Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 21
hann var organisti þar. Hann valdi
mig m.a. til að syngja í tríói í gagn-
fræðaskólanum, þar átti ég frum-
raun mína sem einsöngvari. Hann
fékk mig einnig til þess að syngja í
kirkjukórnum. Nú var Ragnar að
koma frá námi í Þýskalandi og vildi
fá mig með í Fóstbræður, kór sem
hann var að byrja að stjórna. En ég
sagði eins og var að ég hefði daginn
áður verið prófaður inn í Karlakór
Reykjavíkur, og þar við sat. Eigi að
síður var alltaf mikill vinskapur á
milli okkar Ragnars og þrjár dætur
mínar fóru til hans í Nýja tónlistar-
skólann til náms.
Starfsmaður Iðnaðarbanka
og bankastjóri Alþýðubankans
Eftir að ég hætti í læknanámi fór
ég að lesa stærðfræði og eðlisfræði
til BA-prófs. En fljótlega var ljóst að
ég yrði að fá mér vinnu til að afla
fjár. Ég fór eftir auglýsingu frá Iðn-
aðarbankanum, en þar var óskað
fremur eftir manni í fullt starf. Ég
sló til og var fyrst afgreiðslumaður í
bankanum en svo veiktist skrifstofu-
stjórinn, sem jafnframt var aðalbók-
ari, og samstarfsmaður minn Jón
Bergmann benti á mig til að leysa
hann af. Ég bjó að góðri kennslu
Sigurðar Matthíassonar heima á
Siglufirði í bókhaldsfræðum, hann
hafði lánað mér bækur um þau fræði
langt umfram það sem kennt var í
skólanum og ég hafði kynnt mér þær
mér til ánægju, – bækur sem kennd-
ar voru þá í Verslunarskóla Íslands.
Nú kom mér sá fróðleikur og áhugi
að gagni.
Ég leysti aðalbókarann af um tals-
vert langt skeið og var með bókhald-
ið eftir að hann kom úr veikindaleyfi
sínu og tók við skrifstofustjórastarf-
inu. Ég fékk jafnframt í hendur bók-
hald Iðnlánasjóðs. Eftir að Iðnaðar-
bankinn fluttist til í Lækjargötunni
hafði ég náið samstarf við Ara Ís-
berg, lögfræðing bankans, sem sá
um að ganga frá lánveitingum. Það
leiddi til þess að ég leysti hann af í
leyfum og fékk drjúga starfsreynslu
í slíkum efnum.
Svo kom að því að auglýst var
laust starf sparisjóðsstjóra hjá
Sparisjóði alþýðu sem verið var að
stofna um þær mundir. Þetta var ár-
ið 1966. Eftir langa bið var mér veitt
það starf. Ég undirbjó stofnun
Sparisjóðs alþýðu sem var í frum-
undirbúningi þegar ég tók við starf-
inu, en hann var opnaður 30. apríl
1967. Við undirbúninginn naut ég
starfsreynslu minnar úr Iðnaðar-
bankanum auk þess sem ég hafði til
hliðsjónar samþykktir um starfsemi
almennra sparisjóða. Ég gegndi
starfi sparisjóðsstjóra þarna þar til
sparisjóðnum var breytt í Alþýðu-
bankann 1970. Þar var ég svo banka-
stjóri þar til mál kom upp sem leiddi
til þess að ég hætti þar störfum
1975.
Innistæðulausar ávísanir
urðu afdrifaríkar
Þau atvik urðu, meðan ég var í
kórferðalagi með Karlakór Reykja-
víkur í Kanada og Bandaríkjunum,
að forstjóri ferðaskrifstofu lagði inn
ávísanir sem stílaðar voru á banka í
Þýskalandi en ekki var til innistæða
fyrir þegar til átti að taka. Forstjór-
inn átti þá hlut að rekstri flugfélags
og átti m.a. bankaviðskipti við Al-
þýðubankann vegna þess félags en
ferðaskrifstofan, sem hann rak einn-
ig, hafði sín bankaviðskipti að mestu
við Samvinnubankann. Við Alþýðu-
bankann starfaði þegar þarna var
komið sögu annar bankastjóri við
mína hlið og hann afgreiddi þetta
mál þar sem ég var í leyfi vegna
fyrrgreinds söngferðalags. Ávísan-
irnar voru því miður ekki sendar
strax til innheimtu heldur geymdar.
Ég fékk vitneskju um ávísanirnar
frá lögfræðingi Alþýðubankans þeg-
ar ég kom heim nokkru síðar og
krafðist þess þá að þær yrðu um-
svifalaust sendar til innheimtu. Það
var gert. Í kringum þetta mál urðu
blaðaskrif og í framhaldi af því gerði
Seðlabankinn rannsókn á lánum og
tryggingum Alþýðubankans. Um
sama leyti var af hálfu Alþýðubank-
ans óskað eftir frekari tryggingum
frá forstjóranum, sem hann veitti.
Ég vissi að fjárhagslegir erfiðleikar
voru miklir hjá ferðaskrifstofunni
um þessar mundir en ég vissi ekki til
að sama máli gegndi um flugfélagið.
Einhverra hluta vegna snerist málið
hins vegar þannig að það var flug-
félagið sem var gert gjaldþrota en
ekki ferðaskrifstofan. Hvernig stóð
á að þetta mál fór svona hef ég ekki
hugmynd um. Hitt er svo annað að
við bankastjórarnir vorum gerðir
ábyrgir vegna þessara innistæðu-
lausu ávísana sem ekki voru settar í
innheimtu strax eins og hefði átt að
gera. Þetta mál varð að dómsmáli og
þar með vorum við leystir undan
bankaleynd varðandi þá aðila sem til
rannsóknar voru. Við vorum sýkn-
aðir í þessu ávísanamáli en misstum
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 21
Það getur allt gerst ...
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
á mann í tvíb‡li í 14 nætur í stúdíói.
79.470 kr.*
Sta›grei›sluver›
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting,
akstur og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
13
32
05
/2
00
3
Gríska eyjan Krít er yndisleg í júní. fiægilegur hiti og
sjórinn or›inn heitur. Gríptu tækifæri› og bóka›u
tvær vikur á ver›i einnar á íbú›ahótelinu Helios.
N‡legt íbú›ahótel me› gullfallegum íbú›um og
persónulegri fljónustu, vel sta›sett og stutt frá
strönd.
Sérfer› - Örfá sæti laus í siglingu um Eyjahaf
og dvöl á Krít 18. ágúst - 1. sept.