Morgunblaðið - 20.05.2003, Síða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 39
Glæsilegir Smeg blástursofnar
og helluborð á frábæru verði
Einstök ítölsk hönnum og háþróuð tækni
sameinast í þessum glæsilegu ofnum og
helluborðum sem tryggja öryggi og gleði í
eldhúsinu.
Við bjóðum nokkrar gerðir af Smeg
blástursofnum og helluborðum á einstöku
verði á meðan birgðir endast.
Einstakt tækifæri til að gera góð kaup.
PÁLL Gíslason framkvæmdastjóri,
sem varð fimmtugur í febrúar, kom
þeim boðum til ættingja sinna og
vina að hann vildi ekki fá afmæl-
isgjafir sjálfur heldur láta þær
renna til ákveðinna verkefna fyrir
Krabbameinsfélagið. Málið er hon-
um skylt vegna þess að hann
greindist með nýrnakrabbamein á
síðasta ári.
Verkefnin sem hann valdi voru
annars vegar prentun auglýsinga-
spjalda fyrir Krabbameinsráðgjöf-
ina og hins vegar búnaður fyrir
námskeiðin „Að lifa með krabba-
mein“. Hjá Krabbameinsráðgjöfinni
svara hjúkrunarfræðingar í síma
800 4040 kl. 15–17 alla virka daga og
veita upplýsingar og ráðgjöf. Nám-
skeiðið „Að lifa með krabbamein“ er
haldið á vegum Landspítala – há-
skólasjúkrahúss og Krabbameins-
félags Reykjavíkur og er ætlað fólki
með krabbamein og aðstandendum
þess. Þegar afmælisgjafirnar voru
afhentar sögðu fulltrúar Krabba-
meinsfélagsins að þeir fögnuðu
þessu frumkvæði Páls og væru hon-
um mjög þakklátir. Félagið væntir
þess að fleiri feti í fótspor Páls.
Hervör Pálsdóttir, Arnfríður Gísladóttir, Páll Gíslason, Nanna Friðriksdóttir frá námskeiðinu „Að lifa með
krabbamein“ og Kristín Alexíusdóttir frá Krabbameinsráðgjöfinni.
Afmælisgjafir runnu
til Krabbameinsfélagsins
AÐALFUNDUR Thorvaldsens-
félagsins var haldinn nýlega og kom
fram í skýrslu stjórnar að á síðasta
starfsári gaf félagið tæplega þrjár
milljónir til góðgerðar- og líknar-
mála. Samtökin Vímulaus æska voru
styrkt um eina milljón og barna-
deildin á Landspítalanum í Fossvogi
um eina milljón, aðrir styrkir voru til
foreldra veikra barna, Lyngáss, Um-
hyggju og fleiri aðila er láta sig góð
málefni varða.
Einnig kom fram hve sjálfboða-
störf félagskvenna til fjáröflunar eru
félaginu ómetanleg og var þakkað
fyrir það mikla traust og góðvild sem
einstaklingar og fyrirtæki hafa sýnt
Thorvaldsensfélaginu.
Á síðasta ári var opnuð heimasíða
Thorvaldsensfélagsins. Þar eru upp-
lýsingar um félagið, m.a. litmyndir af
öllum jólamerkjum sem félagið hefur
gefið út. Þar er einnig sagt lítillega
frá öllum listamönnum sem hafa gert
myndirnar á merkin. Heimasíða fé-
lagsins er á slóðinni www.thorvald-
sens.is.
Gáfu tæpar 3 milljónir
til góðgerðarmála
KSÍ, ESSO og ÍBV hafa undirritað 3 ára samstarfssamning sem gerir
ESSO að stærsta einstaka styrktaraðila knattspyrnudeildar ÍBV. Sam-
starf ÍBV og ESSO er orðið langt og farsælt en fyrsti samningurinn var
gerður árið 1988. Við undirritun samningsins var einnig kynntur nýr
búningur félagsins. Nýja búningalínan kemur frá Hummel.
Á myndinni handsala Auður Björk Guðmundsdóttir, kynningarstjóri
ESSO, og Birgir Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍBV, samninginn. Liðs-
menn ÍBV sem kynntu nýju búningana eru frá vinstri Elena Einisdóttir,
leikmaður kvennaliðs ÍBV, Hjalti Jónsson og Bjarnólfur Lárusson, leik-
menn karlaliðs ÍBV.
ESSO aðalstyrktar-
aðili ÍBV næstu 3 ár
AcoTæknival sýnir nýjar fartölv-
ur Fyrstu fartölvurnar byggðar á
þráðlausu Centrino tækninni frá
Intel verða kynntar á Grandhótel í
Reykjavík á morgun, þriðjudaginn
20. maí, kl. 17. AcoTæknival sýnir
tvær nýjar gerðir LifeBook far-
tölva frá Fujitsu Siemens. Ör-
gjörvafyrirtækið Intel kynnti
Centrino tæknina fyrir fáeinum
vikum en hún er sérsniðin að far-
tölvum í því skyni að auka nota-
gildi þeirra, þægindi og afköst.
Nánari upplýsingar er að finna á
slóðinni www.atv.is/skraning.
Í DAG
Oddastefna, árleg ráðstefna
Oddafélagsins, verður haldin
laugardaginn 24. maí kl. 14-18, í
Frægarði, húsakynnum fræverk-
unarstöðvar Landgræðslu ríkisins
í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Á
þessari elleftu Oddastefnu verður
hugað að sókn og sigrum í barátt-
unni gegn sandfoki og gróðureyð-
ingu, einkum í Rangárþingi. Allir
eru velkomnir. Erindi halda:
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri, Magnús H. Jóhannsson líf-
fræðingur og Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri. Fundarstjóri
verður Friðjón Guðröðarson,
fyrrv. sýslumaður Rangárvalla-
sýslu. Nánari upplýsingar gefur
Þór Jakobsson veðurfræðingur,
formaður Oddafélagsins, netfang:
thor@vedur.is
Lesið í skóginn – tálgað í tré,
Grunnnámskeið verður haldið í
Garðyrkjuskólanum 31. maí og 1.
júní. Á námskeiðinu verður kennt
að lesa í margbreytileg form
trjánna og velja efni til ólíkra
nota. Einnig verður fjallað um ein-
kenni og eiginleika íslenskra við-
artegunda og undirstöðuatriði við-
arfræði, skógarvistfræði og
skógarhirðu o.fl. Leiðbeinendur á
námskeiðinu verða Ólafur Odds-
son frá Skógræktinni og Guð-
mundur Magnússon, handverks-
maður á Flúðum. Námskeiðið
stendur frá kl. 10-18, báða dagana.
Skráning og nánari upplýsingar
um námskeiðið fást á skrifstofu
skólans eða á heimasíðu hans,
www. reykir.is.
Á NÆSTUNNI
Félag nýrnasjúkra heldur
fræðslufund á morgun, miðviku-
daginn 21. maí, kl. 20 í Hátúni 10b, í
kaffiteríunni á 1. hæð. Kolbrún Ein-
arsdóttir næringaráðgjafi flytur er-
indið: Næring og nýrnabilun. Það
fjallar um mataræði nýrnasjúkra.
Á MORGUN
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á stjórnarfundi Vöku félags
lýðræðissinnaðra stúdenta, 14. maí
sl.: „Stjórn Vöku, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, fagnar þeim ár-
angri sem náðist í síðustu viku þegar
stjórn LÍN samþykkti nýjar úthlut-
unarreglur.
Stúdentaráð undir forystu Vöku,
ásamt öðrum námsmannahreyfing-
um, náði því fram að hækka grunn-
framfærslu námslána umfram verð-
bólguspár, hækka frítekjumark um
20.000 krónur og lækka skerðingar-
hlutfall úr 40 % í 35 %.
Ásamt þessu var 5 ára reglan
rýmkuð í 6 ár fyrir þá sem eru að
ljúka sínu öðru lokaprófi í lánshæfu
námi og réttur þeirra stúdenta sem
búa hjá efnalitlum foreldrum stað-
festur.
Stefna Vöku hefur ávallt verið sú
að ekki eigi að refsa námsmönnum
fyrir að vinna með námi og hafði það
áhrif á þær áherslur sem fulltrúar
stúdenta lögðu fram í viðræðunum
um nýjar úthlutunarreglur. Meira en
90% stúdenta eru með tekjur yfir
300 þúsund krónum, sem er hið nýja
frítekjumark, og kemur lækkun
skerðingarhlutfallsins þeim stúdent-
um mjög vel.
Þær breytingar sem gerðar voru á
úthlutunarreglunum í ár eru í fullu
samræmi við þá stefnu sem Vaka
lagði fram í síðustu kosningum. Frá
því að Vaka tók við forystu í Stúd-
entaráði hafa ráðstöfunartekjur
námsmanna á námslánum hækkað
um 12.000 krónur að meðaltali á
mánuði. Hér má þó ekki láta staðar
numið og mun Vaka fls. halda áfram
að berjast fyrir bættum hag stúd-
enta í lánasjóðsmálum.“
Fagnar nýjum út-
hlutunarreglum
Rangt föðurnafn
Föðurnafn Guðrúnar Óskars-
dóttur misritaðist í myndatexta við
grein um fimmtíu ára afmæli List-
dansskóla Íslands í Lesbókinni 17.
maí. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦