Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 42

Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 42
DAGBÓK 42 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Dröfn, Akraberg, Katla og Hermanos Gandon Quatro koma í dag. Helgafell, Klakk- ur, Dettifoss og Freri fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Katla kom í gær. Haukur og Olshana fara í dag. Kleifarberg kemur og fer í dag. Ludvig Andersen fór í gær, Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Bingó fell- ur niður í dag vegna handverkssýningar sem er í dag, föstudag- inn 23. maí, og laug- ardaginn 24. maí frá kl. 13.30–16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 spilað í sal. Eldri borgarar, Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Áður auglýstur sumarfagnaður 23. maí fellur niður. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað, og opin handa- vinnustofa. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, myndlist, gifs o.fl., kl. 9.30 gönguhópurinn Gönu- hlaup leggur af stað, kaffi á eftir göngunni, kl. 14 brids og almenn spilamennska. Korpúlfar, Graf- arvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Grafarvogslaug á föstudögum kl. 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið lokað í dag vegna uppsetningar handverkssýningar. Púttvöllurinn á Hrafn- istu lokaður vegna við- gerðar. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. kortagerð og servíettu- myndir, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14. æfing hjá Gerðuberg- skórnum í Fella- og Hólakirkju S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bók- band. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 bað, handavinna, út- skurður, fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 14 bingó. Kaffiveit- ingar. Allir velkomnir. Hvassaleiti 58–60. Hársnyrting, fótaað- gerðir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 13 tréskurður, kl. 9–17, hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrídans, kl. 11–12 stepp, kl. 13.30–14.30 Sungið við flygilinn, kl. 14.30–16 dansað í að- alsal. Mánudaginn 26. maí kl. 13 verður farið á handverkssýningu í Félags- og þjónustu- miðstöðina Hraunsel í Hafnarfirði. Kaffiveit- ingar. Skráning í síma 562 7077. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. leikfimi og 10 fótaðgerð, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Bourn Hall-sjúkrahús. 26. júlí verður haldin samkoma fyrir börn frá Bourn Hall clinic og foreldra þeirra og verður hún haldin þar á staðnum. Vonast starfsfólkið til að sjá sem flest af þessu fólki. Upplýsingar í síma: 00 44 1954 717 221 eða 717 219 eða party@bourn- hall.co.uk. Einnig gefa upplýsinar Lára og Sigurður s. 566 6621 eða 617 6214 Sigurður. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogs Apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgötu 8–10, Keflavík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Landsbankinn, Hafnargötu 55–57. Í dag er föstudagur 23. maí, 143. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Himnarnir segja frá Guðs dýrð og festingin kunngjörir verkin hans handa. (Sálm. 19, 2.)     Ég geng í hring í kring-um allt sem er,“ orti Steinn Steinarr og hefði eflaust tekið á sig stóran sveig til að sneiða hjá Pentagon ef hann hefði haft spurnir af fyrirætl- unum húsbænda á þeim bæ.     Stjórnvöld í Bandaríkj-unum hafa sett sér að fylgjast með hverju skrefi hryðjuverkamanna og sitja ekki við orðin tóm. Í Pentagon er unnið að þróun eftirlitskerfis með innbyggðu radarkerfi sem ætlað er að greina göngulag fólks. Tilgang- urinn er sá að hafa uppi á hryðjuverkamönnum, jafnvel þeim sem eru í dulargervi, áður en þeir komast of nálægt banda- rískum stofnunum.     Ef til vill var það ekkifjarri lagi hjá breska gamanleikhópnum Monty Python að setja á svið ráðuneyti um „kjánalegt göngulag“. Þá fékk ráðu- neytið njósnir af því að Japanir hefðu mann á sín- um snærum sem gæti sveiflað fætinum aftur fyrir höfuðið á sér í hverju skrefi. Hvernig ætli yfirvöld brygðust við ef slíkur maður nálgaðist Pentagon?     Niðurstöður úr rann-sóknum benda til þess að í um 90% tilfella takist að bera kennsl á fólk út frá göngulaginu, jafnvel þó að það sveifli ekki fætinum yfir höfuðið á sér.     Mannréttindasamtökeru uggandi. Þau hafa barist árangurslaust fyrir því að rétta hlut fólks sem sett er á lista yf- ir grunaða út af því einu að vera með svipuð nöfn og þekktir hryðjuverka- menn. Það er stöðvað sér- staklega og leitað gaum- gæfilega á því í hvert skipti sem það ætlar að stíga upp í flugvél. Nú verður ef til vill til nýr hópur fólks, sem ekki verður látinn í friði, – út af göngulaginu. Tölvukerfið á einnig að fylgjast með augum og andlitsdráttum. Og bera saman kaup á flugmiðum, umsóknir um dvalarleyfi, sem og fjármála-, heilsu- fars- og menntaskrár til að hafa uppi á mönnum sem eru að undirbúa hryðjuverk.     Á bandaríska þinginuhafa menn áhyggjur af því að þetta umfangs- mikla tölvukerfi verði misnotað í því skyni að skrásetja persónulegar upplýsingar um almenn- ing. Demókratinn Ron Wyden hefur raunar beitt sér fyrir því að sett verði ný löggjöf til að hafa eft- irlit með eftirlitskerfinu. Ef til vill þarf að hanna nýtt tölvukerfi til að hafa eftirlit með tölvukerfinu. Og eftirlitsiðnaðurinn blómstrar. Steinn Stein- arr hringsólar áfram í kringum Pentagon. STAKSTEINAR Eftirlitsiðnaðurinn blómstrar vestanhafs Víkverji skrifar... AÐ undanförnu hafa birst fjölmörglesendabréf hér í blaðinu þar sem því er mótmælt að RÚV útvarpi þættinum Morgunvaktinni á báðum rásum útvarpsins á morgnana. Bréf- ritarar vilja að gamla góða Gufan verði færð í sitt upprunalega horf, þ.e. þægileg lög sem gott er að vakna við og létt spjall þular inni á milli. Svo mörg eru bréfin orðin að álykta má að þetta sé mjög almenn skoðun í þjóðfélaginu. Víkverji er á þeim aldri að hann er alinn upp við aðeins eina útvarpsrás. Hann man þá tíð þegar gömlu góðu lögin voru sungin og leikin á morgn- ana, Axel Thorsteinsson sagði frétt- irnar og Jón Múli Árnason spjallaði um Kolbeinshausinn (sem nú er kom- inn undir malbik) og önnur merkileg fyrirbæri milli laga. Það er skoðun Víkverja að þessi tegund útvarps hafi unnið sér hefð- arrétt hjá Ríkisútvarpinu. Þeir sem vilja hlusta á þann ágæta þátt Morg- unvaktina geta náð henni áfram á Rás 2 en hlustendur Rásar 1 eiga að endurheimta Vilhelm G. Kristinsson og ljúfu lögin. Til hvers að vera með tvær rásir ef sama efnið er á báðum? Útvarpsstjóri á að hlusta á rödd eig- enda útvarpsins, þ.e. almennings í landinu. x x x SÍÐAST þegar svona holskeflamótmæla reið yfir vegna efnis RÚV brást stofnunin við, hraðar en margan grunaði að hún ætti til. Það var þegar Leiðarljós var tekið af dag- skrá Ríkissjónvarpsins. Nágranni Víkverja, Velvakandi, var dag eftir dag fullur af bréfum frá reiðum aðdá- endum þáttarins og Ríkissjónvarpið sá þann kost vænstan að setja Leið- arljós aftur á dagskrá. EVRÓVISJÓN-keppnin hefurlöngum verið gagnrýnd og þótt útþynnt og leiðinlegt sjónvarpsefni. Í ár er þó a.m.k. tvennt að hlakka til. Í fyrsta lagi er fulltrúi Íslands, Birgitta Haukdal, í svo miklum met- um hjá ungum sem öldnum að þjóðin mun flykkjast að sjónvarpstækjunum til að fylgjast með frammistöðu henn- ar í Ríga. Víkverji tekur eftir því að spenningurinn hjá yngstu kynslóð- inni er að verða óbærilegur og smá- fólkið á heimili Víkverja er með allt um Evróvisjón á hreinu, þótt Víkverji hafi stundað mjög takmarkaða kynn- ingarstarfsemi á fyrirbærinu heima fyrir. Í öðru lagi verður spennandi að fylgjast með uppátækjum rússneska stúlknadúettsins Tatú, sem sumir spá að muni slá út sjálfan Pál Óskar og dansmeyjar hans hér um árið, með djörfum dansi og klæðaburði. Ekki efast Víkverji þó um að hin háttprúða Birgitta mun bera af hinum rúss- nesku starfssystrum sínum og verða landi og þjóð til sóma. Hann hefur helzt áhyggjur af því hvernig hann á að koma smáfólkinu frá sjónvarpinu, fari svo að þær rússnesku stígi yfir velsæmismörkin í sviðsframkomu. Morgunblaðið/Árni Torfason Birgitta mun standa sig vel og götur Reykjavíkur verða auðar á meðan. Lausir hundar í Heiðmörkinni ÞAÐ er ólíðandi að hundar fái að leika lausum hala í Heiðmörkinni. Útivistar- fólk er margt hrætt við hunda og er ekki hrifið af því að þeir snuðri í kringum það. Merkingar sem banna hunda hafa verið brotnar niður og hundaeigendur þráast við að hafa hunda sína í bandi. Núverandi ástand verður að bæta. Útivistarkona í Garðabæ. Dýrahald Magni er týndur MAGNI týndist frá Vall- engi 4 í Grafarvogi hinn 11. maí sl. Hann er eins og hálfs árs norskur skógar- köttur, rauðbröndóttur og hálfsíðhærður. Hann var með rauða og gráa ól með nafni og símanúmeri. Þeir sem luma á einhverjum vís- bendingum um ferðir Magna geta haft samband við Guðrúnu í síma 820 3708. Fundarlaun eru í boði. Snælda leitar að heimili LÆÐUNA Snældu vantar nýtt heimili. Hún er sjö ára, mjög gæf og blíð. Hún er afskaplega falleg, fjórlit og flekkótt. Það er búið að gelda Snældu. Þeir sem hafa áhuga á að taka Snældu að sér geta nálgast upplýsingar í síma 867 4757 eða á kvöldin í síma 564 1605. Fótbrotinn köttur ÞESSI gulbröndótti og hvíti fressköttur fannst í vegkanti við Bláfjöll. Hann reyndist fótbrotinn og var settur í spelkur. Kötturinn dvelur nú í góðu yfirlæti í Kattholti og bíður eiganda síns. Fjórir kettlingar fást gefins FJÓRIR yndislegir, kassa- vanir kettlingar fást gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 697 3761. Loki er horfinn LOKI, svartur eins og hálfs árs gamall köttur, hvarf frá Bakkagerði 6 í Reykjavík, laugardagsmorguninn 17. maí. Hann er með rauða hálsól með áfestu merki- spjaldi og bjöllu, auk þess að vera með númerið 622 flúrað í annað eyrað. Loki er gæfur og á það til að laumast inn í bílskúra sem eru opnir. Ef einhverjir hafa orðið hans varir eru þeir beðnir um að hafa samband í síma 581 1129 eða 848 2883. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Krakkar á leikskólanum Krógabóli á Akureyri í sveitaferð föstudaginn 16. maí. Farið var að Stóra-Dunhaga í Skriðu- hreppi í Hörgárdal. Þessi ungi herramaður stóð sig eins og hetja á hestbaki, eins og krakkarnir allir. Hin biðu prúð en spennt í röð eftir að kæmi að þeim að fá að fara á bak. LÁRÉTT 1 þvættingur, 8 blómum, 9 garpur, 10 hreyfingu, 11 matvands manns, 13 kvabba um, 15 jór, 18 tröppu, 21 ástfólgin, 22 ákæra, 23 ólyfjan, 24 vistir. LÓÐRÉTT 2 ástæða, 3 rúms, 4 skáld- ar, 5 mergð, 6 bikkja, 7 varningur, 12 velur, 14 málmur, 15 ósoðinn, 16 klampana, 17 fiskur, 18 kippti í, 19 baunin, 20 harmur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 drýli, 4 bossa, 7 grimm, 8 ímynd, 9 ask, 11 rota, 13 ódýr, 14 frauð, 15 stól, 17 afmá, 20 mak, 22 græða, 23 rýran, 24 rytja, 25 móður. Lóðrétt: 1 dugar, 2 ýmist, 3 ilma, 4 brík, 5 skyld, 6 and- ar, 10 skaka, 12 afl, 13 óða, 15 súgur, 16 ófætt, 18 fáráð, 19 árnar, 20 mata, 21 kram. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.