Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur allstaðar slegið í gegn. Sýnd kl. 8. B.i.14. Sýnd kl. 4, 5, 7, 8 og 10. B. i. 12 ára.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.  Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is SV MBL HK DV  SG Rás 2 Radio X  ÞÞ Frétta- blaðið  ÓHT Rás 2 „Grípandi og gefandi með óborganlega bardaga“ AF HVERJU HAGA MENN SÉR EINS OG STRÁKAR? AF ÞVÍ ÞEIR GETA ÞAÐ Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 10.05. B.i.12 ára. Sýnd kl. 6. Sýnd í stóra salnum kl. 5 og 8. Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4. Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur allstaðar slegið í gegn. KVIKMYNDIR.COM ÓHT Rás 2 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 7. Það borgar sig að kynnast fólki vel áður en þú ferð á blint stefnumót á netinu. Queen Latifahfer á kostum og Steve Martin slær í gegn í sinni stærstu gamanmynd frá upphafi! ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2. Tilboð 500 kr. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6 og 8. KEFLAVÍK kl. 3.45 og 8. AKUREYRI kl. 4 og 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.10. B.i. 14 ára Kvikmyndir.is KRINGLAN kl. 5.30. Ísl. tal. ÁLFABAKKI kl. 2 og 4. ísl. tal. SVARTÞUNGAROKKIÐ hef-ur í meira en áratug veriðeinn sællegasti vaxtarbrodd-urinn í þungarokki. Og það gnístir stundum sannan áhugamann um tónlist að dufl þeirra sem svarta rokkið stunda við heiðnar ímyndir, vísanir í djöfulgang og drunga og leikhúsleg látalæti hefur átt sinn þátt í að fæla fólk frá þessari athygl- isverðu stefnu fremur en að laða það að. Þessir hlutir eru vissulega órofa partur af listsköpuninni en stöku offar í þeim efnum má ekki – og ætti ekki – að hræða forvitið tónlistar- áhugafólk frá því sem er og hefur verið meginstyrkur svartþunga- rokksins; sjálf tónlistin. Svartþunga- rokkið telur ýmsa undirflokka og getur sveiflast frá argasta hávaða yf- ir í melódíska, sinfóníska, næstum aðgengilega tóna. Sveitir eins og Emperor og Immortal sýndu fram á það um miðjan síðasta áratug hvern- ig ætti að framþróa formið með tíma- mótaverkum eins og In the Night- side Eclipse og Pure Holocaust. Síðan hefur listformið verið opið fyr- ir ýmiss konar áhrifum; frá þjóðlaga- tónlist og raftónlist til nýklassíkur og hreinlega popps. Hér á Íslandi hafa starfað nokkrar svartþungarokksveitir, en nær allar farið fremur lágt. Þær sem eru virk- astar í dag eru Sólstafir, Myrk, Potentiam og Múspell en aðrar sveit- ir, bæði lífs og liðnar, eru t.d. Úlfur, Skörungur, Svartamyrkur, Böl- vættur, Níðhöggur, Ámsvartnir, Myrkviður, Demoralize, Curse, Myrkraöfl, Hel, Thule, Darkness Devoid og Demogorgon. Bálsýn Potentiam var stofnuð árið 1997 af þeim Eldi og Forn, en fram að því hafði Eldur verið í Thule og þeir tveir saman í Hel. Tíu laga prufu- snælda, Bálsýn, var gefin út í febrúar árið 1998 í aðeins 50 eintökum. Ítalska fyrirtækið Avantgardemusic/ Wounded Love Records gaf þá snældunni gaum og hún var gefin út á diski í nokkuð breyttu formi árið eftir. Um þetta leyti sá trymbill Sól- stafa, G.Ó. Pálmason, um trommu- leik í bandinu. Potentiam hafa verið nokkuð lánlausir með trommuleikara í gegnum tíðina og Kristján nokkur, sem hefur gert garðinn frægan með Shiva og Changer, trommaði með Potentiam á plötunni Orka í myrkri, sem enn bíður útgáfu. Kristján hætti svo í bandinu til að einbeita sér betur að Changer og í dag sér nafni hans Guðmundsson um trommuleikinn, en hann er og trommari Myrk. Potentiam eru nú að gera sig klára fyrir þriðju breiðskífuna og prufu- platan Elysium er farin í dreifingu. Þess má að lokum geta að Eldur gaf sjálfur út tíu laga plötu undir nafninu Curse árið 1999 og gerði í kjölfarið samning við þýsku útgáfuna No Colours Records sem hefur gefið út eina smáskífu og eina breiðskífu með þessu hliðarverkefni hans. Hér ein- beitir Eldur sér að svokallaðri myrk- bylgjutónlist (dark wave) þar sem meiri áhersla er á hljómborð, hrein- an söng og gotneskan blæ. Sólstafir hafa verið starfandi í ca. tíu ár og árið 1995 gáfu þeir út fjög- urra laga prufusnældu sem kallast Í norðri, þar sem ásatrúin var upp- spretta yrkinganna (lög eins og „Í helli Loka“ og „Fenrisúlfur“ segja sitt). Árið eftir kom svo út fjögurra laga geisladiskur, Til Valhallar. Sá diskur er orðinn hálf goðsagna- kenndur og hefur víst selst í um 1500 eintökum víðsvegar um Evrópu. Hugsanleg endurútgáfa á honum í Rússlandi stendur nú fyrir dyrum. Fyrsta breiðskífan, Í blóði og anda, kom hins vegar ekki út fyrr en á síð- asta ári, á vegum þýska fyrirtækisins Ars Metalli. Á þeirri plötu köstuðu Sólstafir að hluta til hinni hefð- bundnu svartmálmsskikkju og læddu inn áhrifum frá suddarokkurum eins og Motorhead, auk þess sem örlaði á tilrauna- og nýbylgjukenndu rokki. Nýjasta verk Sólstafa er þriggja laga sjötomma sem nefnist Black Death, til heiðurs hinum eina og sanna þjóðardrykk, brennivíninu. Platan er gefin út af þýska fyrirtæk- inu Ketzer Records sem einnig hyggst gefa út fyrstu breiðskífu Myrk, Icons of the Dark, í sumar. Sólstafir eru nú klárir með efni á nýja plötu og reyna um þessar mund- ir að fá útgáfusamning. Líkfarði Hljómsveitin Myrk hét áður Mictian og gaf sem slík út eina prufu- upptöku, The Way to Mictian. Eftir Myrk liggur ein prufuplata, Septem- ber 2001, sem út kom í fyrra í 500 eintökum. Sveitin hefur verið starf- andi í um þrjú ár að sögn Arnar Erl- ingssonar söngvara. Aðrir sem skipa sveitina í dag eru þeir Kristján Einar Guðmundsson trommuleikari, Jakob Jónsson gítarleikari, Erling Orri Baldursson bassaleikari og Bjarni Rúnar Hallsson gítarleikari. „Við er- um að klára plötuna okkar um þessar mundir í hljóðverinu hjá Thule,“ upp- lýsir Örn. „Við erum að vinna með Aroni Arnarssyni upptökustjóra og það hefur gengið mjög vel. Hann er alveg að skilja hvað við viljum.“ Örn segir að sveitin hafi þróast talsvert á þessum þremur árum. „Þetta er orðið miklu hreinna þunga- rokk og við erum t.d. ekki með hljómborð lengur. Við erum enn að spila svartþungarokk en þetta er orðið miklu tæknilegra.“ Áhrifavaldar Myrk koma úr ýms- um áttum; kanónur eins og Mayhem, Emperor og Immortal spila sína rullu en dauðarokk, „thrash“-rokk og hefðbundið rokk eru einnig inni í myndinni. „Immortal eru t.d. stórir áhrifa- valdar. En við leitumst síðan við að móta okkar stíl úr öllum þessum áhrifum.“ Örn furðar sig í raun á því hversu dulin svartþungarokkssenan er hér- lendis. „Maður er alltaf að heyra af ein- hverjum hljómsveitum sem eru að æfa hér og þar en síðan verður ekki neitt úr neinu,“ segir hann. „Það væri gaman að geta haldið einhvern tíma almennilega íslenska svart- þungarokkshátíð en þessar hljóm- sveitir virðast því miður deyja allar í þessum æfingahúsnæðum (hlær).“ Hinn svokallaði „líkfarði“ (corpse- paint) spilar stóran þátt í sviðs- framkomu svartþungarokkara. Myrk hafa ekki slegið slöku við í þeim efnum. „Núna er þetta orðinn fastur þátt- ur í tónleikunum okkar. Mayhem lýstu því yfir á sínum tíma að það eina sem maðurinn gæti verið viss um í þessu lífi væri dauðinn og máln- ingin var svona frekari túlkun á því. Þetta er líka mikil stríðstónlist hjá okkur og málningin er alveg í takt við það.“ Tónlist á sunnudegi Arnar Eggert Thoroddsen Það er mikil gróska í íslensku svartþungarokki um þessar mundir. Hljómsveitir eins og Myrk, Sólstafir og Potentiam eru klárar með nýtt efni og stuðið er mikið og gott. Ljósmynd/Eva (Harðkjarni) Myrk á tónleikum í Vestmannaeyjum síðastliðinn janúar. TENGLAR .............................................. -www.helviti.com -www.helviti.com/myrk -www.drink.to/solstafir -potentiam.helviti.com -www.blackmetal.com Íslenskt svart- þungarokk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.