Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ  RAUÐI DREGILLINN: Fyrir miðri lífæð Cannes-hátíðar, á La Croisette- strandgötunni, er sjálft hjartað, Há- tíðarhöllin, og margumræddur rauður dregill, sem liggur upp tröppurnar inn í Lumiére-sýningarsalinn reisulega. Öngþveitið er jafnan mikið þegar stjörnurnar renna í hlað og ganga dregilinn, veifa til aðdáenda sinna og ljósmyndara, sem umlykja allt, eftir fyrirfram ákveðnum tilskipunum.  FASTIR LIÐIR EINS OG VENJU- LEGA:Þeir sem venja komu sína á há- tíðina taka eftir ýmsu sem seint ætlar að breytast. Seint verður opinbert veggspjald hátíðarinnar t.d. smekklegt. Alltaf eru þeir á sínum stað sömu götulistamennirnir og svo eru jú alltaf einstaka heimamenn sem gera heið- arlega en vonlitla tilraun til að þess að leiða hjá sér allt húllumhæið. MEGUM VIÐ VERA MEÐ: Dag hvern er skipulögð sérstök myndataka af stjörnunum sem keppa um Gullpálmann. Hér slá ljósmyndarar á létta strengi með breska leikstjóranum Peter Greenaway sem gerði þau „reginmistök“ að stilla sér upp þar sem vaninn er að sigurvegari sýni verðlaunagripi sína. LJÓSMYNDAKOSS:Enn þykir það mikil upphefð að vera boðinn á Cannes-hátíðina og gjarnan má sjá stjörnurnar gera sitt til þess að varðveita minningarnar. Hin spænska Pénelope Cruz var aðalstjarna opnunarmyndarinnar Fanfan La Tulip og hlaut mikla athygli fyrir er hún mætti til sýningarinnar. Sjálf veitti hún ljósmyndara Morgunblaðsins athygli er þau smelltu hvort á annað þessum „ljósmyndakossi“. SVARTIR MÁGAR: Á hátíðinni eru jafnan allnokkrir Íslendingar að sinna ýmsum erindagjörðum. Ingvar E. Sigurðsson kom vegna frumsýningar Stormy Weather, sem hann leikur í, en með honum í för var mágur hans Sigurður Arnljótsson. Cannes – Cannes – Cannes Hvar verður þessi Cannes-kvik- myndahátíð haldin í ár? á popp- stjarnan Christina Aguilera að hafa spurt. Kannski heimskuleg spurn- ing. Og þó ekki, því hugtakið Cann- es er orðið svo órjúfanlegur hluti kvikmyndalistarinnar, en ekki beint sjálfur bærinn litli í Provence-héraði í Suður-Frakklandi heldur hátíðin sem þar er haldin, einmitt árlega eins og Aguilera blessunin gat sér rétt til um. Halldór Kolbeins ljósmyndari og Skarphéðinn Guðmundsson blaðamaður sóttu bæinn heim og hátíðina sem lauk um síðustu helgi og fylgdust hugfangnir með þessum skrautlega darraðardansi. MANNLÍFIÐ HJÁ MIÐSTÖÐINNI: Aðsetur nýstofnaðrar Kvik- myndamiðstöðvar Íslands var samkomustaður norrænu þátt- takendanna á hátíðinni, kvikmyndagerðarmanna, sýning- armanna og blaðamanna. Hér ræðir Laufey Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri við Börk Gunnarsson kvikmyndagerðar- mann og framleiðanda fyrstu myndar hans Vratislav Slajer. HITTU EKKI: Jackie Chan og Steve Coogan, aðalleikarar nýrr- ar útgáfu á Umhverfis jörðina á 80 dögum, gerðu heiðarlega tilraun en misheppnaða til þess að smella kossi á mótleikkonu sína, hið forkunnarfagra franska fljóð Cécile de France, sem forðaði sér í tæka tíð, við mikla kátínu viðstaddra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.