Morgunblaðið - 23.05.2003, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 49
www.casa.is
KEPPNIN um titilinn ungfrú Ísland verður haldin á
Broadway í kvöld, föstudagskvöld. Alls tekur 21 stúlka
þátt í keppninni og segir Elín Gestsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hennar, að stúlkurnar hafi staðið í
ströngu undanfarna daga.
„Frá því í mars hafa verið undankeppnir um allt land
en æfingar fyrir aðalkeppnina hófust um síðustu mán-
aðamót og hafa stúlkurnar verið stanslaust að síðan þá,
á þönum milli líkamsæfinga, í ljósmyndun, í sjónvarps-
upptökur, í æfingar á sviðinu, farið saman út að borða
og í óvissuferð og nánast hver einasti dagur þaulskipu-
lagður.“
Í keppninni sjálfri munu stúlkurnar koma fram í
undirfatnaði, sundfatnaði og tískufatnaði, auk þess
sem þær koma fram í hefðbundnum síðkjólum. Þeim til
liðsinnis verða nokkrir af þátttakendum keppninnar
Herra Ísland. Tíu stúlkur verða valdar úr hópnum, og
úr þeim hópi krýndar drottningar, meðal annars vin-
sælasta stúlkan og ljósmyndafyrirsæta keppninnar,
auk þess sem sjónvarpsáhorfendur fá að kjósa sér-
staklega þá stúlku sem þeim þykir bera af. Loks verður
fegurðardrottningin sjálf krýnd, en allir þátttakendur
eru leystir út með veglegum verðlaunum og gjöfum.
„Aðalverðlaunin fyrir sigurvegarana er þó kannski
tækifærið til að fá að ferðast og taka þátt í fegurð-
arsamkeppnum erlendis,“ sagði Elín Gestsdóttir.
Ungfrú Ísland í kvöld
Manúela Ósk Harðardóttir er núverandi ungfrú Ísland.
Scott Weiland, söngvari Stone
Temple Pilots, var látinn laus
gegn tryggingu eftir að hafa verið
handtekinn fyrir að hafa fíkniefni í
fórum sínum. Laganna verðir
stöðvuðu hann á sunnudags-
morgun fyrir að aka ljóslaus, og
komu þá auga á fíkniefnin. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem hann
kemst í kast við lögin, en hann á
að baki einhverja dóma fyrir
vörslu fíkniefna og ofbeld-
isverk. … Drengirnir í Pearl Jam
segjast hafa sagt skilið við plötu-
fyrirtæki sitt til margra ára, Epic-
útgáfufyrirtækið. Eru þeir piltar
ekki allskostar hressir með frá-
gang mála þar á bæ, en hljóm-
sveitin hefur verið bundin útgáf-
unni, og hlakka að eigin sögn til
að njóta frelsis og vera hjá útgáfu
sem kann betur að meta þá. …
Bassaleikarinn Flea úr Red Hot
Chilli Peppers, réttu nafni Mich-
ael Blazary, hyggst söðla um í
teiknimyndabransanum en hann
hefur verið fenginn til að tala inn
á næstu kvikmyndina um krakka-
ormana sem kenndir eru við þætt-
ina Rug-
rats. …
Söngvarinn
bjartróma
Michael Jack-
son var lagður
inn á spítala á
dögunum.
Jackson veikt-
ist hastarlega,
og hefur enn
ekki verið upplýst hvað amar að
honum, en hann veiktist skömmu
áður en hann átti að mæta fyrir
rétt í höfundarréttarmáli og segja
aðstandendur hans málið hafa tek-
ið mjög á hann. …Söngkonunni
Britney Spears brá í brún þegar
móðir hennar var í skyndi flutt á
spítala eftir að hafa hnigið niður.
Þær mæðgurnar sátu ásamt fleir-
um að snæðingi þegar móðirin
fékk aðsvif.
Britney ótt-
aðist fyrst að
einhver hefði
byrlað móður
sinni ólyfjan,
en seinna kom
í ljós að um
var að ræða
hastarleg við-
brögð við of-
næmislyfi. …Sjaldan er ein bár-
an stök í heimi stjarnanna, og
varð Elizabet Taylor svo ólánsöm
að fá aðsvif við sérstaka heið-
urssýningu á mynd hennar Ris-
anum („Giant“) á Cannes-
kvikmyndahátíðinni. Viðstöddum
sýndist El-
ísabet vera í
einhverju
ójafnvægi og
virtist snökt-
andi að
ástæðulausu
og virtist bæði
áhyggjufull og
óróleg. …Hin
hæfileikaríka
Gwyneth Paltrow hefur ákveðið
að mennta sig í eldamennsku, og
gerir hún þetta til að gleðja elsk-
huga sinn, Chris Martin, sem seg-
ist þreyttur á hótelfæði og dreym-
ir um heimilislegan mat á enska
vísu, – langar mest í góða böku
eða væn bjúgu með eggi. …
FÓLK Ífréttum
NEMENDALEIKHÚS Listahá-
skólans frumsýndi á dögunum
verkið Tvö hús. Hér er á ferð
leikgerð Kjartans Ragnarssonar
og Magnúsar Þórs Þorbergssonar
á tveimur verkum Federico
Garcia Lorca: Blóðbrullaupi og
Heimili Vernhörðu Alba, en
Kjartan fer einnig með leikstjórn
sýningarinnar.
„Þessi leikrit eru keimlík,“
sagði Kjartan í samtali við blaðið.
„Þau fjalla bæði um bældar ástir
og þjóðfélagsgerð hefndar og
karlmennsku sem kúgar allt und-
ir sig. Það eru fimm stelpur í út-
skriftarbekknum og vandi að
finna verk með góðum kven-
hlutverkum fyrir svo stóran hóp,
en Hús Vernhörðu Alba er með
eintómar kvenrullur á meðan
Blóðbrullaup er með spennandi
karlhlutverk.“
Kjartan segir sýninguna falla
vel í kramið hjá áhorfendum,
uppselt hafi verið á fyrstu sýn-
ingarnar, stemningin góð og fólk
hrifið.
Sýning Nemendaleikhússins fer
fram í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13
og eru næstu sýningar á miðviku-
dag og fimmtudag og hefjast báð-
ar kl. 20.
Blóðhiti og
bældar ástir
Morgunblaðið/Arnaldur
Teit þá tjaldið fellur: Björn Thors, Davíð Guðbrands-
son, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Esther Talía Cas-
ey og Ilmur Kristjánsdóttir.
Ögmundur Þór Jóhannesson ljósameistari, Gretar
Reynarsson leikmyndahönnuður, Margrét Jónsdóttir
búningahönnuður, Sverrir Guðjónsson tónskáld og
Kjartan Ragnarsson leikstjóri, keik að sýningu lokinni.
Nemendaleikhúsið sýnir Tvö hús, leikgerð á verkum Federico García Lorca
Hver tónn/tákn kostar 99 kr.
Tónar
Tákn
TOPP5
Þú finnur rétta tóninn á mbl.is.
Yfir 10.000 tónar og tákn.
Pantaðu með SMS í 1910.
MB david
MB island
MB manu
MB halldor
MB mbl
Segðu mér allt
Birgitta Haukdal
MB 21707
Scooter
Scooter
MB weekend
Ne Ver, Ne Bojsia
Eurovision: Rússland (t.A.T.u)
MB 21717
Jennifer Lopez
Eurovision: Austurríki (Alf Poier)
MB 21699
Justin Timberlake
Eurovision: Þýskaland (Lou)
MB 21705
Morgunblaðið/Þorkell