Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 7
ÞORBJÖRN Guðmundsson, formað-
ur velferðarnefndar ASÍ, segir að
sjúkradagpeningar Tryggingastofn-
unar sem hlutfall af lægstu launum sé
núna 26% en þetta hlutfall hafi árið
1988 verið 33,6%. Hann segir að
vegna aukins hreyfanleika á vinnu-
markaði sé stór hópur launafólks með
mjög lítinn veikindarétt og staða hans
sé í mörgum tilvikum bágborin.
Stefán Ólafsson, prófessor við Há-
skóla Íslands, kom inn á stöðu þessa
hóps á velferðarráðstefnu ASÍ sl.
miðvikudag. Hann sagði að þessir
lágu sjúkradagpeningar væru svartur
blettur á velferðarkerfinu. Hann
benti á að á hinum Norðurlöndunum
væru sjúkradagpeningar 70–100% af
launum.
Samkvæmt kjarasamningum gilda
þær almennu reglur að fólk vinnur
sér rétt til tveggja veikindadaga í
hverjum mánuði eftir að hafa starfað
hjá sama vinnuveitanda í einn mánuð.
Eftir eitt ár á launafólk því eins mán-
aðar veikindarétt. Eftir þriggja ára
starf hjá sama vinnuveitanda öðlast
fólk síðan einn mánuð í viðbót í veik-
indarétt. Og eftir fimm ára starf öðl-
ast fólk einn mánuð til viðbótar. Þá á
fólk því rétt á dagvinnulaunum í þrjá
mánuði ef það veikist. Ef fólk breytir
um vinnustað missir það þennan rétt
og byrjar að telja aftur frá núlli. Þetta
er þó aðeins mismunandi milli stétt-
arfélaga og vinnustaða.
Hreyfing á vinnumarkaði
rýrir veikindaréttindin
Þorbjörn sagði að hreyfing á vinnu-
markaði hefði aukist á seinni árum og
því væri stór hópur fólks með mjög
lítinn veikindarétt. Í þessu sambandi
væri nauðsynlegt að hafa í huga að ef
fólk yrði alvarlega veikt þannig að það
reyndi á þennan rétt kæmu allir dag-
ar þar sem fólk væri frá vinnu vegna
minniháttar veikinda til frádráttar.
Fólk á rétt á sjúkradagpeningum
frá Tryggingastofnun 21 degi eftir að
veikindi hefjast. Ef viðkomandi á ekki
veikindarétt samkvæmt kjarasamingi
geta greiðslur sjúkradagpeninga þó
hafist 15 dögum eftir að veikindi hefj-
ast. Í dag nema sjúkradagpeningar
821 krónu á dag að viðbættum 224
krónum fyrir hvert barn.
Til viðbótar eiga þeir sem aðild eiga
að stéttarfélagi rétt á að sækja um
greiðslur úr sjúkrasjóðum félaganna.
Meginreglan er að sjóðirnir greiði
3.000–4.000 krónur hvern virkan dag
eða 65–86 þúsund krónur á mánuði í
fjóra til sex mánuði.
„Almenna reglan er að það er ekki
fyrr en eftir sex mánuði sem fólk á
möguleika á að komast inn á tíma-
bundna örorku hjá lífeyrissjóðunum.
Reyndar fá menn þá oft greitt aftur í
tímann. En það getur samt myndast
mjög langt tímabil sem fólk hefur
nánast engan rétt nema þessa sjúkra-
dagpenginga, sem eru lágir og hafa
setið eftir líkt og gerst hefur með
grunnlífeyri ellilauna,“ sagði Þor-
björn.
Á velferðarráðstefnunni gagnrýndi
Stefán Ólafsson sjúkrasjóðakerfi
verkalýðshreyfingarinnar og sagði að
það væri 19. aldar fyrirbrigði. Hann
hvatti til þess að sjóðirnir yrðu lagðir
niður og sameinaðir kerfi Trygginga-
stofnunar.
Þorbjörn sagði að verkalýðshreyf-
ingin þyrfti að vera vakandi yfir því
sem hún væri með í sínum höndum,
en sú hugmynd að leggja sjúkrasjóð-
ina inn í Tryggingastofnun hefði ekki
verið rædd innan hreyfingarinnar.
Launþegahreyfingin yrði hins vegar
að vera opin fyrir breytingum og það
væri nauðsynlegt fyrir hreyfinguna
að fara í gegn um umræðu um hlut-
verk sjúkrasjóðanna. „Ef við ætlum
að hafa sjúkrasjóðina áfram þurfum
við líka að marka þeim mjög skýran
bás í þessum tryggingamálum. Ef við
gerum það ekki er líka nauðsynlegt að
spyrja, til hvers erum við að reka
þessa sjóði? Ég er sammála honum
um að það er nauðsynlegt að fara í
gegn um þessa umræðu og það er
skylda okkar að sjá til þess að fjár-
munirnir séu notaðir til þess að bæta
réttarstöðu fólks.“
Margir launþegar hafa lítinn veikindarétt
Sjúkradagpeningar eru
26% af lægstu launum
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 7
w
w
w
.ic
el
an
da
ir
.is
ANDSTÆÐINGAR stefnu Banda-
ríkjamanna og Breta í Íraksmálinu
mótmæltu stríði við stjórnarráðið á
laugardag. Rétt um 200 manns mót-
mæltu hernaðinum í Írak. Lögregl-
an var með mikinn viðbúnað og
girti m.a. stjórnarráðið af. Yfirlög-
regluþjónarnir Geir Jón Þórisson
og Hörður Jóhannesson stóðu vakt-
ina ásamt fleiri lögreglumönnum.
Morgunblaðið/Júlíus
Mótmæla stríði í Írak