Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 32

Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ É g hef alltaf haft sér- stakt dálæti á ís- lenskum nöfnum. Hugsa sér, þvílíkt úrval. Stefán er til dæmis magnað orð. Stefán. Stefán. Stefán. Hrein unun að endurtaka það. Sigrún. Sigrún. Sigrún. S-i-g- r-ú-n. Ég gæti sagt orðið Sigrún þangað til ég sofnaði. Bjarni. Bjarni. Bjarni. Prófaðu að segja það hægt; B-j-a-r-n-i. Mergjað nafn. Best eru þó nöfn einstaklinga, ef faðerni þeirra er nefnt á eftir þeim. Ólöf Kjartansdóttir. Ólöf Kjartansdóttir. Ó-l-ö-f K-j-a-r-t- a-n-s-d-ó-t-t-i-r. Ég fæ gæsahúð við tilhugsunina. Marinó Baldursson. Marinó Baldursson. M-a-r-i-n-ó B-a-l-d- u-r-s-s-o-n. Er hægt að hugsa sér meiri Marinó en Marinó Baldursson? Svo er gaman að ímynda sér þær per- sónur sem liggja að baki nöfn- unum. Ólöf Kjartansdóttir er ábyggilega tvígift húsmóðir sem á heima í blokk í Álfheimunum. Hún er núna gift Eyjólfi Þorláks- syni heildsala, sem hún kynntist í Vestmannaeyjum árið 1986. Þá var hún gift Unndóri Olgeirssyni rafvirkja. Skilnaðurinn var að vonum erf- iður. Guðrún María, dóttir þeirra, var aðeins tveggja ára þegar pabbi hennar flutti að heiman. „Karer babbi?“ spurði hún, stundum oft á dag, vikurnar eftir skilnaðinn. Svona er lífið. Samlíf Ólafar og Eyjólfs hefur heldur ekki verið eintómur dans á rósum. Enda er ekkert eftirsóknarvert að dansa á rósum. Er ekki óþægilegt að dansa á rósum? Maður ímyndar sér það. Engin er rós án þyrna, eins og þar stendur. En hvað um það, í hjónabandi þeirra hafa skipst á skin og skúr- ir. Þau hittust í Vestmanna- eyjum, eins og fyrr segir. Það var ást við fyrstu sýn. Eyjólfur var eins og gengur á rölti með vinahópnum við höfnina, þegar hann kom auga á Ólöfu og vin- konu hennar, Védísi, þar sem þær hoppuðu skringilega á gang- stéttinni. „Hvað eruð þið að gera?“ kall- aði Eyjólfur á þær stöllur yfir götuna. „Við erum að reyna að stíga ekki á strik,“ svaraði Védís að bragði. Upp úr þessu spunn- ust samræður, sem enduðu með því að Ólöf, sem var nýorðin fer- tug, bauð Eyjólfi í 41 árs afmælið sitt, sem haldið yrði innan eins árs. Eyjólfur þáði boðið. Svo leið tíminn, Ólöf fór til síns heima og Eyjólfur til Akureyrar, þar sem hann stofnaði verslun með hjólbörur. Verslunin hafði umboð fyrir bandarísku Steal- wood-hjólbörurnar, gæðasmíði frá Washington-fylki. Ólöf, sem var nýbúin að eiga Guðrúnu Mar- íu, vann sem húsmóðir og hafði nóg að gera. Eyjólfur Þorláksson var ekki efst í huga hennar, þótt henni hefði oft orðið hugsað til myndarlega sextuga heildsalans sem hún hafði hitt úti í Eyjum. Svo kom afmælisdagurinn fyrr en varði; 27. júní 1987. Sólin vakti Ólöfu, enda var svo sem enginn tilgangur í því að draga fyrir þegar bjart var allan sólar- hringinn. Reyndar hefði það kannski verið betra, en látum það liggja milli hluta. Unndór Ol- geirsson, eiginmaður hennar, hafði þurft að rjúka í vinnuna fyrir allar aldir. „Ég verð víst að óska þér til hamingju núna, ástin mín,“ hafði hann sagt kvöldið áð- ur. Hann þurfti að ná flugi til Ísafjarðar, til að gera við raf- magnstöfluna á bæjarskrifstof- unum. Ólöf fór á fætur, labbaði fram í eldhús og setti tvær sneiðar í brauðristina. Guðrún María svaf eins og engill og það var algjör kyrrð í íbúðinni. Þá hringdi dyrabjallan. „Hver skyldi þetta vera?“ hugsaði Ólöf með sér. „Hver skyldi eiga erindi hingað svo árla morguns?“ Hún tiplaði fram ganginn, en ekki vildi betur til en að hún steig á hristu sem Guðrún María hafði verið að leika sér með á gang- inum kvöldið áður. Ölöf hentist á dyrnar, svo small í. Hún vankaðist við höggið og var svolitla stund að átta sig á því hvað hefði gerst. Loksins hafði hún rænu á að opna dyrnar, blóðug í andlitinu, með skurð á augabrún svo fossblæddi. Með heila auganu sá hún að þarna var Eyjólfur Þorláksson heildsali mættur, í sínu fínasta pússi, með blómvönd. „Til ham- ingju með afmælið, Ólöf mín,“ ætlaði Eyjólfur að segja, en hon- um krossbrá við að sjá hana svona útleikna. Eftir svolitla stund náði hann þó að segja: „Við verðum að koma þér á slysavarð- stofuna, Ólöf.“ Eyjólfur studdi Ólöfu niður stigann og út í bíl, sem var gam- all Mitsubishi Lancer, nýbónaður í tilefni dagsins. Þegar Ólöf hafði lagst í aftursætið og Eyjólfur var búinn að ræsa bifreiðina í fjórðu tilraun, mundi hún allt í einu eft- ir Guðrúnu Maríu. „Guðrún María!“ hrópaði hún, skelkuð. „Hver er Guðrún María?“ spurði Eyjólfur. „Dóttir mín! Dóttir mín!“ svaraði Ólöf. „Við verðum að sækja hana. Hún er sofandi uppi.“ Eyjólfur, sextugur heildsalinn, hljóp sem fætur toguðu upp stigaganginn, að íbúðinni. Ólöf beið í blóði sínu í bílnum. Þegar upp var komið uppgötvaði Eyj- ólfur að íbúðin var læst og hann hafði ekki lykil. Hann tók því til- hlaup og henti sér á hurðina. Ekki dugði það. Eyjólfur rotaðist við höggið, en nágranni Ólafar og Unndórs á fimmtu hæðinni, Þórður, varð var við lætin og kom fram á gang. Eyjólfur náði með herkjum að skýra málavexti fyrir honum og Þórður hringdi tafarlaust á sjúkrabíl. Sjúkrabíllinn kom eftir átta mínútur. Sjúkraliðarnir komu Ólöfu og Eyjólfi á börum inn í sjúkrabílinn, brutu upp dyrnar og náðu í Guðrúnu Maríu, sem nú var vöknuð og lá hjalandi í vöggu sinni. Þegar á Borgar- spítala var komið tók á móti þeim læknir að nafni Stefán. Stefán er magnað orð. Stefán. Stefán. Stefán. Hrein unun að endurtaka það. Ólöf og Eyjólfur Svo leið tíminn, Ólöf fór til síns heima og Eyjólfur til Akureyrar, þar sem hann stofnaði verslun með hjólbörur. VIÐHORF Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is ✝ Sigríður Breið-fjörð fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1928. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi fimmtudaginn 15. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Margrét Guðmunds- dóttir Breiðfjörð fulltrúi, f. í Reykjavík 25.6. 1903, d. 6.9. 1973, og Axel Thor- steinsson útvarps- maður, f. 5.3. 1895, d. 3.12. 1984. Fóstur- faðir Sigríðar, sem gekk henni í föðurstað, var Sigurður Breið- fjörð Jónsson stýrimaður, f. á Brunnastöðum í Vatnsleysu- strandarhreppi í Gullbringusýslu 14.10. 1896, d. 20.8. 1936. Systkini Sigríðar sammæðra voru Krist- jana B. Dimon, f. 25.12. 1930, bú- sett í Bandaríkjunum, og Sigurð- ur Guðmundur, f. 21.4. 1932, d. 13.11. 1997, prentari í Reykjavík. Bræður samfeðra voru Steingrím- ur Harry, f. 15.10. 1920, d. 11.8. 2002, Axel, f. 13.9. 1922, Halldór, f. 4.3. 1930, og Birgir, f. 24.8. 1941. Hinn 28. desember 1957 giftist Sigríður eftirlifandi eiginmanni sínum, Kjartani Guðjónssyni list- málara, f. 21.4. 1921. Foreldrar hans voru Sigríður Bjarnadóttir húsmóðir, f. 13.7. 1892, d. 29.3. 1967, og Guðjón Jónsson bryti, f. 28.6. 1889, d. 13.10. 1948. Synir Sigríðar og Kjartans eru: 1) Bjarni arkitekt, f. 5.6 1958, eiginkona hans er Lilja Grét- arsdóttir arkitekt, f. 13.6.1961. Synir þeirra eru Fjölnir, f. 6.12. 1994, Freyr, f. 6.12. 1994, og Sindri, f. 6.12. 2000. 2) Sig- urður, grafískur hönnuður, f. 8.9.1967, eiginkona hans er Hólmfríður Erla Finnsdóttir við- skiptafræðingur, f. 10.1. 1970. Dóttir þeirra er Guð- rún Gígja, f. 9.12. 1997. Fyrir hjónaband eignaðist Kjartan son- inn Gunnar tónlistarmann, f. 5.6. 1957, eiginkona hans er Sólveig Baldursdóttir ritstjóri, f. 27.7. 1957. Börn þeirra eru Baldur Hrafn, f. 8.1. 1983, Ragnhildur, f. 5.1. 1989, og Gunnhildur, f. 17.9. 1996. Sigríður ólst upp í Reykjavík. Að loknu barnaskólaprófi hóf hún nám við Menntaskólann í Reykja- vík og útskrifaðist þaðan sem stúdent árið 1947. Eftir það lá leiðin til Noregs þar sem hún stundaði nám í tungumálum í tæp tvö ár. Sigríður vann allan sinn starfsaldur sem bankaritari við Útvegsbanka Íslands, sem síðar sameinaðist Íslandsbanka. Útför Sigríðar verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elskuleg tengdamóðir mín, Sig- ríður Breiðfjörð, eða Labba eins og hún var ætíð kölluð af ástvinum, lést 15. maí sl. Langri baráttu við illvígan sjúkdóm er nú lokið. Trú- lega finnum við aldrei betur en við dauðsfall hve mikilvæg við erum hvert öðru. Við fjölskyldan höfum verið beygð síðustu daga en lifum á dýrmætum og ljúfum minningum um fallega konu. Söknuður brýst fram og tilhugsunin um að hitta hana ekki aftur er sár. Sigríður var fædd í Reykjavík 30. ágúst árið 1928 og var því á 75. ald- ursári þegar hún lést. Hún ólst upp á Lokastígnum með móður sinni, Margréti Guðmundsdóttur og fóst- urföður, Sigurði Breiðfjörð, sem gekk henni í föðurstað. Hálfsystkini hennar, sammæðra, voru Sigurður Guðmundur og Kristjana. Á unga aldri missti Labba stjúpföður sinn í sjóslysi. Margrét, móðir hennar, stóð þá ein uppi með þrjú ung börn. En með seiglu og góðri aðstoð móð- urömmu, kom hún börnum sínum til mennta og manns. Labba var greind kona og átti auðvelt með nám. Hún gekk menntaveginn, sem var ekki al- gengt fyrir konur á þeim tíma, og útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1947, þá aðeins nítj- an ára gömul. Fljótlega eftir stúd- entspróf fór hún utan til Noregs og lagði stund á tungumálanám í tæp tvo ár. Eftir heimkomuna réð hún sig til starfa hjá Útvegsbanka Ís- lands þar sem hún vann allan sinn starfsaldur. Labba giftist tengda- föður mínum, Kjartani Guðjónssyni listmálara, 28. desember 1957. Hjónaband þeirra var fallegt, það einkenndist af ást og sannri virð- ingu. Þau eignuðust tvo syni, Bjarna og Sigurð, eiginmann minn. Það er ekki sjálfgefið að eiga góða að. Sú hugsun leitar á mig nú þegar að kveðjustund er komið. Mér er minnisstætt þegar ég kom fyrst með Sigga mínum til foreldra hans. Ég var óörugg og feimin en fann fljótt að engin ástæða var til þess. Mér var strax tekið eins og ég væri þeirra eigin dóttir. Hlýtt faðmlag og sönn væntumþykja tók á móti mér á heimili þeirra frá fyrstu stundu. Ófá matarboð og heimsóknir hafa verið á Vallar- brautina og svo síðan á Snorra- brautina síðustu árin. Oft var glatt á hjalla og skrafað um menn og málefni. Labba var víðlesin kona og gott að leita í viskubrunn hennar. Hún var mikið fyrir fagurbók- menntir og leikhúsferðir voru þeim hjónum unaðsstundir. Tengdamóðir mín var í eðli sínu hæglát, umhyggjusöm og glaðlynd kona sem gott var að hafa í kring- um sig. Hún sýndi fjölskyldu sinni og vinum mikið trygglyndi og gladdist af heilum hug yfir velferð þeirra. Fjölskyldan var henni mik- ils virði og voru ömmubörnin djásn- in í lífi hennar. Hún var skipulögð kona og vildi hafa öll sín mál á reiðum höndum. Hún gat stundum miklað smámuni fyrir sér en þegar á reyndi tók hún vandamálum með svo miklu æðruleysi að mann setti hljóðan. Í veikindum sínum sýndi hún mikið hugrekki og tókst á við þau af kjarki og viljastyrk. Labba var aldrei ein í veikindum sínum, Kjartan tengdafaðir minn stóð allt- af við hlið hennar og gerði henni kleift að vera heima fram á síðustu daga. Það var henni ómetanlegt. Það er sárt til þess að hugsa að Löbbu nýtur ekki lengur við. En minningin um góða móður, tengda- móður og ömmu er ljúf. Minning þín er ljós í lífi mínu. Hólmfríður Erla Finnsdóttir. Í dag kveðjum við föðursystur okkar, Sigríði Breiðfjörð eða Löbbu frænku eins og við kölluðum hana. Labba frænka var hálfsystir pabba heitins og var mikill samgangur milli heimilana allt frá því að við munum eftir okkur. Við minnumst Löbbu með virðingu og vinsemd. Tilhlökkun okkar var mikil þegar eitt af ótal matar- og kaffiboðum var framundan. Þau hjónin voru höfðingjar heima að sækja. Labba tók glöð á móti okkur og hjá þeim áttum við ótal ánægjulegar stundir. Einnig skjótast upp í hugann skemmtilegar minningar úr sum- arleyfisferðum sem fjölskyldurnar fóru saman um landið. Labba var góðhjörtuð og frændrækin. Hún fylgdist með okkur vaxa úr grasi og svo börnum okkar. Góðsemi hennar kom vel fram við fráfall föður okkar og var það móður okkar ómetanleg- ur stuðningur. Við þökkum fyrir að hafa átt hana að öll þessi ár og geymum hlýjar minningar. Með þessu ljóði kveðjum við elskulega frænku okkar: Fellur sorgartár í byrjun sumars ofan í frjósama mold svo upp vex yndislegt blóm sannkölluð blómarós sem við festum í barminn höfum nálægt hjartanu alltaf og að eilífu SIGRÍÐUR BREIÐFJÖRÐ ✝ Ólafur Jónssonfæddist í Holts- múla í Landsveit 21. júní 1910. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 14. maí síðastliðinn Foreldrar Ólafs voru Jón Einarsson bóndi í Holtsmúla, f. í Eystri- Tungu í Landbroti, 16. júní 1860, d. í Holtsmúla 2. júní 1915, og Gíslunn Árnadóttir, f. á Lúm- ansholti 22. ágúst 1866, d. 11. sept. 1950. Ólafur var yngstur tíu systkina, sem nú eru öll látin. Þau voru Páll Þórarinn, f. 1. sept. 1893, Einar, f. 11. júlí 1895, Árni, f. 17. júní 1896, Helgi, f. 7. júlí 1897, Theodór, f. 17. ágúst 1898, Gíslunn, f. 17. júlí 1899, Jón, f. 7. júní 1901, Guðný, f. 22. sept. 1902, Guðrún, f. 25. febr. 1906, og Ólafur, sem hér er kvaddur. Ólafur kvæntist 8. janúar 1938 Kára, f. 8. nóv. 2002, d. 12. nóv. 2002. 4) Lilja, f. 22. sept. 1967, mað- ur hennar Friðþjófur Eysteinsson, þau eiga þrjár dætur, Sólveigu Auði, f. 24. maí 1991, Ingibjörgu, f. 14. júní 1995, og Bergdísi Björk, f. 11. ágúst 2000. Auk þess voru í fóstri hjá Ólafi og Lilju, um lengri og skemmri tíma, Ragnheiður Benidiktsdóttir. sem kom fyrst til sumardvalar og Sigurður Sigurðs- son bróðursonur Lilju. Ólafur naut barnaskólakennslu í fjóra vetur að þeirra tíma hætti. Hann tók snemma þátt í bústörfum heima við og var í kaupavinnu hjá bræðrum sínum og öðrum, hann réri tvær vertíðir í Grindavík og sex í Vestmannaeyjum, þá síðustu veturinn 1938. Vorið 1938 fluttu Ólafur og Lilja í Árbæjarhjáleigu í Rangárvallasýslu og bjuggu þar til 1960 en þá fluttu þau aftur til Reykjavíkur. Þar vann Ólafur al- menna verkamannavinnu fyrst hjá Lýsi hf. og síðan hjá Reykjavíkur- borg. Ólafur og Lilja bjuggu á Bræðraborgarstíg 13, allt til er Lilja andaðist 1995. Eftir það hefur Ólafur búið á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Ólafs verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Lilju Jóhönnu Sigurð- ardóttur, f. 1. júlí 1915, d. 10. ágúst 1995. For- eldrar hennar voru Sigurður Guðmunds- son og Málfríður Jóns- dóttir sem bjuggu um tíma á Nesjum í Grafn- ingi. Sonur Ólafs og Lilju er Baldur, f. 27. nóv. 1937, kona hans er Ingibjörg J. Jónas- dóttir, f. 21. jan. 1937, börn þeirra eru: 1) Stúlka óskírð, f. 13. ágúst 1964, d. 17. ág. 1964, 2) Ólafur, f. 15. sept. 1965, kona hans Þórunn Sverrisdóttir, f. 29. okt. 1968, þau eiga fjóra syni, Egil, f. 29. júlí 1994, Baldur, f. 25. apríl 1996, og þá Arn- ór og Bjarka, f. 22. febr. 2002. 3) Björk, f. 22. sept. 1967, maður hennar Helgi Magnús Her- mannsson, þau eiga þrjá syni, Ólaf Örn, f. 28. mars 1991, Guðbrand Óla, f. 9. maí 1998, og Hermann ÓLAFUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.