Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 40
DAGBÓK
40 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket, Akureyrin,
Taiwa Maru no. 88,
Mánafoss, Taiwa
Maru no. 78, Helgafell
og Akademik S.Vavi-
lov koma í dag. Brúar-
foss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Jumbo kemur í dag
Brúarfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofan er lokuð í júlí
og ágúst. Sími for-
manns er 892 0215.
Mannamót
Aflagrandi 40. Leik-
fimin hefst 1. sept-
ember kl.9, jóga hefst
2. september kl.9 og
línudans kl.11 sama
dag. Skráning í síma
562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan op-
in. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9-16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin, kl.
13.30 söngstund, kl.
14.30 bankaþjónusta,
kl. 14.40 ferð í Bónus,
púttvöllurinn opinn kl.
9-16.30.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9 silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13.30
bankaþjónusta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
opin vinnustofa, kl. 9–
12 hárgreiðsla, kl. 9–
16.30 fótaaðgerð. Pútt-
völlurinn opinn frá kl.
14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl.
10 hárgreiðsla, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarfið Sléttu-
vegi 11-13. Fimmtu-
daginn 28. ágúst byrj-
ar leikfimi kl. 9. Hin
árlega grillveisla verð-
ur fimmtudaginn 28.
ágúst kl. 18.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofa
félags eldri borgara í
Kópavogi er opin í dag
frá kl. 10–11.30, við-
talstími í Gjábakka kl
15–16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pílu-
kast kl. 13.30 Billjard
kl 13.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17, kl. 13 félagsvist, kl.
17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könn-
unni.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin handavinnustofa,
kl. 9 fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 10
pútt, kl. 11 banki, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10.30 ganga. Fótaað-
gerðir og hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerð, kl.
13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15-
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt
og spjallað.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 morg-
unstund, fótaaðgerð,
kl. 12.30 versl-
unarferð.
Hafnargönguhóp-
urinn Kvöldganga kl.
20 alla miðvikudaga.
Lagt af stað frá horni
Hafnarhússins norð-
anmegin.
Minningarkort
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í síma 560-1300
alla virka daga milli
kl. 8 og 16. Utan dag-
vinnutíma er tekið á
móti minningargjöfum
á deild 11-E í síma
560-1225.
Hranfkelssjóður
(stofnað 1931) minn-
ingarkort afgreidd í
símum 551-4156 og
864-0427.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu
Jónsdóttur flugfreyju
eru fáanleg á eftirfar-
andi stöðum: Á skrif-
stofu Flugfreyjufélags
Íslands, s. 561-4307/
fax 561-4306, hjá Hall-
dóru Filippusdóttur, s.
557-3333 og Sig-
urlaugu Halldórs-
dóttur, s. 552-2526.
Minningarkort, Fé-
lags eldri borgara
Selfossi eru afgreidd á
skrifstofunni Grænu-
mörk 5, miðvikudaga
kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482-1134, og
verslunni Íris í Mið-
garði.
Í dag er miðvikudagur 27. ágúst,
239. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Þegar þú leggst til hvíldar,
þarft þú ekki að hræðast, og hvíl-
ist þú mun svefninn verða vær.
(Ok. 3, 24.)
Flosi Eiríksson segir áKreml.is að afstaða
bresku ríkisstjórnarinnar
og framganga Tony Blair
í Íraksstríðinu hafi valdið
mörgum jafnaðarmönn-
um vonbrigðum. „Fylgi-
spekt við Georg Bush
Bandaríkjaforseta og
rökfærslan um nauðsyn
innrásar í Írak hafa vald-
ið því að vinsældir Tony
Blair hafa aldrei verið
minni og Íhaldsflokk-
urinn undir forystu hins
litlausa og misheppnaða
Duncan-Smith hefur
mælst með örlítið meira
fylgi en Verkamanna-
flokkurinn. Við þessar að-
stæður fara ýmsir skrif-
arar hér á landi mikinn,
hér sé komin sönnun þess
að „New Labour“ séu í
raun hægri menn í dul-
argervi eða í besta falli
„kratar“. Þetta sjónarmið
hefur komið fram hjá
nokkrum ungum félögum
í Vinstri grænum, á vef-
ritinu Múrnum og víðar.
Reynt er að finna hlið-stæðu með og draga
alls konar ályktanir af
ósigri Verkamanna-
flokksins í Bretlandi
1951. Þá hafi flokkurinn
tapað vegna þess að hann
innleiddi gjöld í heil-
brigðisþjónustunni til
þess að borga fyrir mikið
prógramm í hermálum.
Hér hafi verið það sama á
ferðinni, fylgispekt við
Bandaríkin og „svik krat-
anna“ í flokksforystunni.
Kenningin er að flokk-
urinn hafi tapað af því
hann var ekki nógu
vinstrisinnaður,“ segir
Flosi. Hann rekur ekki
sögu breska Verka-
mannaflokksins en segir
að flokkurinn hafi tapað
fyrir Margréti Thatcher
árið 1979 þar sem stór
hluti verkamanna hafi
flutt sig yfir til íhalds-
flokksins þegar verka-
mannaflokkurinn sökk
dýpra og dýpra í óraun-
hæft og óraunsætt þjóð-
nýtingarblaður.
Ýmsir félagar í VG hafameiri áhuga á hinu
venjulega skensi ís-
lenskra stjórnmála en
slíkum vinnubrögðum og
því varð þátttaka Ingi-
bjargar Sólrúnar á ráð-
stefnu um Framsækna
stjórnarhætti í London í
júlí þeim tilefni til alls
konar brandara og
vondra söguskýringa.“
Hins vegar segir Flosi að
þeir leiðtogar vinstri
manna, sem vilji breyta
heiminum, hafi sóst eftir
því og fengið raunveru-
legt umboð til þess, hafi
sótt þá ráðstefnu. Meg-
intilgangurinn sé að
koma því inn hjá kjós-
endum að Samfylkingin
sé meðvirk í þessu öllu og
styðji Bush og Blair sem
réðust inn í Írak. „Enn
neitar fólk sem setur
sjónarmið sín fram með
þessum hætti að horfast í
augu við raunveruleikann
og leita breytinga á hon-
um. Það vill ekki við-
urkenna að leiðin til þess
að efla samhjálp og
styrkja jöfnuð er ekki að
stofna leshring eða vitna í
Bevin, þar finnum við
ekki lausnir á okkar úr-
lausnarefnum.“
STAKSTEINAR
Breytir ekki heiminum
með því að stofna les-
hring og vitna í Bevin
Víkverji skrifar...
HAUSTIN eru í uppáhaldi hjáVíkverja, ekki síst fyrir þeirra
hluta sakir að þá getur hann verið að
borða ber öllum stundum, krækiber,
bláber, jarðarber, rifsber og svo
framvegis. Honum finnst ekkert
jafnast á við íslenska skyrið hlaðið
glænýjum krækiberjum, íslensku
aðalbláberin eru náttúrlega einstök
með sykri og rjóma og síðan eru
heimatilbúnar sultur ómissandi í
búrið. Í byrjun viku tók Víkverji sig
til og tíndi rifsber í hlaup og sólber í
sultu og síðan tvísteig hann fyrir
framan stikilsberjarunnana. Honum
finnst alveg glatað að nýta ekki þessi
grænu fallegu ber en hann hefur
ekki hugmynd um hvernig á að sulta
þau eða matreiða yfirleitt.
Er ekki einhver sem lumar á góðri
uppskrift þar sem stikilsber koma
ríkulega við sögu?
Í garði Víkverja er líka rabarbari
og núna er meiningin að sjóða hann
niður í sultur og grauta. Málið er
bara að Víkverja var sagt frá frá-
bæru mauki úr tómötum og rab-
arbara og hann týndi uppskriftinni.
Íslenskir tómatar hafa verið seldir á
mjög hagstæðu verði undanfarið og
frábært að sjóða þá niður núna eða
setja í rétti sem má geyma og frysta
til vetrarins. Nokkur sem getur að-
stoðað og gefið uppskrift þar sem
rabarbari og tómatar eru í aðal-
hlutverki?
x x x
VÍKVERJI fór á rúntinn umhelgina til að kaupa stílabækur,
penna og blýanta og það sem krakk-
arnir á heimilinu þurfa í skólann.
Hann fór í nokkrar búðir og getur
ekki orða bundist yfir því hve sam-
keppnin hefur haft góð áhrif þ.e. fyr-
ir neytendur. Verðið hefur hríðlækk-
að frá því í fyrra. Ef til dæmis er
tekið dæmi af vinsælum strokleðrum
sem heita Boxy þá kostar stykkið nú
15-17 krónur þar sem það er ódýrast
en Víkverji borgaði í fyrra 90 krónur
fyrir stykkið.
Talandi um samkeppni og verð, þá
hefur vinur Víkverja verið að þræða
raftækjaverslanir í leit að eldavél,
keramikhelluborði með snertitökk-
um. Hann fer búð úr búð og nóg er
til af keramikhelluborðum sem kosta
allt frá fjörutíu þúsund krónum og
upp í á annað hundrað þúsund. Vin-
urinn veit ekkert hvað hann á að
kaupa og er í mesta basli með að
ákveða sig. Hann kvartar sáran yfir
því að starfsfólkið geti í raun ekkert
upplýst sig um helluborðin. Í ein-
hverjum tilvikum hafa helluborðin
virst næstum eins nema verðið er
mismunandi. Þá hefur starfsfólkið
yppt öxlum og sagt að vörumerkið
kunni að vera skýringin.
Og hvað þýðir það, segir þessi vin-
ur Víkverja. Þýðir það með öðrum
orðum að það borgi sig að kaupa
helluborðið sem er ódýrara? Er end-
ingin svipuð?
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Víkverji leitar logandi ljósi að
skemmtilegum uppskriftum þar sem
rabarbari og stikilsber koma við sögu.
EFTIR að hafa horft á
fréttir og lesið umfjöllun
DV um lán Heklu hf., lán
þeirra á bifreið til Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur finn ég mig knúinn til að
lýsa yfir hneykslan minni á
þessu bulli.
Ég og fjölskylda mín er-
um svokallaðir góðvið-
skiptavinir Heklu hf. Seint
á síðasta ári lenti ég í
slæmu umferðarslysi.
Málsatvik voru flókin þar
sem slysvaldur ók á brott af
vettvangi og langan tíma
tók að vinna úr málsgögn-
um.
Sökum vinnu minnar gat
ég ekki verið bíllaus. Ég
lagði því leið mína í söluum-
boð Heklu þar sem ég er
vel þekktur og tjáði þeim að
mig vantaði bíl en gæti ekki
fest kaup á bíl fyrr en ég
fengi bílinn sem lenti í tjón-
inu útborgaðan. Þeir spyrja
mig á móti hvernig bíl ég
ætli að fá mér. Ég svaraði
því. Eftir hádegi þennan
dag var kominn bíll akkúr-
at eftir mínum óskum á
planið.
Þennan bíl lánaði Hekla
hf. mér í 3 mánuði endur-
gjaldslaust. Reyndar líkaði
mér það vel við bílinn að ég
keypti hann.
Ég vil líka benda fólki á
að þetta er það sem gengur
og gerist í bílaumboðum.
Vil ég líka benda frétta-
mönnum Ríkissjónvarps,
Stöðvar 2 og DV á að afla
sér heimilda áður en þeir
leggja út á þennan veg
ásakana. Finnst mér að
þeir eigi skilyrðislaust að
biðja Heklu hf. og Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
afsökunar á þessum frétta-
flutningi.
Sigurður Pálsson.
Útsaumsmynd –
hirtir í skógi
FYRIR 15–20 árum saum-
aði móðir mín heitin kross-
saumsmynd eftir mynstri í
gömlu hefti af Nordisk
Mønstertidende. Myndin
sýnir tvo hirti í skógi með
háum trjám, og eru margir
litir í henni. Hún gaf þessa
mynd manni sem hafði gert
henni stóran greiða, en
nokkru síðar lést hann.
Mig langar til að vita
hvort einhver kannast við
að hafa myndina undir
höndum, og er ég tilbúin að
bjóða umsemjanlega borg-
un fyrir hana, þar sem mig
langar mikið til að fá hana
aftur.
Vinsamlega hafið sam-
band í netfangið ingai-
@simnet.is eða í síma
552 0371.
Tapað/fundið
Lyklakippa
týndist
LYKLAKIPPA með mörg-
um lyklum og bíllykli týnd-
ist fyrir nokkrum dögum.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 695 5829.
Úr í óskilum
ÚR fannst á Laugavegi.
Uppl. í síma 562 4561.
Hálsfesti týndist
HÁLSFESTI, þríkross í
gullkeðju, týndist fyrir 2
vikum síðan, líklega í Kópa-
vogi eða við Suðurlands-
braut/Skipholt. Festin er
eiganda mjög kær. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 898 7882.
Barbí-skólataska
í óskilum
BARBÍ-SKÓLATASKA,
ásamt peysu og nestisboxi,
er í óskilum í Heklu. Upp-
lýsingar í síma 590 5050.
Dýrahald
Læða í óskilum
SVÖRT og hvít læða, með
hvíta rák á snoppu fannst
við Lyfju í Lágmúla. Hún
er mjög gæf og er með
rauða ól, en ómerkt. Þeir
sem kannast við kisu hafi
samband í síma 895 1607.
Tvær læður týndar
í Grafarvogi
ÖNNUR er gul og hvít með
rauða ól en ómerkt og hin
er bröndótt með svart und-
ir loppum, ómerkt. Þær
týndust í Engjahverfi í
Grafarvogi sl. fimmtudag
eða föstudag. Þeir sem hafa
orðið varir við kisurnar vin-
samlega hafi samband í
síma 849 4100.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Lán á bifreiðum
algengt
Morgunblaðið/Arnaldur
LÁRÉTT
1 sérstakt spil, 4 hrista
ryk úr, 7 loðskinns, 8
hæglát, 9 bekkur, 11 vítt,
13 kaup, 14 slétta, 15
listi, 17 samsull, 20 bók-
stafur, 22 hittum, 23 end-
urtekið, 24 ernina, 25
haldast.
LÓÐRÉTT
1 konungur, 2 hnöttum, 3
afturendi, 4 drumb, 5
sjór, 6 skynfærin, 10 fljót,
12 greina frá, 13 tónverk,
15 yrkja, 16 nagdýr, 18
orðrómur, 19 sortna, 20
kveina, 21 blautt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sumardaga, 8 kutum, 9 púlar, 10 upp, 11 lærir,
13 ansar, 15 gruns, 18 smíða, 21 vit, 22 sadda, 23 ættin,
24 rassbagan.
Lóðrétt: 2 urtur, 3 armur, 4 doppa, 5 gulls, 6 skel, 7
hrár, 12 inn, 14 nem, 15 gust, 16 undra, 17 svans, 18
stæla, 19 ístra, 20 anna.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16