Morgunblaðið - 22.06.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2003 39
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR HERMANNSSON
fyrrv. yfirlögregluþjónn,
Háagerði 87,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 24. júní kl. 13.30.
Herborg Júníusdóttir.
Arnar Guðmundsson, Kolbrún Sigurjónsdóttir,
Grétar Júníus Guðmundsson, Katrín Guðmundsson,
Hermann Guðmundsson, Valgerður Karlsdóttir,
Rúnar Guðmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SVEINS GUÐMUNDSSONAR,
Blöndubakka 3,
áður Skipholti 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á lungnadeild Landspítala
Landakoti og á deild 11G Landspítala Hringbraut.
Guð veri með ykkur.
Stefanía Lóa Valentínusdóttir,
Sævar Þór Sveinsson,
Lucis Kristín Sveinsdóttir, Halldór Hafsteinsson,
Kristbjörg Sveinsdóttir, Guðni Jensen,
María Sveinsdóttir,
Guðmundur Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og vinarhug og heiðruðu minningu
ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HALLDÓRS E. SIGURÐSSONAR
fyrrv. ráðherra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkr-
unarheimilisins Skógarbæjar fyrir góða og
kærleiksríka umönnun.
Margrét Gísladóttir,
Gísli V. Halldórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir,
Sigurður I. Halldórsson, Steinunn Helga Björnsdóttir,
Sigurbjörg G. Halldórsdóttir, Kristján Örn Ingibergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku Allý frænka,
nú ertu búin að fá hvíld-
ina eftir langa og erfiða
baráttu við illvígan
sjúkdóm. Þú varst svo góð við alla og
sagðir alltaf já þegar þú varst beðin
um aðstoð og áttir tíma handa öllum.
Vinahópurinn var stór, það voru
margir sem áttu þig og þú þá og það
er svo margs að minnast og sakna.
Hressilegi hláturinn þinn sem ómaði
svo skemmtilega er nú þagnaður.
Skógræktaráhuginn var mikill og var
mikið plantað og vel hlúð að plönt-
unum. Við fórum saman margar ferð-
ir, bæði utanlands og innan, en uppúr
standa ævintýraferðirnar út í Hval-
seyjar, bæði með góðum ferðafélög-
um og eins þegar við fórum tvær með
bátinn og Írisi litlu í viku úthöld á
vorin að tína dún og egg og þú að
reyna að eyða hvönn með slætti, eitri
eða oftast að handreyta hana án sjá-
anlegs árangurs þrátt fyrir ómældan
AÐALHEIÐUR
HELGADÓTTIR
✝ AðalheiðurHelgadóttir
fæddist á Grund í
Kolbeinsstaðahreppi
10. maí 1939. Hún
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi í
Kópavogi 28. maí
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Grensáskirkju
18. júní.
tíma sem fór í þetta.
Minningarnar sem
ég geymi um þig eru
ótalmargar og við fjöl-
skyldan á Grund miss-
um mikið og söknum
þín.
Við vottum Kristjáni,
Steinþóri, Önnu, Þóru,
Sif og Trausta, Þor-
gerði, barnabörnum,
langömmubörnum,
systkinum og öðrum að-
standendum innilega
samúð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ólöf Ásmundsdóttir.
Kynni okkar Allýjar hófust þegar
ég réð mig til starfa við Laugargerð-
isskóla sumarið 1998. Ég ætlaði að
stýra skólanum og kom til þeirra
verka án þess að þekkja nokkuð til
skólans eða starfsfólksins. Heppin
var ég að hitta Allý fyrsta af kenn-
urunum og fá hjá henni leiðsögn um
skólann og vináttu sem entist allt til
síðasta dags. Hún var einnig sú sem
mest og best reyndist mér skólaárið
að öðrum ólöstuðum. Fáum kennur-
um hef ég kynnst og starfað með,
sem slá henni við í samviskusemi,
heiðarleika og kærleika því hún var
sannkallaður engill í mannsmynd.
Þau börn sem nutu handleiðslu Allýj-
ar hvort sem var í íþróttum eða al-
mennri kennslu hafa fengið gott
veganesti í lífinu.
Allý bar oft undir mig hluti sem
hún var að velta fyrir sér og svo fór að
ég var einnig farin að bera undir hana
ýmsa hluti viðkomandi stjórnun skól-
ans, því hún hafði langa reynslu af
skólastarfi og óbilandi þolinmæði og
trú á mér sem skólastjóra. Þrátt fyrir
að samstarf okkar yrði einungis einn
vetur héldum við áfram góðu sam-
bandi sem þó hefði mátt vera meira.
Tóku þar veikindi hennar sinn toll.
Þegar ég frétti að sjúkdómur
hennar hefði ágerst, heimsótti ég
hana á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi. Þar gafst tækifæri til að
rifja upp liðnar stundir, skiptast á
upplýsingum um beggja hagi og inn-
sigla gagnkvæma væntumþykju og
vináttu. Aðeins rúmri viku síðar var
Allý öll en eftir lifa minningar um
manneskju sem kunni að gefa af sér
og miðla kærleika og visku til okkar
samferðafólksins.
Ég sendi öllum sem vænt þótti um
Allý samúðarkveðjur.
Guðrún Vala Elísdóttir.
✝ Sigurveig Kristó-fersdóttir fæddist
á Keldunúpi á Kirkju-
bæjarklaustri 12.
apríl 1919. Hún and-
aðist á hjúkrunar-
heimilinu Klaustur-
hólum 9. júní
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Guðlaug Þórarins-
dóttir, f. á Þverá 17.
mars 1877, d. 20.
mars 1967, og Krist-
ófer Kristófersson, f.
á Breiðabólstað 19.
apríl 1888, d. 5. nóv-
ember 1970. Sigurveig var yngst í
röð fjögurra systkina. Elst var Jó-
hanna Matthildur, f. 6.12. 1906, d.
1.10. 1983. Næstur var Bergur
Kristinn, f. 11.10. 1911, d. 13.6.
1971; og Margrét Jóna, f. 28.4.
1915. Sammæðra hálfsystir Sigur-
veigar var Guðbjörg Jónsdóttir, f.
31.12. 1896, d.19.6. 1966.
Sigurveig giftist 1941 Bjarna
Þorlákssyni, f. 6.8. 1911, d. 8.11.
1975, kennara frá Múlakoti á Síðu.
Foreldrar hans voru hjónin Helga
Guðný Bjarnadóttir, f. 18.2. 1884,
d. 12.9. 1970, og Þorlákur Vigfús-
son, f. 27.10. 1879, d.
28.9. 1936. Börn Sig-
urveigar og Bjarna
eru fjögur: 1) Baldur
Þorlákur, f. 11.1.
1942, bóndi í Múla-
koti. Eginkona hans
er Helga Björnsdótt-
ir. Börn þeirra eru
Sigríður Helga, Arna
Björk, Bjarni Pétur,
Sigurður Arnfinnur
og Bjarmi Þór. Fyrir
átti Helga tvö börn,
Öddu Láru og Sigur-
björn. Barnabörn
þeirra eru fimm. 2)
Helga Matthildur, f. 30.8. 1945, bú-
sett í Reykjavík, gift Birni Ólafi
Hallgrímssyni lögfræðingi. Börn
þeirra eru Ragnheiður Lóa, Sól-
veig Hildur og Hallgrímur Thor-
berg og barnabörn eru þrjú. 3)
Gunnlaugur Kristófer, f. 4.3. 1952,
búsettur í Garðabæ, kvæntur Unni
Flygenring. Þau eiga tvö börn,
Ágúst Þór og Sigrúnu Helgu. 4)
Guðrún Lilja, f. 16.5. 1957, búsett í
Reykjavík. Börn hennar eru
Bjarni Rúnar og Elísabet Hrund.
Útför Sigurveigar fór fram í
kyrrþey 18. júní.
Nú hefur hún elsku amma kvatt
þennan heim og er horfin á vit nýrra
ævintýra. Hún hefur fengið kær-
komna hvíld frá amstri hversdagsins
og baráttunni við sjúkdóm sinn.
Amma Veiga var ekki mikið fyrir
stórar samkomur en naut þess að
hafa fjölskylduna í kringum sig. Hún
var höfuð fjölskyldunnar, sú sem átti
oft síðasta orðið. Þegar komið var í
Gamla bæinn var alltaf hægt að vera
viss um það að amma væri með heitt á
könnunni og nýtt bakkelsi. Hún varð
alveg ómöguleg ef lítið var til þegar
gesti bar að. Þá hnoðaði hún í kleinur
eða bakaði heimsins bestu pönnukök-
ur. Amma hafði gríðarlega mikla
þjónustulund, vildi allt fyrir alla gera
og gleymdi oftast sjálfri sér. Hún gat
gert allt, hvort sem var að sjá um úti-
verkin, bakstur eða hannyrðir.
Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að kynnast henni ömmu mjög
vel en hún hjálpaði mömmu við upp-
eldið á okkur. Hún var alltaf til staðar
fyrir okkur til að fræða og rétta hjálp-
arhönd ef þess þurfti. Amma hafði
mikla ánægju af að rifja upp gamla
tíma og segja sögur frá því að hún var
ung. Þá var eins og kæmi sérstakur
glampi í augun á henni og hún hyrfi
aftur um mörg ár.
Við viljum þakka ömmu fyrir allar
þær mörgu og góðu minningar sem
hún skilur eftir sig og munu lifa áfram
með okkur um ókomin ár.
Við elskum þig, amma, og munum
sakna þín en vitum að þú ert hvíldinni
fegin.
Bjarni Rúnar og
Elísabet Hrund.
Tíminn er kominn til hinstu kveðju,
elsku amma Veiga.
Minningin um þig er falleg og yljar
okkur um hjartarætur. Það var alltaf
svo notalegt og skemmtilegt að koma
í sveitina til þín. Tilhlökkunin var
mikil enda var þetta hápunktur sum-
arsins hjá okkur. Spennan jókst jafnt
og þétt á leiðinni austur og þegar
komið var að hlaðinu í Múlakoti náði
hún hámarki. Þú beiðst oft við
gluggann og veifaðir okkur en
skemmtilegast var þó að koma þér á
óvart með því að læðast inn í eldhús
og segja hátt: „Hæ, amma, við erum
komin!“
Alltaf vorum við systkinin velkom-
in og þú gerðir allt sem í þínu valdi
stóð til að okkur liði vel. Þú varst ein-
staklega fórnfús og brjóstgóð mann-
eskja. Þú varst mikill dýravinur og
það gleymist seint þegar þú varst
með fýlsungann í eldhúsinu sem sí-
fellt var ælandi. Þú varst bara að gefa
honum að borða! Og ekki síður þegar
þú tókst að þér að halda lífinu í litlum
hröktum lömbum með því að ylja
þeim og gefa þeim pela.
Það er dýrmætt fyrir okkur að hafa
fengið tækifæri til að kynnast lífinu í
sveitinni. Þú gerðir okkur kleift að
eiga þar ógleymanlegar stundir. Sólin
virtist alltaf skína þegar við vorum
þar smjattandi á kleinunum þínum.
Þú varst einstaklega létt á fæti,
skokkaðir upp og niður Múlann eins
og ekkert væri, inn í fjós að mjólka og
svo inn í eldhús í Gamla-Bæ til að
stjana við okkur barnabörnin. Þegar
maður er krakki gerir maður sér ekki
grein fyrir að einhver þarf að vinna
fyrir okkar áhyggjulausa lífi. Í sveit-
inni varst það þú sem tókst það að
þér. Fyrir það erum við þakklát.
Elsku amma, Guð gefur og Guð
þiggur. Um leið og hann kallar þig til
sín gefur hann okkur þrjú lítil frænd-
systkini. Það er gott að hugsa til þess
að þú vakir yfir þeim. Þakka þér fyrir
allt sem þú gafst okkur. Hvíl í friði.
Lóa, Sólveig og Hallgrímur.
Elsku amma mín. Nú hefur þú
kvatt þennan heim. Mér þykir sárt að
hafa ekki fengið tækifæri til að kveðja
þig, en ég veit að þú hefur það gott
þar sem þú ert núna. Ég kveð þig með
söknuði en allar yndislegu minning-
arnar sem ég á um þig mun ég geyma.
Margs er að minnast
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma mín, ég kveð þig með
söknuð í hjarta og mun aldrei gleyma
þér.
Þín
Sigríður Helga.
SIGURVEIG KRISTÓ-
FERSDÓTTIR