Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 52

Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 52
ÍÞRÓTTIR 52 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK  LÁRUS Orri Sigurðsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, skoraði mark fyrir WBA er liðið vann Chelt- enham í æfingaleik, 4:0. Lárus Orri skoraði markið þremur mín. fyrir leikslok.  UNGMENNALANDSLIÐ kvenna í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri tapaði fyrir Svíum, 5:3, í vítaspyrnukeppni í leik um 5. sætið á Ólympíuhátíð æskunnar í París. Eft- ir venjulegan leiktíma var staðan 4:4 Mörk Íslands í leiknum skoruðu Harpa Þorsteinsdóttir, Björk Gunn- arsdóttir og Margrét Lára Viðars- dóttir tvö, annað úr vítaspyrnu.  FYRIRLIÐI makedóníska lands- liðsins í knattspyrnu, Artim Sakiri, er genginn til liðs við enska 1. deildarlið- ið West Bromwich Albion frá CSKA Moskvu. Sakiri er 29 ára gamall miðjumaður og er eflaust þekktastur fyrir að hafa skorað úr hornspyrnu yfir David Seaman, landsliðsmark- vörð Englendinga, í viðureign Eng- lendinga og Makedóníumanna sem fram fór í októbermánuði í fyrra.  STOKE er búið að ganga frá tveggja ára samningi við hollenska markvörðinn Ed de Goey, 36 ára, fyrrverandi leikmann með Chelsea, Sparta Rotterdam og Feyenoord. De Goey, sem klæðist peysu nr. 1, er fjórði leikmaðurinn sem hefur gerst liðsmaður hjá Stoke að undanförnu – hinir eru Gifton Noel-Williams (9), Clint Hill (6) og John Eustace (4).  PÉTUR Hafliði Marteinsson hefur fengið peysu nr. 21, en ekki er búið að úthluta peysum nr. 5, 7 og 10, þannig að Stoke á eftir að fá til sín fleiri leik- menn fyrir keppnistímabilið. 22 leik- menn hafa fengið númer hjá Stoke.  NWANKWO Kanu, leikmaður með Arsenal, er búinn að missa sæti sitt í landsliði Nígeríu – var ekki valinn til að leika með Nígeríumönnum gegn Japan í Tókyó 20. ágúst.  WOLVES hafa gengið frá kaupun- um á Henri Camara frá Seden í Frakklandi. Camara er sóknarmaður en Wolves þarf að greiða Seden um 250 milljónir íslenskra króna fyrir hann. Camara er Senegali og hann lék mjög vel í heimsmeistarakeppn- inni í fyrra. Hann skrifaði undir fjög- urra ára samning við nýliðana í ensku úrvalsdeildinni.  ÞAÐ kemur í hlut Arsenal að leika í gulu þegar liðið mætir Manchester United í góðgerðarleiknum í Cardiff, sunnudaginn 10. ágúst. Man. Utd. leikur í rauðu.  LEEDS hefur tilkynnt Nigel Mart- yn markverði að hann geti farið frá liðinu. Það bendir því allt til að Chelsea keypi hann á 500 þús. pund, en það er ekki langt síðan Martyn hafnaði því að fara til Chelsea, sem vantar varamarkvörð fyrir Carlo Cudicini, þar sem Jurgen Macho, sem var keyptur til liðsins á dögun- um, meiddist alvarlega á hné. hafa orðið til þess að liðið hefur fengið meira af peningum til að kaupa leikmenn fyrir slaginn í meistaradeild Evrópu. Beckenbauer kokhraustur að vanda „Ég sé ekki nokkurt lið hér í landi sem getur stöðvað okkur,“ sagði hinn kokhrausti Franz Beck- enbauer, foresti Bayern, en aftur á móti tekur Michael Ballack ekki svo djúpt í árinni. „Ég hef trú á að baráttan verði jafnari og skemmti- legri en hún var síðasta keppn- istímabil,“ sagði hinn 26 ára Ball- ack, sem var útnefndur knatt- spyrnumaður ársins í Þýskalandi annað árið í röð í vikunni. Balakov hefur lagt skóna á hilluna Stuttgart var spútnikliðið í Þýskalandi sl. keppnistímabil og hafnaði óvænt í öðru sæti. Einn besti leikmaður liðsins, miðvallar- leikmaðurinn frá Búlgaríu, Krass- imir Balakov, hefur lagt skóna á hilluna og hefur gerst aðstoðar- þjálfari hjá Stuttgart. Það verður erfitt fyrir Stuttgartara að fylla skarð hans. „Að komast að toppnum er ákveðið afrek, en að halda sér við hann er önnur saga,“ segir Felix Magath, þjálfari Stuttgart og fyrr- verandi stjarna Hamburger SV og þýska landsliðsins. Brasilíski miðherjinn Cacau og miðjumaðurinn Jurica Vranjes frá Króatíu eru nýir leikmenn hjá Stuttgart. Menn þar á bæ vona að Hvít-Rússinn á miðjunni Alexander Gleb, sem lék frábærlega sl. vetur, Hitzfeld segir að til að ná ár-angri í meistaradeild Evrópu gæti það tekið toll í baráttunni í Þýskalandi. „Ég og mínir menn vita það og við erum tilbúnir að gefa eftir heima til að ná árangri í keppni bestu liða Evrópu.“ Bæjarar hömpuðu meistarakór- ónunni er þeir unnu sinn átjánda meistaratitil í Þýskalandi, þegar fjórar umferðir voru eftir. Síðan urðu þeir bikarmeistarar með því að leggja Kaiserslautern að velli í úrslita- leik á Ólympíuleikvanginum í Berl- ín, 2:1. Bæjarar hafa hampað meistara- titlinum í Þýskalandi fjórum sinn- um á síðustu fimm árum. Þeir eru með sterkari leikmannahóp en í fyrra, þar sem þeir hafa fengið til sín argentínska varnarmanninn Martin Demichelis og ungan þýsk- an landsliðsmann Tobias Rau, sem er einnig öflugur varnarmaður. Oliver Kahn mun standa á milli stanganna eins og áður, Michael Ballack mun stjórnar leik Bæjara á miðjunni og Brasilíumaðurinn Elb- er mun halda áfram að hrella markverði, en hann var marka- kóngur sl. keppnistímabil með 21 mark. Sebastian Deisler, einn af þeim leikmönnum sem Þjóðverjar binda miklar vonir við – frábær miðju- maður, er tilbúinn í slaginn, en hann var meiddur meira og minna sl. keppnistímabil, sem var hans fyrsta hjá Bæjurum. Bayern München hefur gert mjög góða sjónvarpssamninga, sem komi til með að taka við hlutverki Balakov. Þá gekk Argentínumaðurinn Emanuel Centurion, 22 ára mið- vallarleikmaður, til liðs við Stutt- gart á fimmtudaginn og skrifaði undir fimm ára samning. Dortmund til alls líklegt Menn eru sammála að Dort- mund, sem missti meistaratitilinn til Bayern, sé það lið sem á eftir að veita Bæjurum hvað mesta keppni í vetur. Evrópumeistararnir frá 1997 hafa selt markvörð sinn, Jens Lem- ann til Arsenal. Þá varð liðið fyrir áfalli í deildabikarkeppninni á dög- unum – þegar varnarmaðurinn Ev- anilson frá Brasilíu og þýski miðju- maðurinn Torsten Frings meiddust á hné og verð frá keppni um tíma. Tékkinn Tomas Rosicky verður arkitektinn á miðjunni og hinir öfl- ugu framherjar – Brasilíumaðurinn Marcio Amoroso og Tékkinn stóri Jan Koller fá það hlutverk að halda áfram að hrella varnarmenn og markverði með krafti sínum og út- sjónarsemi. Aðrir keppinautar Það er ljóst að Hamburger SV og Hertha Berlín komi til með að blanda sér í toppbaráttuna eins og undanfarin ár og jafnvel einnig Werder Bremen og Schalke. Það er líklegt að mest allt loft sé farið úr Bayer Leverkusen eftir mikinn uppgang fyrir þremur ár- um. Flestar stjörnur liðsins eru farnar og hinn litríki þjálfari Klaus Toppmöller var látinn taka pokann sinn á sl. keppnistímabili. Hér á öðrum stað á síðunni skjótumst við í heimsókn til ann- arra liða í 1. deildarkeppninni, en rætt er mest um hér að framan, og púlsinn tekinn allt frá Rostock til Freiburg, þar sem þjálfari liðsins setti nýtt met sl. vor. Flestir reikna með að meistararnir frá Bæjaralandi haldi sínu striki í Þýskalandi en þeir urðu tvöfaldir meistarar í vor „VIÐ munum að sjálfsögðu reyna hvað sem við getum til að verja þá titla sem við höfum í Þýskalandi, en við munum leggja hvað mestu áhersluna á að gera betur í meistaradeild Evrópu en við gerðum síðastliðið keppnistímabil,“ sagði Ottmar Hitz- feld, þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München, sem náðu einstökum yfirburðum í Þýskalandi sl. vetur, urðu Þýskalands- meistarar á öruggan hátt og tryggðu sér einnig bikarameist- aratitilinn með því að leggja Kaiserslauten að velli. Sparkfræð- ingar í Þýskalandi sjá ekki annað en Bæjarar eigi að vera með sömu yfirburðina á knattspyrnuvöllum þar í landi á nýju keppn- istímabili, sem hófst í gærkvöldi. Sigmundur Ó. Steinarsson tók saman Reuters Sammy Osei Kuffour frá Ghana stekkur upp á bak Michael Ballack og fagnar marki hans fyrir Bayern. JALIESKY Garcia, landsliðsmaður Ís- lands í handknattleik og fyrrverandi leik- maður HK, hefur byrjað vel með Göpp- ingen í Þýskalandi. Garcia hefur verið í sviðsljósinu í Sparisjóðsmóti, þar sem hann skoraði níu mörk í leik gegn Melsungen í Bad Wildungen, 36:30, og sex mörk í sigurleik gegn rúmenska lið- inu Dinamo Búkarest. Rúnar Sigtryggsson hefur fengið góða dóma í leik með Wallau-Massenheim og skoraði hann fimm mörk þegar liðið vann auðveldan sigur á utandeildarliðinu Hatt- ingen/Ruhr í æfingaleik, 41:12. Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið vel af stað með Grosswallstadt og Guð- mundur Hrafnkelsson, eða „Gudmi“ eins og hann er kallaður, átti stórleik í marki Kronau/Östringen er liðið vann Leuter- hausen í æfingaleik, 30:27. Garcia byrjar vel með Göppingen JUAN Sebastian Veron, miðvallarleikmaður frá Argentínu, átti stórleik og var maður leiksins er Manchester United lagði Juventus að velli á Giants Stadium í New Jersey í Bandaríkj- unum í fyrrinótt, 4:1. Veron fór á kostum fyrir framan 79.005 áhorfendur og eftir leikinn sagði sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., að Veron væri ekki á förum frá liðinu. Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær lék einnig vel og skoraði mark, en talið er að hann eigi að taka hlutverk Davids Beckham á miðjunni hjá United. Paul Scholes, Ryan Giggs og Ruud van Nistelrooy skoruðu hin mörkin. Tékkinn Pavel Nedved skoraði mark Juventus. Ferguson var ánægður með sína menn og sagði að leikmenn beggja liða hefðu haft sóknarleikinn í hávegum. Bandaríkjamaðurinn Tim Howard lék sinn fyrsta leik í markinu hjá United og stóð fyrir sínu á heimavelli. Juan Sebastian Veron með stórleik gegn Juventus Juan Sebastian Veron Tilbúnir að gefa eftir fyrir árangur í Evrópukeppninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.