX
1/2 Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
Aukasýningar vegna fjö
lda áskoranna, um helg
ina
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
1/2 SK Radíó X
Kvikmyndir.com
SV MBL
HK DV SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14.
2Tilnefningar til Óskarsverðlaunabesti leikari í aukahlutverki: Christopher WalkenBesta Tónlist - John Williams
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14.
7 Bestamyndársins BestileikstjóriRoman Planski Besti leikari íaðalhlutverki:Adrian Brody
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
/ .L. l.
/ . .
/ í
vi y ir.
Lækkað verð!
Miðaverð kr. 750.
LILYA 4-EVER
Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 2.Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6 og 10.30. B. i. 16
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 og 3.40 ísl.tal / Sýnd kl.2 og 4 ísl. tal. / Sýnd kl. 2 ísl. tal. / Sýnd kl. 2, 4 og 6 ísl. tal.
1/2 H.L. Mbl.
1/2
Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.