Morgunblaðið - 02.08.2003, Qupperneq 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 19
VINNUSKÓLI Seltjarnarness hélt
lokahátíð sína síðasta fimmtudag
með tilheyrandi grillveislu og
leikjum. Um 100 ungmenni lögðu
leið sína út í Viðey ásamt leiðbein-
endum sínum og fóru í ævin-
týraferð sem seint mun renna
þeim úr minni.
Steinunn Árnadóttir, umsjón-
armaður vinnuskóla Seltjarn-
arness, segir það vera gamla hefð
að heimsækja Viðey, en eins og
kunnugt er tilheyrði eyjan Sel-
tjarnarnesi fyrr á öldum. „Við för-
um gjarnan út í Viðey, ekki síst til
að rifja upp söguna, því þarna var
fyrsta skólasetur Seltirninga. Við
vorum reyndar ekki heppin með
veður, því það var gríðarlega
hvasst. Við vorum því mest inni
við við leiki og spil, og svo var líka
dorgað á bryggjunni og nokkuð
fiskað. Krakkarnir láta ekki neitt
svona á sig fá, enda ýmsu vön.“
Takmarkalaus þolinmæði og
æðruleysi á raunarstund
Mjög reyndi þó á þolinmæði og
þrautseigju unga fólksins þegar
langþráð grillveisla átti að hefjast,
en þá lenti hópurinn í leiðinlegu
en þó spaugilegu óhappi, sem
væntanlega mun verða skemmtileg
kvöldsaga í framtíðinni. „Það hljóp
neisti úr grillinu í hamborgara-
kassann okkar í slæmri vindhviðu
og hann stóð í ljósum logum á
mjög skömmum tíma. Þetta endaði
á því að allir hamborgararnir okk-
ar brunnu til kaldra kola og ekk-
ert varð af hamborgaragrilli í Við-
ey. Þá gripum við á það ráð að
sigla hið snarasta í land. Það var
gríðarlegt úrhelli á leiðinni til
baka og ég dáist að krökkunum
hvað þau voru hörð af sér, sterk
og prúðmannleg. Þessir krakkar
eru svo kurteisir og flottir. Þau
voru svöng og hrakin en létu það
ekkert á sig fá og héldu góða
skapinu. Síðan keyptum við nýja
hamborgara og grilluðum þá í Ís-
birninum sögufræga sem Bubbi
söng um, en þar eru aðalstöðvar
Vinnuskólans.“
Allt fór þannig vel að lokum og
þreyttir og svangir unglingarnir
hámuðu í sig varahamborgarana
af bestu list og brugðu á leik.
Steinunn segir þennan árgang
vinnuskólans engar liðleskjur og
einn þann besta um árabil. Hún er
stolt af dugnaði þeirra og fádæma
æðruleysi. „Þessir krakkar eru
sérlega duglegir og búni að vera
iðnir og vinnusamir og til fyr-
irmyndar í sumar. Bærinn hefur
sjaldan verið hreinni og fallegri.
Ég er mjög stolt af mínu fólki og
sé að nú eru að koma sterkir ár-
gangar út í atvinnulífið á næstu
árum.“
Vinnuskóli Seltjarnarness heldur lokahátíð
Grátbrosleg Viðeyjarferð
Seltjarnarnes
Unglingarnir í Vinnuskóla Seltjarnarness létu vonda veðrið sem vind um
eyru þjóta og skemmtu sér vel. Þessar stúlkur dorguðu og veiddu vel.
•Heilsmíðuð bóma - 4,5m
•Armur - 2,45 m
•Ýtublað - 2500 mm
•Vökvahraðtengi
og lagnir fyrir hamar
og tiltskóflu
•Vandað hús
www.merkur.is
594 6000
Skútuvog i 12a
A314 Litronic
hjólagrafa
Frábært verð
Til afgreiðslu strax