Morgunblaðið - 01.06.2003, Page 24
24 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGTAKIÐ „líffræðilegfjölbreytni“ er þýðing áenska hugtakinu „bio-logical diversity“ eða„biodiversity“. Það
spannar allt það sem í daglegu tali er
kallað lífríki eða lifandi náttúra og
meira til. Það skírskotar ekki aðeins
til hinna fjölmörgu og mismunandi
tegunda, heldur skírskotar það einn-
ig til erfðafræðilegs breytileika innan
tegundanna, til mismunandi bú-
svæða þeirra og til hinna mörgu og
ólíku vistkerfa, sem fyrirfinnast. Líf-
fræðileg fjölbreytni spannar þannig
líffræðilegan breytileika á öllum
skipulagsstigum lífs á jörðinni, í lofti,
á láði og í legi.
„Með þessu hugtaki, sem að hluta
til er pólitískt, voru menn að reyna að
komast frá þeirri tegundamiðuðu
hugsun, sem var ráðandi í viðhorfi til
náttúrunnar og náttúruverndar. Í
mörgum tilvikum getur verið jafn
mikilvægt að vernda erfðaeiginleika,
sem tiltekinn hluti tegundar býr yfir,
eins og tegundina í heild. Eins er von-
lítið að vernda tegundir ef búsvæði
þeirra eru eyðilögð,“ segir Snorri
Baldursson, sérfræðingur hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands.
Aðilar í ellefu ár
Íslendingar gerðust aðilar að sér-
stökum samningi um líffræðilega
fjölbreytni fyrir ellefu árum. Þáver-
andi umhverfisráðherra Íslands, Eið-
ur Guðnason, undirritaði samninginn
ásamt fulltrúum 154 annarra ríkja á
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um
umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro í
júní árið 1992. Samningurinn tók
gildi hér á landi í desember 1994. Þá
þegar höfðu 104 þjóðir fullgilt samn-
inginn. Aðild að samningnum eiga nú
187 ríki, eða flest öll ríki heims, sem
sýnir vel hversu alvarlega þjóðir
heims taka þau vandamál sem samn-
ingurinn tekur til, segir Snorri, sem
ásamt Sigurði Þráinssyni hjá um-
hverfisráðuneytinu sat síðasta vís-
inda- og tæknifund samningsins í
Kanada. „Við ræddum þá okkar í
milli að gaman væri að gera eitthvað
úr deginum hér heima sem ekki hef-
ur verið gert áður og vonumst vissu-
lega til að hér geti verið um árlegan
viðburð að ræða eftirleiðis enda efnið
mjög víðfeðmt.“ Umhverfisráðuneyt-
ið fer með stjórnsýsluhluta samn-
ingsins, en Náttúrufræðistofnun Ís-
lands er vísindalegur ráðgjafi varð-
andi samninginn.
Fyrirlesarar á fræðslufundinum
voru m.a. valdir með tilliti til þess að
hafa sérþekkingu á hlutverki og
framkvæmd samningsins í alþjóð-
legu samhengi auk þess sem sumir
hverjir eru að vinna að verkefnum
hér á landi sem tengjast samningn-
um beint eða óbeint. Fyrirlesarar
voru: Sigurður Snorrason frá HÍ,
Sigurður Þráinsson frá umhverfis-
ráðuneyti, Jón Gunnar Ottósson,
Kristinn Haukur Skarphéðinsson og
Sigurður H. Magnússon frá NÍ,
Kristín Svavarsdóttir frá Land-
græðslunni, Áslaug Helgadóttir og
Emma Eyþórsdóttir frá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, Hilmar
Malmquist frá Náttúrufræðistofu
Kópavogs, Sigmar A. Steingrímsson
frá Hafrannsóknastofnun og María
Harðardóttir frá Umhverfisstofnun.
„Ísland ákvað að taka þátt í þeirri
alþjóðlegu hreyfingu, sem skapaðist
um vernd líffræðilegrar fjölbreytni
og sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda
snemma á tíunda áratug síðustu ald-
ar. Við, ekki síður en aðrar þjóðir,
eigum allt okkar undir lifandi auð-
lindum. Þótt íslenskt lífríki sé tiltölu-
lega fátækt af tegundum er verðmæti
þess ekki að sama skapi lítið. Hér eru
plöntur og dýr, sem hafa lagað sig á
löngum tíma að séríslenskum um-
hverfisskilyrðum og geyma verð-
mætar erfðaupplýsingar um hvernig
unnt er að lifa af í þessu undarlega
umhverfi elda og ísa. Íslenskt lífríki,
að manninum meðtöldum, er sér-
stakt í alþjóðlegu samhengi og við
berum ábyrgð á varðveislu þess. Við
berum ábyrgð á því að tegundir, sem
hér hafa þrifist og þróast um aldir,
verði áfram kjölfestan í náttúru
landsins. Það gerum við best með því
að ganga varlega og af fyrirhyggju
um landið. Með því að gerast aðilar
að samningnum höfum við gengist
inn á þessa hugmyndafræði. Svo höf-
um við beinan efnahagslegan ávinn-
ing af því eins og dæmið með hvera-
örverurnar sannar,“ segir Snorri.
Meginmarkmið samningsins eru
þríþætt. „Í fyrsta lagi er markmið
samningsins að vernda líffræðilega
fjölbreytni jarðarinnar, það er að
sporna gegn hinni miklu fækkun teg-
unda og rýrnun stofna og landgæða,
sem átt hefur sér stað á undanförn-
um áratugum. Fjöldi tegunda, bú-
svæða og vistkerfa hefur eyðst og
enn fleiri eru ekki svipur hjá sjón frá
því sem áður var. Hvað okkur áhrær-
ir getum við tekið gróðurlendi Ís-
lands sem dæmi um þetta.
Í öðru lagi er markmið samnings-
ins að tryggja að nýting lifandi auð-
linda sé sjálfbær. Þótt margir líf-
fræðingar séu taldir verndarsinnar
ganga þeir ekki gruflandi að því að
það þarf að nýta þá auðlind, sem fólg-
in er í lífríkinu og erfðaefni þess.
Landbúnaður, hverju nafni sem hann
nefnist, byggist á nýtingu erfðaauð-
linda. Iðnaður, svo sem matvælaiðn-
aður, lyfjaiðnaður og pappírsiðnaður,
sækir að verulegu leyti hráefni í líf-
fræðilega fjölbreytni og það sama má
segja um veiðar og matvælasöfnun
hverskonar. Líffræðileg fjölbreytni
hefur þannig gríðarlega efnahags-
lega þýðingu. Meginhugsunin er sú
að kynslóðin, sem nú er uppi, gangi
ekki svo hraustlega á lifandi auðlind-
ir jarðarinnar að næstu kynslóðir á
eftir búi af þeim sökum við skert
efnahagsleg gæði.
Þriðja meginmarkmið samnings-
ins er að tryggja sanngjarna skipt-
ingu arðs, sem kann að hljótast af
nýtingu erfðaauðlinda, til dæmis í
lyfjaiðnaði. Þetta ákvæði var einkum
sett inn til aðstoðar þróunarríkjum.
Til að mynda má hugsa sér að lyfja-
fyrirtæki finni jurt í Amazon-frum-
skóginum, sem felur í sér lækningu
við krabbameini, og þá má spyrja
hvort lyfjafyrirtækið eigi eitt og sér
að hirða allan arðinn. Annað dæmi,
okkur nærtækara, er nýting ís-
lenskra hveraörvera, sem erlend líf-
tæknifyrirtæki voru á höttunum eftir
og gerðu leiðangra til landsins til að
safna. Með vísan í samninginn um líf-
fræðilega fjölbreytni voru sett
ákvæði í íslensk lög, sem banna út-
flutning á hveraörverum.“
Að sögn Snorra beinist samning-
urinn vissulega fyrst og fremst að
náttúruvernd, en með þeirri grund-
vallarhugsun þó að nýting lifandi
auðlinda sé ekki aðeins leyfð heldur
efnahagsleg nauðsyn. Við eigum
hinsvegar að einbeita okkur að því að
hirða aðeins vextina af þessum auð-
lindum. Samningurinn markar að
ýmsu öðru leyti tímamót í náttúru-
vernd, til dæmis að því leyti að hann
beinist ekki aðeins að verndun líf-
fræðilegrar fjölbreytni, sem skapast
hefur með náttúruvali, heldur einnig
að þeirri miklu fjölbreytni, sem
mannkynið hefur skapað með kyn-
bótum og ræktun og birtist í mis-
munandi stofnum húsdýra, gæludýra
og matjurtaafbrigða, sem og í fjöl-
breytilegu búsetulandslagi.
Skráning, vöktun, verndun
„Ýmislegt hefur verið gert hér á
landi til að uppfylla ákvæði samn-
ingsins,“ segir Snorri og bendir með-
al annars á að verkefnaval og for-
gangsröðun hjá stofnunum eins og
Náttúrufræðistofnun Íslands og
Náttúruvernd ríkisins, sem nú er
hluti Umhverfisstofnunar, hafi að
stórum hluta beinst að því að upp-
fylla markmið samningsins. „Samn-
ingurinn leggur áherslu á vísindalega
nálgun, það er að afla grunnþekking-
ar á lífríkinu, skrásetja það, vakta
ástand þess og meta helstu ógnir,
sem að því steðja. Þessar upplýsing-
ar eru svo notaðar til að hanna skyn-
samlegar verndaraðgerðir. Skrán-
ing, vöktun og verndun eru þannig
lykilhugtök.
Náttúrufræðistofnun Íslands hef-
ur einbeitt sér að því að skrásetja og
kortleggja útbreiðslu íslenskra
plantna, dýra og vistgerða og eftir
mætti að vakta ástand stofna. Þegar
kortlagningu er lokið á landsvísu fyr-
ir tiltekna tegund eða vistgerð er
hægt að beita verndarviðmiðunum,
sem oft eru alþjóðlegs eðlis, til þess
að finna út hvort tegundin/vistgerðin
er verndarþurfi og ákveða til hvers-
konar aðgerða skuli grípa. Válistar
yfir tegundir í hættu og hin nýja nátt-
Berum ábyrgð á varðve
Í tilefni af alþjóðlegum degi
líffræðilegrar fjölbreytni
hinn 22. maí síðastliðinn
buðu umhverfisráðuneytið
og Náttúrufræðistofnun Ís-
lands til fræðsluráðstefnu
þar sem ellefu sérfræðingar
lögðu hönd á plóg. Jóhanna
Ingvarsdóttir spurði annan
ráðstefnustjórann, Snorra
Baldursson líffræðing, um
hvað fælist í aðild Íslands
að sérstökum samningi um
líffræðilega fjölbreytni.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Snorri Baldursson segir áhuga Íslendinga á umhverfisvernd hafa stóraukist á undanförnum árum.
!
!
# "
#
$
%&
!"#$!%#
$#&!' ()
!% $! &*+! ,#-(#&
"##!
.## /+$!&$#-/+$#
'()* +*, +** +-, +-* +., +.* +/, +/* +(,
0#-!#& 123451226 0
'-,,
'),,
'1,,
',,,
/,,
-,,
),,
1,,
Íslendingar eiga enn langt í land með að kortleggja líffræðilega fjölbreytni lands-
ins og gera þekkinguna aðgengilega í opnum gagnagrunnum að sögn Snorra.