Morgunblaðið - 02.08.2003, Síða 37
ur var og fengið að starfa með hon-
um í mörg ár. Farinn er kærleiks-
ríkur og heill vinur.
Ver hjá mér, Herra, dagur óðum dvín,
nú dimman vex, ó, komdu nú til mín.
Og þegar enga hjálp er hér að fá,
þú, hjálparlausra líknin, vert mér hjá.
Ó, birstu mér, er bresta augun mín,
og bentu mér í gegnum húm til þín,
þá ljómar dagur, líða myrkrin frá.
Í lífi’ og dauða, Jesús, vert mér hjá.
(Þýð. Friðrik Friðriksson.)
Við biðjum góðan Guð að blessa
og styrkja eiginkonu hans, Ingi-
björgu Jóelsdóttur, börn þeirra og
barnabörn.
Helgi Elíasson.
Drengi nefndu forðum fróðir,
frjálsa menn, er reyndust góðir
og að gæðum uxu og dáð …
Þannig lagði í ljóði fyrir drengina
sína vinurinn kæri, sr. Friðrik, út af
orðum forfeðranna: „Drengir eru
góðir menn og batnandi.“ Og níræð-
ur á hann að hafa sagt í glettnum
róm: „Nú fer að verða gaman að lifa,
þegar maður er að byrja að komast
til þroska.“ Og á sinn sérstaka hátt
fékk hann okkur unga drengi til að
hugleiða orð Ritningarinnar um
Jesú 12 ára þar sem segir:
Og Jesús þroskaðist að visku og vexti og
náð hjá Guði og mönnum …
(Lúk. 2, 52.)
Nú hefur einn af eldri drengjum
séra Friðriks verið kallaður heim í
himin Guðs. Við erum mörg, sem
söknum hans sárt, en gleðjumst
samt yfir að hann skuli nú „leystur
þrautunum frá“ og látum okkur
hlakka til endurfundanna í „lysti-
garði Drottins“, sem sr. Hallgrímur
nefnir svo í erfiljóði um litlu Stein-
unni sína. Er hugur minn nú dvelur
hjá hinum heimkallaða bróður og
falslausa vini í meira en sjötíu ár, þá
taka minningar að tala svo margar
og góðar, að mér verður hugsað til
orðanna hjá Jóh. 21:25 um allt það
sem „veröldin mundi ekki rúma“,
hvað þá dagblað okkar landsmanna
allra. Já, Ástráður var mér falslaus
vinur allt frá æskudögum mínum.
Nú á nýrri öld, sem kennd er við
þekkinguna, virðist vináttan oft að-
eins í gildi stundum, en stundum
ekki, allt eftir því hvernig hags-
muna- og vinsældavindar blása. Þó
mun þetta ekki með öllu nýtt, sbr.
sálmversið: „Vilji bregðast vinir þín-
ir …“ (M. Joch) og „Drottinn, ó
Drottinn vor, dagarnir líða, allt er að
breytast en aldrei þú …“ o.s.frv. (St.
N. Th.). Gott er að vita þetta og geta
treyst því. – Ég gleymi ekki björtum
haustsunnudegi fyrir rúmum sjötíu
árum. Heimili fjölskyldu minnar var
í hverfi ofarlega í Skólavörðuhæð-
inni. Er ég eftir hádegisverð kom
glaður og hress út á götu þarna, þá
sá ég hóp drengja, granna minna og
félaga, standa hjá hávöxnum ungum
manni með skólahúfu. Ég hljóp til
þeirra og fékk þar að vita, að ungi
maðurinn væri að bjóða á drengja-
fund hjá sr. Friðriki í KFUM-húsinu
við Amtmannsstíg og fundurinn færi
senn að byrja. Ég leit upp til komu-
manns. Hann brosti til mín og frá
honum stafaði hlýju og góðvild. Og
ég spurði: Má ég líka koma með?
Hann svaraði: Já, þú mátt vissulega
líka koma með okkur. Þetta var hinn
ungi Ástráður og við urðum föru-
nautar upp frá þessum degi. Þetta
var handleiðsla, sem færði mér „röð
af gæðum“ allt til þessa dags. Í
þessu sambandi eru í huga mér orð-
in í Jóh. 1:4, þessi: „Maður kom
fram, sendur af Guði … hann kom til
vitnisburðar um hið sanna ljós, sem
upplýsir hvern mann …“ Og fyrir
hans vitnisburð fékk ljósið að lýsa og
vinna sitt góða verk í lífi fjölmargra í
landi hér. Er ég leit til hans nýverið
sýndi hann mér brosandi og glaður
nýja mynd af stórfjölskyldunni
sinni. Það gladdi mig mjög að sjá
myndina af þessum fjölmenna og
fríða flokki sem eflaust á eftir að
halda hátt á lofti merki krossins,
sem svo lengi hefur einkennt ættföð-
urinn Ástráð og hans elskuðu eig-
inkonu sem ber hið hljómfagra nafn
Ingibjörg.
Lifið öll heil og njótið náðar Guðs.
Munið: Allt samverkar til góðs þeim
sem Guð elska.
Hermann Þorsteinsson.
Með formlegum hætti og opinber-
lega kýs ég að tjá virðingu og þökk
látnum vini með fáum orðum í minn-
ingargrein. Ég hafði séð Ástráð Sig-
ursteindórsson og haft af honum
nokkur kynni áður en leiðir okkar
lágu svo þétt saman, að daglegt
samneyti fylgdi. Ég hafði séð honum
bregða fyrir í salarkynnum KFUM
við Amtmannsstíg, þar sem hann
var mikill heimamaður og leiðtogi.
Svipurinn var sterkur, fasið ákveðið
og fór ekki milli mála, þegar hann
steig í ræðustól, að trú hans var
byggð á þeim grunni, sem einn er
svo traustur, að haggast ekki. En
hollusta hans við frelsara manna,
Jesúm Krist, skein ekki aðeins af
orðum þeim, er hann mælti og
margir hlýddu á, heldur af fasi öllu
og lífsstefnu. Hann lagði sig fram
um að benda ungum á gömlu ham-
ingjuleiðina og lagði ótaldar stundir
fram sjálfur til þess að reisa vörður
og hlúa að unglingum á viðkvæmu
mótunarskeiði. Hann stýrði sunnu-
dagaskóla, hann reit kennslubækur
ætlaðar nemendum í grunnskólum
og hann lagði sitt fram innan þeirra
vébanda, sem til þess voru hlaðin að
vinna þessari hugsjón hans og köll-
un brautargengi.
En þegar ég tók við prestsstörf-
umm í kirkjulausum söfnuði austast
í höfuðborginni sneri ég mér til hins
nýja skólastjóra í Réttarholtsskól-
anum og leitaði ásjár hans. Það er
skemmst frá því að segja, að fáum
mun Bústaðasöfnuður á frumskeiði
sínu eiga meira að þakka heldur en
einmitt Ástráði Sigursteindórssyni.
Og þá skal heldur ekki gleyma fram-
lagi umsjónarmanns skólans, Sig-
urðar Ólafssonar, sem varði ekki
fáum stundum utan vinnutíma síns í
þjónustu við söfnuðinn. Það var svo
sjálfsagt, að vart þurfti um að ræða,
að söfnuðurinn fengi aðgang að há-
tíðarsal skólans til messuhalds og
ekki spillti þeim fúsleika, að orgelið
þurfti sitt skjól meðan þess var beð-
ið að því væri hjólað í öndvegi, þar
sem einnig var komið fyrir stól og
færanlegu altari. Ég fékk að messa
hvern sunnudag í hátíðarsalnum
hans Ástráðs og þar fór barnastarfið
fram einnig með hundruðum þátt-
takenda í hinu barnmarga hverfi. Og
þegar föstutíðin rann upp þurfti
heldur ekki lengi að fara bónveg til
skólastjórans um að mega syngja
helgar tíðir á miðvikudögum föstuna
alla. Og er safnaðarstarfið efldist og
óx fiskur um hrygg fylgdi æskulýðs-
félagið í fótspor kvenfélagsins, sem
þegar hafði komið sér fyrir í hátíð-
arsalnum með fundi sína og ekki að-
eins þar heldur einnig í hinu glæsi-
lega kennslueldhúsi skólans, og
fljótlega bættist einnig bræðrafélag
við í flóru safnaðargarðsins. Var svo
komið, að við höfðum ekki aðeins að-
gang að hátíðarsalnum á sunnudög-
um, heldur lögðum við einnig undir
okkur með gleðilegu samþykki Ást-
ráðs alla mánudaga og kirkjukórinn
fékk að æfa hvert þriðjudagskvöld.
Ungum presti var það ómetanlegt
að þiggja stuðning hins reynda
manns á akri kristninnar, þar sem
Ástráður Sigursteindórsson var.
Hann kom heldur ekki einvörðungu
að kirkjulegu starfi við Amtmanns-
stíginn og víðar á vegum KFUM,
heldur starfaði hann í sóknarnefnd
Laugarnessóknar um árabil og var
mér ekki lítill styrkur að því að hafa
hann á fundum prófastsdæmisins
eftir að ég var skipaður þar til for-
ystu. Og síðar var hann kjörinn til
setu á kirkjuþingi, þar sem veiga-
mestu mál þjóðkirkjunnar og þjóð-
arinnar allrar eru rædd og línur
lagðar. Og er þá aðeins nokkurra
þátta getið í þeim vef kærleika og
þjónustu, sem Ástráður spann og
vann. Aðrir munu geta lífshlaupsins
með nánari hætti og rekja söguna
betur. Þar verður einnig minnst fjöl-
skyldunnar, sem honum var svo
undur dýrmæt, og þegar báðir höfð-
um við horfið frá þeim verkahring,
sem fyrr hafði spannað líf okkar að
mestu, var það ekki lítils virði, þegar
við hittumst við guðsþjónustur í
Seljakirkju, þar sem sonur Ástráðs,
séra Valgeir, þjónar af mikilli reisn
og skörungsskap. En einnig þeim
samverustundum fór fækkandi og
tók loks alveg fyrir. Hinn þrekmikli
maður laut örlögum margra með
fjölda áranna og komst ekki framar
þangað, sem hugur hans stefndi.
Eitt veit ég þó, en það er að Ástráð-
ur hefur nú fetað þann veg, sem
hann var ötull við að leggja og varða,
til fundar við frelsarann sjálfan og
fær fagnandi móttökur í anda hins
góða og trúa þjóns. Blessun fylgdi
starfi hans og sú blessun bregst ekki
heldur og þá allra síst í himneskum
híbýlum. Guði er góður þjónn hans
falinn og svo fjölskyldan öll og
áhugasvið. Sjálfur þakka ég og
gleymi ekki velgjörðarmanni mín-
um.
Ólafur Skúlason.
Verið ekki hálfvolgir í áhuganum,
verið brennandi í andanum.
(Róm. 12:11.)
Þau orð postulans eiga einkar vel
við þegar kvaddur er Ástráður Sig-
ursteindórsson, tvímælalaust einn af
merkisberum og máttarstólpum ís-
lenskrar kristni á 20. öld.
Ungur að árum komst hann í
kynni við æskulýðsleiðtogann sr.
Friðrik Friðriksson. Þau kynni mót-
uðu Ástráð og mörkuðu framtíð
hans. Hann helgaði Jesú Kristi líf
sitt og stóð við það heit uns yfir lauk.
Á fjórða áratug síðustu aldar var
mikil gerjun í kristnilífi þjóðarinnar.
Ástráður varð fyrir varanlegum
áhrifum af þeim umbrotum og átti
ríkan þátt í að finna trúarlífi ungs
fólks á þeim tíma farveg. Ásamt
Bjarna Eyjólfssyni og Gunnari Sig-
urjónssyni tók hann við ritstjórn
Bjarma árið 1936 en þeir voru þá all-
ir rúmlega tvítugir. Fáeinum miss-
erum síðar hófu sömu ungu menn-
irnir að halda almenn kristileg mót
sem þá voru nýlunda á Íslandi.
Kristilegt stúdentafélag var stofn-
að 1936. Þar var Ástráður einnig í
hópi frumkvöðla og hélt alla ævi
tryggð við félagið sitt.
Miðað við framan sagt er mjög
eðlilegt að hugur hins unga baráttu-
manns hafi staðið til prestsskapar.
Ósigur í prestskosningum leiddi
Ástráð inn á annað starfssvið en
hann tók alla ævi þátt í kristilegu og
kirkjulegu starfi sem leikmaður og
lét víða að sér kveða, skeleggur og
skörulegur.
Á yngri árum starfaði Ástráður
um árabil í stjórn Skógarmanna
KFUM í Vatnaskógi og var formað-
ur um skeið, um það leyti sem Gamli
skálinn var vígður og tekinn í notk-
un.
Hann var einn af burðarásunum í
Bókagerðinni Lilju og annaðist lengi
ritstjórn og útgáfu kristilega barna-
blaðsins Ljósberans.
Kristilegt barnastarf var Ástráði
ætíð hugleikið. Um áratugaskeið
veitti hann sunnudagaskóla KFUM
forstöðu og sá lengi um að taka sam-
an stuðningsefni við boðun og
fræðslu í barnastarfi KFUM og
KFUK sem gefið var út undir nafn-
inu Hirðirinn.
Ástráður var aldrei hálfvolgur
heldur ávallt staðfastur og stefnu-
fastur. Hann sat í stjórn Hins ís-
lenska Biblíufélags og starfaði á
skrifstofu félagsins eftir að hafa náð
eftirlaunaaldri. Hann var lengi safn-
aðarfulltrúi Laugarnessafnaðar – og
er þó langt frá því að allt sé talið af
trúnaðarstörfum Ástráðs í þágu
kirkju og kristni.
Tæpa tvo áratugi var hann í
stjórn KFUM í Reykjavík, helming
þess tíma varaformaður félagsins.
Þar sem annars staðar reyndist
hann áreiðanlegur og úrræðagóður.
Ástráður beitti sér fyrir stofnun
Landssambands KFUM og KFUK
árið 1978 og var formaður Lands-
sambandsins fyrstu sex árin. Var
honum mjög umhugað um að öll
KFUM og KFUK félög í landinu
stæðu saman og styddu hvert annað
í mikilvægu starfi.
Fyrir margvíslegt framlag í þágu
félagsstarfsins var Ástráður lýstur
heiðursfélagi KFUM í Reykjavík og
verðskuldaði þá nafnbót fyllilega.
Þegar hann gaf ekki lengur kost á
sér til áframhaldandi setu í stjórn
KFUM var undirritaður kjörinn í
stað hans. Hefi ég alltaf litið á það
sem sérstaka ábyrgð að taka við af
svo mætum og traustum forvera. Oft
fann ég líka að Ástráður vildi sýna
eftirmanni sínum sérstaka um-
hyggju. Óþreytandi var hann að
hvetja og leiðbeina. Allt til enda
fylgdist hann vel með, uppörvaði og
styrkti, enda jafnbrennandi í and-
anum þótt líkamleg áföll og hrörnun
heftu hann og hindruðu í beinni
þátttöku. Einna lengst sótti Ástráð-
ur vikulegar bænastundir trúfasts
hóps enda sér meðvitandi um að
bænin er forsenda og grundvöllur
alls kristilegs starfs.
Í minningunni sé ég Ástráð ljóslif-
andi fyrir mér í ræðustólnum á Amt-
mannsstíg 2b, sem formann á þing-
um Landssambands KFUM og
KFUK, í afgreiðslu Biblíufélagsins í
Guðbrandsstofu í Hallgrímskirkju,
sem forstöðumann í Vatnaskógi.
Sterkust er þó myndin af fræð-
aranum Ástráði á starfsmannanám-
skeiði KFUM og KFUK fyrir tæp-
um 30 árum. Þar er hann að venju
skýrmæltur og skorinorður, talar
styrkri röddu og karlmannlegri um
rit Biblíunnar og höfunda þeirra. Í
þeirri fræðslu lá alúð og metnaður,
eins og í öllu öðru sem Ástráður tók
sér fyrir hendur.
Ég er staddur erlendis í sumar-
leyfi og get því ekki fylgt honum síð-
asta spölinn. Kveðju sendi ég eig-
inkonu hans, Ingibjörgu
Jóelsdóttur, sem ætíð stóð sem
klettur við hlið manns síns og ann-
aðist hann af stakri nærgætni síð-
ustu misserin.
Guð blessi hana, afkomendurna
og fjölskyldur þeirra.
Þökkum Guði stöðuglyndi Ástráðs
Sigursteindórssonar. Verum ekki
hálfvolg í áhuganum, verum brenn-
andi í andanum!
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Einn af vormönnum KFUM, Ást-
ráður Sigursteindórsson, hefur verið
kallaður heim til hinnar himnesku
dýrðar.
Ástráður var einn í hópi vaskra
vormanna innan KFUM er komu
fram á fjórða áratug síðustu aldar,
allir heilir boðberendur fagnaðarer-
indisins. Eftir trúarbaráttur ung-
lingsáranna komst Ástráður til
trúarfullvissu, sem gjörði hann
sterkan og kröftugan boðbera hinna
góðu frétta um hjálpræðið í Jesú
Kristi. Síðan lá leiðin í guðfræðideild
Háskóla Íslands, þar sem hann lauk
embættisprófi. Meginstarfsvett-
vangur Ástráðs var þó sem skóla-
stjóri við Réttarholtsskóla í Reykja-
vík, við góðan orðstír, bæði nemenda
og kennara, enda árangur nemenda
við skólann oft framúrskarandi.
Innan vébanda KFUM starfaði
hann ötullega og gegndi mörgum
trúnaðarstörfum þar. Hann var for-
maður Skógarmanna um árabil, sat í
stjórn KFUM einnig um árabil, auk
þess að vera virkur í barna- og ung-
lingastarfi félaganna. Sem þakklæt-
isvott og virðingarvott fyrir mikils-
vert starf í þágu félaganna, var
Ástráður gerður að heiðursfélaga í
KFUM og sæmdur gullmerki Skóg-
armanna KFUM. Ekki má gleyma
starfi hans innan kristilegs stúd-
entafélags, en hann var einn af
stofnendum þess og var það félag
honum ávallt hugleikið. Einnig má
minna á störf hans innan landssam-
bands KFUM og K, en hann var
fyrsti formaður þess. Sem ræðu-
maður og predikari var Ástráður
skýr og ákveðinn, ásetti sér að vita
ekkert nema Jesúm Krist og hann
krossfestan og upprisinn okkur til
hjálpræðis.
Í einkalífi var hann einstaklega
lánsamur með Ingibjörgu Jóelsdótt-
ur sér við hlið, auk þriggja mann-
kostabarna og fjölda afkomenda.
Megi hinn almáttki blessa þau öll
og ávöxtinn af starfi og boðun Ást-
ráðs um ókomna tíma.
Bjarni Árnason,
Jón Oddgeir Guðmundsson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 37
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.