Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 47 sem þessari – minningar renna í gegnum hugann og maður veit ekki alveg hvar á að staldra við því allt í kringum þig var svo sérstakt og skemmtilegt – oft varstu nú svolítið á undan sjálfri þér en það var allt í lagi því þú varst svo meðvituð um sjálfa þig og þín persónulegu einkenni – og það var svo skemmtilegt við þig því þú gast alveg farið í marga hringi en sagðir svo: „Ætti ég kannski bara að- eins að slaka á...“ það er þó eitt sem kemur upp í hugann sem mér finnst alveg lýsandi fyrir þig. Það var ein- hverntíma að ég var í nuddi hjá þér og hafði fengið þetta líka svakalega fína slökunarnudd í restina, ég hafði orð á því að ég hefði slakað svo vel á að ég hefði nú bara næstum verið farin að slefa... það stóð ekki á við- brögðum frá þér: „Á ekki bara að skilja allt eftir útslefað hérna ha? Og viltu svo ekki fá þetta frítt og að borða og tilbaka í seðlum...“ og svo þessi skemmtilegi hlátur. Ef þú hefðir getað fengið ættar- nafn þá hefði það átt að vera Pollýanna því þú varst dugleg í þeim leik og að sjálfsögðu varstu best í honum eins og í flestu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú varst líka svo hrein og bein og komst eins fram við alla, því hjá þér voru allir jafnir. Ég vil þakka þér elsku Guðrún Helga mín fyrir allar góðu stundirn- ar sem við áttum saman. Ég kveð þig með sorg í hjarta en reyni samt að gleðjast með þér vitandi það að þú ert komin á betri stað til að leysa ein- hver mikilvæg verkefni ... Elsku Geir, Arnar Sveinn og Ragnheiður Katrín, ég votta ykkar samúð mín og veit að vakað verður yfir ykkur. Sigurbjörg Traustadóttir. Elskuleg vinkona er látin. Það er deginum ljósara að Guð- rúnu Helgu var ætlað eitthvert mikið og stórt verkefni fyrir handan, sem kemur okkur ekki á óvart, mest- megnis vegna hæfileika hennar til að miðla til okkar hinna endalausum fróðleiksmolum um lífið og tilveruna. Okkur fannst hún vera okkur fremri, svo þroskuð sál í glæsilegum líkama. Ef eitthvað bjátaði á var hún fyrst á staðinn, ,,best í áföllum“ enda hafði töluvert gengið á í hennar lífi. Guð- rún var óhrædd að grípa inn í að- stæður, beðin eða óbeðin. Hún var yndislegust og ,,bestust“ og þannig mun minningin lifa áfram í hugum okkar. Nú þurfum við heldur betur að taka okkur á og munum gera það því það var Guðrún sem kallaði okk- ur saman, skipulagði og fram- kvæmdi, hélt okkur saman eins og stórri fjölskyldu. Það var akkúrat þannig sem hún vildi hafa það, ein stór hamingjusöm fjölskylda. Það er ljóst að við verðum að sætta okkur við að elskuleg vinkona okkar er farin úr þessum heimi en vissu- lega væri gaman ef við fengjum eina undanþágu hjá Guði og gætum hringt í hana og sagt henni enn og aftur að okkur þykir vænt um hana fyrir ,,allan peninginn“. Við þökkum fyrir öll endalausu boðin, fyrir góðu ráðin, þökkum fyrir stuðninginn, þökkum fyrir allt og allt. Elsku Geiri, Arnar Sveinn og Ragnheiður Katrín Rós, Guð styrki ykkur í þessum harmi, missir ykkar er mikill, meiri en orð fá lýst. Við er- um hér fyrir ykkur, alltaf. Helga, Júlíus, Kristín og Valdimar. Guðrún Helga er látin langt fyrir aldur fram. Ekki grunaði mig þegar ég festi kaup á íbúð í sama húsi og Guðrún Helga í ágúst sl. að ég þyrfti að horfa á eftir henni burt úr þessari jarðvist að svo skömmum tíma liðn- um. Við ræddum um vágestinn sem kvaddi dyra hjá henni en vonin var að hann hefði hörfað undan. Guðrún Helga var baráttukona og hetja í lífi og dauða. Hún gaf öðrum með bjartsýni sinni, kjarki og lífs- vilja. Hún horfði fram á við og hopaði hvergi. Hún var fríð kona með geisl- andi útgeislun. Hún hreif aðra með sér og gaf mikið af sér. Hún stóð meðan stætt var og jafnvel lengur. Öllu er afmörkuð stund. Þó að erfitt sé að sætta sig við ótímabæran dauða ungrar konu verðum við að beygja okkur fyrir því. Hún naut þess tíma sem hún fékk með fjölskyldu sinni og öðrum í líf- inu. Guðrúnu Helgu fylgdi svo mikið líf. Hún var sterkur hluti á Háteigs- vegi 32. Það er mikið tekið, þegar hún er farin og erfitt að sætta sig við það. Við syrgjum, grátum, söknum og spyrjum hvers vegna ung móðir er hrifin burt frá eiginmanni, ungum börnum, foreldrum og systkinum. Bjarta brosið hennar er sterkt í minningunni svo og baráttuviljinn og jákvæða viðhorfið til lífsins. Af henni mátti margt læra. Samúðin er sterk með Geir, eiginmanni hennar, Arnari Sveini og Ragnheiði litlu. Þau eru hetjur í þeim þunga harmi sem að þeim er kveðinn við fráfall fágætrar konu. Ég kveð Guðrúnu Helgu með mik- illi eftirsjá og sorg í sinni og sendi öll- um aðstandendum hennar samúðar- kveðjur og styrk í þungri raun. Sigríður Eyþórsdóttir. Viku fyrir sautján ára afmælið mitt greindist ég með krabbamein, svo ung að aldri og hrædd við orðið sjálft, hvað þá baráttuna sem því fylgdi. Það var því þess vegna sem ég fann sjálfa mig standa á tröppum Guðrúnar bankandi á útidyrahurð þessa fallega stóra húss í leit að fyr- irmynd. Bankinu svaraði gullfalleg kona á besta aldri, með stórt bros og útgeislun sem átti sér enga líka og opinn faðm. Þennan dag lauk leitinni að fyrirmynd og hana hafði ég fundið ásamt átrúnaðargoði, vinkonu og baráttufélaga. Þann sama dag bauð hún mér húsaskjól vegna fjarlægðar frá heimili mínu á Akureyri meðan á veikindum mínum stóð. Ég og móðir mín afþökkuðum þó með hlýhug og því hugarfari að ekki vildum við of- nota nýjan vinskap við þessa góð- hjörtuðu konu og fjölskyldu hennar. Við samræður okkar Guðrúnar fylltist ég baráttuhug og vilja til að takast á við sjúkdóminn og jafnvel bjóða honum birginn með brosum og hlátri sérhvern dag. Til að lýsa svo stórri og sterkri persónu sem Guðrún var þarf ég að- eins fáein orð; fegurð, hlýja, styrkur og vilji var það sem einkenndi hana. Megi allir okkar hvítu englar vaka yfir þér Guðrún og fjölskyldu þinni. Þínar baráttuvinkonur, Lilja Guðmundsdóttir og Kristjana Kristjánsdóttir, Birkilundi 18 á Akureyri. Það var átakanlegt að frétta af því að Guðrún Helga hefði verið lögð inn á sjúkrahús. Ég viðurkenni að í fyrstu hélt ég í vonina, Guðrún hafði enda glímt við veikindi áður og sýnt fádæma kraft, kjark og dugnað við að vinna bug á hverri orrustunni á fætur annarri. Hún var fæddur sig- urvegari, sem lét mótlætið aldrei taka völdin. Sjúkdómur þessi er lævís og undirförull. Hann er grimm- ur. Hann er ósanngjarn. Hann er ranglátur. Hann fer ekki í mann- greinarálit, heldur velur sér fórnar- lömb sem síst skyldi. Fólk eins og Guðrúnu Helgu sem færði öllum sem þekktu gleði og líf, kjark og kærleik, innblástur og ást. Ég kynntist Guðrúnu Helgu í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún var árinu eldri, en engu að síður atvikaðist það að við sátum saman í einhverjum tímum og útskrifuðumst saman 1984. Við áttum þó ekki von á að verða svo miklir vinir löngu síðar, enda skildu leiðir og lágu ekki saman næstu árin. Ástina miklu í lífi Guð- rúnar, hið einstaka gæðablóð og göf- ugmenni Geir Sveinsson, þekkti ég þó áfram í gegnum handboltann, fjöl- miðla og fleira. Ég og fjölskylda mín vorum svo lánsöm að Guðrún og Geiri fluttu í húsið okkar 1998 og tókst með okkur fjórum sérstaklega innilegur vin- skapur, enda áhugasvið svipuð og hver myndi ekki hrífast af nágrönn- um eins og þeim? Í fyrstu var Geiri enn erlendis og Guðrún Helga og Arnar Sveinn ein á hæðinni. Guðrún var falleg félagsvera og öllum leið vel í návist hennar. Mjög fljótlega urðu hagir þannig að íbúðirnar tvær urðu nánast að einni, enda sambúðin bæði fjörleg og þægileg. Þegar álag var mikið í mínu starfi var Guðrún jafn- vel meira á heimili mínu en ég sjálf- ur. Synir okkar urðu bestu vinir og Guðrún varð mínum sonum stoð og stytta. Stundirnar í þessari einstöku sambúð eru endalausar og ógleym- anlegar, sérstaklega höfðum við Guðrún gaman af því að elda mat hvort ofan í annað, enda ástríða sem við deildum innilega. Guðrún Helga hafði einstakt lag á því að takast á við veikindi sín. Hef ég aldrei kynnst jafn jákvæðri skoð- un á eigin sjálfi né jafn staðfastri trú á því sem mikilvægast er í lífinu. Hún ræddi veikindin opinskátt, en aldrei þannig að ætlast til meðaumkunar ástvina sinna. Henni tókst hið ómögulega, að sigrast á sjúkdómn- um trekk í trekk, þó að á endanum hafi sá illi fjandi haft betur, enda vit- laust gefið og ranglætið algert. Eftir að ég flutti úr húsinu felldi ég hug til einnar nánustu vinkonu Guðrúnar allt frá unglingsárum. Þannig var það einstök gæfa að tengsl við Guðrúnu héldu áfram. Áð- ur en kallið kom svo skyndilega höfð- um við þrjú endurvakið ævarandi tryggðabönd okkar og fyrirhugaðar voru miklar gleðistundir með til- heyrandi kræsingum lífsins, sem Guðrún kunni allra best að með- höndla. Þær gleðistundir munum við endurvekja á öðrum vettvangi. Engu að síður er óréttlætið algert, að draga burt lífsins gleðigjafa sem hafði rétt hafið nýjan og hamingju- ríkan kapítula í lífi sínu með dótt- urinni Ragnheiði. Elsku Geiri og Arnar Sveinn: Takk fyrir allar góðu stundirnar og verði þær áfram sem bjartastar, þótt nú sé þungskýjað í henni veröld. Elsku Geir, Arnar Sveinn, Ragn- heiður, Arnar, Þórhildur, systkinin öll, og allir aðrir ættingjar og vinir, sem nú eru almættinu sem reiðastir: Megið þið hljóta styrk til að sigrast á sorginni og láta minninguna um ein- staka konu lifa að elífu. Nærveru hennar er nú krafist á öðrum víg- stöðvum. Líf og dauði eru eitt eins og fljótið og særinn. Hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífs- ins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns muntu dansa í fyrsta sinn. (Úr Spámanninum.) Þorfinnur Ómarsson. Ég minnist Guðrúnar Helgu dansandi, fljúgandi, gefandi – geislandi af lífi og krafti. Hún miðlaði skoðunum sínum af festu og gleði og brennandi áhugi henn- ar á faggreinum sínum, fjölskyldu og lífsverkefnum snerti alla sem til hennar þekktu. Hún hvatti vini og vandamenn áfram og deildi með óeigingjörnum og verðmæt- um hætti ríkum skilningi sínum á sinni lífsreynslu. Endalaus ást, stolt og umhyggja Guðrúnar Helgu til Geirs og barna þeirra lif- ir, þótt henni hafi verið ætlað ann- að hlutverk annars staðar. Megi minning og lífskraftur góðrar stúlku búa með okkur um ókomna eilífð. Guðrún Högnadóttir. Fráfall Guðrúnar Helgu var öll- um leikmönnum liðsins mikið áfall. Geir hefur ekki aðeins verið þjálfarinn okkar. Hann hefur reynst okkur afar vel og gegnt föðurlegu hlutverki þau fjögur ár sem hann hefur tekið þátt í upp- vexti okkar. Ætli við höfum ekki borið móðurlegar tilfinningar til Guðrúnar, konunnar sem stóð að baki þjálfarans. Hún var okkur af- ar kær, ávallt jákvæð og innileg. Við sendum vini okkar honum Geira og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Mfl. karla handknatt- leiksdeildar Vals. HINSTA KVEÐJA Sími 551 3485 • Fax 551 3645 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 896 8284 Eyþór Eðvarðsson útfararstjóri Sími 892 5057 Vaktsími allan sólarhringinn LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960 Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Þegar við hugsum til þín og stundanna með þér kemur upp í hug- ann hlýjan og væntum- þykjan sem þú sýndir okkur og hversu stolt og ánægð þú varst með okkur og allt sem við tók- um okkur fyrir hendur, bæði stórt og smátt. Við þökkum þér samleiðina SIGRÍÐUR BREIÐFJÖRÐ ✝ Sigríður Breið-fjörð fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1928. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi fimmtudaginn 15. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Háteigs- kirkju 23. maí. og víst er að við eigum eftir að sakna þín og þinna góðu eiginleika. Kæri tengdapabbi og afi, þú sem hefur staðið eins og klettur við hlið ömmu í veikindunum, við vottum þér okkar dýpstu samúð. Okkar kæra, við kveðjum þig með bæn- inni sem þú kenndir ömmustrákunum þín- um. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Lilja, Fjölnir, Freyr og Sindri. Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá HAFSTEINN TÓMASSON ✝ Hafsteinn Tóm-asson fæddist í Hafsteini á Stokks- eyri 1. nóvember 1960. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 3. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Stokkseyrarkirkju 10. maí. og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja? Það syrtir að, er sumir kveðja. (Davíð Stefánsson.) Elsku Hafsteinn, takk fyrir alla gleðina og hláturinn sem lifir ásamt minningu um þig í hjörtum okkar. Guð geymi þig. Margrét Harpa, Hermundur, Benna Laufey og Tómas Karl. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar og bróður HAUKS CLAUSEN, tannlæknis. Einnig viljum við þakka læknum, hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki fyrir einstaka umönnun og hlýhug á meðan veikindum Hauks stóð. Sérstakar þakkir viljum við færa Runólfi Pálssyni lækni fyrir vinarhug hans, hlýju og stuðning Elín Hrefna Thorarensen, Ragnheiður Elín Clausen, Þórunn Erna Clausen, Örn Clausen og fjölskylda. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.