Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 43

Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 43 DAGBÓK Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar Þessi gamli góði Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Sími 588 9900, fax 588 9901, netfang: itferdir@itferdir.is www.itferdir.is Afi og amma frítt til Costa Brava í 2-3 vikur! Lágmark 10 manns, 8 borga. * Djammferð með FM 95.7: Lloret de Mar; stanslaust stuð í 2 vikur. * Flug og bíll til Barcelona: Verð aðeins frá kr. 49.900 í 2 vikur ÍT ferðir - fyrir þig 28. júní í 2-3 vikur Barcelona - Costa Brava Nýjung á íslenskum ferðamarkaði: STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að aðlag- ast breyttum aðstæðum og kannt að notfæra þér breyt- ingarnar til framdráttar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þegar mál geta farið á hvorn veginn sem er verður maður bara að taka sína ákvörðun og láta slag standa. Að hika er sama og að tapa. Naut (20. apríl - 20. maí)  Láttu það ekki skemma fyrir þér, þótt einhverjir neiti að taka þig alvarlega og vilji slá öllu upp í grín. Haltu þínu striki. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það yrði margt auðveldara ef þú leyfðir vinum og vanda- mönnum að rétta þér hjálp- arhönd. Brjóttu því odd af oflæti þínu og hleyptu þeim að. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Samstarfsmenn þínir bíða eftir því að einhver taki af skarið svo þú skalt bara stíga fram og taka að þér leiðtoga- hlutverkið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú mátt finna til svolítið meira sjálfstrausts því það skemmir fyrir þér hversu reikull og hikandi þú ert. Taktu málin föstum tökum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Auðgaðu andann með því að lesa eitthvað óvenjulegt sem þú hefur ekki lagt þig eftir áður. Láttu athugasemdir annarra sem vind um eyru þjóta. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að hlusta á ráð þér eldri manna. Þeir geta kennt þér ýmislegt, þó ekki væri nema að forðast afdrifarík mistök, sem öllum verða á. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hittir óvænt gamlan vin sem getur komið þér til hjálpar í erfiðu persónulegu máli. Láttu hann samt ekki taka öll völdin í sínar hendur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Flýttu þér hægt að kveða upp dóm um menn og mál- efni. Fæst er eins og virðist í fljótu bragði svo það skiptir sköpum að þú gefir þér næg- an tíma. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert upp á þitt besta og getur nánast samið um hvað sem er því þú færð fólk svo auðveldlega á þitt band. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hugurinn ber þig hálfa leið. En stundum getur hugurinn verið of langt á undan lík- amanum og þá er nauðsyn- legt að leita sér einveru til íhugunar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er betra að eiga sér góð- an trúnaðarvin en byrgja allt innra með sér, því það getur verið skaðlegt. Finndu þér leið til að létta á þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Sæla Niðar foss í djúpum dal dimmum fram úr hamrasal þar sem bláu blómin dreyma – heyrðu, daggardropi skær, dvöl hjá blómi var þér kær þegar gullnir geislar streyma – svo er ástar yndisró, öll þar gleðiveröld hló, hvítir svanir syngja, leikur bæði líf og sál, leikur tunga, hjarta, rödd og mál, allt er fagurt eins og stál, álfaskarar ástarklukkum hringja. Benedikt Gröndal LJÓÐABROT „SENNILEGA er ég eini maðurinn á jarðríki sem gæti farið tvo niður á þessu spili,“ játaði Zia Mahmood. Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ ÁDG5 ♥ 942 ♦ 1063 ♣D73 Vestur Austur ♠ 62 ♠ 94 ♥ ÁK86 ♥ G10753 ♦ G852 ♦ D ♣KG8 ♣Á9542 Suður ♠ K10873 ♥ D ♦ ÁK974 ♣106 Zia spilaði við Bob Hamman í tvímenningi Cavendish-keppninnar. Þeir sáu í NS í þessu spili og enduðu í fjórum spöðum, eins og flestir aðrir: Vestur Norður Austur Suður Rodwell Hamman Dawson Zia -- -- -- 1 spaði Dobl 2 grönd * 3 hjörtu 4 spaðar Pass Pass Pass Eric Rodwell og Jeff Meckstroth hvíldu sig hvor á öðrum í þessu móti. Meckstroth spilaði við kost- ara sveitarinnar, Perry Johnson, en Rodwell við Dennis Dawson. Bæði pör enduðu rétt fyrir ofan miðju, en Zia og Hamman urðu í fimmta sæti. En aftur að spilinu. Vörnin á augljóslega fjóra slagi: einn á hjarta, tvo á lauf og einn á tígul. Það telst því eðlileg niðurstaða að fara einn niður. Zia fór hins vegar tvo niður. Hvernig þá? Rodwell kom út með hjartakóng og skipti yfir í smáan tígul í öðrum slag – drottning frá austri og LÍTIÐ frá Zia. Hugmyndin var sú að lokka austur til að spila aftur tígli og henda svo tveimur laufum úr borði í frítígla. Það var þó engin leið að plata Dawson til að spila aftur tígli; hann átti ekki tígul til og skipti yfir í laufás og meira lauf. Rodwell fékk fjórða slag varnarinnar á laufkóng og gaf svo makker tíg- ulstungu! Tveir niður. Geir Helgemo vann fjóra spaða á djarflegan máta. Hann fékk út hjartaás og kóng, sem hann trompaði. Tók síðan spaða tvisvar og spilaði tígli úr borði á drottningu og ás. Síðan LITLUM tígli að tíu blinds. Vestur var hræddur um að makker hans ætti hjónin blönk og dúkkaði. Það þarf töluverðan kjark til að spila svona, því auðvitað var ekki útilokað að austur ætti DG tvíspil. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarsson 1. c4 e5 2. g3 d6 3. Bg2 Rc6 4. Rc3 Be6 5. d3 Dd7 6. e4 g6 7. Be3 Bg7 8. Rge2 f5 9. b3 Rf6 10. O-O O-O 11. f3 f4 12. gxf4 Rh5 13. Rd5 Rd4 14. f5 Rxe2+ 15. Dxe2 gxf5 16. Bg5 f4 17. De1 Df7 18. Kh1 c6 19. Rc3 Kh8 20. Re2 Hg8 21. Hg1 Bf6 22. Bxf6+ Dxf6 23. Bf1 b6 24. Df2 Hxg1+ 25. Rxg1 Hg8 26. Re2 Hg5 27. Bg2 Dh6 28. Dh4 Staðan kom upp í bresku deilda- keppninni sem lauk fyrir skömmu. Nigel Short (2686) hafði svart gegn Martin Taylor (2300). 28... Rg3+! 29. hxg3 hvítur hefði einn- ig tapað drottningunni eftir 29. Rxg3 Dxh4. 29... Hh5 30. Dxh5 Dxh5+ 31. Kg1 fxg3 32. Rxg3 Dg5 og hvítur gafst upp. Meist- aramót Skákskóla Íslands hefst í dag, 23. maí, og verður framhaldið 24. og 25. maí. Nánari upplýsing- ar um mótið er að finna á www.skak.is. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Þessar ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 2.274 krónur. Þær heita Tinna Birgisdóttir og Hrafnhildur Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Ragnhildur Þessir ungu piltar héldu á dögunum hlutaveltu og söfnuðu kr. 2.210 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þeir heita Ás- geir Björn Elíasson, Brynjar Skúlason og Jakob Stef- ánsson. Morgunblaðið/Ragnhildur KIRKJUSTARF SUNNUDAGINN 25. maí nk. kl. 14 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prest- ur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Jón Bjarnason. Guðrún Finnbjarnardóttir mun leiða almennan safn- aðarsöng. Messukaffi að athöfn lokinni. Annað árið í röð er boðið upp á enska messu í Hallgrímskirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. Service in English SERVICE in English at the Church of Hallgrímur (Hallgríms- kirkja). Sunday 25th of May at 2 pm. Holy Communion. The Sixth Sunday after Easter. Celebrant and Preacher: The Revd Bjarni Thor Bjarnason. Organist: Jón Bjarnason. Lead- ing singer: Guðrún Finnbjarn- ardóttir. Refreshments after the Service. Ensk messa í Hallgríms- kirkju Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hallgrímskirkja Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og spjall. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Kaffispjall fyrir mæður. Að þessu sinni kemur Bjarni Karlsson sóknarprestur í heimsókn, heldur kyrrðarstund og leikur við börnin. Gönguhópurinn Sólarmegin. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 10.30 alla miðv. og föstud. næstu vikur. Allir vel- komnir. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Breiðholtskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir 11–12 ára drengi á laug- ardögum kl. 12.30. Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf vel- komnir. Fríkirkjan Kefas. Í dag er 11–13 ára starf kl. 19.30. Allir 11–13 ára eru hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóa- markaður frá kl. 10–18 í dag. Fíladelfía. Unglingasamkoma kl. 20.30. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 21 unglingaskemmtun. Kirkja sjöunda dags aðventista.: Laugardagur 24. maí 2003. Fjöl- skyldudagur í Hlíðardalsskóla, kl. 10 biblíufræðsla, kl. 11.15 guðsþjón- usta, kl. 15 saga kirkju Sjöunda dags aðventista á Íslandi í tali og tónum kl. 19.30 af vettvangi starfs- ins. Safnaðarstarf MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MEÐ MORGUNKAFFINU Þessi tíska tryggir það að maðurinn þinn verður snöggur upp með veskið! HLUTAVELTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.