Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hrefna Krist-jánsdóttir fædd- ist í Reykjavík 7. desember 1930. Hún lést á líknardeild Landspítalans á Landakoti 2. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalheiður Þorvarð- ardóttir húsfreyja, f. 4.12. 1907, d. 27.5. 1984, og Kristján Gunnarsson, húsa- smíðameistari og stofnandi Stíganda á Blönduósi, f. 13.2. 1903, d. 30.6. 1986. Systkini Hrefnu eru Þórir, f. 21.7. 1932, Hreinn, f. 4.11. 1933, og Hanna Gyða, f. 1.3. 1937. Samfeðra bræður Hrefnu eru Þormar, f. 18.3. 1945, Hilmar, f. 16.5. 1948, og Sigurður, f. 10.10. 1950. Hrefna giftist í febrúar árið 1962 eftirlifandi eiginmanni sín- um, Sigurði Ásbjörnssyni leigu- bílstjóra, f. 12. apríl 1923 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ásbjörn Guðmundsson strætóbíl- stjóri, f. 23.11. 1894, d. 12.7. 1988, og Guðríður Ísaksdóttir hús- freyja, f. 4.12. 1895, d. 26.5. 1964. Börn Hrefnu og Sigurðar eru tvö: a) Kristján, f. 11.4. 1958, í sambúð með Gestheiði Fjólu Jó- hannesdóttur, f. 12.11. 1971. Synir Kristjáns eru Sig- urður Hrafn, f. 25.6. 1978, og Daníel Æg- ir, f. 1.1. 1990. b) Þórunn, f. 20.4. 1960, gift Hreini Pálmasyni, f. 29.6. 1959. Börn þeirra eru Brynjar Þór, f. 1.7. 1982, Elvar Orri, f. 10.11. 1987, og Íris Hrönn, f. 17.12. 1991. Hrefna ólst upp hjá foreldrum í Reykjavík. Hún gekk í grunn- skóla í Reykjavík og stundaði eft- ir það nám í Kvennaskólanum á Blönduósi, sem hún lauk 1948. Um tvítugt fluttist hún til Reykja- víkur. Þau Sigurður bjuggu lengst af á Háaleitisbraut. Hrefna var heimavinnandi húsmóðir meðan börnin voru lítil og starf- aði svo lengst af við umönnunar- störf, bæði á Reykjalundi og í Skjóli uns hún hætti störfum árið 2000, sjötug að aldri. Útför Hrefnu var gerð frá Fossvogskapellu 16. maí. Elsku mamma. Þá er stríðinu lokið, eftir erfiða veikindabaráttu. Margt finnst manni óréttlátt, þegar ástvinur er tekinn frá manni svona skyndilega. En ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera nálægt þér síðustu árin og einnig þegar þú kvaddir þetta líf. Ég fékk að halda í hönd þína og styðja þig eins vel og ég gat. Við þig gat ég talað eins og vin- konu, alltaf var gott að leita til þín. Þú varst svo góður viðræðufélagi og ég veit að margir eiga eftir að sakna þín. Þú tókst á við lífið með jákvæðni og hógværð. Margar sögurnar sagðir þú mér úr þinni æsku og rifja ég þær oft upp aftur og aftur. Margt fannst mér, sem þú upplifðir, eins og ævintýri. Í dag átta ég mig á hversu sterk, nægjusöm og drífandi manneskja þú varst. Sama hvað á gekk, þú sást allt- af jákvæðu hliðarnar á öllu. Þú kenndir mér að bera virðingu fyrir fólki, skoðunum þess og að gef- ast aldrei upp. Ég minnist margra ánægjustunda með þér þegar við bjuggum úti á landi. Það brást ekki að þú varst mætt á hverju ári eins og vorboðinn ljúfi, til þess að taka til hendinni og fá að vinna í garðinum okkar fyrir norðan, hreinsa, setja niður gróður og blóm. Því að í garðinum, hvort heldur var fyrir norðan eða sunnan, kunnir þú alltaf vel við þig. Á veturna fannst þér gott að lesa bækur, leggja kapal og ráða kross- gátur. Þú varst lánsöm að geta starf- að fram til sjötugs, síðast á Skjóli við umönnunarstörf. Það starf átti líka vel við þig. Þú hafðir mikinn áhuga á andlegum málum og hafðir gaman af að spá í bolla fyrir samstarfskonur þínar. Man ég eftir því, að oft var ég hálf afbrýðisöm yfir því að þú vildir ekki spá fyrir mér, en þegar við ræddum svona mál varðst þú oft al- vörugefin og baðst mig um að trúa á Guð og allt hið góða. Mamma, ég veit að þér fannst þú rík, að hafa eignast fimm barnabörn og fylgdist þú vel með þeim öllum. Þú hvattir þau til að vera dugleg að læra og eiga sér áhugamál, sem þau öll eru svo lánsöm að eiga. Það fá engin orð því lýst hvað ég og börnin mín eigum eftir að sakna þín. Ég kveð þig, elsku mamma mín, minningin um þig lifir um alla tíð í hugskoti mínu. Guð geymi þig og verndi. Þín dóttir Þórunn Sigurðardóttir. Það var alltaf gott að fá tengda- mömmu í heimsókn norður, við gát- um alltaf spjallað um það sem var efst á baugi hverju sinni, hvort heldur var um pólitík eða heimsmálin almennt. Það var alveg fastur liður á vorin, að tengdamamma kom, til að geta verið hjá dóttur sinni Þórunni og barna- börnunum sínum, Brynjari, Elvari og Írisi. Hún naut þess að fara í bæinn með dóttur sinni til að kaupa eitthvað fal- legt handa henni og barnabörnunum sínum, þegar hún kom norður. Hrefna var þróttmikil og dugleg kona, hógvær og nægjusöm en um- fram allt traust og góð tengda- mamma sem mér þótti afskaplega vænt um. Þegar við Þórunn komum með börnin suður í heimsókn var tengda- mamma alltaf klár með eitthvað gott að borða hvort heldur það voru nýjar kleinur eða vöfflur með kaffinu og hver í fjölskyldunni man ekki eftir Hrefnu útbúa meðlæti með lamba- lærinu sem kraumaði í ofninum á sunnudögum, það var góður tími með fjölskyldunni saman og Hrefna naut þess að stjana við okkur allan tímann. Ég vissi fyrir víst, að þegar ég kom suður, þá lá fyrir að vinna verk af við- haldslistanum sem tengdamóðir mín geymdi í hugskoti sínu, og var það mér mikið kappsmál að geta minnkað þann lista fyrir hana í hvert skipti sem ég kom en það var alltaf af nógu að taka. Hrefna mín, þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, minningin um góða konu lifir í hjört- um okkar allra. Hreinn Pálmason. Elsku amma. Við fórum oft saman í búðir og göngutúra og þegar við gerðum það fórum við oftast með hundana, Lady og Terry. En þegar við fórum ekki með þá urðu þeir leiðir. Síðan þegar við amma komum aftur heim hopp- uðu þeir um allt húsið, vegna þess að hundarnir voru svo glaðir að sjá ömmu aftur. Þetta lýsir ömmu svo vel, vegna þess hvað hún var góð við hundana sína. Ég og amma spiluðum oft rommí. Líka þegar ég var lítil, en þá vann ég alltaf, útaf því að amma leyfði mér alltaf að vinna. Ég gisti mjög oft hjá ömmu og þá var ótrúlega gaman, útaf því að við vorum oft að spila og segja brandara, en amma sagði bara eitthvað svona gamaldags og það var óvenjulega fyndið. Mikið á ég eftir að sakna þín, amma mín. Ég sendi þér ljóð sem mér finnst passa þér. Lítill fugl sem flýgur til himins. Minnir okkur á eilífðina. Lækurinn sem líður niður hlíðina. Minnir okkur á sannleikann. Blómin springa út fyrir þig. Þytur trjánna segir þér frá leyndardómi lífsins. Að lifa er að finna til. Að gráta yfir vegvilltum fugli, eða visnuðu laufi. Að gleðjast yfir útsprungnu blómi, eða lífgandi dögg. Að lifa er að finna til. (Halla Jónsdóttir.) Þín Íris Hrönn. Elsku amma. Á stund sem þessari reikar hug- urinn til baka til þess er ég var yngri í heimsókn í Arnartanga. Þú varst allt- af svo góð og örlát og ég man hversu gott það var að vera hjá þér og afa. Þegar ég kom í keppnisferðir suður var ég nánast alltaf hjá þér. Þau skipti vorum við oft í eldhúsinu að spila rommí, olsen-olsen og veiði- mann. Þess á milli varst þú að stjana við mig með sætabrauði og kleinun- um þínum. Á þessum stundum var ávallt stutt í hláturinn og brosið. Það er ósanngjarnt hversu fljótt maður getur misst ástvini sína en þú munt alltaf lifa í minningunni. Elsku amma mín megir þú hvíla í friði. Ég sakna þín. Þinn, Brynjar Þór Hreinsson. Elsku amma mín. Ég man ein jólin eftir að við vorum flutt suður, þá fórum við til þín vegna þess að íbúðin sem við leigðum var svo lítil. Við fengum hangikjöt í aðal- rétt, það var mjög gott vegna þess að þú varst svo góður kokkur og í eft- irrétt fengum við bananaís með daim- kúlum að hætti ömmu. Svo opnuðum við gjafirnar, amma var alltaf svo góð og hress, við skemmtum okkur kon- unglega þessi jól. Elsku amma, ég mun sakna þín. Guð geymi þig. Þinn, Elvar Orri Hreinsson. Elsku amma. Þú varst alltaf góð og blíð kona. Þú vildir alltaf hafa hreint og fínt. Þú kenndir mér alla nauðsynlega siði, eins og kurteisi. Það var alltaf gott og gaman að vera hjá ömmu og mér leiddist aldrei. Ég sakna þín mjög og gæfi allt til að fá þig aftur. En þú munt alltaf vera í hjarta mínu og þakka ég þér af öllu hjarta fyrir að vera góða amma mín. Guð blessi minningu hennar. Þinn, Daníel Ægir Kristjánsson. Elsku amma. Þú varst alltaf góð og traust, sem klettur í hafi. Þú varst með allt á hreinu og af þér lærði ég margt. Öll grundvallaratriði voru í hávegum höfð, bæði hvað varðaði mannleg samskipti og annað í dags- daglegu lífinu. Amma var athafnasöm og dugleg, hún vann á Reykjalundi og seinna á Skjóli og sá um heimili sitt og fjölskyldu af stakri prýði. Að koma til ömmu var alltaf afar gott, bæði ró- legt og hlýlegt og var návist hennar ávallt mjög þægileg. Árin með ömmu Hrefnu þakka ég af öllu hjarta. Guð blessi minningu hennar. Þinn, Sigurður Hrafn Kristjánsson. HREFNA KRISTJÁNSDÓTTIR Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúð og vinarhug við andlát dóttur minnar, ÖNNU SÆMUNDSDÓTTUR, Merkurgötu 3, Hafnarfirði. Guðlaug Karlsdóttir og fjölskylda. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa, BIRGIS KARLSSONAR flugþjóns, Reynilundi 11, Garðabæ. Svava A. Ólafsdóttir, Georg Birgisson, Ólafur Birgisson, Laufey B. Friðjónsdóttir, Robyn Redman, Kári Georgsson, Haukur Georgsson. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra, MATTHÍASAR KRISTJÁNSSONAR, Hábrekku 6, Ólafsvík. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Íris Ósk Jóhannsdóttir, Arnheiður Matthíasdóttir, Kristján Jónsson, Erla Hrönn Snorradóttir, Jóhann Steinsson. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ARNFRÍÐAR ÍSAKSDÓTTUR, Bakkavör 32, Seltjarnarnesi. Óskar Ólason, Óli Þ. Óskarsson, Jónína Sigurjónsdóttir, Björg Óskarsdóttir, Sigurður Jakobsson, Lára Óskarsdóttir, Ólafur Þór Jóelsson, Helgi Rúnar Óskarsson, Ásdís Ósk Erlingsdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug við frá- fall ástkærrar eiginkonu minnar og móður, BIRNU JÓNSDÓTTUR, Garðastræti 9. Pétur Pétursson, Ragnheiður Ásta Pétursdóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR, Skagfirðingabraut 43, Sauðárkróki. Ásmundur Jónsson, Ragnheiður Kjærnested, Rannveig Jónsdóttir, Alois Raschhofer, ömmubörn og langömmubörn. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.