Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 56
Audio Bullys er heitasta dans-rokk-stuð-
pönksveit Bretlands um þessar mundir.
Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við
hljóð-hrekkjusvínið Tom Dinsdale.
STEREO MC’s og The Streets saman
í villtu partíi...
Einhvern vegin þannig eru hug-
hrifin þegar maður heyrir frábæra
plötu breska dúettsins Audio Bullys,
Ego War, sem jafnframt er frum-
burður þeirra. Audio Bullys sam-
anstendur af þeim Simon Franks og
Tom Dinsdale og er álitlegasta
„dans-pönk“ sem fram hefur komið
lengi. Líkt og Daft Punk og Dirty
Vegas eru danstaktarnir handfjatl-
aðir með höndum hins sveitta rokk-
ara og það er einhver óræður – og
svalur – suddaháttur sem umleikur
Audio Bullys, líkt og Marlon Brando
hafi stjórnað upptökum. Hin einstaka
samsuða Specials á pönki og ska, í
enda áttunda áratugarins, kemur
jafnvel upp í hugann.
-Jæja, er þá allt að gerast hjá ykk-
ur núna eða...
„Nei, það er svo sem ekkert meiri
keyrsla núna en hefur verið und-
anfarið.“
-Þið eruð ekkert orðnir spilltir af
frægðinni?
„Nei nei, alls ekki. Allavegana ekki
ennþá.“
Audio Bullys gefa út Ego War
Stoltir í stríði
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRGEFÐU töfina, égþurfti að ná í diet-kókiðmitt – ég er orðinn háð-ur,“ segir James Foley
eftir að hafa látið mig bíða eftir
sér andartak í símanum.
Hann er hálfgerður hvítur hrafn
í Hollywood-heiminum og hefur
farið lítið fyrir honum síðustu
fjögur árin. „Það kom mér reynd-
ar á óvart þegar einhver benti
mér á þetta í einu viðtalinu. Ég
leit á starfsferilsskrána og hugsaði
með mér: hvað í áranum er ég bú-
inn að vera að gera? Mér finnst
eins og nokkur ár hafi stokkið mér
úr greipum. Eftir að ég gerði
myndina The Corruptor (árið 1999
með Mark Wahlberg og Chow
Yun-Fat í aðalhlutverkum) tók ég
meðvitaða ákvörðun um að mig
langaði ekki til að leikstýra mynd
í bili. Hún er ánægjuleg, minn-
ingin um það þegar ég sá að ég
hefði efni á því að taka mér frí frá
vinnu og gæti staðnæmst aðeins,
dregið andann og velt vöngum yfir
hvaðan ég væri að koma og hvert
ég stefndi. En þeir segja í eðl-
isfræðinni að hlutir sem ekki eru á
hreyfingu haldist kyrrir og þannig
var það með mig að hléið mitt
dróst úr hófi og einn daginn sló
það mig: Fjárinn! Ég verð að fara
að gera kvikmynd og mig langaði
virkilega að gera kvikmynd,“ segir
Foley með áherslu. „Og svo heppi-
lega vildi til að handritið að Con-
fidence rak á fjörur mínar og það
laðaði mig að sér enda heillast ég
oft af sögum um hóp fólks sem
tengist í sameiginlegri leit sinni að
peningum, og samspilinu sem
verður á milli þeirra tilfinn-
ingalega og sálrænt og samkeppn-
ina milli þeirra. Mér fannst sagan
hafa allt þetta, en samt fást við
það með vissu jákvæðu móti.“
Ég spyr James hvort hann líti
þá á það sem slæman hlut að
sækjast eftir peningum: „Nei, það
er alls ekki það sem ég er að
segja. Þvert á móti þá er ég ósam-
mála þeirri skoðun að peninga-
ásælni sé yfirborðskennd og
bjánaleg. Þetta snýst í raun um að
komast af. Enginn gagnrýndi
hellisbúana fyrir að sanka að sér
eins mörgum vísundum og þeir
gátu fangað. Peningarnir hafa
bara komið í stað vísundanna og
því meira af þeim sem við eign-
umst, því auðveldara eigum við
Af svikahröppum og enn
meiri svikahröppum
James Foley leiðbeinir Dustin Hoffman við tökur á mynd sinni Confidence.
Í fyrsta skipti í fjögur ár lætur James Foley frá sér mynd. Ásgeir
Ingvarsson hringdi til Hollywood og ræddi við hann um mann-
skepnuna, peningaþrá og kynferðislega áreitni sem kúgunarvopn.
Stóra svið Nýja svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Mi 4/6 kl 20, Fi 5/6 kl 20, Fö 6/6 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Lau 7/6 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Í kvöld kl 20,
Fö 6/6 kl 20,
Fö 13/6 kl 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ,
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Í kvöld kl 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐASTA SINN
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15. júní kl. 21, Hótel Borgarnes
fim 19. júní kl. 21, Eskifjörður
Forsala á Akureyri fer fram í Pennanum
Eymundsson Glerártorg.
Forsala á Blöndósi í Byggingav. KH, Húnabraut
Forsala í Borgarnesi í versluninni
Fínu fólki, Borgarbraut
www.sellofon.is
TVÖ HÚS eftir Lorca
í kvöld, sun. 1. júní kl. 20
fim. 5. júní kl. 20
fös. 6. júní kl. 20 Síðasta sýning
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
552 1971 - nemendaleikhus@lhi.is
VÖLUSPÁ
eftir Þórarin Eldjárn
150. sýning sunnudag 1. júní kl. 20.
Einstakt tækifæri til að sjá þessa
rómuðu sýningu.
10. júní hefst 3ja vikna leikhúsnám-
skeið fyrir 9-12 ára börn.
Enn eru nokkur pláss laus.
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
Sunnudagur 1. júní kl. 20.00
Ljóðatónleikar á Kirkjulistahátíð
Andreas Schmidt og Helmut Deutsch
flytja fjóra ljóðaflokka eftir Beethoven,
Brahms, Dvorák og Hugo Wolf.
Miðaverð kr. 2.500/2.000.
Mánudagur 2. júní kl. 20.00
„Til gamans gert”. Söngtónleikar.
Kristján Þ. Halldórsson, bariton og
Aladár Rácz, píanóleikari, flytja íslensk
sönglög, erlend söngljóð og óperu-
aríur. Miðaverð kr. 1.000/800.
Laugardagur 7. júní kl. 17.00
Stórsveit frá Backnang
Stj. Volkmar Schwozer og Salon hljóm-
sveit frá Metzingen, stj. Heinrich
Großmann. Gestaflytjendur: Lúðrasveit-
in Svanurinn. Miðaverð kr. 800/500.
Kirkjulistahátíð 2003
29. maí - 9. júní
SUNNUDAGURINN 1. JÚNÍ
20.00 Ljóðatónleikar: Trúarlegir ljóða-
söngvar. Andreas Schmidt og píanóleikarinn
Helmut Deutsch flytja Gellert-ljóð eftir Beethoven,
Vier ernste Gesänge eftir Brahms, Biblíuljóð eftir
Dvorák og Michelangelo-ljóð eftir Wolf.
Staður: Salurinn í Kópavogi.
MÁNUDAGURINN 2. JÚNÍ
12.00 Tónlistarandakt
Prestur: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson spinna
á saxófón og orgel.
Léttur málsverður í Kaffihúsi Kirkjulistahátíðar
20.00 Quattro Stagioni og Karlakórinn
Fóstbræður
Kvartettinn Quattro Stagioni frá Noregi og
Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna
Harðarsonar flytja verk eftir Perotinus, Tallis,
Gesualdo, Poulenc, Snorra S. Birgisson og Stabat
mater dolorosa fyrir karlakvartett og karlakór eftir
norska tónskáldið Kjell Habbestad. Ennfremur
verður Missa brevis eftir Wolfgang Plagge
frumflutt á tónleikunum.
alltaf á föstudögum
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.