Morgunblaðið - 24.03.2003, Side 17

Morgunblaðið - 24.03.2003, Side 17
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 17 Furugólf eru ekki bara furugólf Gegnheil furugólfborð úr fyrsta flokks norskri furu Lie Hövleri hefur framleitt furugólfborð frá árinu 1863. KroneGulv eru fullþurkuð og tilbúin á gólfið. Ekkert vesen. Leitið upplýsinga. Njarðarnesi 1, Akureyri, sími 462 2244 HINN 4. nóvember 2001 afhenti ég samgönguráðherra Sturlu Böðv- arssyni undirskriftalista frá á fimmtánhundrað íbúum í Snæ- fellsbæ, þar sem skorað er á þing- menn Vesturlands, að beita sér fyrir því að vegurinn yfir Fróð- árheiði verði byggður upp með bundnu slitlagi. Í síðasta lagi fyrir haustið 2003. Í dag er 15. mars 2003, og kosningar í maí næstkom- andi. Ekkert hefur verið gert, eða heyrst um að í þessa framkvæmd eigi að fara. Nýverið ákvað ríkisstjórnin að setja á fimmta milljarð króna í flýtiframkvæmdir í vegamálum. Það kemur ekki fram í fréttum að setja eigi eina einustu krónu af þessu í veginn yfir Fróðárheiði, þrátt fyrir áskoranir til þingmanna þar um. En flýtt skuli vegafram- kvæmdum yfir Kolgrafarfjörð, þrátt fyrir að sá vegur hafi verið kominn á framkvæmdaáætlun. Einnig eru settar 500 milljónir í Suðurstrandarveg, sem allur liggur um óbyggt svæði á milli Grindavík- ur og Þorlákshafnar. En báðir þessir staðir eru búnir að fá vegi með bundnu slitlagi til sín fyrir áratugum síðan. Einnig furða ég mig á því að það skuli verið að setja marga milljarða í jarðgöng á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, bara til þess að tengja þessa tvo staði saman. Báðir þessir staðir eru búnir að fá jarð- göng og bundið slitlag til sín fyrir áratugum síðan. Þetta er ótrúleg framkvæmdaröðun, þegar staðir eins og Vestfirðir og Austfirðir búa við vegakerfi eins og flestum er kunnugt um. Íbúar í Snæfellsbæ eru reiðir yfir því að vera látnir sitja á hakanum í vegaframkvæmd- um, í aðeins 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Snæfellsbær er lang- stærsta sveitarfélagið á Snæfells- nesi, með um 1.700 íbúa, en á að verða síðastur til að fá sómasam- legan veg til sín. Það er kaldhæðn- islegt að bæði samgönguráðherra Sturla Böðvarsson og Magnús Stefánsson, fyrsti og annar þing- maður Vesturlands, eru báðir upp- aldir í Ólafsvík, sem er stærsti byggðakjarninn í Snæfellsbæ skuli ekki bera betri taugar til okkar en raun ber vitni. Sturla Böðvarsson býr nú í Stykkishólmi. Það vafðist ekki fyrir honum að keyra í gegn eitt stk. 16,4 km nýjan fjallveg yfir Vatna- heiði, í stað vegarins yfir Kerl- ingaskarð, og var víst ekki farið al- veg að settum reglum um um- hverfismat, samkvæmt skrifum landeigenda þar um, sem ég hef ekki séð mótmælt. Vegurinn yfir Vatnaheiði átti að kosta 700 millj- ónir samkvæmt kostnaðaráætlun, en vegurinn fékkst lagður fyrir 350 milljónir samkvæmt útboði, og var lagður á einu ári. Samkvæmt ný- legu útboði vegarins yfir Kolgraf- arfjörð, fékkst tilboð sem er 109 milljónir undir kostnaðaráætlun. Þessar tvær framkvæmdir eru því 459 milljónir króna undir kostn- aðaráætlun. Mér finnst að hluta af þessum 350 milljónum sem spöruðust vegna lágs tilboðs vegna vegarins yfir Vatnaheiði, hefði mátt setja í að ljúka uppbyggingu vegarins yfir Fróðárheiði, sem ekki eru nema 11 km, og helmingur vegarins kemur til með að liggja þar sem vegurinn liggur nú, sem sparar mikið fé, og fara þá strax í að ljúka því verki. Ég undra mig á að bæjarstjórn Snæfellsbæjar skuli ekkert láta í sér heyra um þetta brýna hags- munamál íbúanna. En láta íbúana sjálfa standa í undirskriftasöfnun og blaðaskrifum til að knýja á um þessa sjálfsögðu framkvæmd, sem okkur var lofað fyrir sameiningu sveitarfélaganna í Snæfellsbæ, en allt hefur verið svikið. Bæjarstjórn og samgönguráð- herra virðast leggja ofurkapp á uppbyggingu Útnesvegar fyrir jök- ul með bundnu slitlagi, en sá vegur er tvöfalt lengri en vegurinn yfir Fróðárheiði. Útnesvegur liggur að miklum hluta í óbyggð, eða frá Hellnum að Hellissandi, og er því eingöngu ferðamannavegur. Á Út- nesveg og vegina niður á Arnar- stapa og Hellnum er búið að leggja bundið slitlag á meira en tvöfalda leiðina yfir Fróðárheiði, sem allir íbúarnir þurfa að fara um. Í Ólafs- vík er heilsugæslustöð sem þjónar öllum íbúum Snæfellsbæjar. Það er því gífurlegt öryggismál íbúanna að fá góðan uppbyggðan veg um Fróðarheiði. Þegar mestar fram- kvæmdir voru við uppbyggingu Út- nesvegar, var aðeins lagður ca tveggja km kafli upp í Fróðárheiði að sunnanverðu, og svo knappt var skammtað, að hann var látinn enda í beygju og með halla út úr beygj- unni, þó ekki væru nema 100 m upp á langan beinan kafla sem nýr vegur kemur til með að liggja um. Þarna eru búnir að fara útaf og velta 6 bílar á einu ári, með miklu tjóni að mér er sagt. Bæjarstjórn og samgönguráðherra virðast hafa mestan áhuga á að byggja upp Út- nesveg, sem liggur í gegnum þjóð- garðinn Snæfellsjökul. Og sam- kvæmt skrifum þeirra á þessi þjóðgarður öllu að bjarga hér í bæ. Skítt með trillukarla sem aldrei hafa fengið stuðning bæjarstjórn- ar, í baráttu fyrir lífi sínu við mis- vitur stjórnvöld, þótt flest önnur sveitarfélög á landinu hafi gert það. Ég bið íbúa Snæfellsbæjar að hlusta nú vel á þingmenn okkar, sem verða nú í framboði í hinu nýja Norðvesturkjördæmi okkar fyrir alþingiskosningarnar í maí næstkomandi, og knýja þá um skýr svör, og ekki láta þá komast upp með útúrsnúninga eins og þeim er tamt. Því nú viljum við efndir, en ekki svikin loforð. Um vegamál í Snæfellsbæ og víðar Eftir Martein G. Karlsson „Ég undra mig á að bæjarstjórn Snæfells- bæjar skuli ekkert láta í sér heyra um þetta brýna hags- munamál íbúanna.“ Höfundur er trillukarl í Ólafsvík. ER ég las grein eftir Sigríði Þorgeirsdóttur og Rósu Erlings- dóttur í Morgunblaðinu 13. mars síðastliðinn langaði mig að upplýsa þær um nokkur atriði er snúa að mörgum karlmönnum. Þær tala um að 11.000 einstæðar mæður séu á Íslandi en einungis 800 feður. Á þessum tölum er ósköp einföld skýring, í 92% tilvika fær móðirin forsjá barns eða lög- heimili þess við skilnað foreldra. Þeir karlmenn sem vilja forræði barna sinna og fara með mál það fyrir dómstóla eiga svo til enga möguleika á því að fá forræði barns á móti móður. Það er gríðarlega kostnaðar- samt að fara í forsjármál og hef ég slíka reynslu sjálfur. En þá komum við að stóra jafn- réttismálinu, þegar forsjárlausir feður vilja taka þátt í lífi barna sinna er þeim meinaður aðgangur fyrir utan þann tíma sem ég kalla fangelsistímann. Það er önnur hver helgi og þar fram eftir göt- unum eins og allir kannast við. Ef feður sætta sig ekki við slíkt kemur til kasta sifjadeildar sýslu- manna sem úrskurða um umgeng- isrétt barna við forsjárlausa for- eldrið. Hjá sýslumanninum í Reykjavík eru einungis kynsystur ykkar sem starfa við það að ákveða hvað mik- inn tíma barnið fær með föður sín- um. Þessar systur eru ekki uppeldis- menntaðar að neinu leyti, þær eru löglærðar sem er heldur undarlegt í ljósi þess að ekki er til í lögum hvað mikinn lágmarkstíma barn skal umgangast forsjárlausa for- eldrið. Úrskurðir skulu byggjast á bestu hagsmunum barnsins og efast ég hreinlega um að lögfræð- ingar séu best til þess fallnir að ákveða slíkt, með fullri virðingu. Miðað við skoðaða úrskurði frá embættinu sýnist mér á öllu að þeir byggist á dagsformi viðkom- andi úrskurðaraðila en ekki á neinu sem heitir „bestu hagsmunir barnsins“. Skoðun mín er þessi, á meðan konur einoka þessi störf og um- gengisrétti okkar feðra er haldið í lágmarki kemst aldrei á launa- eða kynjajafnrétti í landinu. Þegar karlpeningurinn fær ekki að taka þátt í uppeldi barna sinna höfum við ekkert annað að gera en að vinna og erum þar af leiðandi taldir betra vinnuafl með minni skyldur gagnvart heimili og börn- um. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka þingmönnum fyrir feðraor- lofið, það er sennilega stærsta skref sem stigið hefur verið í launajafnrétti kynjanna. Haldið áfram baráttunni, stelp- ur, því það er fáránlegt að konur og karlar fái ekki sömu laun fyrir sömu vinnu. Of seint fyrir kynja- jafnrétti? Aldrei Eftir Ottó Sverrisson „Þegar karl- peningurinn fær ekki að taka þátt í uppeldi barna sinna er ekkert annað að gera en að vinna.“ Höfundur er hópstjóri. ÉG VIL byrja á því að þakka Ás- geiri Long fyrir fróðlega grein um sýningu nokkurra íslenskra uppfinn- ingamanna, sem haldin var í Hönn- unarsafninu í Garðabæ 8.–23. febr- úar síðastliðinn. Ásgeir átti þar góðan hluta af sýningunni. Eins og hann sjálfsagt varð áskynja, þá komst ekki mikið meira efni fyrir í þessum sal enda var þessari sýningu aðeins ætlað að sýna brot af þeim uppfinningum, sem gerðar hafa ver- ið á Íslandi. Landssamband hugvitsmanna hefur starfað sem áhugamannafélag síðan í febrúar 1996. Undirrituð hef- ur starfað í stjórn félagsins frá upp- hafi, fyrst sem ritari og sem formað- ur frá 1998. Við höfum barist fyrir því að fá að taka þátt í stefnumótun nýsköpunarmála á Íslandi og að þjónusta uppfinningamenn og frum- kvöðla, en því miður við fálátar und- irtektir ráðamanna. Undirrituð hef- ur margoft bent á þörfina fyrir því að koma á fót Uppfinningasafni Ís- lands, til þess að gera lýðum ljóst að Ísland á uppfinningamenn á heims- mælikvarða. Það sem hefur staðið í vegi fyrir framgangi íslenskra upp- finninga er skortur á fjármagni, virðingarleysi við uppfinningamann- inn og kunnáttuleysi í markaðsmál- um. Enn þann dag í dag er ekki til þol- inmótt fjármagn til að setja í nýjar hugmyndir og virðingarleysið er enn til staðar. Það sem uppfinninga- mönnum er boðið upp á í dag eru námskeið í að gera viðskiptaáætlanir varðandi sínar hugmyndir svo stuðn- ingskerfið geti skilið þær betur. Þetta er ekki það sem uppfinn- ingamenn vilja, þeir óska ekki eftir slíkri skriffinnsku enda miðast hún bara við að skapa þeim atvinnu sem hafa með stuðningskerfið að gera, þ.e. peningarnir fara úr hægri vasa í þann vinstri en lenda ekki hjá upp- finningamanninum. Það miðast allt við það að gera uppfinningamenn að viðskiptafræðingum sem þeir hafa margbent á að þeir eru ekki og hafa takmarkaðan áhuga á að verða. Þeir vilja einungis sjá hugmyndina sína verða að veruleika. Landssamband hugvitsmanna hefur margoft bent á, að það er byrj- að á öfugum enda. Það þarf að byrja á því að kanna nýnæmi nýrra hug- mynda og gera frumgerð. Nýnæm- isathugun er nú hægt að framkvæma á Netinu að hluta til en fullkomna leit verður að gera með aðstoð er- lendra einkaleyfastofa. Frumgerð er ekki hægt að fá aðstoð við að gera hjá Impru (Iðntæknistofnun) eins og Ásgeir bendir á þrátt fyrir að til- heyrandi tæki séu þar til staðar. Landssambandið gagnrýndi þetta strax þegar Frumkvöðlasetur Impru var sett á laggirnar árið 1999. Hverj- um á þetta frumkvöðlasetur að þjóna? Leiga á skrifstofuaðstöðu er ekki fremst á forgangslista uppfinn- ingamanna. Undirrituð barðist fyrir því á sín- um tíma að Landssambandið fengi að taka þátt í samstarfi um Nýsköp- unarkeppni grunnskólanna, sem gekk eftir og höfum við verið þátt- takendur í því verkefni síðastliðin þrjú ár. Paul Jóhannsson, sem Ás- geir nefnir í grein sinni, er starfandi í stjórn félagsins og hefur fullan stuðning þess við undirbúning frum- gerðasmíðaverkstæðisins. Landssamband hugvitsmanna er stolt af þeim verkum sem því hefur tekist að koma á laggirnar undanfar- in ár eins og t.d. uppsetningu á sýn- ingu nokkurra íslenskra uppfinn- inga. Við erum áhugamannafélag og öll í fullri vinnu við að koma eigin hugmyndum á framfæri. Á meðan stjórnvöld sjá sér ekki fært að styðja betur við bakið á uppfinningamönn- um né félagi þeirra þá gerum við bara eins og við getum, annað er ekki hægt að ætlast til af okkur. Uppfinningamenn á Íslandi eiga heiður skilið fyrir að hafa barist á móti straumnum í öll þessi ár við að koma með nýjungar á markað, og berjast enn. Það minnsta sem stjórn- völd geta gert er að koma upp safni um þessar merkilegu minjar sem er hluti af Íslandssögunni, og alltaf bætist við. Safnið þarf að vera lifandi og aðgengilegt fyrir unga fólkið, með uppgötvunarmiðstöð og aðstöðu fyr- ir tilraunir. Það sem gert hefur verið þarf að vera sýnilegt. Ungur nemur, gamall temur. Að lokum þakkar Landssamband hugvitsmanna Ásgeiri Long fyrir þátttöku í sýningunni og óskar eftir ábendingum um fleiri íslenska upp- finningamenn. Einnig vill félagið þakka Aðalsteini Ingólfssyni fyrir lánið á Hönnunarsafni Íslands undir sýninguna. Sýning Landssam- bands hugvitsmanna Eftir Elínóru Ingu Sigurðardóttur Höfundur er formaður Lands- sambands hugvitsmanna. „Uppfinn- ingamenn á Íslandi eiga heiður skilið fyrir að hafa barist á móti straumn- um í öll þessi ár við að koma með nýjungar á markað, og berjast enn.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.