Morgunblaðið - 07.05.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð fagurkerar sem bú-
ið yfir staðfestu og reisn.
Árið framundan gæti orðið
ykkar besta ár. Draumar
ykkar geta ræst.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þið hafið sterkar skoðanir á
heimspeki, stjórnmálum eða
trúmálum. Fjölmiðlar, fjar-
læg lönd eða framhaldsnám
eru ykkur einnig ofarlega í
huga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þið hafið hug á að nota auð
annarra til umbóta. Þið vitið
að þið getið gert góða hluti ef
þið fáið lán eða afnot af eign-
um annarra.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þið þurfið á hvíld að halda og
hefðuð gott af því að njóta
samvista við vini ykkar. Ný
sambönd verða tilfinningarík
og eftirminnileg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Verklagni ykkar og hæfni til
að bæta umhverfi ykkar vek-
ur aðdáun annarra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú berð sterkar tilfinningar
til einhvers sem hefur allt
annan bakgrunn en þú. Þú
sérð að það er fleira sem sam-
einar ykkur en skilur ykkur
að.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er tilbúinn að að-
stoða þig við að gera umbæt-
ur á heimilinu eða í einkalíf-
inu. Hér gæti verið um
peninga, aðstoð, uppörvun
eða lán á tækjum að ræða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Eitthvað verður til þess að
varpa ljósi á það hvað býr að
baki sambandi þínu við ein-
hvern. Þú gerir þér grein fyr-
ir því hvað viðkomandi er þér
mikils virði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið eruð skapandi og hafið
þörf fyrir að gera vinnuum-
hverfi ykkar meira aðlaðandi.
Þetta er góður tími til að
sinna einhvers konar hönn-
unarvinnu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ný ást gæti kviknað í dag.
Daður mun að öðrum kosti
setja svip á daginn og gera
ykkur brosmild og létt í spori.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þær breytingar sem þið gerið
á heimilinu munu verða til
góðs. Þá geta samræður við
fjölskylduna orðið til þess að
leysa vandamál. Grípið tæki-
færið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Kraftmiklar samræður við
vin geta valdið mikilvægum
breytingum í lífi þínu. Eitt-
hvað sem sagt er hefur mikil
áhrif á þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð góða hugmynd sem
leiðir þig inn á nýja braut. Þú
gætir einnig keypt þér eitt-
hvað fallegt sem dregur at-
hygli annarra að þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VÍSUR
Athuga þú hvað ellin sé,
ungdóms týndum fjöðrum,
falls er von að fornu tré,
fara mun þér sem öðrum.
*
Forlög koma ofan að,
örlög kringum sveima,
álögin úr ýmsum stað,
en ólög fæðast heima.
*
Nú er ég orðinn frí og frjáls,
fyrir mér dvelur engi,
leggi þér Kristur hönd um háls,
hann sé vin þinn lengi.
*
Einatt liggur illa á mér,
ekki eru vegir fínir;
heilir og sælir séuð þér,
snjótittlingar mínir.
*
Fyrir þreyttum ferðasegg
fölskvast ljósin brúna;
ráði guð fyrir oddi og egg,
ekki rata eg núna.
Páll Vídalín
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 og 70 ÁRA afmæli. Hjónin Alda Hermannsdóttir ogTryggvi Kr. Gestsson, Réttarholti 3 á Selfossi, eiga
afmæli um þessar mundir. Þau verða að heiman sjálfa af-
mælisdagana og afþakka gjafir en verða með kaffi á könn-
unni fyrir ættingja og vini laugardaginn 17. maí kl. 21:00 í
Golfskálanum á Selfossi.
Á FYRSTU árum brids-
íþróttarinnar var opnun á
grandi yfirlýsing um góð
spil. En það eru breyttir
tímar. Þegar sterku lauf-
kerfin komu til skjalanna
fóru margir að spila 13–15
punkta grand, og núorðið
þykir ekkert tiltökumál að
færa grandrammann enn
neðar, allt niður í 10–12
punkta. Í þeim hópi eru nýk-
rýndir Íslandsmeistarar,
Anton og Sigurbjörn Har-
aldssynir. Þeir opna gal-
vaskir á litla grandinu ef
þeir eru utan hættu, og
segja það gefast vel.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ K1075
♥ –
♦ ÁK843
♣G864
Vestur Austur
♠ D963 ♠ Á2
♥ G98742 ♥ ÁD1065
♦ – ♦ DG976
♣732 ♣D
Suður
♠ G84
♥ K3
♦ 1052
♣ÁK1095
Bræðurnir mættu Jóni
Baldurssyni og Þorláki
Jónssyni í síðustu umferð
Íslandsmótsins. Þeir voru í
NS og Anton opnaði í fyrstu
hendi á mini-grandinu:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Sigurbjörn Þorlákur Anton
– – – 1 grand
Pass 2 spaðar * 3 hjörtu 4 lauf
4 hjörtu 5 lauf Pass Pass
5 hjörtu Dobl Allir pass
Svar norðurs á tveimur
spöðum sýnir láglitina, en
segir ekkert um styrk að svo
komnu máli. Flestir hefðu
spurt um háliti á tveimur
laufum með spil norðurs, en
Sigurbjörn vildi gera AV
erfiðara um vik að komast
inn í sagnir og valdi rúm-
frekari sögn. En Þorlákur
lét ekki þagga niður í sér og
stakk sér inn á þremur
hjörtum. Í kjölfarið fylgdi
sagnbarátta sem endaði í
fimm hjörtum dobluðum.
Það má vinna fimm lauf í
NS og fimm hjörtu fara einn
niður, svo bæði pör gátu vel
við unað. Bræðurnir fengu
þó mest af stigunum (bróð-
urpartinn), því á mörgum
borðum fengu AV að spila
fjögur hjörtu, sums staðar
dobluð.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 7.
maí, er áttræð Stella Fann-
ey Guðmundsdóttir frá
Súðavík, nú til heimilis í
Unufelli 25, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum
laugardaginn 10. maí í safn-
aðarheimilinu Þangbakka 5,
Reykjavík frá klukkan 15 til
19.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3
Rc6 5. Rf3 Db6 6. a3 Rh6 7.
b4 cxd4 8. cxd4 Rf5 9. Bb2
Bd7 10. g4 Rh6 11. h3 Be7
12. Bd3 Hc8 13. Rbd2 Rb8
14. De2 a6 15. Rb1 Rc6 16.
0–0 0–0 17. Rc3 Rxd4 18.
Rxd4 Dxd4 19. Re4
Db6
Staðan kom upp á
Sigeman-mótinu
sem stendur nú yfir í
Málmey í Svíþjóð.
Gamla brýnið Jan
Timman (2.579)
hvítt gegn Curt
Hansen (2.610). 20.
Rf6+! Bxf6 20 …
gxf6 hefði einnig
verið slæmt fyrir
svartan eftir 21. exf6
Bd6 22. Dd2! Í fram-
haldinu ræður svart-
ur ekki við öflugt
frumkvæði hvíts á
kóngsvæng. 21. exf6 Bb5
22. Bxb5 Dxb5 23. De3 d4
24. Bxd4 Hfd8 25. Hfd1
Hd5 26. Bb2 Hg5 27. Hac1
He8 28. Df4 Hg6 29. Hc5
De2 30. Hd2 De1+ 31. Kh2
Df1 32. Hh5 Rf5 33. Df3
Rh6 34. fxg7 f5 35. g5 Rf7
36. Bf6 Rxg5 37. Bxg5 h6
38. Hd1 Db5 39. Bxh6 De5+
40. Kh1 Df6 41. Be3 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Stuttar og síðar kápur
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnúlpur, ullarjakkar,
hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga verður haldinn á
Grand Hóteli Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík,
fimmtudaginn 22. maí 2003 kl. 17.15.
Fundarefni:
1. Skýrsla sjóðstjórnar.
2. Reikningsskil.
3. Fjárfestingarstefna kynnt.
4. Lífeyrisuppgjör pr. 31.12.2002 - skýrsla
tryggingafræðings sjóðsins.
5. Breytingar á samþykktum.
6. Kosning tveggja manna í stjórn og eins til vara.
7. Kosning endurskoðanda og tveggja
skoðunarmanna.
8. Önnur mál.
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar sjóðsins ásamt
skýrslu tryggingafræðings og tillögum um breytingar á
samþykktum munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins viku
fyrir aðalfund, sjóðfélögum til sýnis. Ársreikning má einnig
nálgast á heimasíðu sjóðsins www.lifsverk.is.
Reykjavík, 7. maí 2003.
Stjórnin.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali,
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali, Unnar Smári Ingimundarson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali
Hagamelur
Mjög falleg, vel skipulögð og mikið
endurnýjuð 114 fm íbúð á 3. hæð,
efstu, í góðu steinhúsi í vesturbæn-
um. Íbúðin skiptist í stórt parketlagt
hol, rúmgóðar saml. stofur m. suð-
ursvölum, eldhús m. góðri borðað-
stöðu og endurbættum upprunal.
innrétt., 2 svefnherb. auk herb. á
stigapalli sem auðvelt er að sameina íbúð og nýlega endurn. flísalagt bað-
herbergi. Áhv. húsbr. 4,9 millj. Verð 18,2 millj.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930