Morgunblaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Álfhildur Gunn-arsdóttir fæddist
á Kúðá í Þistilfirði 9.
júní 1924. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík 5. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Vigdís
Vigfúsdóttir, f. 30.
maí 1899, d. 22. júlí
1943, og Gunnar Val-
garður Kristjánsson,
f. 15. júní 1893, d. 17.
júlí 1987. Systkini
Álfhildar eru: Hilm-
ar, f. 1922, látinn,
Kristján, f. 1926, látinn, Lára, f.
1929, Guðbjörn Ólafur, f. 1930,
látinn, Ármann, f. 1932, látinn,
Vigfús, f. 1933, látinn, Júlíana
Ingilín, f. 1934, látin, Erla, f. 1936,
Ingimundur, f. 1939, Halldóra, f.
1940, auk þess dóu fjórir drengir
nýfæddir.
Álfhildur giftist 17. september
1942 Sigurði Þórarni Haralds-
syni, f. 15. apríl 1916, d. 5. sept-
ember 1995. Þau eignuðust fjögur
börn, en þau eru: Haraldur, vél-
fræðingur í Núpskötlu, f. 2. ágúst
1943, kvæntur Huldu Berglindi
Valtýsdóttur og eiga þau einn son,
Sigurð Valtý. Jón, bifvélavirki í
Reykjavík, f. 17. júlí
1946, sambýliskona
hans er Hrafnhildur
Einarsdóttir. Börn
hans: Ragnheiður,
Lilja Rós og Ármann
Freyr, og tvö barna-
börn. Vigdís Val-
gerður, bóndi í
Borgum, f. 24. jan-
úar 1954, gift Eiríki
Kristjánssyni og
eiga þau fjögur
börn, Álfhildi,
Kristján, Sigurð og
Önnu Maríu, og tvö
barnabörn. Krist-
björg, verslunarmaður á Kópa-
skeri, f. 22. október 1968, gift Óla
Birni Einarssyni og eiga þau þrjú
börn: Agnar, Einar og Lillýju. Álf-
hildur bjó heima hjá foreldrum
sínum til fimmtán ára aldurs. Þá
fór hún sem barnfóstra í Efri-Hóla
í Núpasveit og síðar sem vinnu-
kona til árins 1943 þegar hún og
Sigurður hófu búskap á Einars-
stöðum. Þau voru síðan eitt ár í
vinnumennsku á Núpi en keyptu
síðan Núpskötlu og hófu þar bú-
skap 19. júní 1945, og bjó hún þar
til dauðadags.
Útför Álfhildar fór fram frá
Snartarstaðakirkju 14. ágúst.
Nú er hún amma dáin. Hennar
verður sárt saknað þó að hvíldin hafi
eflaust verið henni kærkomin. Sú
amma sem ég man eftir var aldrei
heilsuhraust en alltaf hélt hún sínu
jafnaðargeði sem er eitt af því sem
einkenndi hana. Ég var svo heppin að
fá oft að dvelja langdvölum hjá henni
og afa þegar ég var yngri og kynntist
þeim því betur en ég hefði annars
gert og leit mikið upp til þeirra. Ekki
var ég eina barnið sem var hjá þeim í
sveitinni og oft var margt um mann-
inn og mikið um gestagang en alltaf
virtist vera pláss fyrir alla og nóg
handa öllum. Fyrsta skipti sem ég var
þar svo ég muni eftir mér var þegar
ég var að verða þriggja ára. Mamma
vonaðist til að ég lærði að borða
hafragraut því hann borðaði afi minn í
morgunmat á hverjum morgni. Ekki
var nú blessaður hafragrauturinn
píndur ofan í barnið heldur var ég
send fram í búr til að ná mér í skyr á
minn disk enda var það í miklu uppá-
haldi hjá mér en hafragrautinn lærði
ég að borða nokkrum árum seinna.
Ég lærði líka mína fyrstu vísu, Hafið
bláa hafið, og hana sungum við amma
saman meðan hún var að mjólka
kýrnar á hverjum morgni, enda hafði
amma gaman af ljóðum og alls konar
tónlist. Margt annað var gert í þessi
skipti sem ég var í Núpskötlu, þar
sem maður fékk að vera með í störf-
um þeirra eftir því sem aldur og
kraftar leyfðu, rýja féð, fara í berja-
mó, heimalandasmölun og fara sér til
skemmtunar á hestbak svo fátt eitt sé
nefnt. Seinna þegar heilsa þeirra
byrjaði að bila skrapp maður í hey-
skap og annað sem þurfti að gera svo
framarlega sem maður komst til þess
meðan þau voru með búskap. Síðasta
skiptið sem ég dvaldi hjá ömmu var
sumarið 1997 og þá kynntist ég ömmu
enn betur enda var margt spjallað
þessar vikur sem ég var þar. Eftir það
urðu samverustundirnar strjálar
enda ég flutt á annað landshorn.
Amma missti mikið þegar afi dó
enda höfðu þau fylgst að í rúm fimm-
tíu ár og voru mjög samstillt og sam-
hent hjón. Núna er hún farin til hans,
vona ég.
Hvíl í friði.
Þín nafna,
Álfhildur Eiríksdóttir.
Mig langar að rifja hér upp nokkur
minningabrot um mína ástkæru fóst-
urmóður Álfhildi Gunnarsdóttur frá
Núpskötlu á Melrakkasléttu.
Ekki var ég gömul þegar ég fór
fyrst í fóstur í Kötlu, innan við árs-
gömul. Var mér tekið opnum örmum,
umvafin ást og umhyggju frá þeim
hjónum sem ég í daglegu tali kallaði
alltaf Kötlu mömmu og Kötlu pabba.
Þegar ég horfi til baka minnist ég lið-
ins tíma þegar við Kötlu mamma átt-
um svo margar skemmtilegar stundir
saman. Ófáar voru ferðirnar er ég tók
í hönd þína og við gengum út á holtin
að mjólka kýrnar. Settist ég þá gjarn-
an á stein eða þúfu og beið þangað til
Kötlu mamma var búin að hefta kúna
og var byrjuð að mjólka. Þá var tekið
til við að spjalla og hlæja og margar
voru sögurnar sagðar og ævintýrin
því Kötlu mamma kunni nóg af þeim.
Eða þá ferðirnar sem við fórum
stundum að safna spreki í eldinn. Var
margur fjársjóðurinn í fjörunni og
átti Kötlu mamma alltaf svör við öll-
um spurningunum á einlægan og ein-
faldan hátt.
Í minningunni fannst mér Kötlu
mamma alltaf vera að vinna heimilis-
störfin, hvort sem var að baka eða búa
til smjör því flest var búið til á þessum
árum heima, eða taka á móti gestum
sem voru margir á þessum árum og
var ævinlega hlaðið borð af meðlæti.
Oft leyfði Kötlu mamma mér að mala
kaffi í litlu handsnúnu kvörninni og í
minningunni finnst mér það hafa ver-
ið það skemmtilegasta sem ég gerði.
Já, lánsöm var ég að alast upp hjá
þér stóran hluta bernsku minnar,
elsku Kötlu mamma, umvafin hlýju
og yl. Þú sendir mér einu sinni gjöf
sem er mér svo dýrmæt, sem er platti
sem á stendur „Mamma sem heldur í
hönd þína um stund en hjarta þitt alla
ævi.“
Eftir að ég varð fullorðin og kom
heim í Kötlu með fjölskyldu mína
tókst þú ávallt á móti okkur með út-
breiddan faðminn á hlaðinu og tilbúin
að gera dvölina sem ánægjulegasta. Í
fyrra kom ég norður og við áttum svo
skemmtilegan dag í sumarbústaðnum
í Öxarfirði og við sátum á veröndinni í
sólinni og töluðum um liðna tíma og
hvað árin líða allt of fljótt.
Kötlu mamma var sú kona sem lét
alltaf aðra ganga fyrir hvort sem var í
orði eða verki og lét aldrei styggð-
aryrði falla um nokkurn mann.
Elsku Kötlu mamma, þín er sárt
saknað en ég veit að núna ertu laus
við allar þjáningar og guð einn hefur
tekið þig í faðm sinn. Takk fyrir allt
og allt.
Kæru fóstursystkini og aðrir að-
standendur, ég votta ykkur samúð
mína.
Hulda Valdís Steinarsdóttir.
ÁLFHILDUR
GUNNARSDÓTTIREiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
YNGVI GUÐMUNDSSON
fyrrv. rafmagnseftirlitsmaður,
Hlíf II,
Ísafirði,
lést föstudaginn 15. ágúst.
Útför hans verður auglýst síðar.
Sigrún Einarsdóttir,
Þuríður Yngvadóttir, Guðmundur Jónsson,
Auður Yngvadóttir,
Einar Á. Yngvason, Emelía Þórðardóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSA JÓHANNSDÓTTIR,
Geitlandi 8,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 7. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jóhann Örn Sigurjónsson, Elsa S. Eyþórsdóttir,
Íris Sigurjónsdóttir, Hendrik Skúlason,
Þór Sigurjónsson, Hildur Jónsdóttir,
Nanna Sigurjónsdóttir, Sigurður Björnsson,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu
minningu hjartkærrar eiginkonu minnar,
móður og systur okkar,
SOFFIU NIELSEN,
Eskihlíð 26,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ríkisendur-
skoðunar, starfsfólks í reikningshaldi
Kaupþings-Búnaðarbanka, Garðari Cortes, félögum úr Karlakórnum
Fóstbræðrum, læknum og hjúkrunarfólki á Landakoti og Skjóli.
Guð blessi ykkur öll.
Guðjón Sigurðsson,
Anna Björg Guðjónsdóttir,
Guðrún Nielsen, Valdemar Nielsen,
Ólafur Nielsen, Helga Nielsen.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
!"#$$
%&&'''(
( Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug og heiðruðu
minningu ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR KR. GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. verkstjóra,
Þorláksgeisla 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Oddfellowstúkunni Ingólfi nr. 1, Jóhönnu
Björnsdóttur lækni og öllu starfsfólki á deild 11G á Landspítalnum Hring-
braut og heimahjúkrun Krabbameinsfélagsins.
Guð blessi og varðveiti ykkur öll.
Jóhanna Þorbjörnsdóttir,
Dagbjört Guðmundsdóttir, Sigurður Kjartansson,
Lovísa Guðmundsdóttir, Arnþór Bjarnason,
Þorbjörn Guðmundsson, Anna Linda Steinarsdóttir,
Vilborg Guðmundsdóttir, Loftur Jónasson,
barnabörn og langafabörn.