Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 59
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i. 14.
Mögnuð hrollvekja
sem fór beint á
toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
X-ið 977
SG DV
Cremaster 1 & 2
Sýnd kl. 4.
Cremaster 3
Sýnd kl. 6.
Cremaster 4 & 5
Sýnd kl. 9.15.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Hrikalega
mögnuð
mynd sem
kemur
óhugnarlega
á óvart!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16 ára
Kvikmyndir.com
X-ið 977
Fórbeint á toppinní Bandaríkjunum!
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 12.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.
B.i. 16
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Tilboð 100 kr.Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Tilboð 100 kr.
Svakaleg spennumynd með
töffaranum Vin Diesel úr xXx.
100
kr
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16
100
kr
Ef þú ert svikahrappur, gættu að því hvern þú
prettar! Frábær glæpaþriller!
SAGA Film fagnar um þessar
mundir 25 ára starfsafmæli og boð-
ar af því tilefni til útsölu á leik-
munum sem safnast hafa við ýmsa
kvikmynda- og auglýsingagerð á
vegum félagsins.
„Það kom í ljós að allar geymslur
voru úttroðnar af leikmunum og
búningum,“ sagði Sæmundur
Norðfjörð, einn af forsvars-
mönnum fyrirtækisins, sem leiddi
blaðamann um ranghala húsa-
kynna Saga Film í Vatnagörðum 4.
„Við ákváðum að selja þetta, bæði
til að hreinsa til, og líka til að gefa
fólki kost á að festa kaup á leik-
munum og búningum fyrir slikk.“
Á útsölunni gefur að líta alls
konar varning. Búningar og fatn-
aður af ýmsu tagi eru áberandi:
Síðkjólar og selskapsfatnaður, bol-
ir, buxur og peysur, úlpur og hatt-
ar og ekki síst búningar úr mynd-
inni um Myrkrahöfðingjann, allt á
ákaflega hófstilltu verði.
„Hér hangir sjálfur myrkrahöfð-
inginn,“ sagði virðuleg og lagleg
eldri kona sem var í óðaönn að
undirbúa útsöluna. „Og allir prest-
ar og embættismenn myndarinnar
hanga með honum. Ef ykkur vant-
ar skó þá eigum við til dýrindis
skinnskó.“ Í sama mund framreiðir
hún kassa barmafullan af gam-
aldags skinnskóm. Að auki má
finna þarna ýmislegt smádót og
stærra dót. Ferðatöskur, plötur,
jólaskraut og hundakörfu, skó af
ýmsum stærðum og gerðum, vegg-
spjöld og eftirprentanir af frægum
málverkum.
Margt sem til sölu er hefur lítið
sem ekkert verið notað: „Oft í
framleiðslu neyðumst við til að
kaupa allt nýtt. Svo er það undir
hælinn lagt hvort við náum að losa
okkur við það aftur eða ekki. Þá
vilja hlutirnir oft geymast von úr
viti,“ Segir Sæmundur, en meðal
merkilegri muna á útsölunni eru
forláta sjókajak og sérlega snoturt
antík-skrifborð.
Einnig er þarna að finna kassa
með gervilimum úr myndinni Perl-
um og svínum og brúðarkjól sem
að sögn viðstaddra hefur vænt-
anlega verið notaður við ófáar gift-
ingar í ýmsum auglýsingum. „Gæti
líka alveg verið úr Ungfrúnni góðu
og húsinu,“ segir Sæmundur.
Heilu kynstrin af bókum úr þátt-
unum um Fornbókabúðina, park-
etpakkar, bíladekk, síldartunnur,
dýrindis pelsar, tjald, nestiskarfa,
axlabönd – allt er þetta að finna, og
meira til, á leikmunaútsölunni sem
hófst í gær, laugardag, og heldur
áfram í dag, sunnudag, frá 13 til 18
og sem fyrr segir í húsakynnum
Saga Film í Vatnagörðum 4.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skór af öllum stærðum og gerðum eru til sölu. Bæði hefðbundnir – og svo
óhefðbundnir, eins og þessir.
Saga Film tæmir úr geymslunum á 25 ára afmæli
Hluti af íslenskri kvik-
myndasögu til sölu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Í herradeildinni gat meðal annars að líta mikið úrval jakkafata og þessa
skrautlegu og sumarlegu gínu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eflaust hefur einhver þessara hatta prýtt fína dömu í myndum Saga Film.