Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 10

Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ ER frekar dapurt í augna- blikinu. Við er- um að reyna við kolmunnann þessa dagana og erum í rólegum gír á Rauða torginu sem stendur,“ sagði Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri og aflakló á Hólmaborginni SU 11, þegar Morg- unblaðið náði tali af honum eitt kvöld- ið í vikunni þar sem hann stóð enn eina vaktina í brúnni sinni. Eftir að færeyska rannsóknaskipið Magnus Heinason fann töluvert af norsk- íslensku síldinni um miðja síðustu viku rétt norðan færeysku lögsög- unnar og austan þeirrar íslensku var Hólmaborgin frá Eskifirði auðvitað fyrst á miðin og náði þá 900 tonnum af síld. „Svo bara fundum við ekki meiri síld þannig að við snerum okkur að kolmunnanum. Síðustu tveir dagar hafa verið þokkalegir, en nú er eitt- hvað lítið um að vera. Þetta er eins og hver annar veiðiskapur. Það gengur bæði upp og niður í þessum bransa.“ Auk Hólmaborgarinnar voru sex önnur skip á kolmunnamiðunum á Rauða torginu svonefnda í vikunni. Rauða torgið, sem er um 10 til 80 sjó- mílur austur af Gerpi, er orðið frægt í huga sjómanna því þar fannst síldin alltaf í gamla daga, en eins og menn vita hefur Rússland verið helsti síld- armarkaður Íslendinga til þessa og vísar nafngift miðanna í aðaltorg Moskvuborgar. Hátíð á heimaslóðum Nóta- og togveiðiskipið Hólma- borgin SU er eitt af flaggskipum Eskju hf., sem áður hét Hraðfrysti- hús Eskifjarðar hf., og stundar alfar- ið uppsjávarveiðar, það er loðnu-, síld- og kolmunnaveiðar. Öllu hráefni er landað í bræðslu á Eskifirði. Þegar rætt var við Þorstein fyrr í vikunni gerði hann ráð fyrir að koma til heimahafnar með skip sitt og áhöfn vel í tíma fyrir sjómannadaginn því venjan væri sú að halda upp á þennan hátíðisdag sjómanna í landi með pomp og prakt. Í sjómannasamn- ingum er kveðið á um að sjómenn eigi að fá 72 klukkustunda frí í tengslum við sjómannadaginn. Þar af eiga 48 tímar að vera frá hádegi á laugardegi til hádegis á mánudegi. „Allflestir byrja sjómannadaginn á því að fara til kirkju. Við förum síðan með bæjarbúa í hópsiglingu klukkan 13.00 og eru skipin okkar þá fánum prýdd. Svo er margt sér til gamans gert það sem eftir lifir dags auk þess sem boðið er upp á sjómannadags- kaffi og sjómannadagsball fyrir þá sem nenna að tjútta fram á nótt. Við stefnum svo að því að halda á miðin á ný upp úr hádegi á mánudag og kom- um til með að reyna við síldina á ný.“ Kærasta úr næsta firði Þorsteinn, sem er á 53. aldursári, er alinn upp á Norðfirði, en segist ekkert endilega vera af sjómannsfólki kominn sé afinn undanskilinn. „Pabbi minn var rafvirki og í æsku hafði ég sjálfur þau framtíðarplön að gerast óbreyttur sjómaður. Áætlanir mínar náðu ekki á þeim árum upp í skip- stjórann, en svo æxluðust hlutirnir bara svona, eins og gengur.“ Eftir tveggja vetra nám við Sjó- mannaskólann í Reykjavík stóð Þor- steinn uppi með próf til skipstjórnar á fiskiskipi og kærustu úr næsta firði sem hann hafði kynnst á námsárum sínum í Reykjavík. Eiginkonan til- vonandi var Björk Aðalsteinsdóttir frá Eskifirði, dóttir Aðalsteins Jóns- sonar, forstjóra Hraðfrystihúss Eski- fjarðar, eða Alla ríka, eins og hann er nefndur í daglegu tali, en þá var hún í handavinnudeild gamla Kennaraskól- ans. Skömmu eftir útskriftina eða í ársbyrjun 1973 var Þorsteinn sendur sem annar stýrimaður til að sækja raðsmíðaskipið Bjart NK til Japans, en þá hafði hann verið háseti á öðru skipi Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, Barðanum NK, í sumarfríum enda Nobbari í húð og hár, eins og Norðfirðingar gjarnan kalla sig. Eftir að Bjartur kom til heimahafnar 2. mars 1973 var Þorsteinn afleysinga- stýrimaður á nýja skipinu um sum- arið og flutti sig svo alfarið yfir á Eskifjörð um haustið, þá 23 ára gam- all, og fór að vinna fyrir tengdaföður sinn, Alla ríka. „Fyrst í stað gerðist ég annar stýrimaður á Hólmanesi SU og þremur árum síðar varð ég skip- stjóri á Hólmatindi SU. Árið 1978 keypti Hraðfrystihús Eskifjarðar svo Jón Kjartansson SU, sem ég tók að mér skipstjórn á í um tíu ár eða svo. Að þeim tíma liðnum fór ég að vinna í landi með tengdaföður mínum, ýmist á kontórnum eða á síldarplani, sem hér var.“ „Um 1990 gerðist ég svo skipstjóri á nýjasta skipi félagsins, Hólmaborg- inni SU, og stend þar enn í brúnni. Þá voru erfiðir tímar og þröngt í búi hjá fyrirtækinu og það varð að grípa til ráðstafana til að snúa þeirri öf- ugþróun við enda vorum við næstum því búnir að missa skipið frá okkur. Við þurftum að draga saman seglin, minnka mannahald í landi og ég þótti svo auk þess ágætlega hæfur til þess Skipstjórinn og aflaklóin Þorsteinn Kristjánsson á Hólmaborginni SU hefur átt farsælan feril sem slíkur og segist ætla að halda sig eitthvað lengur við sjó- mennskuna, sem hann tel- ur að eigi mun betur við sig en störf í landi. Hann hafn- aði boði tengdaföður síns, Alla ríka, um að gerast „krónprins“ fyrirtækisins og því var uppeldisson- urinn Elfar Aðalsteinsson kallaður til í ársbyrjun 2001. Jóhanna Ingvars- dóttir truflaði „karlinn í brúnni“ við kolmunnaleit eitt kvöldið í vikunni. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri og áhöfn hans á Hólmaborg SU fengu góðar móttökur og veglega tertu þegar skipið kom til hafnar á Eskifirði í desember síðastliðnum í tilefni Íslandsmets í aflabrögðum; 93 þúsund tonna afli á einu ári. Aflaskipið Hólmaborg SU hefur slegið hvert aflametið á fætur öðru. Sumir hafa nefnt skipið „Gullborgina“ vegna þess hve fengsælt það hefur verið. Í rólegum gír á Rauða torginu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.