Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VITAÐ var að gríðarlegarframkvæmdir þyrftu aðeiga sér stað í Aþenu áð-ur en að stóra deginumkæmi á setningarhátíð-
inni hinn 13. ágúst árið 2004, en leik-
unum lýkur 29. ágúst.
Hugarfar íbúa í Suður-Evrópu
hefur oftar en ekki einkennst af ró-
legheitum og flest er gert á allra síð-
ustu stundu. Nú þegar rúmt ár er
þar til leikarnir eiga að hefjast eru
blikur á lofti hvað varðar keppnisað-
stöðuna í Aþenu, samgöngur og síð-
ast en ekki síst er skortur á gistirými
gríðarlegur – í dag skortir um 10
þúsund herbergi í Aþenu fyrir blaða-
menn og gesti á leikunum.
Forseti IOC, Jacques Rogge, hef-
ur ítrekað sent framkvæmdanefnd
leikanna tóninn á undanförnum mán-
uðum og lýst yfir áhyggjum sínum af
seinagangi í framkvæmdum. Denis
Oswald, meðlimur í IOC, er sérstak-
ur eftirlitsmaður í Aþenu og hefur
hann látið hafa eftir sér að nokkur
mannvirki séu nú þegar þremur
mánuðum á eftir áætlun og þar á
meðal eru knattspyrnuvöllurinn, og
gríðarlega flókið glerþak sem á að
vera yfir áhorfendastúkunni á aðal-
keppnisvellinum í frjálsíþróttum.
Þak sem á að geta skýlt fyrir rign-
ingu á öllum vellinum ef svo ber und-
ir.
Oswald er samt sem áður bjart-
sýnn og vongóður um að allt verði
tilbúið á réttum tíma.
Þrefað um flesta hluti
Í febrúar ritaði Rogge fram-
kvæmdanefnd leikanna bréf þar sem
hann krafðist þess að framkvæmd-
um yrði hraðað og öllu þrefi um að-
gerðir í borgarstjórn Aþenu yrði
hætt. Þetta var í annað sinn á þrem-
ur árum sem IOC sendi fram-
kvæmdaaðilum formlega kvörtun
um gang mála og árið 2000 var leitt
að því getum að ekkert yrði af leik-
unum í Aþenu vegna tafa á fram-
kvæmdum. „Á fyrstu átján mánuð-
unum eftir að leikunum var úthlutað
til Aþenu var innra skipulag þeirra
sem þurftu að starfa saman í molum.
Það er ekki gert ráð fyrir varaáætlun
hvað varðar Ólympíuleika og allt
verður að vera á áætlun frá upphafi
til enda. Ólympíuleikar verða ekki
fluttir til á síðustu stundu – það er
óhugsandi,“ sagði Rogge í upphafi
ársins 2000.
Oswald hefur staðið í ströngu við
að „yfirheyra“ byggingaverktaka
sem eru að reisa ýmis mannvirki.
Fjölnota íþróttamannvirki á gamla
flugvellinum í Aþenu fór mjög seint
af stað. Jarðvísindarannsóknir töfðu
framkvæmdir við júdóhöllina í
Liosia, vitað er að kostnaðaráætlanir
munu ekki standast, en verktakar
vita hinsvegar að gríska ríkisstjórnin
mun greiða aukakostnaðinn til þess
að sýna heimsbyggðinni að landið er
í stakk búið að takast á við slíkt risa-
verkefni.
Framkvæmdanefndin í vörn
Leikarnir fóru síðast fram í Aþenu
árið 1896 og á fundi IOC hinn 5. sept-
ember árið 1997 var Aþenu falið að
halda leikana en Buenos Aires í Arg-
entínu, Höfðaborg í S-Afríku, Róm á
Ítalíu og Stokkhólmur í Svíþjóð sótt-
ust einnig eftir hnossinu.
Oswald segir við þýska tímaritið
Der Spiegel að líklega þurfi að draga
úr íburði í mörgum mannvirkjum og
þá aðallega því sem snýr að aðstöðu
áhorfenda til þess að auka líkurnar á
því að allt verði tilbúið á réttum tíma.
Framkvæmdaaðilar leikanna,
borgarstjórn Aþenu sem og gríska
ríkisstjórnin, hafa verið í varnar-
stöðu allt frá árinu 1997. Þessir að-
ilar hafa staðið í ströngu og segja að
töfum vegna undirbúningsvinnu við
framkvæmdir á mannvirkjum verði
mætt með því að hraða framkvæmd-
unum.
Mikið hefur mætt á Gianna Ang-
elopoulos sem stýrir framkvæmda-
nefnd leikanna en hún hefur sagt að
Aþena sé á viðkvæmu stigi en að
takturinn sé hraðari í öllum fram-
kvæmdum þessa stundina.
Gríska ríkisstjórnin hefur höfðað
til samkenndar í landinu enda tók öll
undirbúningsvinna gríðarlega lang-
an tíma vegna verkfalla, pólitískra
deilna, lögsókna, umhverfismats og
síðast en ekki síst – 3.000 ára gam-
alla fornleifa sem ávallt finnast þeg-
ar stungið er niður skóflu í Aþenu.
Angelopoulos er bjartsýn
Grikkir hafa þó ekki setið með
hendur í skauti frá árinu 1997 þegar
þeir fengu ÓL í hendurnar því árið
2000 var fyrsti hluti af neðanjarðar-
lestakerfi borgarinnar tekinn í notk-
un, auk þess sem nýr alþjóðlegur
flugvöllur var settur á laggirnar ári
síðar.
Gianna Angelopoulos sendi frá sér
fréttatilkynningu 16. maí eftir að
IOC hafði fundað með framkvæmda-
nefnd leikanna. Þar segir m.a. að
engan tíma megi missa á næstu 15
mánuðum en að hún sé sannfærð um
að öllum framkvæmdum verði lokið á
réttum tíma. Þar nefnir hún að búið
sé að setja upp aðstöðu fyrir sjón-
varpsútsendingar og aðstöðu fyrir
lyfjaprófanir. Þá geti neðanjarðar-
lestakerfið tekið við allt að 80.000
farþegum á dag en eins og áður segir
er aðeins fyrsti hluti af fjórum í notk-
un í dag, 80.000 hafi sótt um að ger-
ast sjálfboðaliðar og miðasala hófst
12. maí sl.
Tjaldað á umferðareyju?
Á þingi íþróttafréttamanna frá
Norðurlöndum í Rovaniemi í Finn-
landi á dögunum var mikið rætt um
aðstöðu fréttamanna í Aþenu. Vitað
er að skortur er á gistirými og er eft-
irspurnin svo mikil að gistinótt á
þokkalegu hóteli mun seljast á allt að
50 þúsund ísl. kr. Rætt var um að
blaðamenn myndu margir hverjir
leita á önnur mið, í herbragga og
heimagistingu. Sumir sögðu að ef allt
um þryti væri alltaf hægt að tjalda á
umferðareyju í sumarhitunum í
Aþenu. Í apríl sl. voru framkvæmdir
við hótel sem ætluð voru fyrir blaða-
menn stöðvaðar þar sem í ljós kom
að framkvæmdin var ólögleg.
Einnig er fyrirséð að margar þjóð-
ir geta ekki sent eins marga blaða-
menn til Aþenu og þær vildu. Styrkt-
araðilar Ólympíusambanda víðs-
vegar um heim eru einnig í vand-
ræðum með gistirými en það hefur
tíðkast að bjóða fulltrúum þeirra á
ÓL. Fjölmörg skemmtiferðaskip
verða í höfninni í Aþenu í þeim til-
gangi að taka við slíkum gestum en
einnig á þessum stöðum er erfitt að
fá gistingu.
Eins og gefur að skilja eru margir
sem hafa verulegar áhyggjur af
ástandinu í Aþenu en Grikkirnir slá
létt á öxlina á þeim sem hafa um þá
efasemdir, brosa og segja að þetta
muni allt saman „reddast“ á síðustu
stundu að sjálfsögðu.
ÞAÐ er í mörg horn að líta þegar
kemur að því að skipuleggja
stærsta íþróttaviðburð veraldar.
Hér eru nokkrar staðreyndir um
hve stór þessi atburður er í raun
og veru.
301 verðlaunaafhending fer
fram á 16 dögum.
28 keppnisgreinar eru á dag-
skrá og fara fram á 38 keppni-
stöðum.
10.500 keppendur og 3.000
þjálfarar og fararstjórar frá
199 löndum.
16.000 starfsmenn frá ljós-
vakamiðlum verða á svæðinu
auk 5.500 blaðamanna og
ljósmyndara
Í Ólympíuþorpinu verða
16.000 íþróttamenn og þjálf-
arar.
Allt að 45.000 manns munu
starfa við öryggisgæslu í
Aþenu. 25.000 lögreglumenn,
7.000 hermenn, 3.000 frá
strandgæslunni, 5.000 örygg-
isverðir og 1.500 slökkviliðs-
menn auk 5.000 sjálfboðaliða.
Mikið um að vera
STEFÁN Snær Konráðsson framkvæmdastjóri Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands var á dögunum á fundi í Eist-
landi þar sem málefni Aþenu voru rædd af fulltrúum Ól-
ympíunefnda í Evrópu. Stefán sagði að Grikkirnir bæru
sig vel og lofuðu því að allt yrði til reiðu í ágúst á næsta
ári en þrátt fyrir það hefðu fulltrúar framkvæmdanefndar
Aþenu ekki náð að sannfæra alla um að allt yrði til reiðu.
„Það hefur verið mikill hægagangur í byggingu lykil-
íþróttamannvirkja á svæðinu og það er nokkur óvissa um
hvernig til tekst. Sem dæmi má nefna að ári áður en leik-
arnir fóru fram í Sydney var búið að „prufukeyra“ mót á
flestum keppnistöðunum. Þannig var hægt að sjá hvort
eitthvað rækist á miðað við þá dagskrá sem búið var að
skipuleggja. Ég get ekki séð að slíkt verði gert áður en
leikarnir hefjast í Aþenu,“ sagði Stefán en samgöngu-
málin í borginni eru einnig lykilatriði í hugum flestra.
„Það var gríðarlega gott samgöngukerfi í Sydney og við sjáum það nú þegar að
Aþena býður ekki uppá jafn gott kerfi og þá sérstaklega á milli keppnisstaða. Eða til
og frá Ólympíuþorpinu þar sem keppendurnir dvelja. Það er búið að taka í notkun
hluta af neðarjarðarlestarkerfi í borginni en það er ljóst að samgöngumálin verða
vandamál.“
Stefán bætti því við að flestir reyndu að sjá hlutina í Aþenu með jákvæðum hætti
en vissulega væri ástandið ekki eins og það ætti að vera. „Fulltrúar leikanna sem
fram fara í Peking árið 2008 segja að þeir gætu í raun haldið Ólympíuleika þegar á
næsta ári. Þannig að Grikkirnir þurfa að spýta í lófana og láta verkin tala á næstu
mánuðum,“ sagði Stefán.
Stefán Snær
Konráðsson
Samgöngurnar verða vandamál
Ringulreið í Aþenu
Ólympíuleikarnir sem fram fara í Aþenu
í ágúst á næsta ári eru tilhlökkunarefni fyrir
flesta sem þangað hafa stefnt sem afreksmenn í
íþróttum, enda um að ræða stærsta íþróttaviðburð
heims. Grikkir eru stoltir yfir að hafa fengið þetta
verkefni frá Alþjóðaólympíunefndinni, IOC,
en landið státar af fágætri menningu og arfleifð
sem margir vilja heimsækja. Sigurður Elvar
Þórólfsson segir þó að nú þegar nær dregur
leikunum sé ekki laust við að margir hafi
verulegar áhyggjur af ástandinu í Aþenu.
Reuters
Jacques Rogge, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC, og Gianna Angelopoul-
os, sem stýrir framkvæmdanefnd leikanna í Aþenu, afhjúpa ólympíukyndilinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Akrópólishæð í Aþenu. Ólympíuleikarnir 2004 verða haldnir í Grikklandi, en nú þegar rúmt ár er til stefnu eru blikur á lofti hvað varðar keppnisaðstöðuna í Aþenu, samgöngur og skort á gistirými.
seth@mbl.is