Morgunblaðið - 02.08.2003, Qupperneq 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 53
FÓLK
SIGURÐUR Örn Jónsson, varnar-
maður KR, er hættur að leika knatt-
spyrnu vegna þrálátra meiðsla. Sig-
urður hefur verið meiddur frá 2000.
TÖLVUKERFIÐ sem hefur að
geyma leikmenn liða í efstu deild
kallaði Lee Sharpe fram og gaf hon-
um gult spjald í leik Fram og Grinda-
víkur. Hið rétta er að það var Jerry
Brown sem fékk spjaldið, en hann
kom í leikmannahóp Grindavíkur í
stað Sharpe.
JERZY Dudek, markvörður Liver-
pool, bjargaði liðinu frá tapi í leik
gegn Ajax í Amsterdammótinu í
gærkvöldi, 0:0. Hann varði oft mjög
vel í leiknum. Harry Kewell lék á ný
með Liverpool. Inter Mílanó lagði
Galatasaray að velli í mótinu, 3:0.
PATRICK Viera, fyrirliði Arsenal,
er ánægður hjá liðinu og vill vera
áfram hjá félaginu en hann hefur ver-
ið orðaður við mörg lið í sumar. Viera
hefur átt í samningaviðræðum við
Arsenal um nýjan samning en núver-
andi samningur hans rennur út eftir
næsta tímabil. Forráðamenn Arsen-
al hafa verið smeykir um að Viera
fari frítt frá félaginu næsta sumar en
nú lítur út fyrir að Frakkinn snjalli
skrifi fljótlega undir samning.
BAYERN München er að gefast
upp á að kaupa hollenska sóknar-
manninn Roy Makaay frá Deportivo
La Coruna. Makaay vill ólmur ganga
til liðs við þýsku meistarana en
München er ekki tilbúið að greiða
jafnmikið fyrir Makaay og spænska
félagið fer fram á.
VITTORIO Chiusano, forseti Juv-
entus, dó á fimmtudag á stúkrahúsi í
Tórínó, daginn fyrir 75 ára afmæl-
isdag sinn. Mikil sorg ríkir í Tórínó
og var t.d. einnar mín. þögn fyrir leik
Juventus og Man. Utd. til að minnast
Chiusano, sem tók við forsetaemb-
ættinu 1990.
GUY Thys, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari Belgíu, dó í gær eftir erfið
veikindi. Hann var 80 ára.
STEFFEN Iversen skrifaði undir
eins árs samning við Wolves í gær.
VRATISLAV Gresko hefur gert
þriggja ára samning við Blackburn.
Hann lék með liðinu í fimm mánuði á
síðasta tímabili en hann var í láni frá
Parma. Blackburn þarf að borga
Parma um 1,5 milljónir íslenskra
króna fyrir Gresko en hann er varn-
armaður og fastamaður í landsliði
Slóvakíu.
FRANSKI bakvörðurinn Jerome
Bonnissel, 30 ára, gerði tveggja ára
samning við Fulham í gær, en hann
var leikmaður Bordeaux. Bonnissel
lék sem lánsmaður með Glasgow
Rangers um tíma sl. keppnistímabil.
ALÞJÓÐAFIMLEIKASAM-
BANDIÐ hefur ákveðið að svipta
Spánverjann Gervasio Deferr silfur-
verðlaunum sem hann vann á heims-
meistaramótinu í fyrra fyrir að neyta
kannabisefna.
Tveir íslenskir landsliðsmenn
leika í Þýskalandi – bræðurnir
Þórður og Bjarni Guðjónssynir
eru í herbúðum Bochum, sem hef-
ur fengið gælunafnið „lyftarinn“
vegna þess hvað liðið hefur oft far-
ið upp og niður á milli deilda. Liðið
lék skemmtilega sóknarknatt-
spyrnu sl. keppnistímabil og skor-
aði mikið af mörkum. Marksækn-
astur var Thomas Christiansen,
sem er farinn til Hannover.
Klaus Augenthaler, þjálfari
Bayer Leverkusen, á erfitt verk-
efni fyrir höndum – að koma liðinu
upp úr þeim öldudal sem það féll í
sl. keppnistímabil.
Borussia Mönchengladbach, lið-
ið gamalkunna, á í fjárhagserfið-
leikum. Ekki náðist að safna pen-
ingum til að kaupa Finnann Mikael
Forssell, sem er farinn aftur til
Chelsea. Róðurinn verður erfiður
hjá liðinu, sem fékk aðeins sjö stig
á útivöllum sl. keppnistímabil.
Nýliðarnir frá Köln, annað gam-
alfrægt lið í Þýskalandi, verða
einnig í erfiðleikum. Þjálfarinn
Friedhelm Funkel hefur fengið til
liðs við sig tvo nýja varnarmenn,
Jörg Heinrich og Mustafa Dogan,
og leikskipulag verður án efa 4-5-1
með nýjan leikmann, Marius Ebb-
ers, einan í fremstu víglínu.
Frankfurt, sem kom upp í efstu
deild á nýju, er spurningamerki
eins og Köln. Þetta fornfæga lið
flaggar ekki hópi af Brasilíumönn-
um, en teflir aftur á móti fram
þremur Albönum – varnarmann-
inum Geri Cipi, miðjumönnunum
Ervin Skela og Mehmet Drag-
usha. Þjálfarinn Willi Reimann
mun strax sjá hvar hans menn
standa, þar sem þeir spreyta sig
gegn Bæjurum í fyrsta leik.
Frá Svartaskógi koma nýliðarn-
ir frá Freiburg undir stjórn Volk-
er Finke, sem hefur verið þjálfari
liðsins síðan 1991. Hann setti met í
Þýskalandi þegar hann kom upp í
efstu deild með lið sitt í þriðja
skipti í sumarbyrjun. Hann segist
ekki vera með neinar stórstjörnur,
en leikmenn sem hafa mikinn
metnað að halda sæti liðsins í efstu
deild.
Fjögurra manna varnarlína
Freiburgarliðsins var sú sterkasta
í 2. deild sl. keppnistímabil, en það
er næsta víst að leikmennirnir fá
miklu meira að gera í vetur.
Austurríkismaðurinn Kurt Jara
mun stýra Hamburger SV. Arg-
entínumennirnir Bernardo Romeo
og Rodolfo Cardoso leika aðalhlut-
verkin hjá liðinu, sem hefur fengið
miðjumanninn Stefan Beinlich frá
Herthu Berlín.
Hannover hefur misst marka-
hrókinn Fredi Bobic, en fengið í
staðinn Thomas Christiansen frá
Bochum. Þá hefur tékkneski
miðjumaðurinn Jan Simak komið á
ný til liðsins, eftir að hafa upplifað
martröð hjá Bayer Leverkusen.
Þjálfarinn Ralf Rangnick er viss
um að Simak nái sér á strik á ný
og eigi eftir að mata Christiansen
með frábærum sendingum.
Hansa Rostock er eina liðið sem
kemur frá „austrinu.“ Liðið hefur
ekki náð ofar en tólfta sæti síðustu
fimm keppnistímabil. Vonir eru
bundnar við að miðherjinn Martin
Max, markakóngur 1. deildar 2000
og 2002, sem kom frá 1860
München, geti lyft liðinu ofar.
Eyjólfur Sverrisson er farinn
frá Herthu Berlín, en hann lék lít-
ið með liðinu sl. keppnistímabil. Til
liðsins eru komnir miðjumaðurinn
frá Króatíu, Niko Kovac, pólski
framherjinn Artur Wichniarek og
gamli refurinn Fredi Bobic. Bras-
ilíumaðurinn Alex Alves er farinn
á ný til heimahaga, en landi hans
Luizao er enn í Berlín.
Belgíumaðurinn Erik Gerets,
sem lék með Ásgeiri Sigurvinssyni
hjá Standerd Liege á árum áður,
hefur ekki fengið peninga til að
kaupa nýja leikmenn til Kaisers-
lautern. Miroslav Klose er sá leik-
maður liðsins sem verður mest í
sviðsljósinu. Í gær gekk miðjumað-
urtinn Steffen Freund, sem lék
með Tottenham, til liðs við liðið og
mun hann taka stöðu Ciriaco
Sforza, sem er meiddur.
1860 München hefur fengið til
sín einn besta markvörð Þýska-
lands, Simon Jentzsch, sem kom
til liðsins frá Wolfsburg.
Ekki veitir af, þar sem liðið fékk
mikið af mörkum á sig sl. vetur.
Aftur á móti er Münchenarliðið
með unga og stórefnilega sókn-
ardúett – Þjóðverjana Benjamin
Lauth og Markus Schroth.
Schalke mætir til leiks undir
stjórn Jupp Heynckes, fyrrverandi
landsliðsmann, sem stjórnaði Real
Madrid til sigurs í Evrópukeppn-
inni 1998. Hann stefnir að því að
verða í einu af fimm efstu sæt-
unum.
Belgíumaðurinn Emile Mpenza
og Daninn Ebbe Sand eru hættu-
legustu menn liðsins.
Werder Bremen hefur alltaf
verið ofarlega og bíða margir eftir
að leikmenn liðsins nái sér aftur á
strik. Werder byrjaði afar illa sl.
keppnistímabil. Hollenski varnar-
maðurinn Frank Verlaat er farinn
til Austria Vín, en áfram verður í
sviðsljósinu miðvallarleikmaðurinn
frá Frakklandi, Johan Micoud,
sem mun stjórna leik liðsins og
nýr leikmaður er tyrkneski miðju-
maðurinn Umit Davala. Fremstur
verður Brasilíumaðurinn Ailton,
einn hættulegasti sóknarmaður
Þýskalands. Þjálfarinn Thomas
Schaaf hefur trú á því að Ailton og
Grikkinn Angelos Charisteas, sem
leikur við hlið hans, eigi eftir að
láta mikið að sér kveða.
Wolfsburg, sem er styrkt af
Volkswagen-bílaverksmiðjunum,
vonast eftir að vera ofar en um
miðja deild. Þó svo að markvörð-
urinn Simon Jentzsch og varnar-
manninn Mirko Hrgovic, frá Bosn-
íu, séu farnir. Nýr þjálfari er
kominn á svæðið – Jürgen Röber,
sem var hjá Herthu. Hann vonar
að lið sitt nái sér á ferðina, verði
ekki úti að aka. Röber er að leita
eftir miðjumanni til að styrkja lið
sitt.
Tveir Íslend-
ingar verða í
sviðsljósinu
BAYERN og Frankfurt léku upp-
hafsleikinn í Þýskalandi í gær-
kvöldi, en í dag verða þessar við-
ureignir: Wolfsburg - Bochum,
Kaiserslautern - 1860 München,
Hertha Berlín - Werder Bremen,
Bayer Leverkusen - Freiburg,
Hamburger SV - Hannover,
Schalke - Borussia Dortmund. Á
morgun mætast Borussia
Mönchengladbach - Köln og
Hansa Rostock - Stuttgart.
Fyrstu leikirnir í Þýskalandi
BAYERN München byrjaði tit-
ilvörn sína í gærkvöldi með
sigri á Frankfurt fyrir framan
63 þús. áhorfendur á Ólympíu-
leikvanginum í München, 3:1.
Það var Brasilíumaðurinn Ze
Roberto sem opnaði leikinn
með fyrsta markinu á 16. mín.,
án þess að Oka Nikolov, mark-
vörður Frankfurt, kæmi vörn-
um við. Stuttu síðar bætti hinn
litli Bosníumaður Hasan Sal-
ihamidzic marki við eftir send-
ingu frá Sebastian Deisler.
Það var svo Claudio Pizarro
sem gulltryggði sigurinn á 42.
mín.
Bæjarar settu handbrems-
una á í seinni hálfleik, tóku líf-
inu með stakri ró. Þá skoraði
Skela fyrir gestina.
Sigur hjá
Bæjurum
ÍSLENSKU sóknarleikmennirnir í
knattspyrnu Helgi Sigurðsson og
Jóhann B. Guðmundsson hafa til-
kynnt forráðamönnum norska
liðsins Lyn að þeir leiki ekki með
liðinu eftir að samningur þeirra
við það rennur út næsta sumar.
Ekkert hefur gengið hjá Lyn,
sem Teitur Þórðarson þjálfar, að
undanförnu og er ætla fjórir aðr-
ir leikmenn að feta í fótspor
Helga og Jóhanns – Per Egil
Swift, Frode Hansen, Thomas
André Ødegaard og Kristian On-
stad, sem verða einnig með lausa
samninga næsta sumar.
Teitur sagði í sjónvarpsviðtali í
Noregi í gær, að aðeins þeir
Helgi og Jóhann hefðu tilkynnt
stjórn Lyn að þeir ætla ekki að
vera áfram eftir að samningar
þeirra renna út.
Þó að Lyn, sem tapaði á heima-
velli fyrir Bodö/Glimt í vikunni,
2:1, sé í neðri hluta norsku 1.
deildarinnar með 16 stig eftir
fimmtán leiki, segir Teitur að
hann sé ekki farinn að örvænta.
„Ég hef trú á mínum mönnum og
tel að við förum fljótlega að rétta
úr kútnum.“
Það er ekki hægt að segja að
þeir Helgi og Jóhann B. hafi verið
á skotskónum í norsku deildinni –
Helgi hefur skorað þrjú mörk, Jó-
hann eitt; af 19 mörkum Lyn.
Helgi og Jóhann
B. fara frá Lyn
Reuters
Tim Wiese, markvörður Kaiserslautern, horfir á eftir knettinum í netið hjá sér, eftir að Mich-
ael Ballack sendi hann þangað í bikarúrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í Berlín.