Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 56

Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 0 9 5 5 3 / S IA EFNAHAGSBROTADEILD Ríkis- lögreglustjóra hóf í gær víðtæka rannsókn á grunsemdum um stór- felldan fjárdrátt starfsmanns Lands- síma Íslands. Í tilkynningu frá Símanum segir: „Landssími Íslands hf. óskaði í gær eftir því við efnahagsbrotadeild Rík- islögreglustjóra, að embættið tæki til opinberrar rannsóknar grunsemdir félagsins um stórfelld auðgunarbrot. Upp komst um málið þegar innri endurskoðun félagsins tók út ákveðna þætti bókhalds þess. Rök- studdur grunur er um kerfisbundnar rangfærslur í bókhaldshugbúnaði fyrirtækisins.“ Við nánari eftirgrennslan innan fyrirtækisins beindust böndin að ein- um starfsmanni þess. Að sögn Sím- ans hefur viðkomandi starfsmanni þegar verið sagt upp störfum, en engar vísbendingar eru um að fleiri starfsmenn Símans séu viðriðnir mál- ið. „Rannsóknin mun ná nokkur ár aftur í tímann og ljóst er að um um- talsverðar fjárhæðir er að ræða. Rannsókninni hefur einkum verið beint að árunum 1999–2000,“ segir í tilkynningu Símans. „Rannsóknin er á frumstigi og atvik máls eru ekki ljós. Ríkir rannsóknarhagsmunir eru í vegi þess að frekar verði upplýst um atvik málsins. Málið er nú statt hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra, en auk þess vinnur innri end- urskoðun félagsins að gagnaöflun.“ Grunur um „stórfelld auðg- unarbrot“ hjá Símanum Einn starfsmaður grunaður – víðtæk lögreglurannsókn hafin „ÉG er bara þjálfarinn þeirra,“ seg- ir Egill Steinar Fjeldsted, yfir- þjálfari yngri flokka körfuknatt- leiksdeildar Breiðabliks. Hann lætur ekki fötlun sína hindra sig í að sinna starfi sínu en Egill hefur verið bundinn við hjólastól í níu ár eftir umferðarslys. Hann þjálfar sjálfur 7. og 8. flokk og á ríkan þátt í að iðkendum hefur fjölgað úr 80 í rúm- lega 300 á nokkrum misserum. „Það eru allt að 40 krakkar í yngstu flokkunum og við erum ánægðir með hvernig til hefur tek- ist. Krakkarnir hafa nóg fyrir stafni og sem dæmi má nefna að A-liðið í 8. flokki lék 70 leiki á sl. ári og æfði að meðaltali 5 sinnum í viku,“ segir Egill. Hann vill hins vegar ekki gera mikið úr sérstöðu sinni sem þjálfara og segist komast á flesta staði sjálf- ur en að hann fari aftur á móti ekki oft út á land með flokkum sínum. Egill segist hafa aðstoðarmenn til þess að sýna æfingar og tækniatriði. Egill Steinar Fjeldsted ræðir við lærisveina sína á æfingu hjá Breiðabliki. Fötlunin er lítil hindrun  Ég er bara þjálfarinn/44 Morgunblaðið/Kristinn ingu barnabóta. Lánshlutfall al- mennra íbúðalána verður hækkað í áföngum á kjörtímabilinu í allt að 90% af verðgildi eigna, „að ákveðnu hámarki“. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem samþykkt var í stofnunum flokkanna í gær- kvöldi. Í stefnuyfirlýsingunni kemur fram að aukið svigrúm ríkissjóðs verður nýtt til að tryggja aukinn kaupmátt þjóðarinnar með „markvissum að- gerðum í skattamálum“. Þannig verð- ur tekjuskattsprósenta á einstaklinga lækkuð um allt að 4%, eignarskattur felldur niður, erfðafjárskattur sam- ræmdur og lækkaður og „virðisauka- skattkerfið tekið til endurskoðunar með það í huga að bæta kjör almenn- ings“. Þá er ætlunin að auka mögu- leika almennings á skattfrjálsum líf- eyrissparnaði. Skattalækkanirnar á BEINN stuðningur við barnafjöl- skyldur verður aukinn með hækkun barnabóta og frítekjumarks þeirra og áfram verður dregið úr tekjuteng- að ákveða nánar í tengslum við gerð kjarasamninga. Endurskoða og einfalda á al- mannatryggingakerfið og sérstak- lega skoða samspil þess við skattkerf- ið og lífeyrissjóðina. Kanna á hag- kvæmni þess að fela lífeyrissjóðunum að sjá um greiðslu elli- og örorkulíf- eyris almannatrygginga. Draga á úr skerðingum á bótum öryrkja vegna atvinnutekna og hækka örorkulífeyri yngri öryrkja sérstaklega. Þá verður lögð áherzla á að tryggja sérstaklega hag þeirra ör- yrkja, fatlaðra og aldraðra sem lægstar tekjur hafa. Huga á að því að lækka endur- greiðslubyrði námslána og endur- skoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Stjórnarflokkarnir hyggjast nýta kosti breyttra rekstrarforma og þjón- ustusamninga um einstaka þætti í heilbrigðiskerfinu, „án þess að dregið verði úr rétti allra til að nota heil- brigðisþjónustu“. Vinna á að aukinni þjónustu við geðfatlaða og huga sér- staklega að börnum og unglingum með geðraskanir og þroskafrávik. Treysta á stuðning við fatlaða og geð- sjúka, m.a. með auknu framboði á skammtímavistun og stoðþjónustu. Þá verði langveikum „gert kleift að takast á við veikindi sín með fjárhags- legum og félagslegum stuðningi“. Ríkisstjórnin hyggst ljúka við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. „Orkulindir hvers svæðis verði nýttar af skynsemi til að byggja upp atvinnu og efla mannlíf. Áherzla verði lögð á að saman fari nýting auðlindanna og náttúru- vernd,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er jafnframt kveðið á um að áformum um þjóðgarð norðan Vatnajökuls verði fylgt eftir. Ríkisstjórn hyggst hækka barnabætur og íbúðalán  Aukin velmegun/29 Greiðslubyrði námslána lækkuð – minni tekjutenging barna- og örorkubóta ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur ákveðið að fella niður sýningu á stóra sviði leikhússins á laug- ardag vegna Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem þá fer fram. Til stóð að sýna leikritið Allir á svið en eftir að afpantanir á miðum tóku að berast var ákveðið að aflýsa sýningunni. „Það var svolítið um að fólk væri búið að kaupa miða þetta kvöld en áttaði sig svo á að söngvakeppnin væri þetta sama kvöld,“ segir Björg Björnsdóttir, kynningarstjóri leikhússins. Leikritið sem átti að sýna er farsi og segir Björg að það hafi skipt höfuðmáli þeg- ar ákveðið var að hætta við. „Í farsa eru áhorfendur lykilatriði í því að rétt stemning skapist, en hún næst síður ef verið er að leika fyrir fáa og því var ákveð- ið að fara þessa leið.“ Borgarleikhúsið ætlar að bregðast við söngvakeppninni með sérstöku tilboði. Sýning felld niður vegna söngva- keppni SEINNI HLUTA niðurstaðna Sam- keppnisstofnunar úr athugun á meintu samráði milli olíufélaganna er að vænta síðar á þessu ári. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristjáns Loftssonar, formanns stjórnar Kers hf., á aðalfundi félags- ins í gær. Hann sagði félagið hafa unnið áfram með Samkeppnisstofnun að því að upplýsa málavexti um meint samráð olíufélaganna og að fyrir lægju nú þegar drög að fyrri hluta niðurstöðu rannsóknarinnar. Olíufélögin þrjú, Olíufélagið ehf., sem er dótturfélag Kers, Olís hf. og Skeljungur hf., hafa á annað ár verið í rannsókn hjá Samkeppnisstofnun, eða frá því stofnunin gerði húsleit hjá félögunum í desember 2001. Kristján greindi frá því að búast mætti við að niðurstaða Kauphallar Íslands vegna óskar Kers um af- skráningu félagsins myndi liggja fyrir innan skamms. Þá sagði hann að tæplega 98,8% hlutafjár í Keri væru nú í höndum tveggja hluthafa, Vörðubergs ehf. og Gerðis ehf. Niðurstöður væntanlegar síðar á árinu  Tveir hluthafar/12 Olíufélögin og Samkeppnisstofnun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.