Morgunblaðið - 29.07.2003, Side 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 35
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
Karfa á fæti með hjólum
kr. 27.405 stgr.
Karfa á fæti
kr. 16.055 stgr.
Vandið valið verslið í sérverslun með þjónustu
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
07
. 2
00
3
kr. 28.405 stgr.
Tilboð!
kr. 29.925 stgr.
kr. 11.305 stgr.
Karfa með neti kr. 2.690
Fjaðrandi karfa kr. 4.990
Karfa á sterku
veðurþolnu fiberspjaldi
kr. 11.305 stgr.
Vandaðar rólur frá
KETTLER, CE merktar
Buslulaug. Tilboð,
stærð 120 x 180 cm kr. 3.900
stærð 120 x 240 cm kr. 5.900
Nöfn víxluðust
Á baksíðu Morgunblaðsins í gær
birtist mynd úr Árbæjarsafni. Í
myndatexta víxluðust nöfn. Arndís
Vilhjálmsdóttir er til hægri á mynd-
inni og Helga Einarsdóttir til vinstri.
LEIÐRÉTT
Kvöldganga um Hreðavatn
Fimmtudaginn 31. júlí kl 20 verður
gengið um hið fagra umhverfi Hreða-
vatns. Upphafsstaður göngu er á
hlaðinu við Hreðavatnsbæinn. Farið
er þá af þjóðvegi nr. 1 rétt sunnan við
Bifröst. Þaðan verður gengið með
austurbakka vatnsins og út í fallegan
hólma í vatninu. Leiðangursstjórar
verða Sigurður Már Einarsson frá
Veiðimálastofnun og Birgir Hauks-
son frá Skógrækt ríkisins. Fjallað
verður um lífríki vatnsins og um-
hverfi þess. Gangan er fremur stutt
og ætti að henta öllum aldurshópum.
Á NÆSTUNNI
ÞRÓTTUR hélt sitt fyrsta opna tennismót á gervigras-
völlunum í Laugardalnum síðastliðna helgi. Um 40
keppendur tóku þátt. Raj Bonifacius sigraði í meistara-
flokki karla. Hann vann Jón Axel Jónsson í úrlitum 6:4
/ 6:3. Í meistaraflokki kvenna sigraði Soumia Islami og
vann hún Rakel Pétursdóttur 6:2 / 6:2. Birkir Gunn-
arsson (12 ára) náði góðum árangri í barna- og ung-
lingaflokkunum, sigraði bæði 12 og 14 ára og lenti í 2.
sæti í flokki 16 ára og yngri. Árni Björn Krístjánsson
vann 16 ára og yngri og Magnús Gunnarsson 18 ára.
Sigurvegarar mótsins saman komnir í lok verðlaunaafhendingar.
Fyrsta opna tennismót Þróttar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Íslandsdeild Amnesty
International vegna fréttar Ríkis-
sjónvarpsins laugardaginn 26. júlí
þar sem sagði að birting mynda af
líkum sona Saddams Husseins bryti
ekki í bága við ákvæði Genfarsátt-
málans að mati Amnesty Interna-
tional. „Sáttmálinn bannar að sýnd-
ar séu myndir af stríðsföngum, lífs
eða liðnum,“ sagði í fréttinni. Í yf-
irlýsingu Amnesty International
segir:
„Orðalag ofangreindrar fréttar er
slíkt að ætla mætti að Amnesty Int-
ernational samþykki myndbirtingar
af þessu tagi. Samtökin leggja ætíð
áherslu á að mannhelgi sé virt hver
sem í hlut á.
Rétt er að benda á að Amnesty
International hafði á þessum tíma
ekki gefið út opinberar yfirlýsingar
vegna þessa máls. Samtökin hafa
lagt áherslu á að réttað verði yfir
þeim sem ábyrgð bera á mannrétt-
indabrotum frömdum í stjórnartíð
Saddams Hussein.
Bandarísk yfirvöld hafa tekið
pólitíska ákvörðun um að birta
myndir af líkum Odais og Qusais,
sona Saddams Hussein. Í Genfar-
sáttmálanum er ekki að finna skýrt
bann við birtingu mynda af líkum
en andi laganna er sá að virða beri
reisn allra, lifandi og látinna. Því
telur Amnesty International að
æskilegt hefði verið að birta ekki
myndir af líkunum.“
Íslandsdeild Amnesty International
Æskilegt hefði
verið að birta ekki
myndir af líkunum
EMAX EHF. hefur sett upp ör-
bylgjusenda fyrir háhraðanetteng-
ingar í Skorradal og stendur sum-
arhúsaeigendum og íbúum í
Skorradal til boða að kaupa þjón-
ustu eMax. Útsendingar eru hafn-
ar og þegar hafa á annan tug
áskrifenda tekið þjónustu eMax,
jafnt íbúar í sveitarfélaginu sem
og sumarhúsaeigendur, skv.
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Grunnsambandið upp í Skorradal
er á vegum Fjarska ehf. Sendar
eMax eru á bænum Vatnsenda við
norðanvert vatnið og við Haga að
sunnanverðu.
EMax undirbýr uppsetningu á
sambærilegri þjónustu fyrir sum-
arhúsabyggðir víðar á Suðvestur-
landi.
Einnig hefur eMax í samstarfi
við Fjarska sett upp senda í Borg-
arnesi og að hluta til í uppsveitum
Borgarfjarðar. Frekari uppsetning
á sendum er áformuð í ágúst.
eMax er í samstarfi við tölvubónd-
ann, Sverri Guðmundsson á Vest-
urlandi.
EMax rekur örbylgjukerfi þar
sem öryggisstaðlar eru af sömu
gæðum og í DSL-lausnum síma-
fyrirtækjanna. Lausnir af þessu
tagi henta sveitarfélögum og
dreifðari byggðum, þar sem ekki
stendur til að bjóða upp á DSL-
lausnir. Nú þegar rekur eMax öfl-
ugt og víðfeðmt dreifikerfi á Ár-
borgarsvæðinu í samstarfi við
Toppnet í Þorlákshöfn. Sambæri-
legt kerfi er í uppsetningu á Ak-
ureyri og í Eyjafjarðarsveit. Von-
ast er til að uppbyggingu þar ljúki
í ágúst. EMax rekur eigið fjar-
skiptakerfi á höfuðborgarsvæðinu
og þjónustar bæði einstaklinga og
fyrirtæki með háhraðatengingar
og býður upp á heildarlausnir
varðandi netþjónustu, hvort sem
er hýsingar, póstþjónusta eða vist-
un gagnagrunna.
Háhraðanet í boði
í Skorradal
FYRSTA sumarönn meistara-
náms á Bifröst var sett form-
lega við hátíðlega athöfn í
Kringlunni í gamla skólahúsinu
20. júlí sl. Það gerði Magnús
Árni Magnússon aðstoðarrekt-
or í fjarveru Runólfs Ágústs-
sonar rektors. Heiðursgestur
athafnarinnar var dr. Jón Sig-
urðsson, fyrrverandi rektor á
Bifröst, og ávarpaði hann meist-
aranemana í tilefni dagsins.
Tuttugu og þrír nemendur
eru skráðir í þennan fyrsta hóp
meistaranema á Bifröst; 15 í
MS-nám í viðskiptafræði og 8 í
MA-nám í hagnýtum hagvísind-
um. Nemendurnir búa á Bifröst
í 4 vikur á meðan á sumarönn
stendur.
Sumarönn
meistara-
náms á
Bifröst
MARGRÉT Sigurðardóttir sveitar-
stjóri Grímsnes- og Grafnings-
hrepps og Guðmundur Jónsson for-
stöðumaður Byrgisins undirrituðu
samning sl. laugardag um að Byrgið
taki að sér rekstur sundlaugarinnar
á Ljósafossi. Sundlaugin hefur verið
lokuð í sumar vegna fyrirhugaðra
endurbóta og tengingar við Hita-
veitu Grímsness. Við upphaf fram-
kvæmda kom hins vegar í ljós að
talsverðar skemmdir höfðu orðið á
húsnæði sundlaugarinnar sem rekja
má til jarðskjálftanna árið 2000. Við-
lagatrygging Íslands lagði mat á
skemmdirnar og mun Byrgið fá þær
tryggingarbætur sem hreppnum
voru dæmdar og skulu þær renna til
endurbóta og viðhalds á sundlaug-
inni. Tilgangurinn með samningi
þessum er annarsvegar sá að þjón-
usta íbúa og gesti sveitarfélagsins og
hinsvegar á rekstur sundlaugarinn-
ar að vera þáttur í meðferðarstarf-
semi Byrgisins.
Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri og Guðmundur Jónsson, forstöðu-
maður Byrgisins, ásamt Jóni Arnari, þar sem þau undirbúa undirskrift.
Byrgið tekur við rekstri
sundlaugar á Ljósafossi