Morgunblaðið - 29.07.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af, bensínbræður. Það er nú búið að skipta um dýnur.
Ljósmyndasýning um hafið í Bretagne
Ísland verður
heiðursland
Ljósmyndasýning umhafið verður haldiní fyrsta sinn í
Vannes á Bretagneskaga í
Frakklandi og hefst hún
13. september næstkom-
andi. Sigríður Snævarr,
sendiherra Íslands í
Frakklandi, mun setja
sýninguna ásamt borgar-
stjóra bæjarins en Ísland
er heiðursland sýningar-
innar í ár. Jean-Yves
Andri Courageux er fram-
kvæmdastjóri sýningar-
innar.
Hvers vegna var ákveð-
ið að halda sýningu af
þessu tagi í Vannes?
Það kom til af sterkri
tengingu bæjarins við haf-
ið. Sjómennska hefur allt-
af verið mjög áberandi
hér, bæði fiskveiðar og bátasmíð-
ar. Þetta er svipað því sem var á
Íslandi þar sem var betra að lifa
á sjónum heldur en af landinu.
Sýningin er samvinna og hug-
mynd fólks héðan af Bretagne-
skaga sem langaði að skapa hér
stóran menningarlegan atburð.
Fólk sem býr hér í kring eða á
hér sumarbústaði stendur að
sýningunni auk blaðamanna og
ljósmyndara. Ég bjó í Vannes
sem unglingur og mig hafði alltaf
dreymt um eitthvað sem gæti
sýnt staðinn almennilega. Hann
hefur verið dálítið týndur og ekk-
ert jafnalþjóðlegt og þessi sýning
hefur áður átt sér hér stað.
Sýningarstaðirnir eru athygl-
isverðir?
Þegar hugmyndin fæddist tók
borgarstjórinn henni einstaklega
vel. Hann er þekktur í stjórn-
málalífinu og mun verða í fram-
boði til ríkisstjórnar á þessu ári.
Þetta var því kjörið tækifæri fyr-
ir hann að sýna fólki að hugur
hans væri ekki allur við pólítík-
ina heldur að hann væri einnig
menningarlega þenkjandi. Hann
gaf samþykki sitt fyrir tólf sýn-
ingarstöðum í hjarta borgarinn-
ar, allt frá fiskmarkaði til ráð-
húss bæjarins þar sem íslensku
ljósmyndararnir munu sýna.
Sýningarnar verða bæði á hefð-
bundnum stöðum svo sem „Le
Palais des Arts et des Congrès“
(lista- og ráðstefnuhöll) en einnig
á meira „földum“ stöðum utan-
dyra. Það verður hægt að skoða
sýninguna einfaldlega með því að
dvelja í hjarta borgarinnar. Þem-
að hafið og staðurinn hér passa
einstaklega vel saman.
Hvernig voru ljósmyndararnir
valdir?
Við vorum fjögur sem komum
ferlinu í gang og strax í byrjun
hugsaði ég með mér að við yrð-
um að hafa þekkta ljósmyndara.
Einhverja sem fólk í þessu fagi
kannaðist strax við og vissi þann-
ig að hér væri alvöru sýning á
ferð. Valdir voru fjörutíu ljós-
myndarar bæði þekktir og þeir
sem hafa verið meira í skugg-
anum. Okkur langaði líka að
kynna þá og stuðla að
því að list þeirri fengi
að þróast.
Ísland var valið sem
heiðursland?
Okkur þótti mjög
mikilvægt að hafa hér nokkurs
konar heiðursgest á hverju ári.
Það kom af sjálfu sér að Ísland
yrði fyrir valinu enda eigum við
sameiginlega sögu sem tengist
hafinu. Auk þess vissum við að
við gætum treyst landinu tækni-
lega til að taka þátt. Það kom
einfaldlega ekkert annað til
greina. Fjórir íslenskir ljósmynd-
arar, þeir Guðmundur Ingólfs-
son, Ragnar Axelsson, betur
þekktur sem Rax, Árni Sæberg
og Guðbjartur Ásgeirsson, munu
sýna myndir sínar í ráðhúsi
borgarinnar. Við vorum komin í
dálitla tímaþröng og er ég mjög
þakklátur vini mínum Guðmundi
Ingólfssyni sem gekk í málin
einn, tveir og þrír. Við erum nú
komin með allar þær myndir sem
við ætlum að sýna.
Hvernig myndir verða á sýn-
ingunni?
Ströndin var valin sem þema
ársins, við erum með myndir frá
ströndum í Ástralíu, Íran, Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Það er
ótrúlegt að sjá þann menning-
armun sem kemur fram í mynd-
unum.
Þá verða myndir af fólki á olíu-
skipum og fólki í fjöruferð og
hægt verður að skoða skemmti-
lega myndasyrpu af hvalveiðum
á Filippseyjum á fiskmarkaðnum
svo eitthvað sé nefnt.
Sérstök sýning verður með
fréttaljósmyndum þar sem
áhersla verður lögð á mengunar-
slysið á Spáni á síðasta ári.
Hvaða aðrir viðburðir verða
samhliða ljósmyndasýningunni?
Dagana 18.–20. september
verður haldin smiðja ljósmynd-
ara. Þar munu ljósmyndararnir
mæta, borða og ræða saman og
sýna myndir. Öllum ljósmyndur-
um hátíðarinnar verður boðið en
öðrum er einnig frjálst að mæta.
Þá verður haldin ljósmyndasam-
keppni þar sem keppt verður í
níu flokkum og hægt verður að
vinna til veglegra verðlauna. All-
ar nánari upplýsingar um keppn-
ina má nálgast á ensku
á slóðinni http://
www.photodemer.com.
Þess skal getið að Ís-
lendingar fá átta daga
aukalega við þann
skilafrest sem þar er gefinn upp.
Sérstök dómnefnd mun velja
verðlaunamyndirnar.
Hverju vonið þið að sýningin
muni skila bænum?
Sýningin hefur fengið mikla
fjölmiðlaumfjöllun hér í Frakk-
landi. Við vonumst til að sýn-
ingin, sem við ætlum að halda ár-
lega geri bæinn sýnilegri en
hann er í dag.
Jean-Yves Andri Courageux
Jean-Yves Andri Courageux
er fæddur 5. desember 1954 í
Senegal en fluttist tólf ára gam-
all til Vannes á Bretagneskaga.
Hann hefur fengist við ýmislegt,
meðal annars þýtt bók, unnið í
bókabúð og starfað sem löggiltur
leiðsögumaður á Íslandi en hann
bjó hér á landi til fjölda ára.
Dóttir Jean-Yves er Sara Kolka
Courageux.
Ljósmyndir
um allan
bæinn
NÚ STANDA yfir rannsóknir rúm-
lega 30 fornleifafræðinga á fjórum
fornum bústöðum í Þingeyjarsýslu.
Að venju er unnið á Hofsstöðum og
nú aðeins við kirkjugarðinn, en
einnig á Hrísheimum nærri Bald-
ursheimi og í Sveigakoti sunnan
Grænavatns þar sem þessi mynd er
tekin. Loks er nýr staður tekinn
fyrir, við Núpa í Aðaldal. Grind-
verkið á myndinni er notað við töku
loftmynda af vinnusvæðinu og þar
sem nokkrir Pólverjar eru á meðal
rannsóknarmanna hafa þeir sett
upp þjóðfána sinn til að halda við
þjóðarvitundinni. Ekki mun hafa
verið búið í Sveigakoti síðan
snemma á 15 öld. Rannsóknirnar á
kirkjugarðinum á Hofsstöðum hafa
meðal annars leitt í ljós að gigt hef-
ur hrjáð þeirra tíma Mývetninga
með öðru veraldarböli.
30 vinna við
fornleifa-
rannsóknir í
Mývatnssveit
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Nokkrir Pólverjar eru í hópi rannsóknarmanna við fornleifauppgröftinn
og hafa þeir sett upp þjóðfána sinn til að halda við þjóðarvitundinni.