Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti loks í gær ályktun
sem felur í sér að viðskiptabanni á
Írak verði aflétt og veitir Bretum og
Bandaríkjamönnum víðtækt umboð
til að móta framtíð landsins í efna-
hagslegu og pólitísku tilliti. Fjórtán
af fimmtán ríkjum, sem sæti eiga í
öryggisráðinu, samþykktu álykt-
unina, en hún er númer 1483, og
voru Frakkland, Rússland og
Þýskaland þeirra á meðal. Fulltrúi
Sýrlands, sem er eina arabaríkið
sem nú á sæti í öryggisráðinu, var
fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.
Í ályktuninni er gert ráð fyrir því
að viðskiptabanninu, sem verið hef-
ur í gildi síðan í árslok 1990, verði af-
létt tafarlaust og tekjurnar af olíu-
lindum Íraks renni í þróunarsjóð,
sem hýstur verði hjá seðlabanka
Íraks. Hernámsstjórnin stýri því svo
hvernig útgjöldum úr sjóðnum verði
varið. Þá er hernámsþjóðunum falið
að koma á fót bráðabirgðastjórn,
sem Írakar færu fyrir, „þar til lýð-
ræðisleg ríkisstjórn, sem nyti við-
urkenningar annarra ríkja, hefur
verið mynduð af hálfu írösku þjóð-
arinnar“.
Engin tímamörk eru sett á her-
nám Íraks, eins og sumar þjóðir
höfðu þó krafist, en í staðinn sam-
þykkti öryggisráðið að það myndi að
tólf mánuðum liðnum hittast til að
leggja mat á stöðu mála. Samþykktu
Bandaríkjamenn á síðustu stundu
þetta ákvæði.
Ekki er kveðið á um það í álykt-
uninni að vopnaeftirlitsmenn SÞ
haldi aftur til Íraks til að leita ger-
eyðingarvopnanna, sem fullyrt hefur
verið að sé þar að finna. Sir Jeremy
Greenstock, sendiherra Bretlands
hjá SÞ, sagði hins vegar að umboð
þeirra til starfa í Írak yrði endurnýj-
að á næstu vikum.
SÞ „komnar aftur til leiks“
Frakkar og Rússar höfðu ýmis-
legt að athuga við fyrstu drög að
ályktuninni en þeim fannst SÞ vera
ætlað of veigalítið hlutverk í Írak.
Dominique de Villepin, utanríkisráð-
herra Frakklands, lýsti hins vegar
ánægju sinni í gær með endanlegt
orðalag ályktunarinnar og lét þau
orð falla að nú væru SÞ „komnar
aftur til leiks“.
De Villepin neitaði því að sú
ákvörðun Frakka að greiða atkvæði
með samþykkt ályktunarinnar væri í
ósamræmi við fyrri afstöðu þeirra,
að vera á móti herförinni í Írak.
Hann sagði orðalag ályktunarinnar
ekki með þeim hætti að líta mætti
svo á að með samþykkt hennar væru
SÞ að leggja blessun sína yfir stríðið
í Írak. Á hinn bóginn fælist í álykt-
uninni vísir að samstarfi um frið. Þá
benti de Villepin á að ályktunin
kvæði á um að sérlegur erindreki
framkvæmdastjóra SÞ fari til starfa
í Írak.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, vildi ekki tjá sig um það í gær
hvort öryggisráðið væri með sam-
þykkt þessarar ályktunar í reynd að
leggja blessun sína yfir árásina á
Írak eftir á. Lagði hann hins vegar
áherslu á að með þessu væri kominn
lagalegur grunnur fyrir því að SÞ
starfi að uppbyggingu Íraks og
myndun bráðabirgðastjórnar í land-
inu.
Annan sagðist ætla að skipa er-
indreka sinn, sem kveðið er á um að
fari til starfa í Írak, „án tafar“. Ekki
er vitað hvern hann hyggst skipa en
vitað er að Bandaríkjamenn vilja
gjarnan að Brasilíumaðurinn Sergio
Vieira de Mello, núverandi fram-
kvæmdastjóri Mannréttindastofn-
unar SÞ, verði fyrir valinu. De Mello
var á sínum tíma æðsti embættis-
maður SÞ í Austur-Tímor.
Kveður ályktunin á um að erind-
rekinn taki þátt í að koma íraskri
bráðabirgðastjórn á laggirnar, auk
þess sem hann á að sitja í ráðgjaf-
arnefnd sem fylgist með því að olíu-
þróunarsjóðnum áðurnefnda verði
stýrt með eðlilegum hætti.
Powell ánægður með Frakka
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði þá ákvörðun
Frakka að styðja ályktunina skref í
rétta átt hvað varðar samskipti
ríkjanna tveggja. Grunnt hefur verið
á því góða milli ríkjanna undanfarna
mánuði en Frakkar komu á sínum
tíma í veg fyrir samþykkt ályktunar
í öryggisráðinu sem hefði heimilað
hernaðaraðgerðir í Írak. Bretar og
Bandaríkjamenn létu engu að síður
til skarar skríða, sem kunnugt er.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir að létta viðskiptabanni af Írak
Fá víðtækt umboð til
að móta framtíð Íraks
Sameinuðu þjóðunum, París. AFP.
Ályktunin sam-
þykkt með fjór-
tán atkvæðum
gegn engu
Reuters
Jeremy Greenstock, sendiherra Bretlands hjá SÞ (fyrir miðju), hlýðir á mál bandarísks starfsbróður síns, Johns
Negropontes (t.h.), í gær. Fulltrúi Sýrlands var fjarverandi og því var stóll hans auður við atkvæðagreiðsluna.
NORÐMENN, sem eru vanir að
sjá sig í hlutverki friðelskandi
sáttasemjara, reyndu í gær að
finna einhverja skýringu á því
hvers vegna í ósköpunum þeir
væru lentir á lista yfir aðal-
skotmörk al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna.
Á miðvikudag var send út
hljóðrituð upptaka, þar sem
Ayman Al-Zawahiri, einn að-
alsamverkamanna Osama bin
Ladens, hvatti múslíma um allan
heim til að gera sjálfsmorðs-
árásir gegn vestrænum skot-
mörkum og nefndi í þessu sam-
bandi Noreg, ásamt
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Ástralíu.
Þar sem Noregur stóð alger-
lega utan við Íraksstríðið veltu
sérfræðingar því helzt fyrir sér
að þátttaka Norðmanna í stríðinu
gegn talibanastjórninni í Afgan-
istan hefði „unnið landinu inn“
þennan sess á skotmarkalista al-
Qaeda, ásamt vinfengi Norð-
manna við Bandaríkin og Ísrael.
En það er ofar flestra Norð-
manna skilningi að nokkur heil-
vita maður geti séð rökrétt sam-
hengi í því að Noregur sé
nefndur sem einn höfuðóvinur
hinna íslömsku öfgamanna sem
fara fyrir al-Qaeda.
„Það kemur mjög á óvart að
Noregur sé nefndur í upptaln-
ingu yfir aðeins fjögur lönd,“
sagði Brynjar Lia, sérfræðingur
um málefni Mið-Austurlanda við
öryggismálarannsóknastofnun
Noregs.
Ruglaðist Al-Zawahiri
í landafræðinni?
Danskur sérfræðingur í alþjóð-
legum hryðjuverkamálum, Lars
Erslev Andersen, blandaði sér í
þessa umræðu í gær með því að
lýsa efasemdum um að Al-
Zawahiri skuli í raun hafa ætlað
sér að nefna Noreg; líklegt sé að
hann hafi ruglazt í landafræðinni
og ætlað að nefna Danmörku
vegna virkrar þátttöku Dana í
hernaðaríhlutun bandamanna í
Írak.
„Ég held það hljóti að vera að
(sá sem talar í upptökunni) hafi
haft Danmörku eða Pólland í
huga, sem tóku þátt í stríðinu í
Írak, en ekki Noreg, sem þar
kom hvergi nærri,“ sagði And-
ersen.
Andersen efast um að á upp-
tökunni heyrist í raun rödd Al-
Zawahiris. „Al-Zawahiri þekkir
þessi tvö lönd (Noreg og Dan-
mörku) vel. Að hann rugli þeim
saman getur aðeins bent til að á
þessari al-Qaeda-upptöku heyrist
rödd annars manns,“ sagði hann.
Vitað er að Al-Zawahiri hafi oft
komið til Danmerkur, í tengslum
við hlutverk sitt, fram til 1996,
sem ritstjóri Al Moujahidoun,
fréttarits herskárra múslíma sem
gefið er út í Kaupmannahöfn.
Hann kvað þó aldrei hafa verið
búsettur í Danmörku.
Liggur betur við höggi
Svartsýnustu kenninguna um
það hví Noregur er nefndur í al-
Qaeda-upptökunni setti fram
Stein Tønnesson, yfirmaður Al-
þjóðlegu friðarrannsóknastofn-
unarinnar í Noregi. „Noregur er
nefndur vegna þess að al-Qaeda-
liðar vita að verið er að undirbúa
árás. Í baráttu [al-Qaeda-
samtakanna] gegn vestrænum
skotmörkum blasir við að okkar
land liggur betur við höggi en
Bandaríkin, þar sem örygg-
isráðstafanir eru gríðarlegar,“
sagði Tønnesson.
Við þessar fréttir hafa örygg-
isráðstafanir verið stórauknar við
sendiráð og önnur hugsanleg
skotmörk hryðjuverkamanna
bæði í Ósló og Kaupmannahöfn.
Bandaríska sendiráðinu í Ósló
var lokað í gær og í brezka utan-
ríkisráðuneytinu var verið að
íhuga hvort gefin skyldi út op-
inber viðvörun gegn ferðum
brezkra borgara til Noregs.
Norsk stjórnvöld ráðlögðu
starfsfólki norskra sendiráða og
fyrirtækja erlendis að vera á
varðbergi, og réðu norskum
borgurum sem hygðu á ferðalög
frá því að taka neina áhættu.
Odd Einar Dörum, dómsmála-
og lögreglumálaráðherra Noregs,
gerði lítið úr hættunni. „Við telj-
um ekki að ógnin við innra ör-
yggi landsins hafi vaxið til
neinna muna,“ sagði hann.
Norðmenn leita skýringa
Sérfræðingar varpa fram ýmsum kenningum um ástæður þess
að Noregur skyldi nefndur sem skotmark al-Qaeda
Ósló, Kaupmannahöfn. AFP.
ÍRAKI gengur hjá brjóstmynd af
Saddam Hussein, fyrrverandi
Íraksforseta, í ónotaðri verksmiðju
í Bagdad í gær. Búið er að safna
saman tugum, ef ekki hundruðum,
sambærilegra brjóstmynda og
styttna af Saddam og ýmsum írösk-
um herforingjum og er stefnt að því
að farga þeim fyrr en síðar. Í
stjórnartíð Saddams gat hvarvetna
að líta styttur eða myndir af hon-
um. Nú fara Bretar og Bandaríkja-
menn hins vegar með stjórn mála.
Reuters
Styttur bíða
förgunar
BRETLAND hefur gert
stjórnvöldum í Íran fullkom-
lega ljóst að þau megi ekki
skjóta skjólshúsi yfir liðs-
menn al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna. Þessu lýsti Tony
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, yfir í gær og tók þar
með undir með bandarískum
embættismönnum sem á mið-
vikudag höfðu sakað Írana
um að veita hryðjuverka-
mönnum liðsinni.
„Við vonum innilega að ef
það er rétt að þeir [Íranar]
hafi skotið skjólshúsi yfir al-
Qaeda-liða þá framselji þeir
þá því þessir menn eru, eins
og við höfum séð, afar hættu-
legar og illar mannverur,“
sagði Blair á fundi með blaða-
mönnum í London.
Krefjast þess að Banda-
ríkjamenn sanni mál sitt
Fyrr um daginn höfðu
írönsk stjórnvöld krafist þess
að Bandaríkjamenn færðu
sönnur á staðhæfingar sínar
þess efnis að Íranar hefðu
veitt al-Qaeda-mönnum að-
stoð. Hafði Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, m.a. sagt á miðviku-
dag að liðsmenn al-Qaeda
væru „á fullu“ í Íran. Hafa
borist fregnir um að menn-
irnir sem lögðu á ráðin um
hryðjuverkaárásina í Sádí-Ar-
abíu fyrir rúmri viku hafi
skipulagt hana í Íran.
„Al-Qaeda eru hryðju-
verkasamtök sem ógna hags-
munum Írans, öfgakennd
túlkun þeirra á Íslam er í
mótsögn við þá íslömsku lýð-
ræðishefð sem er verið að
reyna að móta í Íran. Við eig-
um ekkert sameiginlegt,“
sagði Saeed Pourazizi, náinn
ráðgjafi Mohammads Khat-
amis Íransforseta, hins vegar
í gær.
Írönum
ráðið frá
því að
hjálpa
al-Qaeda
London, Teheran. AFP, AP.