Morgunblaðið - 01.06.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 51
Fyrirtæki til sölu
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vin-
samlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300 en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg,
en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til
sölu.
Áhugavert ferðaþjónustufyrirtæki á hálendinu. Gott tækifæri fyrir góðan
veitingamann.
Mjög góð sólbaðsstofa í Breiðholti fáanleg á rekstrarleigu með kaup-
rétti. Tilvalið fyrir hressar konur sem vilja eigin rekstur.
Mjög þekkt fyrirtæki í afþreyingu á Suðurnesjum fáanlegt fyrir rétta
aðila.
Þekkt dömuverslun með náttföt og sundfatnað. Eigin innflutningur.
Ein besta sólbaðsstofa borgarinnar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á
góðu atvinnuhúsnæði.
Snyrtilegur og fallegur söluturn með videó, gott tækifæri fyrir samhenta
fjölskyldu. Verð 8 m. kr.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.
Glæsilegur veitingastaður á Suðurnesjum, einungis fyrir fagmenn. Frá-
bært tækifæri til að skapa sér nafn í faginu.
Vörubílaverkstæði með föst viðskipti.
Heildverslun með pípulagningavörur. Góð umboð.
Lítil en góð heildverslun með gjafavöru, tilvalið fyrir 1—2 eða sem við-
bót við annan rekstur.
Fyrirtæki í auglýsingageiranum fáanlegt fyrir rétta aðila.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með kælitæki o.fl. Góður rekstur og
miklir möguleikar. Tilvalið fyrir vélstjóra.
Söluturn og myndbandaleiga í Hafnafirði, tilvalið sem fyrsta fyrirtækið,
verð 4,5 m. kr.
Gott þjónustufyrirtæki í Keflavík sem þjónar aðallega fyrirtækjum.
Viðgerðarverkstæði fyrir vélar og rafmagnstæki. Ábyrgðarviðgerðir fyrir
stórt verslunarfyrirt. Þægil. og öruggur rekstur fyrir 1—2 starfsmenn.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dans-
leiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn. Rekstrarleiga möguleg.
Hjólbarðaverkstæði og bifreiðaverkstæði, vel tækjum búið.
Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á bíla. Gott einkaumboð, tæki og
lager. Hentugt fyrir tvo menn. Gott verð.
Stórt arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
Rótgróið framleiðslufyrirtæki með ljósabúnað, einnig einhvern innflutn-
ing, upplagt sem sameiningardæmi.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Matvöruverslun á uppgangsstað í nágrenni Reykjavíkur. Ársvelta 136 m.
kr. Góð afkoma.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Þekkt sérverslun með 100 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 14 m. kr.
Kaup og sala fyrirtækja er frábrugðin fasteignasölu á margan hátt og
kaupendur jafnt og seljendur hafa eðlilega litla reynslu í þeim efnum. Við
viljum gjarnan deila okkar reynslu með því að einfalda og útskýra þá hag-
fræði sem ræður á þessum markaði. Það er ástæða þess að við höfum
tekið saman marvíslegan fróðleik sem er að finna á heimasíðu okkar,
www.husid.is:
Hvernig gerast fyrirtækjakaup?
Hvað ber að varast.
Hlutverk fyrirtækjasala.
Verðlagning fyrirtækja.
Greiðslufyrirkomulag.
Skilgreiningar og hugtök.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Kristur er kominn
á meðal okkar!
Viltu forvitnast?
Skoðaðu þessar vefsíður
www.shareintl.org
www.themiraclespage.org
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Hva› ertu
a› hugsa?
3.
,
10
.,
1
7.
o
g
24
.
jú
ní
2
2.
j
úl
í.
V
er
›
kr.
á mann
36
.9
67
*Innifalið:
Flug, gisting, akstur til og frá
flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna
og 2 börn 2ja-11 ára.
**Innifalið:
Flug, gisting, akstur til og frá
flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna.
Takmarkað sætaframboð
Sólarplús
fiú velur dagsetningu,
bókar og grei›ir
sta›festingargjald.
Gistista›urinn er sta›festur
viku fyrir brottför.
*
48
.3
55
k
r.
**
Sama sólin, sama fríi›
bara a›eins ód‡rara
Po
rt
úg
al
Po
rt
úg
al
36
.9
67
HINN 6. júlí verða 80 árliðin síðan Blöndahls-slagurinn svokallaði varháður á Reykjavík-
urhöfn. Sumir hafa nefnt þennan
atburð Kolagarðsbardagann. Um
þennan Brávallabardaga hefur
margt verið rætt og ritað.
Ég fjallaði á sínum tíma um
þessa atburði í samvinnu við for-
mann Sjómannafélags Reykjavíkur,
Guðmund Hallvarðsson. Stefndum
við öldruðum sjóhetjum á skrifstofu
félagsins. Áttum með þeim ánægju-
legan fund og fengum margvíslegar
upplýsingar er hljóðritaðar voru og
eru geymdar á segulbandi. Þá
gerðum við okkur ferð til Keflavík-
ur og áttum tal við Hjört Þorkels-
son, netameistara, en hann skar á
vatnsslöngu þá er flytja átti vatn á
togara Blöndahlsfeðga, sem síðan
átti að manna með verkfalls-
brjótum á Hellissandi. Þá var einn-
ig rætt við Þorgeir Eyjólfsson,
starfsmann Reykjavíkurhafnar,
sem var á vatnsbátnum um þessar
mundir. Þá könnuðum við fóg-
etabók á Þjóðskjalasafni og söfn-
uðum upplýsingum um þátt lög-
reglu.
Fyrir um áratug hafði ég sam-
band við Alþjóðasamband flutn-
inga- og hafnarverkamanna í Lund-
únum. Það er samband það sem
Jón Bach, fulltrúi Sjómannafélags-
ins, átti að leita athvarfs hjá er
hann var sendur af félaginu til
Bretlands í september 1923 með
Íslandi til Leith. Þar var honum
meinuð landganga af bresku lög-
reglunni. Tók hann það þá til
bragðs að sigla áfram með skipinu
til Danmerkur og komst þaðan fyr-
ir atbeina danskra félaga til Hol-
lands og tókst að fá inngöngu í al-
þjóðasambandið.
Í fyrrgreindri ferð minni til
Bretlands hafði ég samband við
skrifstofu sambandsins í Lund-
únum. Þar fékk ég mikilsverðar
upplýsingar um sendiför Jóns
Bachs og fyrirheit um frekari að-
stoð. Ég hygg að með frekari að-
stoð breskra samtaka og leit að
gögnum í söfnum og skjölum lög-
reglu megi komast að raun um þátt
íslenskra og breskra stjórnvalda og
útgerðarmanna í landgöngubanni
því er beitt var við sendimann Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Ég er
þeirrar skoðunar að kynslóð sú er
nú nýtur með ýmsum hætti góðs af
ávöxtum þess fórnfúsa starfs er
forvígismenn fyrri ára inntu af
höndum skuldi baráttu þeirra þá
viðurkenningu að hyggja að sögu
félagsins og kosta kapps um að afla
þeirra gagna sem tiltæk eru.
Sjómenn hindruðu lögregluna í að setja vatn á togarana 1923.Hjörtur Þorkelsson netagerðarmeistari.
Orrusta um
kjör sjómanna
Höfundur er þulur.
Ár hvert, á sjómannadegi, fylkja sjómenn
og fjölskyldur þeirra og vinir liði og
minnast baráttu, sigra og ósigra. Pétur
Pétursson rifjar upp að árið 1923 var háð
ein minnisstæðasta orrusta á Reykjavík-
urhöfn um kjör sjómanna.