Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
A
B
X
9
03
04
97
Skuldabréf
Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis,
1. flokkur 2003 (SPR 03 1),
verða skráð 1. september nk.
Skuldabréf Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis,
1. flokkur 2003 (SPR 03 1), að upphæð 1.000 millj.
kr. að nafnvirði verða skráð 1. september 2003.
Útgáfudagur var 26. maí 2003. Endurgreiða skal
höfuðstól skuldarinnar í einu lagi á lokagjalddaga
þann 9. febrúar 2007.
Skuldabréfin í 1. flokki 2003 eru kúlubréf og eru
vaxtalaus. Skuldabréfin eru óverðtryggð. Engin
hlunnindi fylgja bréfunum. Heildarfjárhæð
útgáfunnar er allt að 2.000 millj. kr. að nafnvirði
og eru bréfin gefin út í 10 millj. kr. einingum.
Auðkenni: SPR 03 1. ISIN-auðkenni: IS0000007797.
Umsjón með skráningu: Viðskiptastofa SPRON.
ENGIN varanleg úrræði virðast í
sjónmáli fyrir mikið fatlaða nemend-
ur á framhaldsskólaaldri í Safamýr-
arskóla í Reykjavík. Safamýrarskóli
er grunnskóli fyrir fatlaða með 19
skráða grunnskólanemendur, en hef-
ur jafnframt hýst fatlaða nemendur á
framhaldsskólaaldri til bráðabirgða
þar til viðunandi úrræði finnast. Erla
Gunnarsdóttir, skólastjóri Safamýr-
arskóla, segir að skólinn hafi fyrir
löngu sprengt utan af sér og geti ekki
lengur með góðu móti hýst fatlaða
framhaldsskólanemendur. Tíu fatlað-
ir nemendur verða við nám í skólan-
um í vetur og hefur Styrktarfélag
vangefinna látið framhaldsskóladeild
Safamýrarskóla í té skólastofu í dag-
heimilinu Lyngási þar sem rekin er
dagvist fyrir fatlaða til næstu ára-
móta. Sex nemendanna hófu nám við
skólann í fyrradag en fresta þurfti
skólabyrjun um viku hjá þeim fjórum
nemendum sem verða í skólastofunni
í Lyngási. Þeir hefja nám í skólanum
næstkomandi mánudag.
Þjöppum okkur saman
Erla Gunnarsdóttir segir húsnæðið
í Lyngási vera afbragðsgott og í raun
mun betra en aðstaðan í Safamýrar-
skóla og þannig prýðis millilending í
málinu þar til Fjölbraut í Ármúla taki
yfir rekstur framhaldsskóladeildar-
innar eins og rætt hafi verið um. Lítið
bendi hins vegar til þess á þessari
stundu að þau mál séu í undirbúningi
og margir foreldrar óttist að mál
barna sinna haldi áfram að velkjast í
kerfinu.
„Við búum mjög þröngt og erum
með mjög mikið af mikið fötluðum
nemendum sem eru mjög hreyfihaml-
aðir og annað slíkt og hver nemandi
þarf óskaplega mikið pláss. Við höfum
bara þjappað okkur saman til þess að
geta sinnt þessu verkefni og hugsað
með okkur að það gangi af því að
þetta er tímabundið mál en svo er
þetta bara ekkert tímabundið. Þetta
hefur verið árviss viðburður að við
keyrum hérna framhaldsstig,“ segir
Erla. Hún segir að svo virðist sem
menntamálaráðuneytið eygi ekki
aðra lausn í málinu eða dragi einfald-
lega lappirnar í því, að hennar mati.
Nemendurnir sem um ræðir eru
mikið fatlaðir, mismikið þó, en eiga
það sameiginlegt að eiga ekki örugga
námsvist í framhaldsskólum.
Dæmi eru um að sum þessara
barna hafi ítrekað fengið synjun um
skólavist í framhaldsskólum sem
bjóða upp á námsúrræði fyrir fatlaða
en fyrir önnur hefur ekki verið óskað
sérstaklega eftir námsvist í fram-
haldsskóla og munu nokkur þeirra
ljúka fjögurra ára námi í framhalds-
deild Safamýrarskóla.
Ríki og Reykjavíkurborg
leysi úr sínum málum
Sölvi Sveinsson, skólameistari
Fjölbrautaskólans í Ármúla, segir að
menntamálaráðuneytið hafi farið
þess á leit við skólann fyrir nokkru að
hann taki að sér rekstrarlega og fag-
lega ábyrgð á nemendum Safamýra-
skóla sem eru á framhaldsskólastigi
og að upphaflega hafi verið rætt um
að það yrði frá og með þessu hausti.
„Við höfum lýst okkur reiðubúna til
þess að yfirtaka húsnæðið, endur-
skipuleggja það og reka í samræmi
við þær námskrár sem til staðar eru
fyrir þessa nemendur.
[…]Við höfum sagt sem svo að
ráðuneytið og Reykjavíkurborg verði
að ganga frá sínum málum fyrst. Ekki
ætlar skólinn að taka eitthvað að sér
sem er óklárt. Mér skilst að það sé svo
að ríkið eigi húsnæðið sem þessi starf-
semi er í, mér skilst jafnframt að það
sé markmiðið að byggja við Öskju-
hlíðarskóla til þess að borgin geti flutt
grunnskólastarfsemina úr Safamýr-
arskóla. Þá taki ríkið að fullu við
þessu húsnæði og okkur verði falin
forsjá þessa námsframboðs.“
Sölvi segir að til viðbótar við nem-
endur Safamýrarskóla hafi hugmynd-
in verið að þangað kæmu einnig mikið
fatlaðir nemendur á framhaldsskóla-
stigi annar staðar frá. Hann segir
húsnæði Fjölbrautaskólans í Ármúla
ekki henta fyrir mikið fatlaða og að
ekki sé í undirbúningi að mikið fatl-
aðir nemendur sinni námi innan
veggja skólans í Ármúla.
Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Styrktarfélags vangefinna, seg-
ir nóg af „tilboðum“ í framhaldsskól-
um fyrir þann hóp fatlaðra sem hafi
meiri getu en sá hópur sem hér um
ræðir, þ.e. mikið fatlaðir. Sá hópur
hafi í raun lent úti í kanti innan kerf-
isins frá upphafi, hann þarfnist meiri
umönnunar og sé „þyngri“ í allri þjón-
ustu. Málin hafi verið leyst með því
sem foreldrar kalli „björgunarað-
gerðir og plástra ár eftir ár“.
Hún segir að sú staða hafi komið
upp hjá Styrktarfélaginu vegna
breyttra aðstæðna að kennslustofan
sem nemendur Safamýrarskóla fái nú
afnot af hafi losnað fyrir hádegi en
eingöngu tímabundið og ekki sé hægt
að lofa nemendum þeirri aðstöðu
lengur en til áramóta.
Varanleg lausn í sjónmáli
„Okkur er kunnugt um þennan
vanda og þykir miður að ekki skyldi
takast að leysa vanda allra nema fyrir
skólabyrjun. Lausn málsins er innan
seilingar og það er aðeins dagaspurs-
mál hvenær málið verður í höfn. Þótt
skólabyrjun deildarinnar tefjist um
nokkra daga er ljóst að allir munu
hafa skólavist og mikið og gott starf
að hefjast. Þess má líka geta að ná-
lægt þrjú hundruð fatlaðir nemendur
eru í sérdeildum framhaldsskólanna
og tekst vel til með kennslu þeirra.
Námið hefur lengst úr tveimur árum í
fjögur og mikið þróunarstarf er í
gangi. Aðalatriði málsins er að innan
skamms munu allir fjölfatlaðir nem-
endur eiga kost á því að sækja nám í
almennum framhaldsskóla. Þessir
nemendur og aðstandendur þeirra
hafa sýnt mikla þrausteigju og yfir-
völd menntamála hafa á undanförn-
um misserum reynt að koma til móts
við þarfir þeirra og óskir. Nú er var-
anleg lausn í sjónmáli,“ segir Tómas
Ingi Olrich, menntamálaráðherra.
Ekki eru neinar varan-
legar lausnir í sjónmáli
Áfram óvissa hjá fötluðum fram-
haldsskólanemum í Safamýrarskóla
FRIÐGEIR Kristinsson, faðir mikið
fatlaðs drengs á nítjánda ári, sem
útskrifaðist úr grunnskóladeild
Öskjuhlíðarskóla fyrir tveimur ár-
um, segir að enn þann dag í dag sé
engin varanleg lausn fundin á því
hvar sonur hans geti stundað fram-
haldsnám þrátt fyrir ítrekaða
fundi með tveimur ráðherrum í
menntamálaráðuneyti og öðru
starfsfólki ráðuneytisins í á þriðja
ár. Menntakerfið hafi að þessu
leyti brugðist syni sínum alger-
lega.
„Honum hefur verið úthýst alls
staðar. Það hafa engin tilboð verið
uppi sem orð eru á festandi heldur
hefur verið um bráðabirgðalausnir
að ræða,“ segir hann.
Síðastliðinn vetur var sonur
hans í Borgarholtsskóla ásamt öðr-
um fötluðum einstaklingi í umsjá
tveggja starfsmanna skólans, en þó
ekki innan sérdeildar skólans. Syni
hans hafi þannig í þrígang verið
neitað um inngöngu í sérdeild Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti á þeim
forsendum að hann væri í hjólastól.
Í hittiðfyrra hafi málin verið
leyst þannig að sonur hans hafi
verið á vegum fullorðinsfræðslu
fatlaðra tvo daga í viku en annars
á Gylfaflöt sem er dagheimili fyrir
fatlaða.
Friðgeir og kona hafa tvisvar
farið á fund Tómasar Inga Olrich
menntamálaráðherra vegna máls
sonar síns auk þess sem þau fóru
tvisvar á fund Björns Bjarnasonar,
þáverandi menntamálaráðherra.
Hann segir að í þeim samtölum
hafi „öllu verið lofað en lítið efnt“.
„Bæði Björn og Tómas Ingi eru
búnir að segja að þetta snúist ekki
um peninga. En um hvað snýst
þetta þá? Þetta snýst um að fram-
kvæma hlutina og vinna sína
heimavinnu.“ Friðgeir og kona
hans áttu fund með ráðherra síðast
í júní á þessu ári. Þá hafi verið
rætt um að nokkrir mikið fatlaðir
nemendur, þar á meðal sonur
þeirra, fengju inni í Safamýr-
arskóla og hefðu aðstöðu í Lyngási
til bráðabirgða. Fjölbraut í Ármúla
ætti að sjá um kennsluna og hefði
kennslan átt að hefjast 25. ágúst.
Það hefði þó ekki gengið eftir
frekar en annað í „loforðaflaumi“
menntamálaráðuneytisins.
„Honum hefur verið
úthýst alls staðar“
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Regal
Princess lagðist við bryggju á ytri
höfninni í Reykjavík í gærmorgun,
og hélt af stað á ný í gærkvöldi.
Það er skráð á bresku Jómfrúr-
eyjum, er um 70 þúsund tonn og
um 245 metrar að lengd. Þetta er
í fyrsta sinn sem Regal Princess
kemur til Íslands. Að sögn Ágústs
Ágústssonar, markaðsstjóra
Reykjavíkurhafnar, er það meðal
stærstu skipanna sem heimsækja
höfnina í sumar. Það er á leið með
bandaríska ferðamenn frá Belfast
yfir til Grænlands, og mun síðar
sigla niður með austurströnd Kan-
ada og Bandaríkjanna á leið sinni
til Karíbahafsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Prinsessu-
skip við ytri
höfnina
GRUNNSKÓLANEMUM fjölgar
lítillega í öllum nágrannasveitarfélög-
um Reykjavíkur, en fækkar í Reykja-
vík. Mest er fjölgunin um 3,3% í Mos-
fellsbæ.
Sólborg Alda Pétursdóttir, grunn-
skólafulltrúi í Mosfellsbæ, segir aukn-
inguna áberandi í Lágafellsskóla þar
sem nemendum fjölgar úr 375 í 440
milli ára. Skýringuna segir hún ein-
faldlega vera fjölgun bæjarbúa.
Sólborg segir að framkvæmdir við
skólana eigi ekki að tefja skólastarfið.
Framkvæmdir við Lágafellsskóla séu
að hefjast þar sem eigi að bæta við
stofum. „Að öðru leyti tókst að ljúka
öllu fyrir skólabyrjun.“
Í sama streng taka forsvarsmenn
grunnskóla í öðrum nágrannasveitar-
félögum Reykjavíkur. Almennt hafa
framkvæmdir við skólana gengið vel í
sumar og er þeim að ljúka eða lokið.
Skólastarf fer því af stað á réttum
tíma þótt sums staðar eigi enn eftir að
ganga frá smáatriðum.
!"
"#
!
!
" #
$
% !
! !
&
Eingöngu
fækkun í
Reykjavík
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í Kópavogi leitar nú
karlmanns sem framdi vopnað rán í
söluturni á Kópavogsbraut síðastlið-
ið sunnudagskvöld. Tilkynnt var um
ránið klukkan 20.42 þá um kvöldið.
Maðurinn kom inn í söluturninn,
vopnaður hnífi með klút fyrir andliti
og krafði afgreiðslustúlku um pen-
inga úr afgreiðslukassa. Hlýddi hún
ræningjanum og er talið að hann hafi
komist á brott með 50 til 60 þúsund
krónur. Afgreiðslustúlkan var ein við
störf þegar ránið var framið og er
hún ómeidd.
Sjoppuræn-
ingja leitað