Morgunblaðið - 23.05.2003, Síða 2

Morgunblaðið - 23.05.2003, Síða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Justiniano „Ning“ de Jesus hefur kynnt asíska mat- argerð fyrir Íslendingum sl. 30 ár. Anna G. Ólafsdóttir fræddist um viðburðaríka ævi Nings. Mun sakna margs úr boltanum Guðni Bergsson leggur skóna á hilluna eftir leikina við Færeyjar og Litháen í júnímánuði. Hann segir Guðmundi Hilmarssyni að hann muni sakna margs úr boltanum. Komið til hjálpar Auðn og mannlegt niðurbrot eftir áratugar ribbaldastríð blasir víða við í Síerra Leóne. Elín Pálmadóttir kynntist manngæsku í þessu stríðshrjáða landi. Nings ekki án Nings á sunnudaginn NÝ RÁÐHERRASKIPAN Töluverðar breytingar verða á ráðherraskipan Sjálfstæðisflokksins í næstu ríkisstjórn. Björn Bjarnason kemur í stað Sólveigar Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra, sem lætur af embætti og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tekur við embætti menntamálaráðherra af Tómasi Inga Olrich um áramótin. Sigríður Anna Þórðardóttir tekur við sem nýr umhverfisráðherra haustið 2004. Davíð Oddsson verður for- sætisráðherra til 15. september 2004 þegar Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra tekur við því embætti. Hjá Framsóknarflokki kemur Árni Magnússon, nýr þingmaður flokksins, í stað Páls Péturssonar sem félagsmálaráðherra. Eitt þúsund fórst í Alsír Að minnsta kosti þúsund manns fórst í jarðskjálftanum í Alsír á mið- vikudag og nær sjö þúsund eru slös- uð. Hundraða manna er enn saknað og björgunarmenn leita myrkranna á milli í rústunum. Hærri lán og bætur Stefnt er að því að lækka endur- greiðslubyrði námslána, draga úr tekjutengingu barna- og örorkubóta og hækka lánshlutfall almennra íbúðalána í áföngum á kjörtíma- bilinu, að því er fram kemur í stefnu- yfirlýsingu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem samþykkt var í gærkvöld. Í stefnuyfirlýsing- unni kemur fram að aukið svigrúm ríkissjóðs verður nýtt til að tryggja aukinn kaupmátt þjóðarinnar með „markvissum aðgerðum í skatta- málum“. Viðskiptabanni á Írak aflétt Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun sem felur í sér að viðskiptabanni á Írak verði aflétt og veitir Bandaríkjamönnum og Bretum víðtækt umboð til að móta framtíð landsins í efnahagslegu og pólitísku tilliti. F Ö S T U D A G U R 2 3 . M A Í 2 0 0 3 B L A Ð C  F-BEKKURINN Í HÓFI/2  ATLAGA AÐ ÍMYNDUM/4  SNÚIÐ ÚT ÚR STAÐALÍMYNDUM/5  BORGARBARN EÐA GEIMALDARGLYÐRA?/6  AUÐLESIÐ EFNI/8  STRANDFATNAÐUR er tekinn aðseljast í íslenskum verslunum,enda landinn þegar í maí farinn að spóka sig á erlendum sólarströndum. Á næsta leiti er svo íslenska sumarið í allri sinni dýrð og sundlaugar í sveit og byggð fyllast af fólki. Í baðfatnaði gætir tískustrauma eins og annars staðar á hönnunarsviði. Stundum tekur litaúrval mið af því sem gerist almennt í kvenfatnaði og svo er einnig í ár. Hermannagræn bikiní eru ný af nálinni og sundfatnaður í felulitum einnig. Þá eru skær, einlit bikiní áberandi, í sömu gulu, bleiku, rauðu, grænu og túrkísbláu litunum og flík- urnar sem nú sjást í gluggum tísku- verslana. Enn fremur ratar röndótta bylgjan inn í baðfatahillurnar. Talsvert færist í vöxt að ungar konur komi sér upp tveimur settum af sundfatn- aði, annars vegar til þess að synda í og hins vegar til þess að sleikja sólina. „Ef ætlunin er að vera bara í heita pottinum með vin- unum, þá virðast stúlkurnar kjósa efn- isminni baðföt,“ segja stúlkurnar í Útilífi. Þær benda á að bikiní-buxur, lágar í mittið, njóti vinsælda hjá unglingsstúlkum og þá annaðhvort mynstraðar eða einlitar. Þá séu brjóstahöld með púðum einnig talsvert eftir- sótt. „Bikiníin frá Seafolly eru svo þannig að hægt er að raða saman mismunandi númerum eða sniðum eftir þörfum,“ segir Guðlaug Þórð- ardóttir, deildarstjóri í sportdeildinni, og á við að toppar og buxur séu seld stök. Það kemur sér vel fyrir margan viðskiptavininn, enda hver með sitt sköpulag. Seafolly-strandfatnaðurinn er einnig nýstárlegur að því leyti að hægt er að fá töskur og hatta í stíl við sum bikiníin, að ógleymdum fagurlega litum sandölum. Sænsku sundfötin frá Firefly og Etriel, sem fást í Intersport, gefa einnig möguleika á að raðað sé saman mismunandi númerum. Þar á bæ njóta sterku litirnir einnig vinsælda, en sniðin eru mismunandi. „Það eru annars vegar tíglarnir – þríhyrnd brjóstahöld með böndum – og hins vegar fylltir púðar,“ segir Ollý Ólafs- dóttir, deildarstjóri í dömudeild, spurð um það helsta. „Svo eru buxurnar frekar hátt skornar. Það eru reyndar alltaf einhverjar sem spyrja um bikiní-buxur með skálmum, en eftirspurnin eftir þeim hefur þó minnkað mjög.“ Þá er enn ónefnd ein heitasta nýjungin á markaðnum, svonefnt tankini, sem er eins kon- ar sambland af sundbol og bikiníi. Um er að ræða hefðbundnar bikiní-buxur og topp sem nær niður að nafla, þannig að hlutarnir ná nærri því saman. Í sumum tilfellum er hægt að fá slíkan topp og brjóstahald við sömu buxurnar, og víxla svo eftir veðri eða skapi. Tankini-settin koma í ýmsum litum og snið- um, oft er toppurinn bundinn fyrir aftan háls og í flestum tilvikum eru buxurnar hátt skornar. Í báðum verslunum eru Speedo-vörur ann- ars vinsælastar til bókstaflegra sundferða og æfinga, og þá sérstaklega nýja línan sem merkt er Endurance, úr efni sem talið er sérlega endingargott í klórbættum laugum. Og þá er bara spurningin; er ferðinni heit- ið í sund, eða einungis á sundlaugarbakkann sjálfan? Saltbragð af strandtísku Morgunblaðið/Árni Torfason Bikiní – Röndótta bylgjan ratar inn í baðfatahillur búðanna sem og einlit bikiní með ýmsu sniði; skærlituð, hermannagræn eða í felulitum. T.v. eru tvær gerðir af bikiníi frá Intersport en t.h. tvær frá Útilífi. S U M A R IÐ 2 0 0 3 Samfestingar í ýmsum útfærslum. Franskt póstkort 1905. B A Ð FA TN A Ð U R Á sandi, í sundi, á landi 7 Húsgagnahöllin Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 32/37 Viðskipti 12 Bréf 56 Erlent 16/18 Dagbók 42/43 Höfuðborgin 20 Staksteinar 42 Akureyri 21 Brids 43 Suðurnes 22 Sport 44/47 Landið 22/23 Leikhús 48 Listir 24/25 Fólk 48/53 Umræðan 26/27 Bíó 50/53 Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54 Viðhorf 32 Veður 55 * * * Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir blaðið Garður frá Garðyrkjufélagi Ís- lands. Blaðinu er dreift um allt land. SÝNING á verkum bandaríska myndlistarmannsins Matthews Barneys verður opnuð í Nýlista- safninu við Vatnsstíg á morgun. Barney er einn af þekktustu mynd- listarmönnum samtímans en aðal- gagnrýnandi The New York Times sagði nýverið að hann væri mikil- vægasti bandaríski listamaður sinnar kynslóðar. Barney kallar sýninguna Cremaster Plate og vísar titillinn til þess að verkin á sýningunni, sem unnin er sérstaklega fyrir safnið, eru sótt í hið umfangsmikla Cremaster-verkefni, sem Barney lauk við í fyrra og tók hann átta ár að gera. Cremaster-verkin mynda fimm kvikmyndir, auk skúlptúra og ljós- mynda. Heiti verksins er sótt til vöðvans „cremaster“ sem er í kviðarholi karla og lyftir eistunum eða lætur þau síga, eftir ytra áreiti eða hitastigi. Út frá hugmyndum um æxlunarfæri manna hefur Barney skapað einstakan myndheim, und- irbyggðan af ævintýralegum tákn- um og persónulegri frásögn. Cremaster-kvikmyndirnar fimm verða allar sýndar á sýningunni í Nýlistasafninu, en einnig í Regnbog- anum. Morgunblaðið/Einar Falur Matthew Barney vinnur að steypu annars af tveimur skúlptúrum sem hann hefur gert í Nýlistasafninu, en þeir eru úr vaselíni, vaxi og plasti. Fyrir ofan skúlptúrinn eru ljósmyndir úr tveimur af fimm Cremaster-kvikmyndum Barneys og sýna þær hann og Ursulu Andress í hlutverkum sínum í Cremaster 4 og 5. Einstakur myndheimur Matt- hews Barneys í Nýlistasafninu HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Orkuveitu Reykjavíkur til að greiða Guðmundi Felix Grétarssyni, sem missti báða handleggi eftir gífurlegt raflost í háspennulínu fyrir fimm árum, 16,6 milljónir króna í skaða- bætur. Í héraði fékk hann 15 millj- ónir króna en Hæstarétti þótti rétt- lætanlegt að hækka bæturnar. Guðmundur var að lagfæra bilun í svonefndri Grafarholtslínu 12. jan- úar 1998 og gekk að viðgerð lokinni meðfram línunni til að athuga um frekari skemmdir. Klifra þurfti upp í hvern staur til að framkvæma þá athugun og varð slysið þegar Guð- mundur fór grunlaus upp í staur í annarri línu, Úlfarsfellslínu, með 11 þúsund volta spennu. Staur í línunni var næstum í beinni sjónlínu við Grafarholtslínu. Hæstiréttur taldi að gera þyrfti ríkar kröfur til OR varðandi öryggis- ráðstafanir og var sök OR metin svo yfirgnæfandi í samanburði við aðgæsluleysið sem Guðmundur kynni að hafa sýnt, að ekki þætti ástæða til að leggja hluta sakar á hann, eins og deilt var um. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Ingi- björg Benediktsdóttir og Pétur Kr. Hafstein. Lögmaður Guðmundar var Gísli Baldur Garðarsson hrl. og lög- maður OR Jakob R. Möller hrl. Missti báða handleggi eftir vinnuslys í háspennulínu Dæmdar 16,6 milljónir króna í skaðabætur „ÉG er alsæll með niðurstöðu Hæstaréttar og feginn að málið skuli vera búið,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson. „Það var ágætt að málinu skyldi hafa verið áfrýjað og að Hæsti- réttur skyldi hækka bæturnar. Mér heilsast ágætlega og ég er í hluta- starfi í hönnunardeild hjá Orku- veitu Reykjavíkur við að teikna raf- lagnir og þess háttar. Ég hef einnig hug á að fara í frekara nám,“ sagði Guðmundur Felix í gærkvöldi. Alsæll með dóminn OPNUN miða- sölu á tónleika óperusöngkon- unnar Kiri Te Kanawa hefur verið flýtt um eina viku og hefst hún á mánudag kl. 9 á skrifstofu Sin- fóníuhljómsveit- ar Íslands. Aðeins eru 950 miðar í boði en miðaverð er á bilinu 9.900 til 14.900 kr. Að sögn Einars Bárðarsonar, sem skipuleggur tónleikana, verður ekki tekið við miðapöntunum, hvorki í síma, með netpósti né öðrum hætti, fyrr en á mánudag. Tónleikar verða í Háskólabíói laugardagskvöldið 15. nóvember. Julian Reynolds leikur með á píanó. Kiri Te Kanawa Miðasala að hefjast Kiri Te Kanawa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.