Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÁRSREIKNINGUR Kópavogsbæjar fyrir árið 2002 var lagður fram í bæj- arstjórn þriðjudaginn 27. maí síðastliðinn. Í honum kemur fram að skuldir Kópavogsbæjar hafa aukist verulega. Heildarskuldir bæjarins í árslok 2002 voru tæplega 11 milljarðar en voru í árslok 2001 9,66 millj- arðar. Þær hafa því hækkað um röska 1,3 milljarða eða um rúmlega 13 prósent. Skuldir á hvern íbúa bæjarins aukast úr 399 þúsund í 439 þúsund. Hér er miðað við heildarskuldir án lífeyrissjóðsskuldbindinga en ef þær eru teknar með er stað- an talsvert verri. Tekjur minni en áætlað var Í ársreikningnum kemur einnig fram að tekjur bæjarins voru 143 milljónum minni en gert var ráð fyrir og framkvæmdir og fjárfest- ingar fóru fram úr áætlun um 765 milljónir. Áætlanir gerðu ráð fyrir fjár- festingum fyrir 1,8 milljarða en fjárfest var fyrir 2,54 milljarða eða 43% meira en áætlun gerði ráð fyrir. Sveitarstjórnarlög þverbrotin Ársreikningurinn kemur of seint fram og það er skýrt brot á sveitarstjórn- arlögum en í þeim segir í 72. gr.: „Ársreikningur sveitarfélags skal full- gerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok apr- ílmánaðar.“ Auk þess vantar veigamiklar upplýsingar, þar eru til að mynda ekki lagðar fram skuldbindingar og reikningar vegna Tónlistarhúss Kópa- vogs. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa margsinnis kallað eftir þessum reikningum. Samkvæmt okkar upplýsingum eru skuldir bæjarins vegna Tón- listarhússins 312 milljónir. Við getum ekki tekið þátt í afgreiðslu reiknings- ins nema skuldbindingar vegna Tónlistarhússins komi inn í reikninga bæj- arins. Þeir eru að missa tökin Af ársreikningnum 2002 er ljóst að skuldir bæjarins vaxa verulega og að virðist nokkuð stjórnlaust og fjárfestingar fara verulega fram úr áætlun. Öll meðferð og umfjöllun um ársreikninginn sýnir að sjálfstæðismenn og fram- sóknarmenn eru að missa tökin á fjármálum bæjarins. Það kom skýrt fram í umræðunum í bæjarstjórn að bæjarfulltrúar meirihlutans átta sig ekki á stöðunni og hafa enga hugmynd um til hvaða nauðsynlegu aðgerða þarf að grípa. Slíkir menn eiga ekki að stjórna stóru bæjarfélagi eins og okkar. Skuldir Kópavogs aukast um 1,3 milljarða Eftir Flosa Eiríksson Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. GUÐJÓN Jensson bókasafns- fræðingur reifar í Morgunblaðinu 20. maí sl. hugmyndir sínar um nýtt hlutverk gömlu Toppstöðvarinnar eða Varastöðv- arinnar í Elliðaár- dal. Í stuttu máli ganga þær út á að nýta húsnæðið sem geymslusafn fyrir hin ýmsu söfn á höfuðborgarsvæð- inu, s.s. Þjóðminjasafn, Lands- bókasafn og Árbæjarsafn. Þótt vissulega sé þörf þessara safna brýn er sitthvað við tillöguna að athuga. Toppstöð Landsvirkjunar var reist af Rafmagnsveitu Reykjavíkur og tekin í notkun árið 1947. Hún þjónaði höfuðborgarsvæðinu um áratuga skeið, jafnt sem toppstöð og varastöð, auk þess sem hún var um skeið notuð til að skerpa á heita vatninu frá Reykjum. Stöðin var síðast notuð í lok níunda áratug- arins og hefur upp frá því verið nýtt sem geymsluhúsnæði Landsvirkj- unar. Fáum dylst hversu mikið lýti Toppstöðin er á hinu fallega um- hverfi Elliðaárdalsins. Langt er síð- an tekin var um það ákvörðun að rífa skyldi bygginguna, en það hefur dregist á langinn, enda niðurrifs- kostnaðurinn ærinn eins og Guðjón bendir á í grein sinni. Eftir stendur að það að fjarlægja stöðina hlýtur að teljast eitt brýnasta umhverf- ismálið sem snýr að Elliðarárdaln- um. Hugmyndin um nýtt hlutverk Toppstöðvarinnar hefur tvo meg- ingalla. Hún brýtur gegn þeirri stefnu borgarinnar að heimila ekki nýbyggingar og starfsemi á bökkum Elliðaánna, en svo miklar breyt- ingar þyrfti að gera á húsinu að jafna mætti við að um nýbyggingu væri að ræða. Þá er ástæða til að ætla að Toppstöðin yrði hinum að- þrengdu söfnum mikill bjarn- argreiði. Hverjum þeim sem skoðað hefur Toppstöðina vandlega að innan sem utan má vera ljóst að geysimiklar breytingar þyrfti að gera á húsinu til að unnt væri að nýta það. Í raun má segja að Toppstöðin sé ekki ann- að en stálgrind og asbestklumpur með þunnri klæðningu. Sem stend- ur er það óhentugt geymsluhúsnæði fyrir vélahluti og gamlan tækjabún- að Landsvirkjunar, hvað þá við- kvæmar þjóðargersemar eða gömul skjöl. Að koma húsinu í skikkanlegt horf kostaði margfalt meira en þær tugmilljónir sem ætlaðar eru í nið- urrifskostnað og líklega yrði mun dýrara að breyta byggingunni en að reisa nýtt hús frá grunni. Alltof oft hafa það verið örlög ís- lenskra safna að þurfa að sætta sig við óhentugt húsnæði sem upp- haflega var reist til annarra nota. Slíkur húsakostur er óhentugur, honum fylgja margskonar aukaút- gjöld og hætta á skemmdum á skjöl- um og gripum eykst verulega. Sem betur fer virðast augu ráðamanna vera að opnast fyrir þessum stað- reyndum og síðustu misseri hafa ýmis söfn fengið aðgang að hentugu og góðu geymsluhúsnæði. Þannig komu Íslensku safnverðlaunin 2002 í hlut Byggðasafns Árnesinga fyrir nýtt og glæsilegt þjónustu- og geymsluhúsnæði. Unnendur lyk- ilsafna þjóðarinnar ættu fremur að horfa til slíkra mannvirkja en að leita uppi aflóga hjalla sem geymslur undir menningararfinn. Toppstöðina burt! Eftir Stefán Pálsson Höfundur er forstöðumaður Minja- safns Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða fallegt 131 fm raðhús á 2 hæðum byggt úr steinsteypu árið 1991. Í húsinu eru góðar stofur, 3 svefnher- bergi, eldhús, bað o.fl. Góðar innréttingar. Suðurgarður. Stutt í alla þjónustu. Verð 17,1 millj. Gjörið svo vel að líta inn. Sigtryggur tekur vel móti ykkur. Sími 568 5556 FÍFURIMI 24 - OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, Á MILLI KL. 13 OG 16 Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Mjög vel staðsett einbýlishús, um 240 fm, með bílskúr og lítilli stúdíó- íbúð. Húsið er byggt 1980 og er einstaklega vel umgengið. Í húsinu eru m.a. 4 góð svefnherbergi og góðar stofur - stór timburverönd - góður bílskúr, stúdíó-íbúð og sér- staklega falleg lóð. Húsið er mikið endurnýjað. Verð kr. 25,0 millj. Til afhendingar mjög fljótt. HÆÐARSEL 7 - OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17 - Íbúðin er 191 fm á þriðju og fjórðu hæð ásamt stæði í lokuðu bílskýli. Tvennar góðar suð/vestursvalir, 4 mjög stór svefnherbergi, stórar stofur, sérþvottahús í íbúðinni, tvö baðherbergi o.fl. Bjalla merkt Guðni og Ester. Verð kr. 22,9 millj. NAUSTABRYGGJA 23 OPIÐ HÚS Í BRYGGJUHVERFINU Í DAG FRÁ KL. 14-17 SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Norðurbrún 12 Opið hús frá kl. 14-16 Glæsilegt og vandað 232 fm par- hús á tveimur hæðum með inn- byggðum bílskúr. Á efri hæð eru stórar stofur með sérhönnuðum glugga eftir Leif Breiðfjörð og rúm- gott eldhús, á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi, flísalagt baðherbergi auk gesta w.c. Falleg ræktuð lóð og fallegt útsýni til Esjunnar og út á sundin. Ræktuð lóð. Laust fljótlega. Verð 27,8 millj. Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Raðhús eða einbýlishús í Fossvogi óskast Áreiðanlegur og fjársterkur aðili óskar eftir einbýlis- eða raðhúsi í Fossvogi. Skipti möguleg á þess- ari glæsilegu 120 fm íbúð ásamt 20 fm bílskúr í góðu húsi við Dala- land. Íbúðin, sem er með glæsi- legu útsýni, var öll endurnýjuð á afar smekklegan hátt fyrir örfáum árum. Góðar greiðslur í boði. Opið hús Hjaltabakki 22 4ra herb. 104 fm íbúð á 3. hæð Til sýnis og sölu glæsileg, björt og mikið endurnýjuð 4ra herbergja útsýnisíbúð á þriðju og efstu hæð í góðu fjölbýli á þessum sérlega barnvæna stað. Vestursvalir. Verð 11,5 millj. Áhv. 6,9 millj. Brunabmat 11,0 millj. Sigríður verður með heitt á könnunni og tekur vel á móti þér og þínum í dag, sunnudag, milli kl. 13—18 Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Í dag milli kl. 13 og 15 ætlar Selma að sýna glæsilega íbúð á 2. hæð auk séríbúðar í risi í fallegu steinhúsi á besta stað í miðbænum. Gegnheilt parket á gólfum. Stórar og glæsileg- ar stofur, borðstofa með fallegum skála. Arinn í stofu. Nýtt eldhús með fallegri innréttingu. Endurnýjað baðherbergi. 2 svefnherbergi. Í risi eru 2 svefherbergi, stofa, baðherbergi og eld- hús. Fallegt útsýni yfir Tjörnina. Garðastræti 39 - OPIÐ HÚS Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.