Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 18

Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 18
                        !"  "" # $   %#      ""            & '( )* +, '  -    "            Maður við hrunið hús í Reghaia, um 30 kílómetra austan við Algeirsborg. AP ENN er ekki vitað með vissu hve margir létu lífið í jarðskjálftanum í Alsír á miðvikudag en embættis- menn sögðu í gærkvöldi að þeir séu a.m.k. 1.092 auk þess sem nær sjö þúsund slösuðust. Talsmenn stjórn- valda sögðu að óttast væri að tala látinna ætti eftir að hækka mikið vegna þess að enn væri fjöldi manna grafinn undir húsarústum. Sums staðar hrundu allt að tíu hæða íbúðarblokkir til grunna eins og spilaborg. Hamfarirnar urðu um stundarfjórðung fyrir sjö um kvöld- ið og sátu þá flestir að snæðingi. Grátandi fólk ráfaði í gær um rúst- irnar og leitaði að horfnum ástvin- um, sumir reyndu að grafa með ber- um höndunum, að sögn breska útvarpsins, BBC. Nokkrir eftirskjálftar urðu í gær en ollu engu manntjóni að því er tal- ið var. Fjöldi manna svaf úti undir beru lofti nóttina eftir hamfarirnar af ótta við eftirskjálfta, einnig eru sum hús svo illa skemmd eftir ham- farirnar á miðvikudag að menn þora ekki að dvelja þar. Leituðu sumir húsaskjóls í skólum, aðrir flúðu út í sveit í bílum sínum. Svo mikið gekk á að sums staðar féllu tré, háar byggingar sveifluðust fram og aftur í hamförunum, múrhúð hristist af húsveggjum ef þeir þá ekki féllu al- veg. Beðið um blóðgjafa Víða slitnuðu rafmagnslínur sem jók enn á ringulreiðina og tafði fyrir hjálparstarfi, óttast var að tjón hefði orðið á vatnsleiðslum og öðr- um mikilvægum innviðum. Síma- kerfi voru undir miklu álagi vegna hringinga fólks sem leitaði frétta af ættingjum. Sjúkrahús á skjálftasvæðinu voru yfirfull í gær en stjórnvöld sögðu al- menningi að þau myndu ráða við að liðsinna slösuðum og nægar birgðir væru auk þess af tjöldum og öðrum neyðarbúnaði. Hins vegar var fólk beðið um að gefa blóð. Margar þjóðir og hjálparsamtök, þ. á m. Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn, buðu þegar aðstoð og leiðtogar sendu Abdelaziz Boutefl- ika, forseta Alsír, samúðaróskir. Jó- hannes Páll II páfi lýsti harmi sín- um í skeyti til aðstandenda og sagðist vona að þeir fyndu hjá sér nægilega samkennd til að takast á við áfallið. Frakkar réðu yfir Alsír í meira en öld og eiga mikil viðskipti við ríkið. Þeir sendu í gær 110 manna hóp sérþjálfaðra manna með leitarhunda og ýmsan búnað til að finna fólk í húsarústum. „Fremur en nokkru sinni fyrr standa Frakkar með Alsír og vinum sínum, alsírsku þjóðinni, í þessum ægilegu hörmungum,“ sagði Jacq- ues Chirac Frakklandsforseti í skeyti til Bouteflika. Sérþjálfuð sveit björgunarmanna lagði einnig af stað frá Þýskalandi í gær til Als- ír. Íslenskir björgunarmenn voru í viðbragðsstöðu ef til þess kæmi að kallað yrði út alþjóðlegt lið sérfræð- inga í leit í húsarústum. Upptök skjálftans voru við Thenia, um 60 kílómetra austan við höfuðstaðinn Algeirsborg. Banda- ríkjamenn, sem fylgjast með jarð- hræringum um allan heim, töldu að hann hefði verið um 6,7 stig á Richt- er-kvarða en alsírskir vísindamenn að hann hefði ekki verið nema 5,8 stig. Frakkar töldu hann hafa verið 6 stig. Ekki er vitað hvað olli þess- um mun á mælinganiðurstöðum. Mest varð manntjónið í borginni Boumerdes og fleiri borgum í grennd við hana en vitað var um minnst 624 látna í Boumerdes og um 457 í Algeirsborg. Alsír er mikið jarðskjálftaland enda mætast á svæðinu svonefndur Evrasíufleki og Afríkufleki sem nuddast saman í undirdjúpunum og valda spennu í berginu og jarðhrær- ingum. Mannskæður skjálfti varð í landinu 1954 og 1980 fórust um 3.000 manns í skjálfta er mældist 7,5 stig. Reuters Björgunarmenn að störfum í Boumerdes í gær. Óttast var að yfir 300 manns hefðu grafist undir rústum hússins. Algeirsborg. AFP, AP. Fjöldi fólks enn grafinn undir rústum í Alsír Að minnsta kosti 1.092 manns fórust og mörg þúsund slösuðust í jarðskjálfta ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti hefur sakað Evrópuríki um að torvelda baráttuna gegn hungri í Afr- íku með því að hunsa erfðabreyttar landbúnaðarafurðir. Líklegt þykir að þessi ásökun auki spennuna í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópusam- bandslanda fyrir leiðtogafund átta helstu iðn- ríkja heims í Frakklandi í byrjun næsta mánaðar. „Ríkisstjórnir Evrópu ættu að taka þátt í baráttunni fyrir þeim góða málstað að binda enda á hungrið í Afríku – ekki hindra hana,“ sagði Bush í ræðu sem hann flutti í liðs- foringjaskóla bandarísku strandgæsl- unnar í New London, Connecticut, í fyrradag. Hann sagði að andstaða Evrópuríkjanna við erfðabreyttar landbúnaðarafurðir byggðist á „ástæðulausum, óvísindalegum ótta“. Bush og leiðtogar Frakklands og Þýskalands hafa reynt að bæta sam- skipti landanna að undanförnu eftir harðar deilur um stríðið í Írak en um- mæli bandaríska forsetans kunna að vera fyrirboði harkalegra deilna um viðskiptamál. Nokkrir fréttaskýrend- ur sögðu að Bush hefði mikið til síns máls hvað varðar andstöðuna við erfðabreytt matvæli en vöruðu við því að berorð ásökun hans gæti orðið til þess að óvildin milli Bandaríkjanna og Evrópulandanna vegna Íraksstríðs- ins færðist yfir á viðskiptatengslin. Bandaríkjamenn hafa gengið lengst í framleiðslu erfðabreyttra matvæla en Frakkar og Þjóðverjar eru á meðal hörðustu andstæðinga slíkrar framleiðslu og þeir lögðust einnig eindregið gegn því að örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna styddi hernaðinn í Írak. „Ábyrgðarlaust orðagjálfur“ Evrópusambandið bannaði sölu á erfðabreyttum landbúnaðarafurðum árið 1998 vegna ótta meðal margra neytenda um að þær kynnu að vera skaðlegar heilsu manna og umhverf- inu. Robert B. Zoellick, viðskipta- fulltrúi Bandaríkjastjórnar, hélt því hins vegar fram í grein í Wall Street Journal á miðvikudag að erfðabreytt- ar nytjaplöntur væru ónæmari fyrir sjúkdómum, þurrkum og skaðlegum skordýrum, auk þess sem þær gætu hindrað jarðvegseyðingu og minnkað mjög þörfina á skordýraeitri. Hann sagði að „ábyrgðarlaust orðagjálfur“ ráðamanna í Evrópu hefði skaðað viðskiptahagsmuni Afr- íkuríkja og stuðlað að aukinni fátækt í álfunni. Allt að þriðjungur kornplantna og nær 80% sojabauna, sem framleiddar eru í Bandaríkjunum, innihalda gen sem hefur verið breytt. Bann Evrópu- sambandsins hefur kostað bandarísk fyrirtæki hundruð milljóna dala á ári. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa deilt um málið í viðræðum um heimsviðskipti í að minnsta kosti fjög- ur ár og Bandaríkjastjórn skaut deil- unni til Heimsviðskiptastofnunarinn- ar í vikunni sem leið. Segir Evrópuríki hindra baráttuna gegn hungri New London. Los Angeles Times. George W. Bush BJÖRGUNARMENN og sjálf- boðaliðar héldu í gær áfram leit að fólki í húsarústum í Alsír en harður jarðskjálfti, líklega 6,7 stig, skók landið á miðvikudag. Mikil skelfing greip um sig er hamfarirnar hófust og fólk þusti út á götur er öflugar byggingar riðuðu í átökunum. Víða hrundu hús til grunna, þök hrundu í borg- um og bæjum í grennd við upptök skjálftans. „Ég sá jörðina hristast. Ég sá fólk stökkva út um glugga á hótelinu,“ sagði einn við- mælenda frönsku sjónvarps- stöðvarinnar LCI, Ichar Mouiss. „Þetta var mikið áfall,“ sagði Mochine Douali, sem býr í miðborg Algeirs- borgar. „Ég hljóp út á götu með konunni minni og tveim dætrum og enginn hefur get- að sofnað enn þá vegna eft- irskjálftanna.“ Annar borg- arbúi, sem býr í hárri blokk, lýsti því sem gerðist. „Ég var á svölunum, horfði yfir mið- borg Algeirsborgar þegar ég sá eitthvað sem minnti á risa- stórt rykský. Mig svimaði þeg- ar húsið fór að sveiflast fram og aftur eins og reyr í vindi.“ Tugir íbúðarhúsa og ann- arra mannvirkja féllu í Al- geirsborg. Björgunarmenn fundu unga konu, Latifu, á lífi í rústum þriggja hæða húss í Rouiba, háskólahverfi höf- uðborgarinnar, en fóru var- lega við að reyna að ná henni upp. „Hún er kraftaverk, hún er á lífi. Við settum teppi yfir fæturna á henni og hún talar við björgunarmennina, þeir ættu að ná henni út,“ sagði íbúi á staðnum. Svo fór að Latifu var bjargað en eig- inmaður hennar fórst í jarð- skjálftanum. Víða heyrðust hróp og vein þegar fólk hélt aftur inn í hí- býli sín og kannaði skemmd- irnar, húsgögn voru brotin, búslóðin í haug á gólfinu. Aðr- ir þökkuðu Guði fyrir að hafa sloppið lifandi frá hörmung- unum. Einkum urðu skemmdir á illa byggðum gömlum húsum í þéttbýlum íbúðarhverfum í höfuðborginni og elsta hlut- anum, Casbah, þar sem mark- aðstorgið er. Sumir töldu þó að gömlu húsin hefðu staðið sig ótrúlega vel. Reiðir íbúar gagnrýndu hins vegar stjórn- völd fyrir að halda ekki við húsunum og trassa að láta skipta um gamlar vatns- og gasleiðslur sem víða sprungu. Athygli vakti að í sumum tilfellum hrundu eða stór- skemmdust tiltölulega ný hús þótt næstu hús af svipaðri gerð stæðust átökin. Gerðist þetta meðal annars í einu út- hverfanna, Reghaia, þar grófst fólk sem bjó í 10 hæða blokk undir rústunum er hús- ið hrundi til grunna. Taldi íbúi á staðnum að orsökin fyr- ir því að húsin stóðu sig mis- jafnlega gæti verið að ekki hafi verið nægilega vandað til smíðinnar og byggingareglur brotnar. Verst var ástandið í Boum- erdes-héraði austur af Al- geirsborg, höfuðborg Alsír. Fólk var illa tækjum búið en reyndi þó eftir fremsta megni að grafa lifandi úr rústunum. „Við erum hérna vegna þess að þetta eru nágrannar okk- ar, vinir okkar, og við verðum að gera allt sem við getum,“ sagði maður nokkur, sem kall- aði sig Ali. Hann var þó von- daufur um árangurinn enda ekki líklegt að menn fyndust á lífi undir rústum húsanna. „Minnti á risastórt rykský“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.