Morgunblaðið - 01.06.2003, Qupperneq 36
UMRÆÐAN
36 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„DANSINN hjálpaði mér að kom-
ast út úr huganum og hvíla í lík-
amanum. Ég hætti að hugsa um hvað
dansarnir þýddu,
hvað hinir voru að
gera og að fylgjast
með sjálfri mér,
leyfði mér að vera
ég sjálf og fylgja
rythmanum innra
með mér.“ Þetta er
haft eftir konu sem
sótti námskeið hjá Faridu Sharan, en
hún er væntanleg til Íslands í næstu
viku til að kenna Íslendingum að nýta
sér dansinn sem tæki til sjálfsræktar
og að gefa okkur innsýn í það sem
augun, spegill sálarinnar, segja okkur
um heilsufarið.
Krabbameinið
sem opnaði nýjar dyr
Farida greindist með brjósta-
krabbamein á þrítugsaldri. Lækn-
irinn sagði henni að ástandið þyldi
enga bið. Hún þyrfti að undibúa sig
undir aðgerð tafarlaust. Farida hljóp
út af sjúkrahúsinu, pakkaði niður
svefnpokum fyrir sig og börnin og
hélt til fjalla. Þar dvaldi hún sum-
arlangt og leitaði leiða til að hreinsa
og heila líkama og sál með nátt-
úrulegum aðferðum og læknaði sig –
æxlið hvarf.
Farida fór eftir þetta að kynna sér
meira um óhefðbundnar lækningar
og menntaði sig í grasalækningum og
lithimnugreiningu. Hún stundar jóga
og fer reglulega í endurhæfingu til
Indlands og Puerto Rico á Ann Wig-
more Center, sem sérhæfir sig í hrá-
fæði og hreinsun. Hún nýtur virð-
ingar um allan heim fyrir leiðandi
hlutverk sitt í lithimnufræðum og
náttúrulækningum.
Að vera lifandi fordæmi
„Nærvera Faridu gerir það að
verkum að það sem við upplifum er
raunverulegra. Ég hafði jafn mikla
ánægju af návist hennar og af dans-
inum. Hún lifir það sem hún kennir
og hefur smitandi lífssýn. Ég hef ver-
ið að berjast við kvíða í mörg ár og
finnst ég hafa lært á þessum tíma
með henni að sleppa því sem ég hef
verið að burðast með úr fortíðinni og
lært að hafa gaman af verkefnum lífs-
ins.“ Bev. Wyoming.
Farida orðar þetta mjög fallega:
„Fyrst höfum við sýn á það hvert við
viljum stefna. Síðan verðum við að
berjast við heiminn til að láta hana
verða að veruleika með staðfestu okk-
ar og því verði sem við greiðum fyrir
með orku, tíma, peningum og fylgni.
Um leið og við græðum okkur sjálf
förum við að græða aðra. Að lokum
erum við einfaldlega sannir kennarar,
lifandi fordæmi og leiðsögumenn fyr-
ir aðra í sannleika lífsins, uppspretta
visku og þjónn ástarinnar.“
Dansað í höndum Guðs
Á helgarnámskeiðinu „Dansað í
höndum Guðs“, ætlar Farida að fara
með okkur í gegn um dans umbreyt-
ingarinnar. Það er ekki ætlast til að
við kunnum að dansa eða séum sér-
staklega ófeimin. Við dönsum með
lokuð augun og Farida leiðir okkur í
gegnum hvert elementið eða frum-
aflið á fætur öðru þar sem við kynn-
umst kröftunum sem búa innra með
okkur, losum um spennu og fyr-
irstöður og höfum svo í höndunum
tæki sem við getum nýtt okkur í lífi
og leik.
Dansinn sem hún kennir tengist
frumorkuhreyfingum alheimsins og
þátttakendur fá tækifæri til þess að
kanna þessar orkuhreyfingar innra
með sjálfum sér og geta svo nýtt þær
til að bæta daglegt líf og heilsu sína.
Við notum þessar orkuhreyfingar alla
daga og Farida heldur því fram að
þegar við verðum meðvituð um þær
verði líf okkar dans í stað þess að vera
barátta.
Lithimnugreining
Lithimnugreining eins og Farida
Sharan, náttúrulæknir og skólastjóri
Náttúrulækningaskólans í Boulder,
Colorado kennir hana, greinir orku-
hreyfingar alheimsins bæði í lithimnu
augans og í jógafræðunum. „Það er
heillandi hvernig heimurinn sýnir
okkur svörin ef við bara lítum í kring
um okkur,“ segir Farida, sem hefur
heimsótt Ísland fjórum sinnum áður
til að halda fyrirlestra um nátt-
úrulækningar og tíðahvörf og til að
leiða þjálfun í lithimnugreiningu og
náttúrulækningum fyrir 22 íslenska
nemendur. Þú gætir hafa séð hana í
sjónvarpinu að tala um lithimnu-
greiningu og jurtirnar sem vaxa allt í
kring um okkur, eins og lítillátur fíf-
illinn, sem gerir svo mikið fyrir lifrina
og blóðið.
Farida er hafsjór af þekkingu um
jurtalækningar og leiðir til að hreinsa
líkamann og styrkja ónæmiskerfið.
Hún er þekkt fyrir uppskriftir að
jurtaböðum og -drykkjum sem eiga
að koma jafnvægi á sýrustig líkamans
þannig að hann sé bústaður fyrir já-
kvæða gerlaflóru og verðugt heimili
fyrir heilbrigða sál. Hún skrifaði bók-
ina „Herbs of grace“ eða Náðarjurtir
sem hefur notið mikilla vinsælda.
Námskeið og
fyrirlestrar í Gerðubergi
Hún ætlar að halda fjögur nám-
skeið og tvo fyrirlestra í Gerðubergi
dagana 10.–15. júní. Aðalnámskeiðið
sem tekur heila helgi (14.–15. júní) er
umbreytingardansnámskeið. Auk
þess heldur hún kvöldnámskeið í
jurtalækningum fyrir börn (11. júní),
hálfsdagsnámskeið þann 12. júní, sem
hún kallar Mystic yoga, og dags-
námskeið þann 13. júní í innra jafn-
vægi, jurtalækningum og lithimnu-
greiningu.
Farida verður auk námskeiðanna
með fyrirlestra í Gerðubergi um
„Skapandi tíðahvörf“ (þann 10. júní)
og fyrirlestur sem fjallar um sjálfs-
rækt, umhyggju fyrir sjálfum sér og
leiðir til að sinna heilsunni (12. júní).
Fyrirlestrarnir hefjast kl. 19.30.
Dansað
í höndum guðs
Eftir Guðrúnu Arnalds
Höfundur er hómópati, nuddari og
leiðbeinandi í líföndun.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Nýtt á skrá: Til sölu/leigu samtals 1.000 fm tveir eignahlutar 706 fm á tveimur hæðum, innréttaðir sem
aðgerða- og læknastofur. Einnig 294 fm á annarri hæð, innréttaðir fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur.
Mjög góð staðsetning, mjög góð aðkoma. Mögulegur byggingarréttur. Verð tilboð.
ÁLFTAMÝRI/TIL SÖLU/LEIGU
Snorrabraut - glæsileg Vorum
að fá í einkasölu glæsilega 90 fm íbúð á
7. hæð í lyfthúsi. Íbúðinni fylgir auk
þess 26 fm bílskúr. Stórglæsilegt út-
sýni. Sérstaklega fallega innréttuð íbúð.
Hringbraut - mjög fallegt Vor-
um að fá í einkasölu mjög fallegt 147 fm
parhús auk 41 fm bílskúrs. Húsið skipt-
ist m.a. í tvær samliggjandi stofur og
fjögur herbergi. Húsið hefur verið mikið
standsett. V. 19,5 m. 3077
Safamýri - útleiga Vorum að fá í
sölu mjög fallega 147 fm neðri sérhæð í
4-býli. 26 fm bílskúr fylgir. Hæðin skipt-
ist m.a. í tvær stofur og 3-4 herbergi.
Inn af forstofu er herbergi og snyrting
sem gæti hentað til útleigu. V. 21,8 m.
3180
Leifsgata - stór og skemmti-
leg Höfum fengið í einkasölu mjög
góða 167 fm íbúð í 3-býli í miðborginni.
Íbúðinni tilheyrir 32 fm bílskúr. Íbúðin
skiptist m.a. í tvær stofur og sex her-
bergi, þar af eru tvö stór herbergi í risi
sem gætu nýst sem vinnuaðstaða.
Þvottahús og geymsa er inni í íbúðinni.
Þrennar svalir. Íbúðin er laus 1. júlí. Þeir
sem óska eftir að skoða íbúðina hringi í
Kristínu í síma 862 0207. V. 20,5 m.
3141
Safamýri - bílskúr Vorum að fá í
einkasölu mjög fallega og bjarta 100 fm
íbúð á 3. hæð í fjölbýli. Íbúðinni fylgir 21
fm bílskúr. Yfirbyggðar flísalagðar svalir
með hita í gólfi. V. 14,3 m. 3293
Flúðasel Vorum að fá í sölu fallega
4ra-5 herb. 116 fm íbúð á 2. hæð í ný-
lega standsettu fjölbýli. Íbúðin skiptist
m.a. í stórt hol, stofu, borðstofu og 3-4
herbergi. Yfirbyggðar svalir. Íbúðinni
fylgir stæði í bílageymslu. V. 13,9 m.
3054
Engjasel - m. sólstofu. 5 her-
bergja endaíbúð með frábæru útsýni
(Rjúpnahæð, Reykjanesskaginn, Álfta-
nes, Kópavogur, allur Snæfellsnesfjall-
garðurinn og að Akrafjalli) ásamt stæði í
bílag. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu,
nýja sólstofu, eldhús, 3 svefnherb.,
fataherb. og baðherb. Nýlega er búið
að sandsetja húsið allt að utan á mynd-
arlegan hátt. V. 15,3 m. 3377
Starengi - glæsileg Glæsileg 84
fm íbúð á jarðhæð í fallegu nýlegu húsi.
Vandaðar innréttingar. Sérinngangur.
Hellulögð verönd. Lokaður garður með
leiktækjum. V. 12,2 m. 3048
Gautland 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð við Gautland í Fossvoginum í
Reykjavík. Eignin skiptist í rúmgott hol,
eldhús, tvö herbergi, stofu og baðher-
bergi. Til stendur að gera við blokkina
að utan og greiðir seljandi fyrir þá fram-
kvæmd. V. 12,3 m. 3371
Hjaltabakki Góð 86 fm 3ja her-
bergja íbúð á efstu hæð (3. hæð) í blokk
sem er nýtekin í gegn að utan. Eignin
skiptist m.a. í tvö rúmgóð herbergi,
baðherbergi, stofu/borðstofu og eld-
hús. V. 10,9 m. 3380
Iðufell - m. sólstofu 3ja her-
bergja íbúð sem skiptist í hol, stofu,
baðherbergi, eldhús og tvö svefnher-
bergi auk sólstofu sem eru yfirbyggðar
svalir. V. 9,5 m. 3308
Hringbraut - með útleig Mjög
falleg 2ja herbergja íbúð ásamt auka-
herbergi (forstofuherbergi) á efstu hæð
með glæsilegu útsýni. Eignin skiptist
m.a. í gang, eldhús, stofu, svefnloft og
baðherbergi. Forstofuherbergi með sér-
baðherbergisaðstöðu sem er í útleigu.
Gott svefnloft. V. 9,5 m. 3216
Barðavogur - laus Snyrtileg og
björt u.þ.b. 47 fm 2ja herbergja íbúð til
vinstri á 1. hæð (jarðh.) í þríbýlishúsi. Íb.
fylgir 14 fm geymsla. Stór og gróin lóð
á frábærum stað. Áhvílandi ca 5,4 m.
húsbréf og viðb.lán. V. 7,5 m. 3360
Skúlagata - til leigu Til leigu 120
fm 4ra herbergja íbúð í glæsilegu ný-
legu lyftuhúsi. Mikið útsýni. Suðursvalir.
Leigutími tvö ár. Sex mánuðir fyrirfram.
Íbúðin er laus nú þegar. Upplýsingar
veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali
á skrifstofu Eignamiðlunar.
Borgartúni 22,
105 Reykjavík,
sími 5-900-800.
Kiðjaberg - Grímsnesi
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali
Fallegur, fullbúinn 55 fm sumarbú-
staður ásamt rislofti á frábærum stað
í landi húsasmíðameistara í Kiðja-
bergi, Grímsnesi. Um að ræða vand-
að hús sem staðsett er á fallegum út-
sýnisstað, þar sem Hvítáin blasir við
og falleg fjallasýn. Vel innréttað hús
með rennandi vatni, rafmagni, parketi
á gólfum og fallegum innréttingum.
Stór og mikil verönd með skjólveggjum. Aðeins 45 mín akstur frá Reykjavík.
Upplýsingar í dag gefur Jón í 690 0505.
Miðfellsland - Þingvallavatn
Vorum að fá í sölu fullbúinn 10 ára
gamlan 51 fm sumarbústað á Sand-
skeiði í landi Miðfells. Um er að ræða
fullbúið og vandað hús á einni hæð
með 3 svefnherbergjum, baði, eld-
húsi og stofu. Tveir inngangar og góð
verönd. Mikið útsýni yfir Þingvalla-
vatn, Hengilinn og Grafningsfjöll. Raf-
magn og rennandi vatn úr einkabor-
holu við hlið hússins. Gott útihús við hliðina. Aðeins 45 mín akstur frá
Reykjavík. Húsið stendur á 1/2 hektara eignarlandi. Verð 7,5 millj.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
VIÐSKIPTI mbl.is