Morgunblaðið - 02.08.2003, Qupperneq 24
HEILSA
24 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á að reyna eftir fremsta megni að fá fólk með fé-
lagsfælni á mannamót ef viðkomandi vill helst
vera heima?
SVAR Í raun er svarið við spurninguþinni frekar einfalt, þ.e., Já, það
er mikilvægt að reyna að fá einstakling með fé-
lagsfælni á mannamót. Til að átta sig betur á
hvers vegna þetta skiptir miklu máli og getur
hjálpað einstaklingi sem haldinn er félagsfælni,
er mikilvægt að skoða aðeins grunneinkenni fé-
lagsfælni og hverskonar vítahringur viðheldur
félagsfælninni. Einstaklingur, sem haldinn er
félagsfælni, er í grunninn kvíðinn í félagslegum
aðstæðum. Auk kvíðans einkennist félagsfælni
af neikvæðum hugsunum sem virðast skjótast
ósjálfrátt upp í hugann og auka kvíðann. Hugs-
anir þessar gætu t.d. verið einhverjar af eftir-
farandi: „Ég er er að roðna/svitna/skjálfa… ,
fólk tekur eftir því“, „Ég mun segja eitthvað
vitlaust“, „Ég mun gera mig að fífli“, „Fólk
mun hlæja að mér“. Þessar hugsanir auka
kvíðann og kvíðinn eykur í framhaldinu
hugsanir á borð við þessar fyrrnefndu. Mik-
ilvægt er að vinna með þessar hugsanir til að
ná betri tökum á kvíðanum. Ég ætla hinsvegar
ekki að útskýra það frekar heldur útskýra
aðeins það sem tengist meira spurningu þinni.
Það sem gerist hjá einstaklingi, sem haldinn
er félagsfælni, er að hann finnur fyrir kvíða í
félagslegum aðstæðum og fyrrnefndar hugs-
anir ásækja hann/hana í þessum aðstæðum.
Kvíðinn byrjar jafnvel að láta kræla á sér ein-
göngu við það að plana eða hugsa um komandi
félagslegar aðstæður. Vítahringurinn, þar sem
hugsanir auka kvíða og öfugt, tengist ekki ein-
göngu hugsunum og tilfinningum heldur líka
hegðun. Það er, sá félagsfælni fer meira og
meira að forðast félagslegar aðstæður; fer ekki
í veislur, út í búð eða hvert þangað sem annað
fólk er. Hann/hún hagræðir jafnvel lífi sínu
þannig að hægt sé að forðast þessar félagslegu
aðstæður og nær þar af leiðandi ekki að „þjálf-
ast“ í félagslegum aðstæðum. Í hvert sinn sem
hann/hún kemur sér undan félagslegum að-
stæðum trúir einstaklingurinn því stöðugt að
hann/hún hafi forðað sér frá óþægindum, at-
hlægi eða kvíða. Margir sem þjást af félags-
fælni hafa jafnvel hagrætt lífsstíl sínum, vinnu
og áhugamálum, að félagsfælninni, þ.e.a.s. ekki
er óalgengt að þessir einstaklingar velji sér
starf þar sem han/hún vinnur einn, og áhuga-
málunum er hægt að sinna heima við í einrúmi,
s.s. sjónvarpsáhorf eða tölvutengd áhugamál.
Ástæðan fyrir valinu á þesskonar áhugamálum
getur t.d. verið sú að einfaldara og öruggara er
að vera í netsamskiptum (spjallrásir/
nettölvuleikir) við aðra en að vera í „alvöru –
maður á mann“ samskiptum.
Ef við skoðum þetta út frá atferlishluta hug-
rænnar atferlismeðferðar þá er mjög mikil-
vægur þáttur í meðferð við félagsfælni, að
hjálpa einstaklingnum að brjótast út úr því ör-
yggisneti sem hann hefur búið sér til. Þar af
leiðandi er það besta ekki að styðja stöðuga
heimaveru heldur frekar að hvetja einstakling-
inn til að fara á mannamót og vera í félags-
legum samskiptum við aðra. Hinsvegar er mik-
ilvægt að hafa hugfast að við getum ekki hrint
fólki út í eitthvað sem það treystir sér alls ekki
í. Einu sinni var það talin góð meðferð að
henda vatnshræddum einstakling út í djúpu
laugina til að losa hann/hana við vatnshræðsl-
una, en í dag viljum við frekar hjálpa ein-
staklingum með kvíða og fælni stig af stigi.
Þannig að best væri að leggja sig fram við að
sýna félagsfælnum einstaklingi skilning á fæln-
inni en jafnframt reyna að fá samvinnu hans/
hennar í þá átt að auka smám saman félagslega
virkni. Í stað þess að byrja á 300 manna ferm-
ingarveislu, þar sem hann/hún þekkir engan
eða fáa, er betra að byrja á minni hóp t.d. með
kunningjum, og svo stig af stigi fara út í erf-
iðari og meira krefjandi félagslegar aðstæður
eins og stærri mannamót.
Gangi þér vel.
Félagsfælni
eftir Björn Harðarson
Einkennist af neikvæðum
hugsunum og kvíða
...........................................................
persona@persona.is
Höfundur er sjálfstætt starfandi sálfræðingur.
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurn-
ingum varðandi
sálfræði-, fé-
lagsleg og vinnu-
tengd málefni til sérfræðinga
á vegum persona.is. Senda
skal tölvupóst á persona@per-
sona.is og verður svarið jafn-
framt birt á persona.is.
S
JÖTTA geðorðið um að
flækja ekki líf sitt að
óþörfu er í hrópandi
mótsögn við skilaboð
auglýsinganna þar sem
reynt er að sannfæra fólk um
nauðsyn þess að eignast tölvu, far-
síma og fleira til að geta lifað af
daginn. Mikilvægt er að átta sig á
því að þessir hlutir eru ekki nauð-
synlegir til að okkur geti liðið vel.
Skilaboð auglýsinganna ýta
undir það að okkur langi alltaf í
meira og meira og að við gleym-
um því sem við nú þegar eigum.
Ef mann langar alltaf í eitthvað sem maður ekki á, þá verður maður aldrei
hamingjusamur. Til þess að finna hamingjuna verður maður að kunna að
meta og njóta þess sem maður á.
Að einfalda líf sitt felur ekki í sér að afneita öllum tækninýjungum því
þær geta stundum hjálpað til við að einfalda lífið. Fólk þarf bara að læra að
nota tæknina á skynsaman hátt og átta sig á því að það er hægt að slökkva á
tækjunum stöku sinnum. Það er heldur ekki mælt með því að losa sig við all-
ar flækjur því margt af því sem flækir lífið gerir það þess virði að lifa því.
Mannleg samskipti eru flókin en ekki væri farsælt að sleppa þeim.
Orkuþjófur
Ákveðnar flækjur eru alltaf slæmar og orkukrefjandi og þær þurfum við
að forðast.
Sjötta geðorðið segir nefnilega: Flæktu ekki líf þitt að óþörfu. Við þurfum
að greina hvaða flækjur taka frá okkur orku og hvaða flækjur auðga lífið.
Að flækja okkur í óþarfa áhyggjur tekur frá okkur orku. Það reynist ekkert
auðveldara að takast á við eitthvert vandamál eða verkefni þótt við höfum
haft áhyggjur af því á undan. Að halda að maður geti ekki verið án einstakra
veraldlegra hluta flækir lífið einnig að óþörfu og kemur í veg fyrir að við
getum notið þess sem við eigum núna. Að flækja sér í eigin hugsanir um allt
sem maður á eftir að gera eykur einnig spennu og streitu í lífinu. Óheið-
arleiki getur einnig flækt lífið og tekið frá okkur það sem okkur er dýrmætt.
Reynum að finna óþarfa flækjurnar í lífi okkar og losum okkur við þær,
losum okkur við áhyggjur af því sem á eftir að gera og njótum þess að vera
til í dag. Njótum lífsins í sátt við okkur sjálf og þökkum fyrir allt það góða
sem við eigum eins og fjölskyldu og vini sem auðga líf okkar.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Geðræktar.
Frá Landlæknisembættinu.
Heilsan í brennidepli
6. geðorðið:
Flæktu ekki líf
þitt að óþörfu
Til þess að finna hamingjuna
verður maður að kunna að meta
og njóta þess sem maður á.
ÍTALSKIR vísindamenn fullyrða að
pítsuát dragi stórlega úr hættu á
krabbameini í vélinda og minnki
jafnframt líkur á ristilkrabba og
krabbameini í munni, að því er seg-
ir í netfrétt BBC.
Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna
niðurstöður ítölsku vísindamann-
anna, þeirra á meðal Nicola
O’Connor hjá bresku Krabbameins-
rannsóknamiðstöðinni, sem er
þeirrar skoðunar að líklega dragi
pítsuát ekki úr líkum á myndun
krabbameins heldur almennt mat-
aræði og neyslumynstur það sem
kennt er við Miðjarðarhafið.
„Áður en fólk pantar sér pítsu
ætti það að huga að innihaldi henn-
ar, en oft er um mikinn fjölda hita-
eininga að ræða, of mikið salt og
mettaða fitu sem ekki er æskilegt í
miklum mæli,“ segir O’Connor.
Tekið er þó fram að pítsur á Ítalíu
séu yfirleitt heilsusamlegri en víða
annars staðar á Vesturlöndum þar
sem notaður er feitari ostur og fitu-
meira kjöt.
Hugsanleg ástæða þessarar nið-
urstöðu ítölsku vísindamannanna
getur einnig verið þráavarnarefnið
lycopene sem er að finna í tómötum
í ríkum mæli en talið er að það efni
geti hugsanlega veitt krabbameini
viðnám.
Í rannsókn Ítalanna var leitað til
meira en 3.000 einstaklinga sem
höfðu fengið krabbamein og yfir
5.000 einstaklinga sem ekki höfðu
fengið krabbamein. Þeir sem borða
pítsu einu sinni í viku eða oftar eiga
síður á hættu að fá krabbamein í
vélinda, ristli eða munni, samkvæmt
rannsókninni sem gerð var á Mario
Negri, lyfjafræðilegri rannsókna-
miðstöð í Mílanó.
Morgunblaðið/Ásdís
Vísbendingar eru um að þráavarnarefni (lycopene), sem er meðal annars
að finna í pítsusósu, dragi úr líkum á krabbameini.
Dregur pítsuát
úr líkum á
krabbameini?
ÞEKKTAR vindlingategundir innihalda sumar
hverjar mjög ávanabindandi nikótín sem talið er
hafa svipuð áhrif á neytendur og krakk-kókaín, að
því er kemur fram í bandarískri rannsókn og greint
er frá á thisislondon.co.uk.
Vísindamenn við háskólann í Oregon-fylki í
Bandaríkjunum, hafa komist að því að áhrifa þessa
ávanabindandi nikótíns gætir sér í lagi fyrst í stað
þegar kveikt er í vindlingnum og að áhrifin eru mis-
mikil á milli vindlingategunda. Þannig eru fyrstu
„púin“, eftir að kveikt er í, um 20-falt áhrifameiri í
ákveðnum tegundum vindlinga en öðrum.
Flestar vindlingategundir innihalda samt sem
áður svipað magn nikótíns, en rannsóknin er fyrst
til þess að mæla magn þessarar sérstöku tegundar
nikótíns sem talin er vera sérlega ávanabindandi.
Vindlingar frá tóbaksframleiðandanum Marl-
boro eru samkvæmt rannsókninni taldir innihalda
allt að 10% af þessu ávanabindandi nikótíni í fyrstu
þremur „púunum“. Winston inniheldur allt að 6%,
Camel næstum 3% og Gauloises Blonde allt að
7,5%.
Nikótínið berst ofan í lungun áður en það stefnir í
átt að heilanum þar sem „kikkið“ á sér stað.
„Við teljum að með niðurstöðum þessarar rann-
sóknar höfum við komist nær því að skilja hvernig
ávanabindandi nikótíni er komið til skila við tób-
aksreykingar,“ segir prófessor James Pankow sem
er í forsvari rannsóknarinnar.
Mikið magn þessa ávanabindandi nikótíns er
einnig talið tengjast ammóníaki og vanabindandi
efnum sem sumir segja að sett séu í vindlinga en
tóbaksfyrirtækin neita því að aukaefnum sé bætt í
vindlinga til þess að auka löngunina í tóbak og
segja þessi efni einungis notuð til þess að bæta
bragðið.
Reuters
Vísindamenn telja að fyrstu áhrifin
þegar kveikt er í vindlingi séu mis-
munandi á milli tóbakstegunda
vegna ávanabindandi nikótíns sem
líkt er við krakk-kókaín.
Ávanabindandi nikótíni líkt við kókaín
VARASAMT er að herða bindis-
hnútinn of fast því það getur aukið
hættu á blindu, ef marka má litla
rannsókn sem gerð var af læknum
við augnmiðstöð í New York í
Bandaríkjunum nýlega og greint var
frá á fréttavef BBC.
Rannsóknin tók til 40 karlmanna
og mældur var þrýstingur á vökva í
auga fyrir og eftir að þeir settu á sig
bindi.
Í ljós kom að þrýstingur á augn-
knöttinn jókst þegar hnúturinn var
hertur um of og vara læknarnir af
þeim sökum við því að of mikill
þrýstingur í langan tíma geti mynd-
að gláku.
Gláka er augnsjúkdómur sem ein-
kennist af auknum þrýstingi í auga
og er algengasta orsök ólæknan-
legrar blindu.
Helmingur karlanna sem þátt
tóku í rannsókninni hafði greinst
með gláku en hinn helmingurinn var
heilbrigður. Þegar bindishnúturinn
var hertur verulega jókst þrýstingur
hjá um 60% glákusjúklinga og hjá
um 70% þeirra sem voru heilir heilsu
en um leið og hnúturinn var leystur,
féll þrýstingur aftur í eðlilegt horf.
Sérfræðingarnir segja að bindis-
hnúturinn sé rót vandans því hann
þrengir að hóstarbláæðinni sem flyt-
ur blóð frá höfði að hjarta.
Þegar bindishnútur er hertur veru-
lega eykst þrýstingur í augum skv.
bandarískri rannsókn.
Bindishnútar geta
skemmt sjónina