Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 35

Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 35 ✝ Halldóra Hall-dórsdóttir fædd- ist á Húsavík 6. jan- úar 1913. Hún lést 15. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Hólmfríður Sigur- geirsdóttir, f. á Þverá í Öxarfjarðarhreppi í N-Þing. 9. okt. 1880, d. 4. des. 1967, og Halldór Jóhannesson, f. á Þorsteinsstöðum í Laufássókn í S-Þing. 22. febr. 1879, d. 17. júní 1948. Systkini Halldóru sammæðra eru Sigmar, Kristín og Guðrún Sigtryggsbörn og Tryggvi og Jóhann Dalberg Sigurðssynir. Samfeðra eru Magn- ús, Ingibjörg, Páll, Jóhannes og Sigurlaug Guðrún. Öll systkini Halldóru eru látin nema Sigurlaug Guðrún. Eiginmaður Halldóru var Magn- ús Hlíðdal Magnússon, f. í Vest- mannaeyjum 11. júlí 1910, d. 13. maí 1995. Þau eignuðust tíu börn. Þau eru: Stúlka sem lést fárra daga gömul; Baldur, f. 3. febr. 1932, d. 5. júní 1967, hann á fjögur börn, var kvæntur Láru Haraldsdóttur; Stefanía, f. 8. okt. 1934, á þrjú börn, gift Einari Bach- mann; Sveinn, f. 17. apríl 1936, á tvö börn, kvæntur Gunn- hildi Valtýsdóttur; Anna Margrét, f. 12. nóv. 1939, á sex börn; Hólmfríður, f. 18. ágúst 1941, á tvö börn, gift Júlíusi Sig- marssyni; Þórarinn, f. 12. júlí 1943, á fjög- ur börn, kvæntur Júlíönu Gríms- dóttur; Sigríður, f. 19. okt. 1946, á tvö börn, gift Róberti Lauridsen; Súsanna, f. 25. jan. 1949, á eitt barn, gift Sævari Guðmundssyni; Magnús, f. 15. okt. 1950, á þrjú börn, kvæntur Ólöfu Oddgeirsdótt- ur. Einnig ólu Halldóra og Magnús upp dótturson sinn Svan Hlíðdal, f. 25. ágúst 1958. Afkomendur Hall- dóru og Magnúsar eru í dag komn- ir yfir 100. Útför Halldóru verður gerð frá Lágafellskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elskuleg tengdamóðir mín Hall- dóra Halldórsdóttir eða Dóra eins og hún var alltaf kölluð hefur nú kvatt þennan heim. Það er óhætt að segja að hún hafi verið södd lífdaga og alveg tilbúin að kveðja. Ég var ung að árum er ég kom inn í fjölskylduna aðeins sextán ára gömul að Sveinsstöðum í Mosfellsveit og var á heimili hennar um tíma með mitt fyrsta barn. Sjálf var hún með stórt heimili, nýlega búin að missa allt í eldsvoða þar sem hún stóð á hlaðinu með barn í fanginu og horfði á heimilið verða eldi að bráð, og ekki svo langt síðan hún fluttist suður en áður hafði hún búið á Þórshöfn á Langanesi. Svo sjálf var hún að koma sér upp nýju heimili. Já, ég átti því láni að fagna að vera samferða þessari konu í 40 ár sem hafa gefið mér mikið og þó allra mest nú síðustu árin og við mikið rætt sam- an og ég í raun kynnst henni á allt annan hátt en fyrstu árin, og var mjög kært á milli okkar. Mörg voru ferðalögin okkar og oft farið á æskuslóðir hennar og þær slóðir sem tengdaforeldrar mínir bjuggu norður á Langanesi bæði á Skálum og á Þórshöfn og eru þær ferðir alveg ógleymanlegar þar sem þær ferðir voru mjög skemmtilegar og fræðandi ferðir enda voru þessar slóðir þeim mjög kærar. Þar kynntust þau og þar byrjuðu sinn búskap og upplifðu bæði gleði og sorg, þar fædd- ust börnin, og þar misstu þau eitt ungt sem er jarðsett þar. Þær voru margar ferðirnar sem farnar voru bæði með tjald og allt sem því fylgdi og eins í orlofshúsin, en það var alveg sama hvar eða hvert við fórum með þeim, það var alltaf gaman hjá okkur. Þessar minningar og margar, margar fleiri er ég svo lánsöm að eiga og geta geymt í hjarta mínu. Ég er þakklát fyrir að hafa átt með henni síðustu stundirnar bæði í vöku og draumi. Þakklát fyrir að hún þurfti ekki að upplifa það sem hún óttaðist mest sjálf, að vera öðrum byrði og ósjálf- bjarga, þakklát fyrir að börnin mín og barnabörn fengu að kynnast þér, þakklát fyrir að hafa átt þig að tengdamóður. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. Þín tengdadóttir Júlíana Grímsdóttir. Amma hefur kvatt þennan heim. Hún var búin að skila sínu eins og hún sagði sjálf og var hvíldinni fegin. Við vissum að kallið kæmi fljótlega og hún vissi það líka. Það var samt sárt þegar að því kom. Ég horfi til baka og minningarnar hellast yfir mig. Um leið og þær veita hlýju og gleði finn ég líka fyrir sárum söknuði. Ég sakna ömmu. Hún vílaði fátt fyrir sér, eign- aðist tíu börn við erfiðar aðstæður og fór létt með. Hún var hörkutól og eld- klár og féll aldrei verk úr hendi. Dug- legasta kona í heimi sagði ég stundum við hana. Amma vissi upp á hár hve- nær börn, barnabörn og barnabarna- börn áttu afmæli – fæðingardagur og ár yfir eitthundrað afkomenda var á hreinu, allt fram á síðasta dag. Amma hefði dúxað ef tækifæri til menntunar hefði verið fyrir hendi. Hún var heil og sönn og lagði metnað sinni í að rækta og bera umhyggju fyrir sínu fólki. Svo innilega barngóð og hlý. Ég man hvað það var gott að komast úr amstri dagsins inn í notalegheitin hjá ömmu. Hún bjó fallegt heimili þar sem sérstök ró ríkti og það var ekki svo sjaldan sem ég sofnaði við hljóðið frá prjónunum hennar. Það mátti heldur aldrei stinga inn fæti án þess að hún framkallaði veisluborð á auga- bragði, nei það fór enginn svangur frá ömmu. Það eru forréttindi að fá að kynn- ast og umgangast manneskju af slík- um kalíber. Mér eru ógleymanlegar ferðirnar okkar saman til Ameríku. Amma var frábær ferðafélagi, alltaf hress og kát og þakkaði af heilum hug og öllu hjarta fyrir allt saman. Mér er löngu orðið ljóst að það var ekki af skyldurækni sem ég heimsótti ömmu, heldur vorum við vinkonur. Við rædd- um alla hluti og alltaf var amma með á nótunum. Hún var ráðagóð og skyn- söm og hafði sterkar skoðanir. Nokkrum dögum áður en hún dó spurði ég hana hvað hún ætlaði að kjósa? Hún sagði að það varðaði eng- an um það – það væri hennar einka- mál og hana nú! Amma var ákveðin og stóð föst á sínu. Hún var stór manneskja. Mikið lifandis skelfing á ég eftir að sakna hennar. Ég vil kveðja elskulega ömmu mína með þessum ljóðlínum sem ég setti saman þegar hún varð 85 ára og þakka fyrir allt sem hún gaf mér og mínum: Ég á minningar um þig, góðar, fallegar, skemmtilegar. Minningar sem ég geymi í huga mínum – alltaf. Þær eru myndir sem geymast eins og perlur í skel. Minningar sem aldrei gleymast. Því þú átt þinn stað í mínu hjarta. Elísabet. Yndislega amman mín, þá er þinni löngu lífsgöngu hérna megin heims lokið. Minningarnar um þig eiga eftir að ylja mér um hjartaræturnar um ókomna tíð, því frá þér streymdi alltaf mikill kærleikur og hlýja. Þér þótti vænt um alla, unga sem aldna, og aldrei sagðirðu styggðaryrði um nokkurn mann, það var einfaldlega ekki til í þinni orðabók. Mínar falleg- ustu æskuminningar eru frá þeim tíma þegar þið afi bjugguð á Sveins- stöðum, og ég fékk að skruddast með þér, sinna hænsnunum, fara niður að lind að ná í vatn, tína blóðberg á meln- um, sem þú svo bjóst til úr te handa mér. Það var líka yndislegt að koma til ykkar afa í Kópavoginn og á „elló“, og alltaf dróstu fram kaffi og krásir, það var ekki við annað komandi. Þú varst síprjónandi, á meðan þú hafðir ein- hverja sjón, og varst svo glöð ef ein- hver þáði það sem þú hafðir búið til. Gaman var að hlusta á þig segja frá gamla tímanum, og þá sérstaklega þegar þú bjóst á Þórshöfn á Langa- nesi, það kom alltaf einhver glampi í augun á þér við þá upprifjun. Fallegt gamalt fólk er listaverk og það má með sanni segja að þú hafir verið listaverk. Nú ertu komin í sólskinslandið, amman mín, og ég veit að afi, pabbi og litla stúlkan þín hafa beðið þín við landamærin. Hvíl í guðs friði, fallega sál. Margrét Þóra. Mig langar að minnast ömmu minnar Halldóru Halldórsdóttur með fáum orðum. Elsku amma mín, mér finnst við hæfi að hefja kveðjuna til þín á þess- ari bæn. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði. Guð þér nú fylgi. Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Það eru ótalmargar minningar sem koma upp í hugann á þessari kveðju- stund, já, minningar frá Sveinsstöð- um þar sem amma og afi bjuggu á mínum uppvaxtarárum. Afi í fína ruggustólnum og amma að sýsla í eld- húsinu, svo að fara og sækja vatn í lækinn, gefa hænunum, spjalla eða að spila á spil, amma kenndi mér að spila á spil. Amma hafði alla tíð gaman af því að spila og minnist ég þess er hún kom einu sinni í heimsókn austur í sumarbústað tengdaforeldra minna, hvað henni þótti gaman að grípa í spil með okkur þó sjónin væri léleg. Það var alltaf vel tekið á móti öllum sem til þeirra komu, amma var alltaf með kræsingar á borðum og svo átti hún líka alltaf nammi fyrir litlu börnin, það fór enginn frá henni með tóman maga. Amma hafði alla tíð gaman af því að prjóna og nutu börn, barnabörn og barnabarnabörn þess óspart. Það eru margar peysurnar, vettlingarnir og sokkapörin sem hún hefur prjónað um ævina. Það urðu átta ár og fjórir dagar á milli þeirra afa og ömmu en afi lést 11. maí 1995. Amma var orðin þreytt og södd lífdaga og þráði að fá hvíldina. Ég trúi því að pabbi og afi hafi tekið á móti henni. Elsku amma, þín verður sárt saknað, þú sem öllum varst svo góð, en við sem þekktum þig og vorum svo lánsöm að kynnast þér, yljum okkur við minningu um ein- staka konu. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir, þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr. J. Hallgr.) Niðjum, ættingjum og vinum bið ég guðs blessunar. Halldóra Magný Baldursdóttir og fjölskylda. Elskulega amma mín. Sumarblærinn blíði, hann beri til þín inn frá mér kærstu kveðju, og koss á vanga þinn. Það má með sanni segja að þessar ljóðlínur Guðrúnar Jóhannsdóttur eigi vel við frá mér til þín, elsku amma mín, þar sem ég var svo lánsamur að fá að vera með þér og halda í höndina á þér, kyssa þig á kinnina þegar þú kvaddir og er ég sá síðasti sem talaði við þig, og varst þú með allt á hreinu og ekki í vandræðum með þegar þú varst spurð hvað fimm sinnum fimm eru, tuttugu og fimm svaraðir þú strax, spurðir mig hvort ég væri bú- inn að ákveða hvað ég ætlaði að kjósa því það voru jú kosningar á morgun. Síðan sofnaðir þú og yfir þig færðist svo undurfagur friður og gerði ég mér einhvern veginn svo vel grein fyrir að þú varst að kveðja. Auðvitað erum við aldrei tilbúin að kveðja og er söknuðurinn alltaf sár, en mikið getum við verið þakklát, af- komendurnir, sem erum orðin vel á annað hundrað, fyrir að hafa átt því láni að fagna að hafa fengið að hafa þig svo lengi, og hittumst við einmitt öll á 90 ára afmælinu þínu í janúar síð- astliðnum. Þegar ég hugsa til baka þá er ansi margt sem ég gæti sett á blað úr minningasjóðnum mínum, svo efni gæti verið í heila bók, mínar fyrstu minningar um þig eru auðvitað frá Sveinsstöðum hjá ykkur afa þar sem alltaf var gott koma, og þar var ég einmitt skírður á stofugólfinu hjá þér, í faðmi þínum og þar sleit ég örugg- lega fyrstu skónum sem Sigga föð- ursystir mín gaf mér og ég er nú með á náttborðinu mínu, og þar lærði ég að spila, og leggja kapal. Það eina sem ég kann að spila enn í dag er það sem þú kenndir mér. Þær voru nokkrar ferðirnar sem ég fór niður í lind að sækja vatn því kalt vatn hafðir þú ekki úr krana, aðeins sjóðandi heitt eins og faðmurinn þinn var alltaf. Fyrstu leikföngin mín fékk ég líka hjá þér, öll dýrin sem þú komst með ofan úr Reykjalundi og ég á mikið af enn í dag og þótti svo ósköp gaman að. Þegar ég hugsa til baka til þessa tíma þá hlýtur þetta að hafa verið erf- itt, þú nýlega flutt suður norðan af Skálum á Langanesi og rétt búin að koma þér fyrir þegar Sveinsstaðir brunnu og þú þurftir að koma þér upp nýju heimili, en þið afi byggðuð upp Sveinsstaði aftur og voruð með bú- skap þar. Alltaf voru hænur þar og einhverjir hestar, allavega gleymi ég aldrei Klæng. Síðar fluttuð þið í Kópavoginn og ekki langt frá heimili mínu svo það var ekki langt fyrir mig að labba til ykkar og var það alveg ómetanlegt og aldrei komið að tómum kofa þar, og eftir að ég fluttist svo með foreldrum mínum í Mosfellssveitina og byrjaði sjálfur að búa var alltaf gott að fá að gista í Kópavoginum ef svo bar undir sem ekki var svo sjaldan. Var þó nokkuð langt upp í Mosó. En þið áttuð eftir að koma aftur í Mosfellssveitina þegar þið fluttust að Hlaðhömrum og bjugguð um ykkur þar og var að sjálfsögðu aldrei komið að tómum kofa. Þú þurftir helst alltaf að vera að uppvarta og hefði þig ekk- ert munað um að sjá um mötuneytið þar ef svo hefði borið undir. Nei, það fór sko enginn svangur frá þér, svo mikið er víst. Við sátum oft, en ekki nógu oft og spjölluðum um allt milli himins og jarðar og oftar en ekki um andleg málefni en þau voru þér alltaf svolítið hugleikin, svo ég get ekki annað en hugsað til þín núna því þú hefur örugglega fengið svör við mörgu sem við vorum að spá í. Nú nýlega varstu að kveðja ást- kæra systur þína með þeim orðum að „þar til við hittumst á ný“. Og var það nú styttra en okkur hefði grunað. Svo ég tali nú ekki um þá systur þína sem þú varst nýbúin að hitta í fyrsta sinn 90 ára og varst svo glöð yfir. Elsku amma, það eiga eftir að koma svo margar stundir sem ég á eftir að sitja og sakna þín og minnast, en um leið er ég svo þakklátur fyrir að hafa átt þig að og svo stoltur af að vera barnabarn þitt. Og kveð þig með þessum orðum: Margt ég vildi þakka þér, og þess er gott að minnast, að þú ert ein af þeim sem mér, þótti gott að kynnast. Þitt elskandi barnabarn, Sigþór Hólm Þórarinsson. HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Halldóru Halldórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN PÁLSSON fyrrverandi aðalbókari, Aðallandi 1, Reykjavík, lést á Landspítala við Hringbraut miðviku- daginn 21. maí. Helga Þórðardóttir, Bolli Björnsson, Constanze Björnsson, Björn Vignir Björnsson, Guðrún Nikulásdóttir, Þóra Ragnheiður Björnsdóttir, Ágúst Kr. Björnsson, Hildigunnur Guðmundsdóttir, Þórunn Gyða Björnsdóttir, Stefán S. Stefánsson, afabörn og langafabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, THEODÓR LAXDAL SVEINBERGSSON, Túnsbergi, Svalbarðsströnd, sem lést föstudaginn 16. maí, verður jarðsung- inn frá Svalbarðskirkju, Svalbarðsströnd, laug- ardaginn 24. maí kl. 14.30. Guðrún Fjóla Helgadóttir, Sveinberg Laxdal, Helgi Laxdal, Líney Laxdal, Steinar Bragi Norðfjörð og frændsystkini. Sambýlismaður minn og faðir okkar, LÍNBERG HJÁLMARSSON, til heimilis í Árskógum 6, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 9. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. Jóna Aðalheiður Hannesdóttir, Sigrún Birna Línbergsdóttir, Hafsteinn Már Línbergsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.