Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 147. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Karlinn í
brúnni
Þorsteinn á Hólmaborginni er
landsþekkt aflakló 10
Listin lifir í
Ĺaugarnesi
Birgitta Spur hefur rekið Sigur-
jónssafn í 15 ár Listir 30
Áhyggjur
í Aþenu
Undirbúningur Ólympíuleikanna
2004 gengur ekki sem skyldi 14
Í DAG er sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur
um land allt. Góð veiði hefur verið í dragnót á
Breiðafirði síðustu dagana. Herkúles SH 550
fékk til dæmis fjögurra tonna hal af fallegum
þorski út af Ólafsvík, og var þorskurinn fullur af
síli. Það skýrir ef til vill léleg aflabrögð á hand-
færi, þar sem þorskurinn er fullur af síli og sadd-
ur. Fjögur tonn er mikið fyrir lítinn bát og því
þurfti að hífa fiskinn inn í smærri slöttum.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Til hamingju með daginn, sjómenn
RUNÓLFUR Ágústsson, rektor Við-
skiptaháskólans á Bifröst, hvetur til
þess að sú leið verði skoðuð, að breyta
öllum ríkisrekn-
um háskólum á Ís-
landi í sjálfseign-
arstofnanir. Slíkt
fyrirkomulag
myndi jafna sam-
keppnisstöðu há-
skóla, þeir fengju
aukið fjárhagslegt
sjálfstæði og
myndu nýta betur
opinber fjárfram-
lög auk þess sem skipulag þeirra yrði
sveigjanlegra og virkara.
Þetta kom fram í ræðu Runólfs við
útskrift nemenda við skólann í gær. Í
samtali við Morgunblaðið vísar hann
til nýlegrar lagasetningar danska
þingsins, sem breið pólitísk samstaða
allra stærstu flokka náðist um og tek-
ur gildi 1. júlí nk. „Ég er sannfærður
um að sjálfseignarstofnanir séu miklu
heppilegra rekstrarform fyrir há-
skóla,“ segir Runólfur.
Hann telur ríkisháskóla standa
höllum fæti í hinu síbreytilega og
krefjandi samkeppnisumhverfi nú-
tímans þar sem skólarnir þurfa að
hafa yfir að ráða sveigjanlegu stjórn-
kerfi sem geri miklar kröfur til starfs-
fólks jafnt sem nemenda.
Sjálfseignarstofnanir á háskóla-
stigi sitja ekki við sama borð og rík-
isreknir háskólar varðandi aðgengi að
rannsóknarfé, að mati Runólfs. Það
sé þó grundvallaratriðið í samkeppn-
isstöðu háskóla hérlendis. „Það liggur
algjörlega fyrir að lunginn af öllu
rannsóknarfé sem varið er til háskóla
fer til Háskóla Íslands.“
Aðspurður hvort það sé ekki ein-
faldlega vegna þess að Háskóli Ís-
lands sé með flestar rannsóknirnar
segir Runólfur það ekki skýra alla
myndina. „Háskólinn fær um það bil
eina krónu til rannsókna fyrir hverja
krónu sem hann fær til kennslu. Við-
skiptaháskólinn á Bifröst fær um 20
aura í rannsóknir fyrir hverja krónu
til kennslu.“ Þessi staða sé uppi þótt
skólinn hafi staðið sig ákaflega vel í
rannsóknum og stýrt fjölþjóðlegum
verkefnum styrktum af Evrópusam-
bandinu. „Ég hafna því að það séu
ekki unnar rannsóknir annars staðar.
Við þurfum hins vegar að kosta okkar
rannsóknir með öðrum hætti. Því
miður er það svo að stór hluti af okkar
rannsóknarkostnaði er greiddur með
skólagjöldum nemenda. Okkur finnst
það algjörlega óviðunandi niður-
staða,“ segir Runólfur.
Segir tvískiptingu vinnu-
markaðar vera skaðlega
Hann segir stjórnkerfi og laga-
ramma ríkisháskóla ósveigjanlegan
og illa til þess fallinn að þjóna mark-
miðum þekkingarsamfélagsins. Lög
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna séu þar til að mynda
nær ókleif hindrun. Runólfur spyr
hvaða rök séu fyrir því að önnur lög
gildi um réttarsamband launamanns
og atvinnurekanda eftir því hvort at-
vinnurekandinn er hið opinbera eður
ei. Telja megi slíka tvískiptingu á
vinnumarkaði skaðlega.
„Hér eigum við Íslendingar að
bretta upp ermar og vera óhræddir
við breytingar. Framtíð háskólanna
okkar mun ráða framtíð lands og
þjóðar. Þau fjöregg sem háskólarnir
eru þjóðinni mega aldrei verða fúlegg
hennar. Í þeim efnum er stöðnun
sama og dauði,“ sagði Runólfur.
Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst við útskrift nemenda frá skólanum
Ríkisháskólar verði gerðir
að sjálfseignarstofnunum
Runólfur
Ágústsson rektor.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti skoðaði í gær útrýming-
arbúðir nasista í Auschwitz í Pól-
landi og minntist 1,5 milljóna
gyðinga og annarra fanga sem voru
myrtir þar í síðari heimsstyrjöld-
inni. Bush er hér í búðunum með
eiginkonu sinni, Lauru, og for-
stöðukonu Auschwitz-safnsins.
AP
Bush í
Auschwitz
EMBÆTTISMENN í varnarmála-
ráðuneytinu og Hvíta húsinu í Wash-
ington lögðu fast að Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
að skírskota til vafasamra upplýs-
inga í ræðu sem hann flutti um meint
gereyðingarvopn Íraka í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna í febrúar, að
sögn bandaríska vikublaðsins US
News and World Report.
Blaðið sagði að í fyrstu drögum
embættismanna að ræðunni hefðu
verið svo vafasamar staðhæfingar að
Powell hefði misst stjórn á skapi
sínu, kastað nokkrum blaðsíðum upp
í loftið og sagt: „Ég les þetta ekki.
Þetta er þvættingur.“
Embættismennirnir vildu m.a. að
Írakar yrðu sakaðir um að hafa
keypt tölvuforrit sem myndi gera
þeim kleift að skipuleggja árás á
Bandaríkin þótt bandaríska leyni-
þjónustan hefði ekki staðfest það.
Var Powell
beittur
þrýstingi?
Washington, London. AFP.