Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 1
Bandaríkjaforseti segir
„vel miða“ í herförinni
Bandaríkjamenn staðfestu að „inn-
an við tíu“ hermenn hefðu fallið í orr-
ustunni við Nasiriyah, og fleiri særst.
Tólf væri saknað, og talið að þeir
væru í höndum Íraka. Liðsafla þess-
um hefði verið gerð fyrirsát. „Þetta er
erfiður dagur fyrir bandamenn,“
sagði undirhershöfðinginn Vince
Brooks.
Írakar fullyrtu að 25 bandarískir
og breskir hermenn hefðu fallið í
átökunum um borgina, margir hefðu
særst og nokkrir verið teknir til
fanga. Þeir kváðust hafa grandað
fimm herþotum og tveimur þyrlum.
Engar staðfestar fregnir bárust af
mannfalli í liði Íraka en sagt var að
30-40 menn hefðu fallið við bæinn
Najaf í suðurhlutanum.
Fréttaskýrendur sögðust telja að
íröskum úrvalssveitum væri beitt.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
krafðist þess í gær að bandarískir
hermenn sem eru í haldi Íraka hlytu
mannúðlega meðferð. „Saddam
Hussein er að missa stjórnina í landi
sínu,“ sagði Bush, „Sums staðar er
veitt hörð mótspyrna, en okkur miðar
vel áfram,“ sagði hann.
Forsetinn leitaðist við að búa
bandarískan almenning undir lang-
vinnt stríð sem væri á́ upphafsstigi.
Harðasta loftárás sem gerð hefur
verið á Bagdad síðan átökin hófust
byrjaði laust eftir 19 að íslenskum
tíma í gærkvöldi. Gífurlegar spreng-
ingar skóku borgina er lágfleygar
árásarvélar bandamanna vörpuðu
sprengjum á hallir Saddams á bökk-
um árinnar Tígris. Bandarískt her-
fylki var í gær sagt í um 160 km fjar-
lægð suður af borginni, eða innan við
dagleið.
Samið við Tyrki
Tyrknesk og bandarísk yfirvöld
hafa komist að samkomulagi um að
Tyrkir sendi her inn í Norður-Írak, að
því er forsætisráðherra Tyrklands
greindi frá. Markmiðið væri að koma í
veg fyrir að flóðbylgja flóttafólks
skylli á Tyrklandi. Bandaríkjastjórn
hefur varað Tyrki við því að skerast í
leikinn í norðurhluta Íraks. Vilja
Bandaríkjamenn koma í veg fyrir að
til átaka komi milli Tyrkja og Kúrda.
Þá var frá því skýrt í gær að Tyrkir
hefðu leyft Bandaríkjamönnum að
fljúga í gegnum tyrkneska lofthelgi.
Um hana fóru seint í gær stýriflaugar
sem Bandaríkjamenn skutu frá skip-
um á austanverðu Miðjarðarhafi.
Allt að tíu felldir í herliði
bandamanna á „erfiðum degi“
Bandarískt herfylki á innan
við dagleið ófarna til Bagdad
Stýriflaugum skotið frá
herskipum á Miðjarðarhafi
Herir bandamanna mæta
harðnandi mótspyrnu í Írak
AP
BANDARÍSKIR landgönguliðar sigruðu íraska hermenn skammt
frá borginni Nasiriyah í Suður-Írak í gær í hörðustu orrustu sem
orðið hefur í Írak frá því herförin þangað hófst, að því er yfirstjórn
bandaríska heraflans greindi frá. Herir bandamanna mættu einnig
harðnandi mótspyrnu Íraka við borgina Basra og hafnarbæinn Umm
Qasr við strönd Persaflóans. Loftárásir hófust á ný í gærkvöldi.
Stríð í Írak: Öflug mótspyrna Íraka í
Umm Qasr Saddam sagður hafa særst 12/15
STOFNAÐ 1913 81. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
ÍRAKAR hafa fimm bandaríska her-
menn í sinni vörslu. Sýndar voru
myndir af hermönnunum á arabísku
sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera í gær
og þá sáust einnig lík hermanna, sem
féllu í bardögum við Nasiriyah.
Bandaríkjamenn fordæmdu birtingu
þessara mynda og fulltrúar Alþjóða
Rauða krossins sögðu það brot á
Genfar-sáttmálanum um meðferð
stríðsfanga að taka slíkar myndir og
birta opinberlega. Margar banda-
rískar fréttastöðvar sögðust ekki
ætla að sýna myndirnar.
Hermennirnir fimm virtust
óstyrkir á taugum. Tveir þeirra voru
greinilega særðir. Greindu her-
mennirnir frá nafni sínu og frá hvaða
ríki Bandaríkjanna þeir væru. Ein
kona er í hópnum og kvaðst hún
heita Shauna og vera frá Texas. Var
rödd hennar mjög óstyrk. Fangarar
hermannanna spurðu hvort þau
hefðu komið til að skjóta Íraka til
bana en þau sögðust aðeins skjóta ef
á þau væri skotið, og að þau hlýddu
einungis skipunum.
Reuters
Írakar hafa fimm í haldi
Bagdad, Washington, Genf. AFP, AP.
STRÍÐINU í Írak var mótmælt
víða um heim í gær, og voru
m.a. fyrirhuguð mótmæli við
Óskarsverðlaunaafhendinguna
í Hollywood, sem fram fór í
nótt.
Í Róm söfnuðust nokkur þús-
und manns saman við tvær her-
stöðvar Bandaríkjamanna í
mótmælaskyni, og í Madríd létu
aðdáendur knattspyrnuliðsins
Barcelona andúð sína á herför-
inni í ljós þar sem lið þeirra lék
við Racing Santander.
Fyrrverandi bandarískir
hermenn, margir með orður
sem þeir hlutu fyrir bardaga í
Þýskalandi, Kóreu og Víetnam,
fóru friðargöngu í Washington,
en skammt frá göngu þeirra
héldu stuðningsmenn stríðsins
útifund.
Í Egyptalandi handtók lög-
regla um 800 af þeim þúsundum
er mótmæltu um helgina.
Víðtæk
mótmæli
Reuters
Fyrrverandi hermenn mót-
mæla í Washington í gær.
BANDARÍSKIR landgönguliðar úr 15. hraðliði komnir í skotstöðu í
gær þar sem þeir stóðu vörð við flotastöð íraska hersins í Az Zubayar
í eyðimörkinni í Suður-Írak. Hersveitir bandamanna mæta nú harðn-
andi mótspyrnu Íraka, einkum við borgir í suðurhluta landsins.
Landgönguliðar í skotstöðu
As-Saliyah í Katar, Bagdad, Washington, Suður-Írak, Ankara. AP, AFP.