Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 26
LISTIR 26 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HANN er á ferðinni hérlendis í 15. sinn og segist vera svo lán- samur að dvelja hér aldrei sem ferðamaður heldur kynnast Ís- landi með augum Íslendingsins. „Ég á svo marga íslenska vini sem ég hef gaman af því að gleðja með löngum og óvæntum heimsókn- um,“ segir hann og skellihlær. Barnsleg kátínan er eitt helsta einkenni hans strax við fyrstu kynni og kemur kannski ekki svo á óvart að hann hefur til þessa samið 43 barnabækur og er með einar níu í smíðum. Ofvirkur? „Nei, ég hef bara svo gaman af því sem gerist í höfðinu á mér. Ég vil ekki missa af neinu sem þar gerist,“ segir hann. Þetta er Bruce McMillan, rit- höfundur og ljósmyndari frá Maine í Bandaríkjunum, sem lík- lega hefur gert meira fyrir kynn- ingu á Íslandi en margur annar sem hærra lætur á þeim vett- vangi. Nokkrar bóka hans gerast á Ís- landi þar sem persónur eru ís- lenskar og atburðarásin dregin beint úr íslenskum veruleika; hann semur sögurnar sem ljós- myndasögur, og skrifar svo við texta, og eljan og vinnusemin við að ná því fram sem hann ætlar sér er með hreinum ólíkindum. Þrátt fyrir glaðværðina þá er McMillan fagmaður fram í fingurgóma og bækur hans njóta mikilla vinsælda vestanhafs eins og fjöldi útgefinna bóka ber greinilega með sér. „Ég fæ hugmynd að sögu, eins og t.d. sögunni Pysjunótt sem gerist í Vestmannaeyjum. Þá byrja ég á því að dvelja á staðnum og taka allar þær myndir sem mér finnst sagan kalla á. Síðan fer ég heim til Maine og skrifa söguna út frá myndunum. Þá kemur í ljós að mig vantar einhverjar myndir til að segja söguna nákvæmlega eins og ég vil hafa hana og þá fer ég aftur til Íslands og tek þær mynd- ir. Svo klára ég söguna og tek til við hönnun bókarinnar því ég geri það allt sjálfur líka. Þetta er ein heild í mínum huga, myndir, texti og útlit bókarinnar.“ Samstarf við íslenska listakonu Tvær bækur sem Bruce McMill- an er með smíðum núna gerast báðar á Íslandi en eru giska frá- brugðnar hvor annarri. Önnur ger- ist við Breiðafjörð og segir frá sex ára dreng sem vill gerast fiskimað- ur eins og afi hans. Hann fær að fara í róður með afanum og kemur í land reynslunni ríkari. Hin bókin er innblásin af málverkum íslensku listakonunnar Guðrúnar Elínar Ólafsdóttur, Gunnellu, og segir frá því sem gerðist þegar hænsnin vildu verða eins og fólk. „Mér finnast myndir Gunnellu alveg frábærar og það besta við þær er að það er ekki hægt annað en að brosa um leið og maður sér þær. Það er svo mikill húmor í myndunum. Eins og t.d. myndin af íslenska hestinum. Það dularfulla við íslenska hestinn er að hann virkar lítill en er í rauninni stór. Þetta hef ég margoft reynt að út- skýra fyrir vinum mínum í Banda- ríkjunum með litlum árangri en ég held að myndin skýri þetta full- komlega.“ Bruce segir þetta óvenjulega bók fyrir sig því myndirnar ráði al- gjörlega ferðinni og hann semji eingöngu textann. „Bókin á að heita: Hvað kom fyrir hænsnin?“ Hann segist hafa samið textann við eldhúsborð vina sinna á Sauð- árkróki í Skagafirði núna í júlí og sé sannfærður um að þetta verði vinsæl bók og myndir Gunnellu eigi eftir að vekja mikla og verðskuld- aða athygli. Fyrir nokkrum árum gaf Mál og menning út bókina Pysjunótt og einnig aðra bók hans sem gerist í Hvallátrum og segir frá lítilli stúlku sem tekur að sér að unga út og ala upp æðarunga. „Nú hafa orðið svo miklar breytingar á starf- semi Máls og menningar og óvissa á þeim bæ að ég auglýsi bara hér með eftir útgefanda á Íslandi.“ Hann skellihlær að þeirri spurn- ingu hvort hann sé kominn í hinn óformlega klúbb útlendra Íslands- vina. „Já, við John Travolta erum í þessum klúbbi. Hann fyrir að stoppa bara nógu lengi til að taka bensín á flugvélina og ég fyrir að vilja aldrei fara aftur heim þegar ég er kominn hingað.“ Vill hvergi annars staðar vera Bruce McMillan rithöf- undur frá Bandaríkj- unum hefur dvalist á Ís- landi ótal sinnum við gerð barnabóka sem njóta mikilla vinsælda vestanhafs. Hann hefur í sumar verið við Breiðafjörðinn og á Norðurlandinu. Úr myndaröð Gunnellu um hænsnin sem Bruce McMillan heillaðist af. havar@mbl.is Bruce McMillan við eldhúsborðið að skrifa Hvað kom fyrir hænsnin? ÞÝSKI stúlknakórinn Pfälzische Kurrende undir stjórn Carolu Bischoff er að hefja tónleikaferð hér á Íslandi um verslunarmanna- helgina og syngur á fyrstu tón- leikunum í Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 2. ágúst kl. 21. Píanóleikari er Sólveig Anna Jóns- dóttir. Á sunnudaginn kl. 14 syngur kórinn í helgistund í Kirkjunni í Dimmuborgum. Stúlknakórinn er frá Neustadt í Rheinland-Pfalz og er skipaður 21 stúlku á aldrinum 15–25 ára. Þær hafa unnið til margvíslegra verð- launa og viðurkenninga á ferli sín- um, m.a. fimm sinnum 1. verðlaun í árlegri kórakeppni Rheinland- Pfalz og fjórum sinnum hafa þær staðið á verðlaunapalli í kóra- keppni þýska sambandslýðveld- isins, nú síðast með fyrstu verð- laun í Osnabrück árið 2002. Þær hafa verið boðnar á tónlistarhá- tíðir, m.a. til Rússlands og Ísrael. Hér flytja þær þýska kórtónlist, bæði forna og nýja, evrópska madrígala og lög eftir Edvard Grieg og Pablo Casals. Stjórnandinn, Carola Bischoff, nam einsöng, kór- og hljómsveit- arstjórn við Tónlistarháskólann í Heidelberg-Mannheim. Hún hefur sungið einsöngshlutverk í flestum helstu verkum kirkjutónbók- menntanna og flutt óratoríur og mörg stærri verk með Kantorei der Pauluskirche sem hún stjórn- ar einnig. Hún stofnaði Pfälzische Kurrende fyrst sem blandaðan unglingakór en frá árinu 1995 hafa þær sungið sem kvennakór. Carola Bischoff mun einnig leið- beina íslenskum kórstjórum á námskeiði í Skálholti 11.–14. ágúst. Stúlknakórinn syngur einnig í hvelfingu Laxárstöðvar í Aðaldal, laugardaginn 2. ágúst kl. 14, við kvöldmessu í Glerárkirkju á sunnudag kl. 20.30 og síðast í Bú- staðakirkju þriðjudaginn 5. ágúst kl. 20. Þýskur stúlknakór í heimsókn GIORGIO Parolini leikur á hádeg- istónleikum Hallgrímskirkju í dag kl. 12 og á morgun, sunnudags- kvöld kl. 20. Á efnisskrá hádegistónleikanna er Ciaconu í d-moll eftir Johann Pachelbel, þá Rondó í G-dúr eftir ítalska tónskáldið Gioseppe Gher- ardeschi. Þar næst leikur hann Prelúdíu og fúgu um B-A-C-H eft- ir Franz Liszt og tónleikunum lýk- ur með Andantino eftir nútíma- tónskáldið Denis Bédard. Efnisskrá aðaltónleika helgar- innar annað kvöld kl. 20, er mjög fjölbreytt. Hún hefst með tónlist barokktímabilsins. Fyrst hljómar Tokkata, adagio og fúga í C-dúr, BWV 564, eftir Johann Sebastian Bach og síðan Grave og Flautu- sónata eftir Ítalann Giambattista Martini, Benedictus eftir Max Reger, Thème et Variations eftir Marco Enrico Bossi, Tilbrigði um stef eftir Clement Jannequin eftir Jehan Alain, Trompetlagi í F-dúr eftir Bandaríkjamanninn David N. Johnson, Adagio úr 5. orgelsinfón- íu Charles-Marie Widors og tón- leikunum lýkur með lokakaflanum, Finale úr 1. orgelsinfóníu Louis Viernes. Giorgio Parolini er fæddur 1971 og lauk diplomanámi í píanóleik, orgelleik og semballeik frá orgel- og spunadeild Tónlistarháskólans í Genf. Hann er virtur einleikari á orgel en kemur líka fram með kór- um, einsöngvurum og einleikurum. Hann hefur komið fram á Ítalíu og víða um Evrópu. Giorgio Parolini kennir við Civica Scuola di Musica í Cinisello Balsamo nálægt Mílanó og frá 1999 hefur hann verið org- anisti S. Eufemia basilíkunnar í Mílanó þar sem hann leikur á pneumatískt orgel smíðað af Balb- iani árið 1909. Ítalskur orgel- leikari Giorgio Parolini í Hallgrímskirkju. Hallgrímskirkja SÝNING á myndum Áslaugar Snorradóttur sem teknar voru sumarið 2002 fyrir bókina „about fish“ verður opnuð í Lónkoti laugardaginn 2. ágúst í galleríi Sölva Helgasonar (Sól- on Íslandus). Bókin fékk Hönn- unarverðlaun FÍT í janúar á þessu ári en hönnuður hennar er Sigrún Sigvaldadóttir. Um matreiðslu fyrir myndatöku sá Snorri B. Snorrason en hann töfraði fram ljúffenga rétti í Lónkoti nú í júní. Sýningin stendur út ágústmánuð. Bókin fæst í stærri bókabúðum, Lúp- ína gefur bókina út. 36 laxahausar. Sýnir ljós- myndir í Lónkoti Í GLUGGUM Linsunnar, Aðal- stræti 9, stendur yfir sýning á verk- um Sigríðar Ágústsdóttur, lista- manns mánaðarins í Linsunni. Öll verkin eru handmótuð og not- aður er leirlitur með ýmsum málm- oxíðum. Leirinn er brenndur í raf- magnsofni og síðan í reykbrennslu undir berum himni. Sýningin stendur til 20. ágúst. Leirlist í Linsunni SIGURDÍS Harpa Arnarsdóttir opn- aði í gær sýningu á blekmyndum á veitingastaðnum Kránni, Laugavegi 73. Myndirnar eru afrakstur vinnu hennar undanfarna mánuði, „þar sem leitað er fanga í feminíska undirvit- und beggja kynja.“ Myndirnar eru til sölu. Sýningin er opin á opnunartíma Kráarinnar virka daga frá kl 13–01 og um helgar frá kl. 13–03. Sýnir blekmyndir ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.