Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 6
HÉRAÐSDÓMUR Suður-
lands hefur veitt Kaupfélagi
Árnesinga áframhaldandi
greiðslustöðvun til 31. október
nk. Á kröfuhafafundi með lána-
drottnum félagsins 28. júlí sl.
var því lýst yfir að sótt yrði um
áframhald greiðslustöðvunar
sem staðið hefur síðan 14. júlí,
en kaupfélagið á í miklum fjár-
hagsvandræðum. Á greiðslu-
stöðvunartíma verður unnið að
fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu félagsins og leitað nauða-
samninga við lánadrottna. KÁ
skuldar 320 milljónir umfram
eignir. Starfsemi félagsins
verður með óbreyttum hætti á
greiðslustöðvunartíma.
Áframhald-
andi greiðslu-
stöðvun
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Borgartúni 28 • Sími 562 5000 • www.bjorninn.is
Eldhúsinnréttingar • Innihurðir
Baðinnréttingar • Fataskápar
I n n r é t t i n g a r
• Fjölbreytt úrval innréttinga.
• Verð við allra hæfi.
• Hönnun og ráðgjöf.
FERÐAKORT Landmælinga Ís-
lands 1 til 3 sem út komu hjá stofn-
uninni í ár og fyrra voru gagnrýnd í
grein eftir Ágúst H. Bjarnason sem
birtist í Morgunblaðinu í gær. Í
grein sinni segir Ágúst að óná-
kvæmni gæti í merkingum, bæjar-
nöfn hafi skolast til, hæðartölum við
jökla sé sleppt og skil á milli sveitar-
félaga sé hvergi að finna, svo dæmi
séu nefnd. Magnús Guðmundsson,
forstjóri Landmælinga Íslands, seg-
ir útilokað að birta allar upplýsingar
á ferðakortum af stóru svæði á jafn
litlum mælikvarða. Farið verði yfir
athugasemdir Ágústar.
Ágúst tiltekur fjölmörg dæmi um
það sem hann telur að betur hefði
mátt fara við vinnslu kortanna.
„Þarna eru hlutir
sem eru réttir“
Magnús Guðmundsson segir
gagnrýni Ágústar á nýju ferðakortin
vera persónulegt mat greinarhöf-
undar sem litið verði til við endur-
skoðun á kortinu, eins og gildi um
allar athugasemdir sem birtast
Landmælingum Íslands. „Það eru
þarna hlutir sem eru réttir sem við
að sjálfsögðu munum taka tillit til,“
segir Magnús, sem segir það
ánægjuefni að fjallað sé um kort
Landmælinga Íslands á listasíðum
Morgunblaðsins.
Hann segir athugasemdir vegna
kortanna hafa verið fáar og t.d. hafi
einungis 20 athugasemdir borist í
tengslum við gerð fyrsta kortsins af
þremur sem kom út á síðasta ári.
Mikil og góð viðbrögð hafi al-
mennt komið frá ferðafólki með nýju
kortin. „Þessi kort eru sérstaklega
sniðin að þörfum ferðamanna, sér-
staklega þeirra sem ferðast um á
bílum og fólk hefur verið ánægt með
nýju þjónustuupplýsingarnar og líka
mjög ánægt með kortblaðaskipt-
inguna, þ.e. að nú eru þrjú kort í
staðinn fyrir níu áður.
Þessi nýju kort leysa raunveru-
lega af hólmi tiltölulega gömul kort
sem byggja á grunni sem er allt að
50 ára gamall. Og við höfum unnið
töluvert mikla þróunarvinnu í þessu
verkefni og stærsta skrefið var að
nú eru kortin algerlega unnin staf-
rænt sem gerir allar breytingar
miklu fljótlegri,“ segir Magnús.
Hann segir útilokað að birta allt
sem menn langi til, kortagerðar-
menn Landmælinga Íslands þurfi að
velja og hafna því hér sé um ferða-
kort að ræða sem sýni stórt svæði í
litlum mælikvarða. Um 15–16 þús-
und örnefni og merkingar er að
finna í kortunum, að hans sögn.
Magnús segir nánast ómögulegt
að gefa út villulaust skjal af þessari
stærðargráðu með jafn miklum upp-
lýsingum, það hafi engum tekist
fram á þennan dag.
Hann segir jafnframt að starfs-
menn Landmælinga Íslands viti
ekki um villur á kortunum sem skaði
eða séu ferðamönnum hættulegar
„og við fögnum því ef fólk skilar inn
athugasemdum við kortin, það er
aðferð sem er notuð um allan heim,
þ.e. að ferðamenn eru í rauninni
bestu endurskoðendur kortanna“.
Magnús vill benda fólki á sem sér
í kortunum eitthvað sem betur
mætti fara að senda stofnuninni
tölvupóst á netfangið: www.lmi-
@lmi.is.
Forstjóri Landmælinga Íslands
um gagnrýni á ný ferðakort
Útilokað að birta
allar upplýsingar
ÞAÐ ríkti stormandi sigurstemning
meðal Íslendinga á heimsmeistara-
mótinu í Herning þegar Jóhann R.
Skúlason og Snarpur frá Kjartans-
stöðum skutust í efsta sætið í tölt-
keppninni með góðu forskoti á næsta
keppanda sem var hinn vinsæli Norð-
maður Stian Pedersen sem keppir á
Jarli frá Miðkrika. Var Jóhann með
8,97 en sá norski með 8,57. Jóhann og
snarpur voru með frábærlega góða
sýningu og var þeim langt í frá ofgef-
ið og töldu margir að við hæfi hefði
verið að fara yfir níuna. Þessi árang-
ur léttir mjög á liðsandanum en í
gærkvöldi afskráði Sigurður Sæ-
mundsson landsliðseinvaldur Jóhann
og Snarp úr B-úrslitum í fjórgangi og
eru mestar líkur á að Daníel Ingi
Smárason mæti í stað hans í úrslitin
en þeir voru í ellefta sæti. Með þessu
er verið að spara Snarp fyrir átökin í
töltúrslitunum og veitir ekki af því
hann varð fyrir óhappi eftir keppnina
í dag þegar hann steig á reiðhjól og
festist í því og meiddist lítillega en
talið er að það muni ekki há honum á
sunnudag.
Sænska stúlkan Alexandra Mont-
an er í þriðja sæti á Braga frá Allen-
bach með 8,33 en Hafliði Halldórsson
og Ásdís frá Lækjarbotnum eru í
fjórða sæti og Jolly Schrenk, Þýska-
land, á Laxnesi von Störtal er í
fimmta sæti með 8,00. Sá keppinaut-
ur sem Íslendingar höfðu óttast
mest, Karly Zingsheim á Dökkva frá
Mosfelli, hafnaði í sjötta sæti og þarf
því að fara í B-úrslit. Varð Karly fyrir
því óhappi að missa skeifu undan
Dökkva skömmu eftir að þeir skiptu
yfir á yfirferðartölt. Telja verður lík-
legt að þeir muni sigra í B-úrslitun-
um og þá er það spurningin hversu
mikið þeir eiga inni vegna skeifna-
missisins.
Ekki gekk nógu vel í skeiðinu hjá
Íslendingum en bestum tíma þeirra
náði Svanhvít Kristjánsdóttir á Sif
frá Hávarðarkoti 22,04 sek. og er hún
í fjórða sæti. Sveinn Ragnarsson er í
sjötta sæti á Skjóna frá Hofi á 23,12
sek. En Hersir frá Hvítárholti lá ekki
hjá Guðmundi Einarssyni en þeir fá
einn aukasprett í dag þar sem tíma-
tökubúnaður bilaði í fyrri sprett hjá
þeim. Það eru hins vegar Svíarnir og
nafnarnir Magnús Skúlason á Mjölni
frá Dalbæ og Magnus Lindquist á
Þór frá Kalvsvik sem tróna á toppn-
um Skúlason á 21,56 sek. en Lind-
quist á 21,68 sek. Seinni sprettir
verða farnir í dag.
Sigurður Sæmundsson liðsstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þessi góða frammistaða hefði vissu-
lega stórlétt andrúmsloftið. Taldi
hann að nú sæist hilla í þrenn gull-
verðlaun auk tvennra gullverðlauna
hjá ungmennum. Átti hann þá við sig-
ur í tölti og fimmgangi og 100 metra
flugskeiði. Hann taldi mjög erfitt að
eiga við Svíana í 250 metrunum og
eins væri þetta illvinnanlegt í fjór-
gangnum en ekki taldi hann útilokað
að Tómas Örn Snorrason gæti hugs-
anlega unnið slaktaumatöltið og þar
með yrðu gullverðlaunin fjögur.
Ljóst er að Íslendingar eiga ekki
möguleika á sigri í samanlögðum
stigum. Þar er Stian Pedersen nú
þegar búinn að sigra fjórgangsmegin
og vísast ætti Johan Häggberg
tryggan sigur á fimmgangsvængnum
eftir ævintýralegar tölur. Þá taldi
Sigurður að Eyjólfur myndi láta kné
fylgja kviði í fimmgangi og vinna
ungmennagullið þar. Frekari fréttir
er að finna á mbl.is.
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum í Herning
Tímamótatöltsýning
hjá Jóhanni og Snarpi
Herning. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Vakri
Jóhann Skúlason á Snarpi frá Kjartansstöðum er efstur í töltinu.
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
síðustu daga lagt sérstaka áherslu
á að leita að fíkniefnum í pósti
sem fer út á landsbyggðina og á
Umferðarmiðstöðinni í Vatnsmýri
og á Reykjavíkurflugvelli.
Karl Steinar Valsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn segir að sex
fíkniefnahundar hafi veri notaðir
við leit að fíkniefnum en þeir hafi
engin fíkniefni fundið. „Við höfum
verið að finna fíkniefni í öðrum
leitum, sem talið er líklegt að hafi
verið ætluð til neyslu um helgina,
en við leit á þessum stöðum höf-
um við ekkert fundið,“ segir
hann. Hann segist vonast til þess
að umræða um fíkniefnavanda að
undanförnu hafi verið fyrirbyggj-
andi og að öflugt eftirlit lögreglu
á sýnilegum stöðum hafi letjandi
áhrif á neyslu þessara efna.
Morgunblaðið/Júlíus
Þorsteinn Hraundal lögreglumaður skoðar farangur ferðamanns á BSÍ í
gær. Eitthvað pirraði farangur ferðalangans þefskyn lögregluhunds. Allt
var þó með felldu og ekkert ólöglegt fannst.
Leitað að fíkniefnum
THOMAS Möller hefur ákveðið
að víkja sæti í stjórn Landssíma
Íslands hf. á meðan rannsókn á
meintu samráði olíufélaganna
stendur yfir. Thomas hóf störf
hjá Olís - Olíuverslun Íslands hf.
árið 1993 en lét af störfum í maí
2002. Síðustu árin hjá Olís
gegndi hann starfi fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs
þjónustustöðva Olís. Thomas
tók sæti í stjórn Símans 11.
mars 2002.
Thomas tilkynnti stjórnarfor-
manni Símans, Rannveigu Rist,
þessa ákvörðun sína í gær. „Á
þessu stigi málsins tel ég þetta
rétta ákvörðun hjá mér,“ sagði
Thomas þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann í gær.
Að sögn Rannveigar mun Sig-
ríður Finsen, varamaður í stjórn
Símans, taka sæti Thomasar.
Víkur sæti í
stjórn Símans
Thomas MöllerUM 65% landsmanna eru hlynnt
veru bandaríska hersins á Íslandi og
um 71% eru hlynnt veru Íslands í
NATO (Atlantshafsbandalaginu), ef
marka má niðurstöður nýrrar könn-
unar Þjóðarpúls Gallups. Þetta er
svipuð niðurstaða og fram kom í
sambærilegri könnun Gallup í októ-
ber 2001. Þá voru 67% hlynnt veru
bandaríska hersins á Íslandi og 74%
hlynnt veru Íslands í NATO.
Karlar hlynntari hernum
Könnun Gallups var símakönnun
dagana 9. til 22. júlí sl. Úrtakið var
1.135 manns á aldrinum 18 til 75 ára.
Það var valið með tilviljun úr þjóð-
skrá og var svarhlutfallið 66%.
Skv. könnuninni eru karlar
hlynntari veru hersins hér á landi en
konur; um 78% karla eru hlynnt veru
hersins á móti 63% kvenna. Þá er
fólk á aldrinum 25 til 44 ára hlynnt-
ara veru hersins hér á landi en fólk í
yngri og eldri aldurshópum.
Í könnuninni kemur einnig fram
að stuðningsmenn ríkisstjórnar-
flokkanna eru hlynntari veru hersins
og aðild Íslands að NATO en fylg-
ismenn annarra flokka.
Um 65% segjast
hlynnt veru hersins