Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 45 KNATTSPYRNULIÐ Fjarðabyggð- ar fór illa að ráði sínu í úrslitakeppni 3. deildarinnar í gærkvöld þegar það tapaði niður góðri stöðu í henni þriðja árið í röð. Fjarðabyggð sigr- aði Leikni úr Reykjavík, 3:0, í fyrri leik liðanna á Eskifirði um síðustu helgi en tapaði síðan, 4:0, fyrir Leikni í Breiðholtinu í gærkvöld og féll þar með úr keppni. Lið Fjarðabyggðar varð til árið 2001 þegar Þróttur úr Neskaupstað sameinaðist liði KVA frá Eskifirði og Reyðarfirði. Þá um haustið missti Fjarðabyggð niður góða stöðu gegn KFS frá Vestmannaeyjum í síðari leik liðanna í 8 liða úrslitum og fékk á sig mörk í framlengingu sem felldu liðið úr keppni. Í fyrra var Fjarðabyggð komin skrefi lengra, vann þá Fjölni 3:2 í Reykjavík í fyrri úrslitaleiknum um sæti í 2. deild, en tapaði síðan 0:2 á heimavelli. Álögin virðast ekki aðeins fylgja liði Fjarðabyggðar því árið fyrir sameininguna var Þróttur úr Nes- kaupstað með sæti í 2. deild í hönd- unum. Þá vann liðið Nökkva á Akur- eyri, 2:1, í fyrri úrslitaleik liðanna en tapaði síðan 3:4 á heimavelli og sá á eftir Nökkva upp um deild. Norð- firðingar hafa því upplifað þessi vonbrigði fjögur ár í röð og sitja enn eftir í 3. deildinni. Það verða hins vegar Reykjavík- urliðin Leiknir og Númi sem heyja annað úrslitaeinvígið um sæti í 2. deild og í hinu eigast við Víkingur frá Ólafsvík og Höttur frá Egils- stöðum. Enn situr Fjarðabyggð eftir með sárt ennið TEDDY Sheringham, fyrrum miðherji enska lands- liðsins í knattspyrnu, sem var látinn fara frá Tott- enham í sumar, skoraði þrennu í gærkvöld þegar nýliðar Portsmouth unnu stórsigur á Bolton, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni. Mörkin komu öll í síðari hálf- leik, tvö þeirra á lokamínútum leiksins. Bolton situr í næstneðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir þrjá leiki og hefur fengið á sig tíu mörk. Hermann Hreiðarsson krækti í vítaspyrnu þegar Charlton gerði jafntefli við Everton, 2:2. Jason Euell skoraði úr spyrnunni, sem var hans önnur í leiknum, en Wayne Rooney náði að jafna metin fyr- ir Everton. Hermann lék allan leikinn í vörn Charlton. Stoke City er taplaust í fjórða sæti 1. deildar eftir markalaust jafntefli við Millwall á heimavelli. Pétur Marteinsson missti sæti sitt í byrjunarliði Stoke og sat á varamannabekknum allan tímann. Stoke var mun betri aðilinn og markvarsla Tonys Warners færði Millwall stigið. Portsmouth á topp úrvalsdeildarinnar  ÚLFAR Jónsson, kylfingur úr Keili og sexfaldur Íslandsmeistari, setti um helgina glæsilegt vallarmet á Urriðavatnsvelli hjá Oddi. Úlfar lék af gulum teigum og lauk leik á 65 höggum, fékk sjö fugla og ellefu pör, kom því inn á sjö höggum undir pari.  SIGURBERGUR Sveinsson, úr Keili í Hafnarfirði, fór holu í höggi í Bryggjugolfi sem Björgvinir, stuðn- ingsmenn Björgvins Sigurbergsson- ar, héldu á sunnudaginn. Keppnin fór þannig fram að slegið var úr fjöruborðinu í Hafnarfjarðarhöfn út á fljótandi flöt skammt frá landi.  FLÖTIN var 50 metra frá landi og þar sem dálítill vindur var reyndist þetta mörgum erfitt, en af 550 bolt- um sem fólk keypti til að reyna sig við lentu 54 á 9 fermetra flötinni.  HALLDRÓR Ingólfsson átti næst- besta höggið, boltinn hans lenti 10 sentimetra frá holunni, Emil Þór Jónsson sló 12 sentimetra frá og Ingi Rúnar Gíslason 13 en besta högg kvenna átti Tinna Jóhannsdóttir, 54 sentimetra frá holu.  HJÁLMAR Jónsson lagði upp síð- ara mark Gautaborgar sem gerði jafntefli, 2:2, við Örebro á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Gautaborgarlið- ið komst þá yfir en Örebro jafnaði á lokamínútu leiksins. Hjálmar lék all- an leikinn en hann hefur átt fast sæti í liði Gautaborgar frá miðju sumri.  RIO Ferdinand, miðvörður Eng- landsmeistara Manchester United hefur skipað samherjum sínum að vera á tánum og að þeir megi ekki vanmeta nýliða Wolves er liðin mæt- ast á Old Trafford í kvöld. „Það eru engin stig unnin fyrirfram. Leik- menn Wolves eru særðir eftir eftir slæma byrjun og verða eflaust mjög grimmir.“  TALIÐ er að Real Madrid sé á eft- ir Roberto Ayala, varnarmanni Val- encia. Carlos Queiroz, þjálfari Real Madrid, vill kaupa tvo leikmenn til félagsins, varnarmann og miðju- mann.  EYAL Berkovic, miðjuleikmaður Manchester City, vill vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir að hann hafi farið fram á að vera seldur frá liðinu áður en tímabilið hófst. „Mig langar að vera hjá City þar til ég hætti að leika knattspyrnu. Meira að segja þegar ég bað um að vera seldur vildi ég innst inni vera áfram hjá liðinu. Ég elska félagið og ég ætla að draga ósk mína til baka um að vera seldur frá félaginu,“ sagði Berkovic.  HIN 13 ára gamli kylfingur, Mich- ella Wie, tók þátt í karlamóti á kan- dadísku mótaröðinni í liðinni viku. Henni tókst ekki að verða fyrst kvenna til að komast áfram í karla- móti þegar keppendum var fækkað, var fimm höggum frá því. FÓLK JÓHANN Þórhallsson, marka- hæsti leikmaður 1. deildar karla í knattspyrnu, leikur ekki meira með Þórsurum á Akureyri á þessu keppnistímabili. Jóhann var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann af aganefnd KSÍ fyrir að gefa leik- manni Víkings, Sölva Ottesen, oln- bogaskot í leik liðanna síðasta laugardag, með þeim afleiðingum að Sölvi kinnbeinsbrotnaði. Þrem- ur umferðum er ólokið í 1. deild- inni og Þórsarar, sem berjast við Víkinga um sæti í úrvalsdeildinni, verða án Jóhanns í leikjum gegn Haukum, Stjörnunni og Leiftri/ Dalvík. Að auki fékk félagi hans, Þórður Halldórsson, eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda og verður ekki með í næsta leik Þórs. Aðrir leikmenn úr 1. deild sem eru komnir í bann vegna gulra spjalda eru Bjarki Már Árnason úr Aftur- eldingu, Heiðar Gunnólfsson og Garðar Hafsteinsson úr Leiftri/ Dalvík, Haukur Úlfarsson úr Vík- ingi og Jóhann Ingi Jóhannsson úr HK en þeir missa allir af næsta leik síns liðs. Jóhann leikur ekki meira með Þórsurum KR-INGAR verða án tveggja lykil- manna sinna þegar þeir sækja Grind- víkinga heim í 16. umferð úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu næsta mánudag. Þeir Veigar Páll Gunnars- son og Kristján Örn Sigurðsson, sem hafa leikið mjög vel með Vesturbæ- ingum í sumar, voru báðir úrskurð- aðir í eins leiks bann í gær, Veigar Páll vegna sex gulra spjalda og Krist- ján vegna fjögurra. Skörðin sem þeir skilja eftir sig í liði KR verða vandfyllt en þess má geta að Veigar Páll hefur misst af þremur deildaleikjum í sum- ar og KR hefur tapað þeim öllum. KA verður án tveggja varnar- manna sinna í fallslagnum við Val á sunnudaginn því að þeir Steinn Viðar Gunnarsson og Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson taka þá báðir út eins leiks bann. Þá verður Stefán Þór Þórðarson ekki með ÍA gegn Fylki á mánudags- kvöldið af sömu ástæðum. Veigar og Kristján í banni gegn Grindavík Varnarmennirnir ungu Glen John-son og Robert Huth skoruðu báðir í fyrsta skipti fyrir aðallið Chelsea og Hasselbaink innsiglaði sigurinn seint í leiknum. Þeir Juan Sebastian Veron, Damien Duff og Wayne Bridge voru allir hvíldir í gærkvöld og þá voru nýju sóknarmennirnir, Hernan Crespo og Adrian Mutu, ekki orðnir löglegir með liðinu í keppninni. Þeir verða það aftur á móti þegar riðla- keppni deildarinnar hefst í haust. Joe Cole var í fyrsta sinn í byrjunar- liði Chelsea. Crespo kynntur á Stamford Bridge Hernan Crespo, argentínski landsliðsmiðherjinn í knattspyrnu, skrifaði í gærkvöld undir samning við Chelsea. Hann var kynntur með viðhöfn í leikhléi á leik félagsins gegn Zilina frá Slóvakíu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og var hon- um afar vel tekið af stuðningsmönn- um félagsins á Stamford Bridge. Crespo er 28 ára gamall og Chelsea kaupir hann af Inter frá Mílanó. Kaupverð hans hefur ekki verið gefið upp opinberlega en talið er að það sé í kringum tvo milljarða íslenskra króna. Forráðamenn Chelsea gera sér vonir um að keppnisleyfi hans liggi fyrir áður en Chelsea mætir Blackburn í úrvals- deildinni um næstu helgi. Þar með eykst enn samkeppnin um stöðurnar í framlínu Chelsea; um þær berjast nú Hernan Crespo, Adrian Mutu, Eiður Smári Guðjohn- sen, Jimmy Floyd Hasselbaink og Mikael Forssell. Sjötti sóknarmaður félagsins, Carlton Cole, var í gær lánaður til Charlton Athletic. Rosenborg missti af meistaradeildarsæti Rosenborg frá Noregi missti af sæti í meistaradeildinni þegar liðið tapaði, 1:0, fyrir Deportivo La Cor- una á Spáni. Liðin höfðu gert marka- laust jafntefli í Þrándheimi. Albert Luque skoraði sigurmarkið snemma leiks en norska liðið nýtti ekki góð færi til að jafna metin í síðari hálf- leik. Árni Gautur Arason sat á vara- mannabekk norsku meistaranna. Reuters Richard Wright, markvörður Everton, viðbúinn að verja vítaspyrnu Jason Euell, leikmanns Charlton í leik liðanna í gær, en Hermann Hreiðarsson krækti í vítaspyrnuna. Chelsea komið í Meistaradeildina CHELSEA var ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í Meist- aradeild Evrópu í gærkvöld. Enska liðið vann Zilina frá Slóv- akíu, 3:0, í síðari viðureign lið- anna á Stamford Bridge í Lond- on og vann því samanlagt 5:0.Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá Chelsea, ásamt Jimmy Floyd Hasselbaink. Hann átti þátt í þriðja markinu og var óheppinn að skora ekki í síðari hálfleiknum þegar hann átti þrumuskot í innanverða stöng- ina á marki Slóvakanna. BELGÍSKA blaðið Het Laatste Niuws fjallar í grein um Íslendingaliðið Lokeren og spyr hvað sé að hrjá liðið sem ekki hefur náð sér á strik í upphafi belgísku 1. deildarinnar í knattspyrnu. „Hvar er hinn frábæri Rúnar Kristinsson og Arnar Grétarsson sem drógu vagn- inn hjá Lokeren á síðustustu leiktíð? Arnar Viðarsson er sá eini sem er í sama formi og á síðustu leiktíð. Hann lék af sama krafti og venjulega í tap- leik Lokeren um helgina. Aðrir léku langt undir getu. Miðjumennirnir sem léku svo vel sem gerði það að verkum að Lokeren lék einu skemmtilegu knattspyrnuna í deildinni sjást nú varla í leikjunum,“ segir meðal annars í grein blaðsins. Forseti Lokeren, Lambrecht, tekur í sama streng og blaðið: „Í fyrra lékum við bestu knattspyrnuna í Belgíu. Íslendingarnir og De Beule leika nú illa og það er aðeins Arnar Þór Viðarsson sem leikur samkvæmt getu.“ „Hvar eru Rúnar og Arnar?“ Rúnar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.