Morgunblaðið - 11.05.2003, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FIMM manns voru stungnir með hnífi í íbúð í blokk í
Mosfellsbæ rétt fyrir klukkan átta á laugardagsmorg-
uninn.
Þeir sem fyrir árásinni urðu voru allir fluttir á
sjúkrahús og voru mismikið særðir að sögn lögreglu,
enginn þó lífshættulega. Vopnið sem talið er líklegt að
árásarmaðurinn hafi notað fannst úti við á vettvangi.
Að sögn lögreglu eru málavextir enn óljósir. Beinist
grunur að einum einstaklingi sem færður var á lög-
reglustöð en málið var enn í rannsókn um hádegi.
Morgunblaðið/Júlíus
Sérfræðingur tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík að störfum á vettvangi í Mosfellsbæ í gærmorgun.
Fimm stungnir með hnífi
EINS og staðan er núna er ekki út-
lit fyrir að hægt verði að útvega
nær 1.200 einstaklingum, á aldrin-
um sautján til 25 ára, sem eru á
skrá hjá Vinnumiðlun skólafólks í
Hinu húsinu í Reykjavík, vinnu í
gegnum miðlunina í sumar, að
sögn Auðar Kristínar Welding,
verkefnastjóra Vinnumiðlunarinn-
ar.
Umsóknarfrestur um að skrá sig
hjá Vinnumiðluninni rann út um
mánaðamótin. Alls 2.588 einstak-
lingar skráðu sig hjá miðluninni en
að sögn Auðar eru um 1.400 störf í
boði; þar af eru um 950 störf hjá
stofnunum Reykjavíkurborgar og
um 450 störf til viðbótar sem „búin
eru til“ vegna 150 milljóna fram-
lags borgarinnar til þessa mála-
flokks.
Að sögn Auðar er staðan í at-
vinnumálum ungmennanna svipuð
nú og í fyrra nema hvað umsókn-
arfrestur um störf í gegnum miðl-
unina rann út mánuði fyrr núna.
Það var gert, að sögn Auðar, til
þess að hægt yrði að átta sig á stöð-
unni fyrr; nú hafi námsmenn t.d.
meiri tíma til að leita fyrir sér á
fleiri stöðum. „Staðan er ekki góð,“
segir hún „og því hvetjum við fólk
til þess að leita að vinnu sem víð-
ast.“ Auður segist verða vör við að
margir hafi áhyggjur af stöðunni.
Hanna María Jónsdóttir, rekstr-
arstjóri Atvinnumiðstöðvar stúd-
enta, segir að þar séu um 600 há-
skólastúdentar á skrá eftir vinnu;
flestir séu að bíða eftir sumarstörf-
um. Hún segir að færri störf séu í
boði nú en í fyrra en kveðst þó von-
ast til þess að ástandið eigi eftir að
batna í maímánuði.
Erfitt fyrir námsfólk
að fá sumarvinnu
RÚMLEGA tvítugur maður lést þegar
hann féll fram af klettum á Hellissandi
skömmu eftir miðnætti á föstudag.
Talið er að ungi maðurinn hafi hrapað um
11 metra og látist samstundis. Gerðar voru
ráðstafanir til að senda þyrlu vestur, en til
þess kom ekki.
Banaslys á
Hellissandi
EINHVERJIR gerðu sér að leik
aðfaranótt laugardags að færa
framboðsfána á milli kosninga-
skrifstofa á Akranesi. Þannig hékk
m.a. fáni Sjálfstæðisflokksins á
kosningaskrifstofu Frjálslyndra og
Samfylkingarfáninn hjá Framsókn
á laugardagsmorguninn. Lögregl-
an á Akranesi sá til þess að snar-
lega yrði skipt um fána og hver
þeirra settur á réttan stað en málið
er ekki litið alvarlegum augum.
Skiptu
á fánum
UMSLÖG utan um utankjörfundar-
atkvæði, sem hafði verið sent frá
Tékklandi með hraðflutningafyrir-
tækinu DHL og barst yfirkjör-
stjórn Reykjavíkurkjördæmis suð-
ur í gærmorgun, höfðu verið rifin
upp, bæði hið innra og ytra, og ytra
umslagið verið límt aftur með lím-
bandi merktu DHL.
Sveinn Sveinsson, oddviti yfir-
kjörstjórnar í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður, sagði við Morgunblað-
ið að málið væri litið mjög
alvarlegum augum. Væri umslag ut-
an um utankjörfundaratkvæði opn-
að áður en það bærist kjörstjórn
væri það úrskurðað ógilt. Hann
sagði að samband hefði verið haft
strax við DHL og skýringa óskað.
Sveinn Bergmann í þjónustudeild
DHL hér á landi sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki vita með
hvaða hætti nákvæmlega þetta
hefði gerst. Líklegast væri að þetta
hefði gerst við öryggistékk starfs-
manna DHL eða tollvarða erlendis.
Umslög
með
atkvæði
rifin upp
SÚ neyslustýring, sem birtist í
skattastefnu stjórnvalda, er mjög
óeðlileg þegar kemur að drykkjar-
vörumarkaðnum, að mati Jóns Dið-
riks Jónssonar, forstjóra Ölgerðar-
innar Egils Skallagrímssonar, þar
sem svokallaður „sykurskattur“ er
ekki aðeins lagður á sykraða gos-
drykki heldur einnig á vatn og aðra
sykurlausa drykki. Sykurskattinn,
sem er í formi vörugjalds, má rekja
allt aftur til ársins 1971, en gjaldið
var lagt á gosdrykki og sælgæti m.a.
í því augnamiði að sporna gegn syk-
urneyslu.
Þá gagnrýnir Jón Diðrik að á með-
an 24,5% virðisaukaskattur sé af
vatni, beri sykraðir goslausir svala-
drykkir og djús ekki nema 14% virð-
isaukaskatt.
Vatn vinsælasti
drykkurinn
„Allt neyslumynstur hefur breyst
mjög mikið frá því að sykurskatt-
urinn var settur á gosdrykki og sæl-
gæti fyrir fjölmörgum árum, en
nærri lætur að um 35% af gos-
drykkjasölu okkar sé nú í formi syk-
urlausra gosdrykkja,“ segir Jón Dið-
rik. Þróunin sýni að neysla
sykurlausra drykkja hefur aukist gíf-
urlega á síðustu árum auk þess sem
sérstök ástæða sé til að fagna vin-
sældum vatnsins, hvort sem það er
keypt eða úr krana, að mati Jóns
Diðriks, en samkvæmt nýlegri könn-
un Manneldisráðs er vatn nú orðið
vinsælasti drykkur landsmanna.
Maríanna Jónasdóttir, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að
í upphafi hafi staðan væntanlega ver-
ið sú að erfitt hafi verið að greina á
milli gosdrykkja og annarra kol-
sýrðra drykkja, eins og vatns, spurð
um ástæður þess að vatn beri syk-
urskatt.
Óeðlilegt
að vatn
beri „syk-
urskatt“
Maltið verður/14
Forstjóri
Ölgerðarinnar
Sigur Rós tilnefnd
Þjóðleg/30 Jón Þór, söngvari Sigur Rósar.
arins og popptónlist og eitt stærsta
atriði Listahátíðar í Reykjavík á síð-
asta ári var uppfærsla þeirra á
Hrafnagaldri Óðins. Sigurður Flosa-
son og Pétur Grétarsson kynntu
verkefni á Listahátíð sem þeir köll-
uðu Raddir þjóðar. Þar spunnu þeir
saman gamlar hljóðritanir með ís-
lenskum kveðskap og eigin tónlist.
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós, Stein-
dór Andersen og Hilmar Örn Hilm-
arsson annars vegar og Sigurður
Flosason og Pétur Grétarsson hins
vegar eru tilnefnd af hálfu Íslands til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs í ár.
Sigur Rós, Steindór og Hilmar
hafa vakið athygli á undanförnum
árum fyrir að tvinna saman þjóð-
legan tónlistararf rímnakveðskap-
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
♦ ♦ ♦