Morgunblaðið - 23.05.2003, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 53
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8, 10 og 11. B.i. 12. / Powersýningar kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. / Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i.12. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ROBERT De Niro leikur aðal-
hlutverkið, lögguna og föðurinn
Vincent LaMarca í þessu spennu-
drama þar sem stórleikkonan
Francis McDormand leikur á móti
honum.
Vincent er dugleg og virt lögga
í morðdeild New York-lögregl-
unnar. En í nýjasta málinu sínu er
hann að rannsaka Joey son sinn,
sem er ákærður fyrir morð, en
þeir hafa verið í litlu sambandi
undanfarin ár. Rannsóknin ber því
Vincent aftur í tímann, og inn á
við. Hann neyðist til að takast á
við sársaukann sem fylgir því að
horfast í augu við að hann brást
syni sínum. En einnig þá minn-
ingu að faðir hans var glæpamað-
ur líflátinn fyrir morð. Upp vakn-
ar spurningin hvort hann geti gert
eitthvað til að koma í veg fyrir að
18 mánaða gamall sonarsonur
hans falli í sömu sjálfseyðing-
argryfjuna.
Að mæta fortíðinni
De Niro þykir sýna sannfærandi og
djúpan leik í Bænum við sjóinn.
Regnboginn frumsýnir kvikmyndina
Bærinn við sjóinn (City by the Sea). Leik-
stjórn: Michael Caton-Jones. Aðal-
hlutverk: Robert De Niro, Frances
McDormand, James Franco, Eliza
Dushku, William Forsythe og Patti
LuPone.
!" !#
!"
##$#
TILRAUNAELDHÚSIÐ: Vansæluhús
í Bláa húsinu, Mýrargötu 26 (rétt
hjá loftkastalanum, gengið inn bak-
dyramegin). Kristín Eiríksdóttir
opnar sýningu sína, Minn guð hefur
hala og horn, í kvöld. Hefst kl. 23.
Enginn aðgangseyrir.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands opnar
í kvöld sýninguna Afbrigði af feg-
urð, yfirlitssýningu á andófs-
aðgerðum gegn fegurðarsam-
keppnum í gegnum tíðina. Sýningin
verður í Síðumúla 12, í húsakynn-
um kvikmyndagerðarinnar Cut ’n
Paste og verður opnuð kl. 20.30.
Það er Staðalímyndahópur Fem-
ínistafélagsins sem hefur veg og
vanda af sýningunni, en undanfarið
hefur félagið staðið fyrir ýmsum
uppákomum þar sem vakið hefur
verið máls á jafnrétti kynjanna.
Meðal þess sem sjá má á sýning-
unni verða svipmyndir af því þegar
borgarfulltrúar Kvennalistans
mættu í síðkjólum með kórónur á
borgarstjórnarfund og báru borða
með áletrunum á borð við „Ungfrú
spök“ og „Ungfrú meðfærileg“, og
þegar Rauðsokkahreyfingin krýndi
kúna Perlu samhliða krýningu
ungfrúar Vesturlands snemma á
áttunda áratugnum.
Aðstandendur sýningarinnar
segja þó ekki markmiðið með sýn-
ingunni að gagnrýna þátttakendur
í fegurðarsamkeppni, heldur hvetja
almenning til gagnrýninnar hugs-
unar um fegurðarsamkeppnir og
hlutverk þeirra.
Á sunnudag flyst sýningin á veit-
ingahúsið Prikið í Bankastræti og
verður þar til sýnis fyrir gesti og
gangandi.
Sögubrot úr
jafnréttis-
baráttu
sýningu á áróðri gegn
fegurðarsamkeppnum
Femínistafélagið heldur