Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 24
MINNINGAR 24 MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Mig langar til að minnast Guðbjargar, tengdamóður minnar, og þakka henni fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og mína undanfarin 25 ár. Það var oft hringt í Ásgarðinn í upphafi búskapar okkar Stjána og beðið um ráð hvort sem var um að ræða matseld eða barnauppeldi og alltaf gaf hún rétta ráðið. Já, þótt lengi væri leitað þá fyndist hvergi jafn barngóð kona, en hjá henni nutu barnabörnin sín alltaf vel, eins og öll börnin sem hún hafði í gegn- um árin í daggæslu. Já, hún var yndisleg og einstök kona. Elsku Guðbjörg mín, nú trúi ég því að þú sért komin á þann stað þar sem við öll hittumst að lokum og að nú líði þér vel. Takk fyrir allt. Þú varst yndisleg tengdamamma og ég geymi margar minningar um þig í hjarta mínu. Ég kveð þig með söknuði. Megir þú hvíla í friði, Guð geymi þig og bið ég hann um að hjálpa öllum sem voru nánir þér og eiga um sárt að binda og sendi ég þeim öllum innilegar samúðarkveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Guðbjörg, ég gleymi þér aldrei. Þín tengdadóttir, Ingunn. Elsku amma. Það er svo skrítið að hugsa um GUÐBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR ✝ Guðbjörg Ólafs-dóttir fæddist í Skjaldabjarnarvík í Árneshreppi á Ströndum 8. nóvem- ber 1935. Hún lést á Landspítala við Hringbraut 12. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Bústaðakirkju 21. mars. það að þú sért dáin. Það er mér svo óraun- verulegt, þú varst svo ung, of ung til að kveðja þennan heim. En allar minningarnar um þig eru vel varð- veittar í huga mínum, ég mun minnast þín oft. Mér fannst svo gott hve vel þú hugsaðir um okkur, þegar við komum í heimsókn fengum við ekki að fara fyrr en allir voru saddir og búnir að fá eitthvað gott úr nammidollunni. Ég man að þegar ég var lítil fannst mér svo gott að kúra í sóf- anum þínum og lesa Emmu-bæk- urnar þínar. Þú varst alltaf svo góð, passaðir vel upp á að okkur leiddist aldrei hjá þér, varst alltaf tilbúin að leika við okkur og grínast, það var alltaf svo gaman að vera hjá þér. Svo þegar ég varð eldri og eign- aðist börnin mín fannst þér svo gaman að prjóna handa þeim. Reyndar fannst þér svo gaman að prjóna að allir í ættinni nutu góðs af. Það var líka svo gott að tala við þig og fá ráð því þú vissir allt. Ég hringdi oft í þig til að fá uppskriftir og þér fannst alltaf jafn gaman að leiðbeina mér svo á meðan ég eld- aði. En elsku amma, nú kveð ég þig og mun aldrei gleyma þér. Ég mun vera dugleg að segja Kristjáni og Ingunni frá þér svo þau muni alla tíð hversu góð kona þú varst. Ég sakna þín sárt og mun ávallt elska þig. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Vertu sæl amma mín og Guð blessi þig. Þín sonardóttir, Helga Kristjánsdóttir. Mig langar að minnast ömmu minnar. Amma mín, þú sem alltaf ert svo góð og gaman hjá þér og afa í sveitinni. Þú ert nú örugglega núna ekki lengur veik. Nú ert þú örugglega að skemmta þér með Stefaníu stóru frænku. Ég mun sakna þín alla tíð. Þín Halldóra Dögg Kristjánsdóttir. Þegar ég sest niður og hugsa til hennar Guggu hvarflar hugurinn til þess tíma þegar maður var polli heima í Ólafsvík, þegar fjölskyldan var að fara í höfuðborgina. Við gist- um alltaf hjá Guggu og Stebba, allt var svo spennandi, þau áttu heima í stærsta húsi sem ég hafði séð og í risaborg. Alltaf var tekið jafnvel á móti okkur þegar við komum. Gugga var í mínum huga ótrúleg kona, dugnaðurinn í að redda öllu þegar átti að fara um borgina, hún rataði allt og vissi allt í Reykjavík og gat alltaf sagt pabba hvert átti að fara. Þetta var furðulegt fyrir lítinn polla utan af landi. Eftir því sem árin hafa liðið hefur það ekkert breyst – hún reddaði öllu. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur hef ég stundum litið inn til þeirra hjóna til að spjalla yfir kaffibolla og alltaf er tekið jafnvel á móti mér og yfirleitt fer ég heim með eitthvert heima- gert góðgæti frá Guggu. Síðustu misseri hefur Gugga bar- ist hetjulega við veikindi sín og staðið sem klettur en nú hefur hún þurft að láta undan. Og eins og ég segi við börnin: „Hún Gugga er orð- in engill.“ Nú er hún hjá Stefaníu dóttur sinni og ég er viss um að þær halda verndarhendi yfir Stebba og börnunum þeirra. Elsku Stebbi og börn, við Svan- hildur og börnin okkar biðjum Guð að vera með ykkur. Magnús A. Einarsson. Árið 1933 fluttist fjölskylda mín á Ás- vallagötuna. Þá var ég 10 ára. Ingvar og fjölskylda hans bjuggu þar líka. Þá var gatan, ólíkt því sem nú er, aðalleikvangur barna og unga fólksins. Þar iðaði allt af lífi bæði um helgar og á kvöldin eftir að skóla lauk. Þarna áttum við Ingvar margar góðar stundir saman, ásamt með öðrum krökkum sem heima áttu við göt- una og næsta nágrenni. Já, gatan var okkar svæði. Við fórum þarna í ýmsa leiki sem ekki tíðkast lengur. Bílaumferð var svo til engin sem hætta gat stafað af. Þetta var friðsæll heimur og gjör- ólíkur því sem við þekkjum í dag. Knattspyrna var m.a. áhugamál okkar Ingvars. Þar var hann í fremstu röð og allir vildu hafa hann í sínu liði. Þar kom að við gengum til liðs við Knattspyrnu- félagið Víking og lékum þar saman í öllum yngri flokkum félagsins og síðar í meistaraflokknum til ársins 1949, þá komnir á fertugsaldurinn. Þess skal og getið að Ingvar var um skeið formaður Víkings, og var ég með honum í þeirri stjórn. Oft var eftir því tekið hve mál- snjall Ingvar var. Hann útskrif- aðist úr Verslunarskóla Íslands ár- ið 1942 og vann alla tíð við verslunar- og skrifstofustörf. Eins og ég hefi greint frá vorum við Ingvar mjög nánir á unglings- árunum. Tókum við t.d. upp á því að ferðast saman. Aðeins tólf ára gamlir fórum við á reiðhjólum með tjald og einhvern útbúnað og hugðumst dvelja utanbæjar í ein- hverja daga. Götur voru lítið sem ekkert mal- bikaðar og því erfiðar yfirferðar. Sérstaklega utan bæjarmarkanna. Við komust þó langleiðina að Rauðhólum. Þar var tjaldað. En nú fór gamanið að grána. Við átt- um ekkert úr, og vissum ekkert hvað tímanum leið. Svoleiðis dýrgripi fengu flest börn ekki fyrr en þau fermdust í þá daga. Þetta var í júnímánuði. Það ringdi stöðugt og ekki sást til sólar. Nætur og dagar runnu sam- an. Fór því sitthvað öðruvísi en til stóð og best að láta kyrrt liggja. En þetta var mikil lífsreynsla fyrir tvo litla labbakúta sem héldu að þeir gætu sigrað heiminn. En við létum ekki deigan síga. Við ákváðum að fara í hringferð um landið. Þá vorum við 16 ára að INGVAR N. PÁLSSON ✝ Ingvar N. Páls-son fæddist á Lambastöðum í Mið- neshreppi 17. nóv- ember 1922. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 1. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey að hans ósk. mig minnir. Tókum strandferðaskip til Vestmannaeyja og þaðan áfram til Reyð- arfjarðar. Fórum með rútubíl til Egilsstaða og áfram uppí Hall- ormsstaðaskóg þar sem við dvöldum í tjaldi í nokkra daga. Síðan var haldi áfram með rútubíl norður, stoppað í Lindar- brekku, þar sem fal- ast var eftir hestum og leiðsögumanni. Nú skyldi haldið í langferð á hestum alla leið að Dettifossi. Þetta gekk eftir. Ferðin tók tvo daga. Leiðsögu- maður okkar hét Jón Pálsson bóndi í Þórunnarseli í Kelduhverfi. Fór hann með okkur aðra leið og fallegri en venja var, meðal annars um Hljóðakletta og Svínadal en þar hafði Jón fæðst og alist upp. Nú var þetta eyðibýli, torfbær kominn að falli. Það var sérkenni- leg tilfinning fyrir okkur „borg- arbörnin“ að leggjast þarna til hvílu. Við skynjuðum þá miklu ein- angrun og hörðu lífsbaráttu sem þarna hlaut að hafa átt sér stað. Við vorum örþreyttir og sváfum alsælir svefni hinna réttlátu. Morguninn eftir var haldið heim á leið. Það var mikið sungið í þessari ferð. Jón bóndi var í karlakór sinnar sveitar og Ingvar hafði, eins og allir vita sem hann þekktu, einstaklega gaman af að syngja. Var því oft farið af baki og lagið tekið, sem okkur fannst hljóma svo undurfallega í allri þessarri kyrrð og fagra umhverfi. Já, þetta var fyrir okkur alveg ógleymanleg ferð sem er nú eins og perla í minningunni. Heim komum við svo nokkrum dögum síðar, með stuttri viðkomu á helstu viðkomustöðum rútubílstjóra norðanlands og vest- an á leiðinni til Reykjavíkur. Allar götur síðan höfum við Ingvar og fjölskyldur okkar haldið saman, notið samvistanna í afmæl- um, giftingum og fermingum barna okkar. Konur okkar hafa verið saman í saumaklúbbi en við Ingvar, ásamt góðum félögum okkar til margra ára, spilað badminton og bridge svo lengi sem heilsa og færni hef- ur leyft. Ingvar var mikill gæfumaður í sínu lífi.Hann kvæntist ungur ynd- islegri konu Steinunni H. Bernd- sen (Dídí) sem var mikill gleðigjafi og góð manneskja sem öllum þótti vænt um sem henni kynntust. Þau áttu saman fjögur börn, tvær stúlkur og tvo drengi sem öll eiga sínar fjölskyldur sem farnast hef- ur vel í lífinu með sínu góða við- móti og elskusemi. Það hefur af ýmsum ástæðum dregist að festa þessi kveðjuorð á blað. Bið ég forláts á því. Nú sakna ég vinar í stað. Það er sem strengur hafi slitnað. Ég þakka Ingvari af heilum hug samfylgdina sl. sjötíu ár og bið honum Guðs blessunar. Gunnlaugur Lárusson. ✝ Dagmar Einars-dóttir fæddist á Kappeyri á Fá- skrúðsfirði 17. júní 1914. Hún var dóttir hjónanna Einars Stefánssonar og Kristjönu B. Eiríks- dóttur. Systkini Dag- marar voru Kristín, Eiríkur, Björgvin Erlendur, Einar Guðni og Valgeir, þau eru nú öll látin. Eiginmaður Dag- marar var Þorkell Þorsteinsson, f. 15.10. 1909, d. 24.6. 1982. Sonur hennar var Sævar Sigurðsson, f. 20.9. 1944, d. 19.4. 1992, maki Sóley Sigur- sveinsdóttir, f. 12.12. 1948. Börn þeirra eru Dagmar Þóra, f. 15.4. 1967, Jón Ellert, f. 4.7. 1970, og Freyr Gauti, f. 25.5. 1985. Útför Dagmarar verður gerð frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Ástkær tengdamóðir mín, Dag- mar Einarsdóttir, er látin 88 ára að aldri eftir erfið veikindi. Hugur minn leitar til baka þegar ég kynnt- ist henni fyrst sumarið 1964. Þá kom ég til Fáskrúðsfjarðar með syni hennar, Sævari Sigurðs- syni, sem varð lífsförunautur minn í 29 ár en hann lést af slysförum 19. apríl árið 1992. Ég sé húsið þeirra Þorkels og Döggu fyrir mér, allt svo snyrtilegt og fallegt og fjörðurinn fagri þar sem ég átti eftir að eiga heima frá árinu 1965 til dagsins í dag. Þegar inn var komið sá ég stofu sem var eins og ævintýri, blóm hvert sem litið var og veggir, stólar og borð, allt skreytt með hannyrðum Döggu en hún var annáluð fyrir handverk sitt og hún var einstak- lega vandvirk við allt sem hún vann við. Hún hafði mjög gaman af blóma- rækt og þau döfnuðu vel í hennar stóru höndum eins og allt annað. Dagga og Þorkell voru með kindur og hænur sér til búdrýginda í mörg ár en slíkt var nokkuð algengt þá. Ég minnist þess hvað það var gam- an að vinna með Döggu við heyskap- inn, þá var betra að vera ekki að hangsa við að snúa í heyinu ef mað- ur ætlaði að hafa við henni. Seinna tókum við Sævar við þessum litla bústofni og áttum við og börn okkar eftir að hafa mikla ánægju af því. Dagga var stór kona jafnt hið ytra sem innra og hamhleypa til allra verka enda var hún eftirsótt til vinnu og mér er óhætt að segja að hún var duglegasta manneskja sem ég hef kynnst. Dagga var ekki alltaf allra, en þeim sem hún tók var hún gulli betri, hún lá ekki á skoðunum sínum og gat þá oft verið ansi bein- skeytt ef henni fannst ástæða til. Dagga var oft mjög skemmtileg enda með afbrigðum orðheppin og hún á mörg gullkorn sem ekki munu gleymast. Eftir að Þorkell maður hennar lést árið 1982 hélt hún heim- ili með Björgvini bróður sínum á meðan hann lifði. Síðustu æviárin bjó Dagga á dvalarheimilinu Upp- sölum hér á Fáskrúðsfirði, þar leið henni vel og vil ég þakka starfsfólk- inu þar fyrir einstaka umönnun og góðvild, ekki síst núna undir lokin þegar hún var orðin svo veik, kærar þakkir til ykkar allra. Dagga eignaðist aðeins einn son, Sævar, fæddan 20. september árið 1944, það var henni mikið áfall þeg- ar hún missti hann af slysförum árið 1992. Sævar lét eftir sig þrjú börn; þau eru Dagmar Þóra, Jón Ellert og Freyr Gauti, barnabörnin voru henni óendanlega mikils virði enda leituðu þau alltaf mikið til hennar og þar áttu þau gott skjól. Nú þegar komið er að leiðarlokum vil ég þakka tengdamóður minni, Dagmar Einarsdóttur, fyrir allt sem hún gerði fyrir mig, fáum eða eng- um á ég eins margt að þakka eins og henni. Elsku Dagga, blessuð sé minning þín. Sóley Sigursveinsdóttir. DAGMAR EINARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.